Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.08.2004 at 04:14 #505234
"Hefði einhver hringt í 112 með sömu upplýsingar og voru þarna á ferðinni hefði aldrei verið sett af stað nein leit.
"Afhverju segirðu það?
07.08.2004 at 15:51 #505226Afhverju er það fáránlegt?? Það eru fyrstu mín/klst sem skipta sköpum þegar einhver er í miklum vandræðum. Ég hugsa það að þú yrðir ekki sáttur ef að þú héngir á jeppanum þínum á hvolfi í einhverri hengju og löggan væri að eyða tíma í að fletta upp í þjóðskrá til að athuga hvort þú værir til og hringja svo í mömmu þína og sprurja hvort þú værir lygin að eðlisfari.
28.07.2004 at 19:04 #505164Ertu búin að prufa að pumpa kúplinguna aðeins áður en þú reynir að setja í gír. Ónýtar fóðringar í kúplingsdælu gætu skýrt það að hann fari erfiðlega í gír og það skralli í bakkgírnum.
27.07.2004 at 03:58 #505106Þar sem þú virðist vera búin að gramsa manna mest af okkur pajero eigendum í þessum bílum kanski þú getir svarað þessu:
Afhverju blikkar CD/Lock ljósið hjá mér í 2H og 4H?
26.07.2004 at 01:02 #50508026.07.2004 at 01:00 #50507826.07.2004 at 00:59 #50507625.07.2004 at 15:25 #505044Þetta getur verið allt á milli himins og jarðar en ódýrast er að byrja á því að kaupa nýtt lok á vatnskassann. Ég veit til þessa að menn hafi verið búinir að skipta um allt og gera og græja en notuðu alltaf sama ónýta vatnskassalokið sem hleypti út öllum þrýstingi.
24.07.2004 at 16:30 #505030Brettakantar kosta alveg hrúgu af seðlum. Verðin sem ég hef verið að heyra eru frá 60þús til hundrað og eitthvað ÓMÁLAÐIR. Svo á eftir að mála fyrir lágmark 30 þús á þokkalegu verkstæði og skera og snikka.
20.07.2004 at 23:15 #504906Veit einhver hvort þetta verður turbo vél eða ekki?
20.07.2004 at 16:59 #504822olafurg:
Hvar skynjaðir þú öfundsýki út úr skrifum mínum!!!
Ef það er eitthvað sem fer endalaust í taugarnar á mér hérna á spjallinu þá er það þegar menn þurfa alltaf að blanda einhverri öfundsýki inn í málið þegar hlutirnir eru ekki svoleiðis. Farðu að finna eitthvað annað orð til að slengja fram þegar þú veist ekki hvað á að segja.
Ég stórlega efast um það að siggijons og JÞJ þjáist að einvhveri öfundsýki heldur afþví að einhver er að kaupa nýjan bíl eða stærri dekk en þeir eru á.
Ég er fyrir mína parta mjög ánægður að BSG sé að kaupa Toyotu og að vera fyrstir til að breyta 120 krúser á 44", og mjög ánægður að flestar björgunarsveitir á landinu séu á alment góðum bílum. En það er ekki þarmeð sagt að ég sé sáttur við alla sem eru í björgunarsveitum og nú þekki ég þó nokkra og þar á meðal Elvar.
Reyndu svo að lesa yfir póstana.
19.07.2004 at 21:09 #504802Þú ert nú einusinni í þessu 1% í mínum bókum.
19.07.2004 at 20:43 #50479699% af þeim eru ekkert nema skátar með bílpróf.
19.07.2004 at 13:29 #504788Til hamingju með vagninn en það er samt eitt sem mér finnst vanta í hann.
[img:1aiery67]http://www.siemensappliances.co.uk/graphics/TK64001GB_new.jpg[/img:1aiery67]
19.07.2004 at 02:32 #504868Það skýrir samt ekki kenninguna um aukið álag á milli kambs og pinion. Til þess að valda spennu þar á milli þarf annað hvort allur carrierinn að skekkjast eða pinioninn.
Endilega sendið mér sama hárlit og þið notið
19.07.2004 at 02:26 #504900Þessar tölur minna mig bara á gamlan hilux diesel. Gamla vélin í þeim skilaði 74hö og 155nm í tog.
Jæja kemst þó hægt fari.
Kv.
Stebbi
17.07.2004 at 15:25 #486946Er ekki komin tími til að setja upp Heimasíðu undir þetta?
17.07.2004 at 15:10 #504860Ég er nú enginn bifvélavirki en ég veit það þó að ástæðan fyrir mismunadrifi í bílum er sú að leyfa hjólunum að snúast mishratt án þess að setja spennu á drifin. Einmitt til þess að geta beygt. Þeir sem eru með No-Spin að aftan þekkja þetta vel og eru reglulega minntir á þetta í kringluni og öðrum bílastæðum.
17.07.2004 at 13:11 #504880Kærar þakkir Slóðríkur það hlaut að vera að þú vissir þetta.
17.07.2004 at 03:11 #194551Veit einhver fjallagarpurinn hvort að það sé einhver slóði á milli vegsins á Arnarvatnsheiði(F578) yfir á Kjöl?
-
AuthorReplies