Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.01.2005 at 23:25 #480002
Ef hann er eldri en ’85 þá gæti verið blöndungur í honum annars er hann 2.4 EFI. Þetta hljómar eins og að háspennukeflið sé að stimpla sig út. Það lýsir sér einmitt þannig að hann hættir að ganga á öllum og verður hundleiðinlegur og svo á endanum deyr á honum og hann fer ekki aftur í gang fyrr en að háspennukeflið hefur kólnað.
02.01.2005 at 23:20 #512200Og hvað vefst þá fyrir mönnum????? Er þá ekki bara um að gera að setja hásingu undir fjósið.
02.01.2005 at 22:00 #512076Myndasíðan minkar sem sagt myndirnar í 640×480 en setur ekki hámarksþjöppu á þær. Er það ekki rétt skilið hjá mér?
Gott að sjá Einar að þú ert ekki búin að gleyma Castor og félögum, rétt að skvetta smá bensíni á eldinn í tilefni af nýju ári.
02.01.2005 at 17:01 #5120701. Myndin er smækkuð/stækkuð í þá stærð sem talin er æskileg til birtingar á vefnum.
2. Á myndina er ritað "old.f4x4.is".
3. Búið er til minna afrit af myndinni. Á það afrit er ekkert ritað.Ég geri passlega ráð fyrir því að liður númer eitt sé ekki að virka í þínu tilfelli.
02.01.2005 at 16:58 #512068Ég fór að skoða mitt albúm og ég skil ekki hvernig þú hefur fyllt þitt á 12 myndum.
Þetta kom hjá mér:
"Albúmið þitt inniheldur samtals 81 myndir og er 4.544.959 bæti að stærð (hámark 5.000.000 bæti)"
31.12.2004 at 14:07 #511368[img:257fwpv0]http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/images/61-1453-9076.jpg[/img:257fwpv0]
Það er ekki mikið pláss eftir þegar þetta er komið ofaní og fyrir utan það að vatnskassinn þarf að vera fyrir framan grillið.
Settu í hann dísel og vertu ekki að þessu rugli.
30.12.2004 at 21:31 #512032Tek undir með KristinnM með það að loka ekki á auglýsingar frá utanfélagsmönnum. Með því að gera það þá munu auglýsingarnar drepast niður því að það er alveg vel helmingur af auglýsingunum frá utanfélagsmönnum og það sem þeir selja kaupa væntanlega félagsmenn og svo öfugt.
30.12.2004 at 12:37 #511916Miðað við þessa staðhæfingu þá hefur maðurinn farið með bílinn heim á vörbílspalli og ekki notað hann meira þetta þungaskattstímabil.
30.12.2004 at 09:25 #511928Þá á ég við 4-runner í góðu lagi. ca. 15-20 lítrar.
Skrifað án ábyrgðar!!!!!
30.12.2004 at 08:17 #511924Eflaust er eyðslan ekki ósvipuð og á V6 4-Runner
30.12.2004 at 07:45 #511976Ef að þú hefur verið fljótari en 38" bílarnir þá er hún greinilega nóg fyrir þig. Það fer að vísu mun meira loft í 38" dekk en 35". En miðað við lýsingarnar ætti hún að duga þér.
30.12.2004 at 07:42 #5119862 tonna Pajero á 35" BFG með 25psi að öllu jöfnu. Ef það er mikill snjór á götunum þá lækkar maður í 18-22psi.
29.12.2004 at 17:32 #507170Var að sækja bílinn og allur frágangur virðist vera mjög góður. Vona að ég fái sömu reynslu og þú Snöfli. Eftir ferðina heim get ég ekki sagt að ég hafi fengið einhvern haug af hestöflum í pakka frá skítmixinu sem var undir honum sem var orginal í 2.5" og svo 3" aftast. En það er eflaust að það vantar hávaðann og sálrænu hestöflin.
29.12.2004 at 11:04 #507164Ég ætla að fara leggja allt mitt traust á Pústþjónustuna Ás á eftir. Ég er ekki tilbúinn að gera það við Einar aftur fyrr en hann fer að nota almennilegt efni í pústin hjá sér, en hann er snilldar smiður. En verðin sem hann gefur upp í síma standast yfirleitt aldrei þegar er komið að því að borga, alltaf eitthvað + vinna og + skattur. Kanski er það bara ég en mér finnst lágmark að fá að vita hvað ég þarf að borga áður en ég kaupi hlutinn.
Það að 2L og 2L-t brjóti grein og suður er bara spurning um að festa pústið undir bolta við gírkassahringinn eins og það kemur original. þá leggst ekki allur þungi pústsins á suðurnar við túrbínuna.
29.12.2004 at 04:08 #511844Þú ert væntanlega að meina Úlfarsfell hérna á milli Reykjavíkur og Mosó.
29.12.2004 at 00:57 #511360Ef þú ert sami Snorri og ég held þá keypti ég af þér ’84 hilux, bláan á 36" fyrir allmörgum árum. Og ef svo er þá erum við soldið skyldir því ég á eitthvað af frændfólki á hólmavík. Ein frænkan heldur sig til í Snæfelli.
P.s
Er ekki skyldur Danna Sull bara svo það sé á hreinu.P.ps
Alls ekki skyldur Danna Sull
26.12.2004 at 22:04 #511742………og eitthvað er nú búið að liggja undir honum, kominn með staurfætur undan gömlu Bronco fjósi.
26.12.2004 at 22:02 #511740Þetta kemur nú úr hörðustu átt frá Wagoneer eiganda.
25.12.2004 at 00:43 #511624Þú færð ekki þessi hlutföll í D-44 þannig að þú verður að skipta út báðum hásingum. Svo þarf líka að fá fastan flangs í millikassann og annan draglið fyrir framskaftið því að dragliðurinn er í millikassanum á L-200. (á endnum á skaftinu millikassa megin)
Kaninn hefur verið að nota wagoner hásingar að framan og aftan í gömlu pajeroana.
24.12.2004 at 01:02 #511452Þú verður að fyrirgefa mér að hafa ekki lesið yfir hvern einasta póst áður en ég koma að þínum en þessi setning stóð svo útúr öllu öðru. Þetta heita forhitarar og oft kallaðir olíufýringar ekki MIÐSTÖÐ. Eftir að ég skoðaði betur þá sá ég um hvað þú varst að tala og finnst mér þá upplagt að þú setjir smá Prozac yfir Korn flakes diskinn og róir þig í því að kalla menn fávita og fífl. Þú hefur greinilega ekki fengið gott uppeldi og finnst mér að þú eigir að fá kartöflu í skóinn í nótt.
Jólasnjóskveðja
Stebbi sem ætlar að kaupa Webasto forhitara á ebay á nýju ári.
-
AuthorReplies