Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.12.2009 at 12:53 #670130
Athugaðu hjá WURTH, þeir áttu alltaf bestu gulu halogen perurnar í den.
04.12.2009 at 00:53 #669990Ég hugsa að það þyrfti eitthvað að eiga við þetta til að fá felguna inní 14"-18" breyðar jeppafelgur. Er ekki mikið nær að fá sér bara spil.
Annars sá ég annað þarna á http://www.going4wd.com sem mér fannst sniðugra og það var lok á bensínbrúsa með loftinntaki til að dæla uppúr brúsanum.
[youtube:19grbjrl]http://www.youtube.com/watch?v=ZCOVCKl_-E8[/youtube:19grbjrl]
01.12.2009 at 20:57 #669574Það er spurning hvort að það gæti passað úr bensín rocky í gamla bensín hiluxinn. Ef að það er 3Y í Hiluxinum eins og var í mörgum gömlum dobblurum þá gæti hugsanlega gengið millikassi eða gírkassi og millikassi úr 2.0 Rocky. En þú ert þá með úrtakið aftanúr honum til hliðar og drifið í miðjuni.
27.11.2009 at 13:27 #667458[quote="grimur":23nc0lpn]Sumir sleppa líka að skipta um hana við kúplingsskipti, sem er algert fúsk.[/quote:23nc0lpn]
Það veldur því líka með tímanum að fremsta burðarlegan í kassanum fer að syngja, þeir sem hafa átt nokkra gamla hiluxa þekkja þennan söng vel.
25.11.2009 at 19:43 #667434Eins hefur líka blætt meðfram stimplinum í kúplingdæluni þegar þetta er orðið svona gamalt. Þá fær maður ekki fullan þrýsting á þrælinn og svo minkar hann róóóóleega þar til að bíllinn skríður af stað.
25.11.2009 at 19:37 #668534Þetta er örugglega bara venjulegur hitaþráður sem nær ákveðnum hita og heldur honum. Svo er aftur á móti spurning hvort það sé eitthvað stýribox sem slekkur á honum með vissu millibilií Galantinum. 6 tengin í rofanum eru örugglega póll, HI, LOW, jörð og svo sitthvort ljósið.
Þó að toyota hafi heppnast vel með að gera endingargóða bíla þá hafa þeir aldrei getað framleitt sæti sem hægt er að sitja í til lengdar. Það geta nágranar þeirra afturá móti hjá Mitsu.
24.11.2009 at 13:02 #668298Þetta er búið að vera til sölu á ebay lengi en þá þarftu að fá einhvern með álsuðu til að loka gatinu fyrir þig.
[url=http://cgi.ebay.com/ebaymotors/doubler-crawlbox-NP-231-box4rocks-kit-jeep-Klune-V_W0QQcmdZViewItemQQhashZitem2557748036QQitemZ160381042742QQptZMotorsQ5fCarQ5fTruckQ5fPartsQ5fAccessories:l4e8wqkg]Ebay síða með breytisetti[/url:l4e8wqkg]
23.11.2009 at 21:21 #668292Ekki hægt, þetta eru álkassar og opnast á miðjum keðjukassanum. Ertu ekki að tala annars um kassa úr litla cherokee?
18.11.2009 at 21:24 #666966[quote="Hauxon":2d3khluu]Spurning með hluti eins og opið púst, verður bíllinn ekki leiðinlega hávaðasamur?
Kv. Hrannar[/quote:2d3khluu]
Ekki varð ég var við það hjá mér, maður verður aðeins var við smá hljóð aftanúr bílnum á vissum snúning undir vissu álagi en ekkert sem pirrar mann. Ég er með eina túbu aftarlega á pústinu rétt fyrir framan afturhásingu og endan beygðan niður. Ég vill meina það að beygjan á endanum hjálpi mikið til. Annars eru flott hljóð í þessum vélum með opið púst, mun flottari og óþvingaðri en í 2.8 bílnum.
18.11.2009 at 08:57 #666862[quote:1od0vi7e][i:1od0vi7e]The Ranger was introduced in mid-1982 for the 1983 model year and had an available 4-cylinder 59 hp 2.2 L Mazda/Perkins diesel. In 1985, a Mitsubishi-built 2.3 L turbodiesel with 86 hp replaced the Mazda diesel engine. The diesels were no longer an option after 1987.[/i:1od0vi7e][/quote:1od0vi7e]
Fann þetta á therangerstation.com þannig að 2.5 vélin ætti að passa beint í húddið en það er alltaf spurning um mótorfestingar.
18.11.2009 at 07:56 #666962[quote:2gv36aas]Það er lygilegt hvað 2,5" púst gerir fyrir þessa vél. Túrbínan kemur fyrr inn og vinnslan verður allt önnur. Svo er gott að fá sér boostmæli á túrbínuna og auka síðan boostið í henni smávegis.[/quote:2gv36aas]
Þetta er alveg rétt hjá Haffa, að setja 2.5" opið púst án hljóðkúts gerir lygilega mikið fyrir vélina. Þú græðir nánast einn gír í brekkum eins og Kömbunum. Svo er Boost mælir alveg skilyrði því að það er ekkert víst að þú sért að fá fullan þrýsting eins og er, samkvæmt Mitsu gamla þá má 2.5 vélin fá 13-15psi áhyggjulaust.
17.11.2009 at 19:28 #666950[quote:mntq3m4x]1995 árg er með 5:29 ef hann er sjálfskiptur en 4:88 minnir mig ef hann er beinskiptur[/quote:mntq3m4x]
Það er akkúrat öfugt.
17.11.2009 at 07:30 #666944Það er ekki alveg svo einfalt, 2.8 er með 4.88 ef hann er SSK en 4.92 ef hann er BSK. 2.5 bíllinn er með 4.88 ef hann er SSK en 4.88 eða 5.29 ef hann er BSK en það fer eftir árgerðum. 2.5 Bílar ’97 og yngri eru í flestum tilfellum með 4.88.
16.11.2009 at 07:29 #666858Litli Rangerinn er með svoa mitsu/mazda vélasetti. Sama og í B2500 og L200
12.11.2009 at 21:13 #666414Mér dettur þrennt í hug sem kæmi til greina, háspennukeflið gæti verið ónýtt, TPS eða Loftfæðiskynjari, vatn eða önnur drulla í bensíninu.
Í flestum bílum ætti að kvikna Check engine ljós ef að einhverjir skynjarar fara að gefa feil en það er samt ekki gefið. Ef þú gúgglar aðeins þá ættirðu að finna hvað á að mælast yfir TPS skynjara og Loftflæðiskynjara með einföldum rafmagnsmæli. Það er ókeypis.
09.11.2009 at 18:14 #665714[quote:1zce2k9p]Hættið þessu skítkasti og farið nú að ferðast aðeins, það léttir á sálinni.
Ótrúlegt að fólk skuli geta snúið heilu og hálfu þráðunum uppí eitthvað kjaftæði í stað þess að reyna að koma með einhver skilaboð af viti.[/quote:1zce2k9p]Þegar menn gefa út svona veiðileyfi á sig eins og þú gerðir Samúel, þá er ekki hægt að sitja á sér, kanski hefði mátt fylgja þessu broskall til að taka af allan vafa um skítkast og illmensku.
Annars er það þannig með dekkin að það er eins og mig minni að menn hafi sárast kvartað undan því að það væri ekki hægt að hleypa úr þessu vandræðalaust, lyfta miðjuni og keyra á köntunum. Persónulega myndi ég ekki kaupa svona dekk sem vetrardekk þar sem að þetta mynstur gefur ekki besta gripið í bænum.
P.s
Ek um á 38" Mudder á 2 tonna bíl og dríf allt og aðeins meira en það.
08.11.2009 at 21:14 #665794Svona er nú bara Ísland í dag, ég myndi ekki búast við því að finna þetta ódýrara en 25-30þús þessa dagana. Sem dæmi þá keypti ég svona fyrir hrun með stóra vina vina starfsmannaafsláttinn í jeppasjoppu hér í bæ á 17.000.- og þótti það gott verð.
Mig minnir að svona lagað fari á um 200 USD á ebay þannig að það er ekki valkostur heldur.
08.11.2009 at 21:09 #665760Googlaðu þessar vélar eða kíktu á wikipedia.org og lestu aðeins um þær. Hestaflatalan er talsvert breytileg frá 97 til 04 alveg frá 231 til 300 hö og þá líka mismunandi eftir því í hvaða bíl hún er. 2004 ætti að vera með 300hö 5,4 vélini en 4,6 bíllinn er um 260 frá 97 og upp í F-seríuni.
[url=http://en.wikipedia.org/wiki/Ford_Modular_engine#5.4.C2.A0L:3cgo6gwf]Wikipedia Grein[/url:3cgo6gwf]
08.11.2009 at 20:56 #665700[quote:289a5jya]Ef ég neyddist ekki til að vera á 44" sökum þyngdar [i:289a5jya][b:289a5jya][color=#FF4000:289a5jya](jeppinn er nánast rúmlega 2 tonn)[/color:289a5jya][/b:289a5jya][/i:289a5jya][/quote:289a5jya]
Eru menn enþá að tína sveppi eða bara að klára gamlar birgðir?
08.11.2009 at 20:52 #665782Með smá gúggli þá fann ég þetta á einhverju turbo spjallborði
[quote:2tpdex2x]@Turbeam: I’ll checked some numbers and You’re right! It’s from Mitsubishi Shogun/Pajero. TD04-11G was also used in BMW 2.5TDS, Opel/Vauxhall Omega 2.5TDS and Range Rovers. It’s popular turbocharger [/quote:2tpdex2x]
Ertu með 2.8 Pajero ?
-
AuthorReplies