Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.02.2006 at 23:18 #541700
Að mínu mati eiga myndir með auglýsingum ekki að fara í myndaalbúmið. Þær ættu að hafa sama gildistíma og auglýsingarnar sjálfar og eyðast út með þeim. Með þessu sparast pláss og skipulag er betra á myndaalbúminu.
06.02.2006 at 23:14 #541646Ég get ekki séð að Chevy 305 og AMC 304 séu að gera eitthvað meira. Ef að menn vilja ekki fara í stærri vélarnar þá er það 289, 302 eða 305 sem valið er um.
06.02.2006 at 20:26 #541402Það er kanski ágætt fyrir tuddann að svona fór á miðað við í hvað stefndi í þræðinum um færð á lyngdalsheiði.
06.02.2006 at 12:48 #541634Eins og þetta hljómar ofureinfaldað hjá Ragga þá gengur þetta upp. Þú mátt alveg gera ráð fyrir því að 302cid í Willy’s sé að fara með að lágmarki 15L/100km ef hann er 1500kg.
06.02.2006 at 12:33 #54111416 metrar er sú lengd sem ég hef oftast heyrt. Stendur líka á góðri tölu þegar kemur að budduni, ekkert klink í afgang. Ég er með minnir mig 22mm spotta í þessari lengd og það er eins og að draga með rjóma.
Dráttarkrókurinn úr pæjuni losaði víst upp suðu og annað afturljósið úr stuðaranum en það er ekkert sem má ekki laga.
05.02.2006 at 01:34 #541576Þú hljómar eins og stoltur eigandi af drifmesta Rav-4 á Íslandi.
04.02.2006 at 01:44 #541430Það ætti að vera löngu búið að banna þetta. Gjörsamlega ástæðulaust að hafa innkaupakerruna á nöglum þegar allt er saltað til helvítis.
04.02.2006 at 01:37 #541458Passa sig Kalli, þú veist aldrei nema að þú verðir gerður útlægur.
04.02.2006 at 00:54 #541376Hvort er betra að loka á 2 aðila sem eru rót vandans eða á alla þá sem svara þeim ?
Ég get ekki séð að þetta sé nein spurning séð útfrá hagsmunum vefsins.
03.02.2006 at 20:32 #541452Er þetta ekki 3.0 patti? Er frágangurinn á slefi ekki eitthvað öðruvísi á þessum DID vélum heldur en á venjulegu olíuverki.
03.02.2006 at 19:43 #540992Hverjir eru það sem eru útilokaðir frá spjallinu.
03.02.2006 at 00:36 #541104Bíllinn slapp alveg hjá honum held ég, hefur allavegna ekkert minnst á neitt.
02.02.2006 at 23:48 #541100Þektirðu ekki sauðasvipinn á honum Klemmi ????
Bazzi, hann kom með afþví að hann er að vinna með Sveinbirni.
02.02.2006 at 23:04 #541094Hvernig var það kom ekki lítill sætur pajero til bjargar þennan dag klemmi. Svo lítill að það rifnaði á hann nýtt rassgat þegar hann kippti í.
02.02.2006 at 21:37 #541082Ég skipti við heklu einfaldlega útaf því að ég fann enga toyotu á því verði sem ég var að leita af. Og mig langaði til að prufa eitthvað nýtt. Ég hef einu sinni þurft að fara þangað að kaupa varahluti og hef svosem ekki mikið útá það að setja. Ef ég hefði fengið jafn gamlan 4-runner diesel áður en ég fann bílinn sem ég á í dag hefði ég keypt 4-runner.
En afhverju er þetta svona mikið hitamál hjá þér að drulla yfir Toyota ?
02.02.2006 at 20:39 #540914Ég átti ekki von á því að það sæi högg á vatni þar 😉
02.02.2006 at 19:57 #541230Þeim máttlausari sem hann er, þeim meira reynir á ökumanninn. Það hafa allir gott af því að vera aðeins á jeppum sem geta ekki "tekið það á ferðinni" endalaust.
02.02.2006 at 19:51 #541078Lang besta bílaumboð á Íslandi og víðar. Ef að það vantar varahluti eða aukahluti þá eru þeir nánast undantekningarlaust til og á mjög samkeppnishæfu verði á við Bílanaust, Stillingu og fleiri. Í flestum tilfellum borgar sig ekki að skoða annarstaðar.
Nú hef ég ekki farið inn í hin umboðin í soldin tíma en ég er nokkuð pottþéttur á því að besta kaffivélin er á Nýbýlaveginum. Svo eru þeir líka með þjónustuver sem ég held að enginn annar sé með.
01.02.2006 at 20:09 #540778Eftir því sem ég fékk útúr þessari reglugerð þegar ég lagðist í hana fyrir 2 árum þá er þetta mjög loðin skilgreining á milli [i:wkyzc34w]aukahá-ljós[/i:wkyzc34w] og utanvegakastara. Ég fæ ekki betur séð en að maður ráði því sjálfur í hvaða flokk þetta fer þegar maður tengir. Auka-háljós eiga að vera í sömu hæð og aðalljós og kvikna með háuljósum og svo eitthvað mumbo-jumbo ef það eru 2 pör. Og það eru ljósin sem verða að vera fyrir framan ökumann.
Man ekki að það hafi verið neitt um jeppakastarana sem n.b verða að vera með hlífar á í byggð sem segir að þeir verði að vera framar en ökumaður.
Svo viðist enginn gera athugasemd um hvort glerið er skorið eða óskorið í kastaranum.
01.02.2006 at 19:51 #541044Það á bara að smyrja hlutina saman ekki dæla feiti þangað til að það kemst ekki meir. Of mikil feiti stífir upp lokuna og veldur því að hún jafnvel læsir ekki.
En hvernig er það er ekki hægt að fá AISIN lokur á patrolinn? Það eru að mínu mati einu almennilegu lokurnar. Ekkert plast eða önnur gerfiefni bara málmar.
-
AuthorReplies