Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.04.2006 at 12:09 #548452
Ég gerði þetta við augablað að aftan í gamla dobblaranum mínum. Það var ekkert mál og hékk í einhvern svipaðan tíma og rúnar talaði um.
Svo eru þetta völsuð flatjárn ekki pottstál þannig að það þarf ekkert að hita þetta og pakka í ull, en þegar þetta gefur sig aftur þá er það hliðina á suðuni og frekar vonlaust að reyna aftur.
01.04.2006 at 22:53 #548174Ég ætla gera tilraun með að keyra 50/50 á diesel og steikingarfeiti í sumar. Ef að það viðrar þokkalega þá ætti ekki að vera vandamál með að þetta þykkni mikið. Ef að það gengur upp þá er maður kominn á mun skárra verð en er í dag.
BioDiesel kveðja
Stebbi
26.03.2006 at 23:05 #547454Þetta er langbesta hugmyndin sem komið hefur. Loka í Örfysey, þá komast ekki gróðapungarnir til að fylla á stöðvarnar. Þá bitnar lokunin ekki á saklausu fólki strax.
Á ekki einhver þokkalega stóra skurðgröfu til að taka í sundur veginn þarna.
Já og fylla bílastæðin hjá þingmönnum af olíutunnum. Þá kanski færu þeir að ræða þetta aftur og slá af skattinum.
26.03.2006 at 00:22 #547396Nú skeistu uppá bak Haffi, en samt skiljanlegt að tengja svona tuð við nafnið Einar.
25.03.2006 at 15:46 #547318Ég skil alveg hvað þú ert að fara með þetta, er tækjaóður með meiru sjálfur. En ég færi samt ekki svo langt að víra ljós og annað í bílnum inná tölvu sem getur auðveldlega stimplað sig út.
En sniðug pæling samt með að stjórna loftpúðum með þessu, einhver sem er nettur í forritun gæti búið til svona ‘active’ loftpúðakerfi.
25.03.2006 at 11:15 #547314[i:121izcu4]"Svo má auðvitað nota þessar tölvur í meira, sérstaklega þar sem maður myndi fasttengja þær. Svo maður gæti skrifað forrit til að stýra ljósum, loftpúðum, úrhleypibúnaði og allt mögulegt 😀
"[/i:121izcu4]Enska orðið ‘Overkill’ kemur strax upp í hugan þegar maður les þetta. Ég er í það minsta sú týpan sem vill hafa bílana eins einfalda og hægt er að sleppa með. Lágmarks rafmagnsvesen og helst allt manual.
24.03.2006 at 00:34 #547288Hversu mikill hluti af þessu var hagnaður af tryggingum ???? Hef heyrt það að hagnaður tryggingafélaga af vátryggingum sé ekki mikill, þess vegna fara þau í aðrar fjárfestingar til að græða.
Fyrir þessum gaurum eru tryggingarnar sjálfsagt bara andlitið útávið og svo græða þeir á hlutabréfa og fasteignabraski á bakvið tjöldin.
22.03.2006 at 02:14 #547198Það voru þvílíkar hótanirnar hérna í gær um lögreglu og kærur í upphafsþræðinum. Synd að þú skulir ekki hafa séð það Þórir því þá hefði þetta verið skrautlegasta lesning. Og svo er kallinn bara búin að breyta þessu.
21.03.2006 at 16:25 #547192Ég er rosalega forvitinn þar sem ég las þennan póst seint í gærkvöldi afhverju þessi pólskipti hafa átt sér stað.
Í gær var þetta lögreglumál með einhverjum rosalegum SMS skilaboðum. Gæti verið að þið feðgarnir hafið náð einhverjum sáttum.
21.03.2006 at 02:21 #546984[img:18sagtix]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/301/4938.jpg[/img:18sagtix]
Þeir eru bara svo andskoti duglegir þessir að þeim munar ekki um einn patta eða svo í bandi.
Kemst þótt hægt fari.
15.03.2006 at 00:36 #546298…upplýsingarnar þarna þá er MonoMax sérstaklega hannaður fyrir jeppa og er eins og stendur Heavy Duty.
Kanski finnurðu engan mun hver veit.
14.03.2006 at 00:06 #546106Ég neita að trúa því að Séra Snæland gangi með þetta ógeðslega bindi.
13.03.2006 at 17:41 #546282í Pajero koma frá KYB.
12.03.2006 at 22:50 #546258Kíktu í Íhluti í Skipholtinu þeir eiga gott úrval af rofum. Þú þarft enga spes 12V rofa, nánast allir þessir rofar eru gefnir upp fyrir 250V spennu og yfirleitt 6-10A. Það er straumþol snertunar sem skiptir máli.
11.03.2006 at 22:33 #545848Það er ástæða fyrir því að það fer ekki hver sem er í sprungubjörgun. Ekki bara einhver björgunarsveitadúddi með band og hjálm.
05.03.2006 at 21:59 #545338Þetta er kauði
05.03.2006 at 01:12 #545494[img:3okfu711]http://www.siv.is/myndir/myndamappa/imd_2697.jpg[/img:3okfu711]
[i:3okfu711][b:3okfu711]"Hvar á þetta gula eiginlega að fara"[/b:3okfu711][/i:3okfu711]
05.03.2006 at 00:16 #545526Þá eru við að skjóta á ca. 413 fet-pund.
04.03.2006 at 23:31 #545212Það þarf stundum að gefa kokhraustum Íslendingum smá kjölfestu til að draga þá aftur niður á jörðina. Við erum engin undantekning.
P.s.
Hvoru megin er númer 3 í götuni, við Heiðmörk eða Hverahlíð ?
04.03.2006 at 22:25 #545576Ég fékk fallega sögu af þessum skrúfu og spennubar hjá bílanaust um daginn. Hún var þannig að maður einn gekk inn í Bílanaust og ætlaði að kaupa sér þessar margumræddu spennur, þegar hann athugaði verðið á því sem honum vantaði úr rekkanum þá hvítnaði hann upp og forðaði sér út hið snarasta. Hann náði víst ekki eðlilegu litarhafti fyrr en eftir 3 tíma.
-
AuthorReplies