Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.11.2008 at 10:13 #632006
"Hér er til dæmis bannað að setja Xenon ljós í bíla sem hafa ekki haft þann búnað frá upphafi, nema þú kaupir E-merkt ljós, komplett, sem eru ætluð fyrir Xenon. "
.
.Sjálfsagt það eina gáfulega í þessum reglum.
28.10.2008 at 13:34 #630370enda ekkert ólöglegt við það á meðan það er frosin eða snjóþakin jörð.
28.10.2008 at 09:09 #631832Færð drullusokka hjá Stál og Stönsum á góðu verði, held að þeir séu jafnvel ódýrastir.
27.10.2008 at 21:43 #631820Ef þetta er ekki satt og þarna er ekki komin skáli þá legg ég til að nafninu á honum verði tafarlaust breytt í Gróukot.
25.10.2008 at 16:09 #631480Las í einhverjum manual að þetta væri til að koma umframfeiti í leguni frá, ef þú gerir þetta nógu oft þá tollir róin í 57Nm sama hvort þú snúir eða ekki. Svo herðir maður læsingarróna í 9Nm.
Hef líka lent í þessu með sturlaða jeppaveiki á hiluxhásingu og það bara á 35", það gerðist þegar ég tók stýrisdempara úr og fór prufuhring. Þetta virðist vera mjög krítískur hluti af stýrisbúnaðinum í hilux.
12.10.2008 at 09:30 #631032Ef þú ert með NP millikassa í bílnum þá gæti Klune-V verið sniðugur kostur, bara spurning um verð. Held að hann kosti talsvert minna en Atlas og er smíðaður úr plánetugírum úr NP kassa og er styttri en langflest sem þú getur fengið. Möguleikarnir á samsetningum eru fjölmargir og þeir bjóða uppá 27 og 32 rillu chevy.
[url=http://www.high-impact.net/transmission_and_gear/extreme_underdrive_brochure.htm:8syw8il5][b:8syw8il5]Klune-V Underdrive[/b:8syw8il5][/url:8syw8il5]
12.10.2008 at 09:18 #630940Nú veit ég ekki hvort menn borga daglega af lánunum sínum en eins og hjá mér og langflestum íslendingum þá er næsta afborgun reiknuð rétt fyrir mánaðarmót og ætla ég ekki að fara að missa legvatnið yfir einu eða neinu fyrr en seðillilnn kemur heim.
Hvað veit maður, það eru 20 dagar í næsta seðil og margt getur gerst á þeim tíma eins og við höfum séð á síðustu 12 dögum. Ég hvet fólk til að fara í hanskahólfið á næsta Patrol og fá nokkrar þolinmæðistöflur og taka lífinu með stóískri ró, klappa krökkunum sínum og fara út með hundinn. Hingað til hefur ekki verið hægt að laga neitt með móðursýki.
11.10.2008 at 21:39 #631004Ótrúlegt þegar að nýliðar fá að taka þátt í svona og fá að flytja grill og stóla og annað drasl fyrir stóru strákana, að fjarlægja ekki vörubílinn fyrir sýningu. Þegar að þessi kom fyrir vitin þá uplifði maður sig eins og á landbúnaðarsýningu. Engin 54" og ekkert búið að breikka boddý.
[img:3epuips5]http://is.oskarandri.com/jeppasyning/content/bin/images/large/_MG_4515.jpg[/img:3epuips5]
08.10.2008 at 22:19 #630854Það passar ekkert af AMC á Mopar og það er mun verra að fá performance hluti á góðu verði í AMC, að minsta kosti hérna heima.
07.10.2008 at 09:15 #630324Voðalega verða menn alltaf jafn viðkvæmir þegar að er farið að ræða hvað bílarnir eyða. Ef að bíll hjá einhverjum er að eyða 13-15 og þinn bíll eyðir 20+ við svipaðar aðstæður er þá ekki frekar ástæða til að endurskoða akstursmátan eða opna húddið heldur en að níða skóinn af viðkomandi manni.
Mér finnst persónulega ekkert ótrúlegt að lítil V8 vél sé að ná 13-15 í rólegri langkeyrslu, það er engin áreinsla og lár snúningur sem gefur mönnum möguleika á því. Annað en 4cyl díselrellur sem eru með gjöfina í teppinu og endalausa áreynslu, samt eiga svoleiðis bílar að vera "alltaf" í 12 á hundraðið að sögn eigenda. Nú á ég bæði 4cyl díseljeppa og 8cyl Jeep og vel ég frekar bensínhákinn ef ég er að skreppa út á land vegna þess að það kostar minna.
05.10.2008 at 11:02 #630470"Þannig að maðurinn sem keyrði aftan á þig er í 100% rétti og getur sótt sitt mál gagnvart þér miðað við skemmdir á bílnum hjá sér"
Tryggingarnar á rauðu númerunum ættu væntanlega að dekka tjónið á bílnum sem keyrði aftaná, svo er spurning hvort tryggingafélagið geri kröfu á hjóleiganda þar sem hann var ekki í braut. Annars hefur það staðið í umferðalögum í mörg ár að torfæruskráð tæki mega fara styðstu leið á milli staða, svo er það spurning um túlkun á "styðstu leið".
04.10.2008 at 09:38 #630390Fini dælurnar taka töluvert mikin straum, 65A minnir mig og svo þegar þær fara að slappast og hitna þá eykst bara þessi straumnotkun. En þær eru tvímælalaust bestu 12V loftdælur sem þú færð þegar er tekið tillit til verðs og afkasta.
26.09.2008 at 21:06 #629868Held að munurinn sé aðalega í því hvort þú ert með gamla Dogde, AMC eða Chrysler. Eftir að Chrysler kaupir Jeep og AMC hættir þá er ég nokkuð viss um að þetta sé af sama færibandinu. Allavegna ganga tjúntölvur og fullt af hlutum saman.
NewProgress kassar eru held ég allir með sama 6 bolta hringinn, eini munurinn er input gírinn sem ætti í flestum tilfellum að vera hægt að færa á milli.
21.09.2008 at 23:04 #629704Það er engin tölva við skiptinguna á 2.5 dísel pajero nema kanski í nýju bílunum, ekkert í þessu gamla.
20.09.2008 at 16:36 #629686Svona tækifæri á ekki að láta frá sér óskoðuð. Þetta gengjuvesen má leysa með skemmtilegum vélarskiptum sem taka nokkrar helgar eða kvöld sem annars færu í sjónvarpsgláp. Sjúksúkí hefur komið vel út með afdala gömlum volvo vélum en þar sem við búum á 21 öldini gæti verið sniðugt að koma 2.4 hilux eða 2.5 pajero turbo oní svona fjórhjól.
Vitlausari hlutir hafa verið gerðir og veit ég um pajero sem fór að vera með óhljóð í framhjólabúnaði og því er verið að redda með 302W, C6 og 300 kassa. Verður miklu skemmtilegri bíll eftir viðgerðina á óhljóðunum. Þar losnar 2.5TDI sem er ekin 140þús sem færi fínt í súkkuna.Góðar stundir.
20.09.2008 at 16:23 #629700Hvernig pajero og hvernig L-200 er þetta. Ég myndi halda að skipting úr bensín pajero væri ekki sniðug í díselbíl þar sem það er eflaust eitthvað meira víradrasl í kringum það en ef hún er úr 2.5 dísel þá ætti að vera hægt að grisja lúmið úr pajero og láta það ganga við L-200.
20.09.2008 at 16:20 #629710Sá einu sinni svona kit fyrir 454 og þá var millistykki undir blöndunginum sem þrýstilögnin tengdist við. Þá er í raun blásið undir blöndunginn, en ég sá aldrei hvernig blöndungur átti að fara á gripinn. Grunar að það sem er efst til vinstri á myndini af þessu kitti á ebay geti verið svoleiðis búnaður.
07.09.2008 at 19:32 #629046Djöfull varstu lengi að þessu.
31.08.2008 at 13:19 #628560Hefur það engin slæm áhrif á fjöðrun ef að afstaðan á hásinguni gagnvart stýfum sé þannig að hún sé jafn nálægt festingu neðri stýfu en fjarlægðin í efri stýfu sé orðin 10-12cm lengri. Eða er mesta álagið á neðri stýfurnar kanski.
31.08.2008 at 12:16 #628556Ég er að vandræðast með A-stýfu undir Grand Cherokee að aftan. Festingarnar uppí boddý snúa þannig að boltinn gengur upp í gólfið og gúmmíið er frekar spes þannig að það gæti orðið svolítið mál að færa þær festingar. Hugmyndin var að hækka turninn á hásinguni og færa hann aðeins fram til að þurfa að sjóða sem minnst í bílinn.
-
AuthorReplies