Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.03.2004 at 21:59 #499579
Einn möguleikinn enn er að ef þetta er vél með electróniskri kveikju þá tekur það hana 5 mínútur að búta upp eftir straumleysi. Þannig í fyrsta skipti er að setja straum á, svissa á og vera spakur í góðan tíma áður en startað er.
l.
05.03.2004 at 23:16 #490898Umboðin reikna með sölukostnaði við að selja uppítökubílinn auk einhverjar árgerðarrýrnunar, tryggingar og fjármagnskostnað við að eiga bílinn á söluplani í x mánuði.
05.03.2004 at 23:16 #497480Umboðin reikna með sölukostnaði við að selja uppítökubílinn auk einhverjar árgerðarrýrnunar, tryggingar og fjármagnskostnað við að eiga bílinn á söluplani í x mánuði.
02.03.2004 at 23:48 #497220Mange tak.
Þá ætti hurðalistinn að hanga á Túrbó bíl sonarins.
l.
02.03.2004 at 23:48 #490638Mange tak.
Þá ætti hurðalistinn að hanga á Túrbó bíl sonarins.
l.
02.03.2004 at 23:20 #497222Ég veit að það voru vandkvæði með að fá kanta á hann sem stoppaði menn trúlega með breiðari dekk en 12,5".
l.
02.03.2004 at 23:20 #490640Ég veit að það voru vandkvæði með að fá kanta á hann sem stoppaði menn trúlega með breiðari dekk en 12,5".
l.
02.03.2004 at 23:18 #193902Getur einhver ráðlagt mér með hvað lím/kítti er best að nota til að líma (hurða)lista á bíl.
Ætli það sé ekki gúmmí á lakk.
l.
R-3251
07.02.2004 at 15:56 #492725Adal malid er hvort their uppfylli kröfur vardandi Evropska efnhagssvaedid, sbr. Mussoana um arid.
l.
07.02.2004 at 15:56 #487864Adal malid er hvort their uppfylli kröfur vardandi Evropska efnhagssvaedid, sbr. Mussoana um arid.
l.
31.01.2004 at 14:11 #193618Mér þykir hálf trist að lesa endlaust nöldur um að ekkert sé í boði fyrir minna en 38″ og að menn ættu að borga minna í félgsgjöld.
Nær allt starf félagsins er sjálfboðaliðastarf þar er því engin þarna úti sem ber skylda til að skipuleggja fyrir þig hina eða þessa ferðina og félagsgjöldin fara jú í rekstur skrifstofu, heimasíðu, halda félagsfundi og reka skála.
Ég vil því taka hattinn ofan fyrir JÞJ sem hóf þráðinn 31″ of uppúr… Áhugamannafélög snúast jú um að fólk tekur sig saman og gerir eitthvað skemmtilegt, það að liggja og nöldra úti einhverja aðra innan félagsins skilar ekki neinu.
Það að einhverjir sem eru á mikið útbúnum bílum og með mikla reynslu vilji ekki hafa hvern sem er með er einfaldlega þeirra mál, ekki síst ef um er að ræða fólk sem telur það þeirra skyldu að þeir sjá um þau. Þetta er eins og að skrá sig í KR og heimta að spila með efstu deild.
Það er einkenni góðra félaga að menn sameinast um það sem þeir eiga sameiginlegt (jeppa og ferðamennsku) en ýti því út af borði sem þeir eiga ekki sameiginlegt (31″-44″).
Ekki gleyma að 4×4 er áhugamannafélag en ekki stofnun.
l.
18.01.2004 at 08:49 #484576Keypti á sínum tíma, hitakerti í Nissan hjá AP varahlutum í Kópavogi á hagstæðu verði
l.
09.01.2004 at 21:19 #483720Greinargóð lýsing og jafnvel mynd getur gert kraftaverk.
Eigum við að gera ráð fyrir að þetta sé Kia Sportage eða …
mbk.
l.
08.01.2004 at 23:13 #483674Sæll hef því miður bara hina reynsluna, flutti inn frá Englandi 2,8l. TD í Rocky sem var handónýt en átti að vera ný upptekin. Það var bara fyrir aðstoð VISA Ísland og þá heppni að þeir tóku sannanlega á móti endursendu vélarbrakinu að hægt varð að snúa VISA greiðslunni við.
Tilvísun á traustan aðila er því mikils virði.
mbk.
l.
01.01.2004 at 11:46 #483124Driflokur er útbúnaður sem tengir framhjólin við driföxulinn. Oftast hulsa sem er riffluð að utan og innan sem rennt er inn og tengir þar með driföxulinn við nafið.
Sumar sjálfvirkar driflokur virka, einhverjar als ekki og enn aðrar með reglubundnu viðhaldi. Kosturinn við handvirkar lokur er að vita fyrir víst hvort bíllinn er í lokum eða ekki (ókosturinn að þurfa að fara út).
Ef þú segir hverskonar bíl þú ert á þá gætu mér fróari menn sagt til um hver reynslan af þeim er og hvað þarf að passa.
l.
31.12.2003 at 10:45 #483090Eins og oft er þá er sannleikskorn í þessu öllu saman. Öll hönnun, líka vélar eiga sinn veika hlekk. Eftir við sem meira er reynt á þær (þyngs bíls, aðstæður eða turbo) þá aukast líkur á að þeim mörkum sé náð sem markast af veikasta hlekknum. Það er ekki ósennilegt að sprungumyndun í heddinu sé samt þreytubrot en þá færi saman áhrif af álagi og hversu oft það er. Ál er ekki með eiginlegt þreytuþol eins og stál þannig að það fer einhverntíman undan sveiflukenndu álagi (þess vegna eru þessar reglubundnu skoðanir á flugvélum). Háir álags toppar geta þó haft áhrif á við milljón litla álagstoppa. Menn geta möguelga hjálpað með meferð og góðum kælivökva en á endanum er þetta einhverskonar vogun milli krafts (og ánægju við ða keyra bílinn) og endingar (eða áreiðanleika).
Varðandi 5,7 ltr. þá segir sagan að GM hafi breytt hinum reynda 350 mótor í Diesel, með þeim árangri að kadilakkar og Oldsar lágu eins og hráviði mefram vegum í USA, sem u.þ.b. slátraði hugmyndum þarlendar að færa sig yfir í Dísil.
Sá frétt um jeppaakstur í skíðabrekku barnanna í Árbænum. Ljótt ef satt er og vonandi ekki okkar fólk.
14.11.2003 at 14:49 #480626Jeppi er íslenskun á orðinu Jeep sem varð til þegar menn kváðu að skammstöfuninni JP (hvern anskotan sem það stóð fyrir hjá ameríska hernum). Færðist síðan yfir á léttari fjórhjóladrifs farartæki framleidda af örðum en Ford og Willys. Hefur í raun eingöngu þá merkingu sem menn leggja í það á hverjum tíma. Þannig að þótt mönnunm sárni notkun í auglýsingum, þá er ekki til nein afgerandi skilgreining á orðinu.
12.11.2003 at 21:56 #480274Jæja Hlynur, hvort viltu heita Hlynur hundur eða hundurinn Hlynur?
Mér skilst á þeim bíabúðar benna mönnum að 2,7l. Benz vélin sé á leiðinni
12.11.2003 at 00:21 #480230Hef átt Mússó ’97 og haft af honum ágæta reynslu, þó ekki í snjó enda lítt breyttur. Fer vel með mann og óvenju auðvelt að keyra af þetta stórum bíl þar sem svo vel sést út úr honum.
Ekki laus við smábilanir og ber þannig einkenni af ,,nýjum" bíl sem pilleríið hefur ekki verið þróað úr. Stóra dótið vél hásingar, fjöðrun og kassi stóð sig hinsvegar ágætlega. Þessi bíll er því ekki slæmur kostur fyrir þá sem halda sínum bíl við sjálfir þar sem lágt verð kemur á móti pilleríinu.
Hann er með Dana hásingar hvar svosem þær eru frammleiddar (það vitum við ekki heldur um Toyota dótið eða Nissan svo dæmi séu tekin). Heddpakkningar voru að fara ekki síst eftir að túrbínur voru settar á þær eftir á, en ég held að sérstyrktar heddpakkningar sem eru ætlaðar í túrbínubílana hafi leyst það mál. Við megum ekki gleyma því að factory turbo er mögulega með annari heddpakkningu, örðu efni í ventlum og sætum og öðrum heddboltum í sumum vélum þó svo að í Mússónum held ég að það sé bara heddpakkningin sem er önnur!
03.11.2003 at 17:49 #479620Slóðin sem þú gafst upp er ekki að virka, var einhver snjór, þá meina ég hvíta duftið sem bráðnar við 0°C? L.
-
AuthorReplies