Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.04.2015 at 19:08 #778959
Þetta er í annað sinn sem ég sé auglýsingar fyrir fjármála svik á forsíðu 4×4.
Greinilegur „Nígeríupóstur“. Spurning hvort klúbburinn getur verið ábyrgur ef menn falla í svona gryfjur.
Lárus Elíasson
19.10.2013 at 09:11 #379414Það best ég veit eru þessir breyttu bílar ekki taldir valtari en óbreyttir þar sem breikkunin vegur þyngra en hækkunin (fer að sjáfsögðu efftir hversu mikið er hækkað og hversu breið dekkin eru).
Tölfræðileg rannsókn sýndi líka að tíðni slysa á breyttum bílum er ekki hærri (átti örugglega að sýna fram á hið gangstæða).
Hinsvegar er óbreyttur Hi Lux á flatjárnum að framan örugglega með þungdarpunktin hátt og því hætt við að velta.
Mundi líka láta lögmann athuga hvort krafan sé fyrnd þ.e. trygginarfélagið hafi sýnt tómlæti?
Prof. Mangús Þór Jónsson Háskóla Íslands hefur tekið mikið að þessum sérfæðiálitum úr kraftafræðinni.
l.
17.10.2013 at 19:08 #379421Ég nota tvær þýskar síður
http://www.teilesuche24.de/
http://www.pkwteile.de/Hef fengið sent bæði heim og á erlenda adddressu
18.08.2013 at 21:51 #767093Er til í að skoða sumargang fyrir vorið. l
14.05.2013 at 05:11 #765873Ferðafrelsi hefur líka í hávegum þá reglu um vefsíður að titilsíða breytist títt þar sem þar má sjá nýjustu spjallþræðina og smáauglýsingar.
16.09.2011 at 15:56 #737285Ó þú mikli meistari!. Þú átt mikinn heiður skilinn fyrir þetta starf:-)
l
18.07.2011 at 23:25 #733885Þetta er orðið mjög skrítið þegar Vegagerðin lokar vegum af því að erlendir ferðamenn á smájeppum gætu farið sér að voða. Samkvæmt því ættu sumar leiðir s.s. í Þórsmörk, Lónsöræfi, Syðra fjallabak, Núpsstaðaskógur og fl. að vera lokaðar alt eða nálega alt árið. Hér er þörf að að taka upp þráðinn við Vegagerðina og löggæsluyfirvöld en sumir s.s. Sýslumaðurinn í Árnessýslu telur lokum sama og lögbrot þar sem verið er að skemma íslenska náttúru.
Við hjóðum að krefjast þess að gerður sé greinarmunur á lokunum til verndar vegum og íslenskri náttúru og lokun til verndar fávísum túristum.
l.
24.04.2011 at 18:00 #728707Til hamingju með bílinn. Það bila allir bílar, líka Toyotur. Þeim tekst að vísu undursamlega að láta viðskiptavini sína borga hundruð þúsund fyrir "eðlilegt" viðhald s.s.: stýrisvélar, common-rail spíssa, vatnsdælur .. en það bilaði ekki:-)
Sumir bílar bila örugglega meira en aðrir, og LandRover er oft talinn eins manns bíll, þ.e. ef einhverjum þykir vænt um hann og hugsar vel um hann þá reynast þeir vel.
Heimurinn hefur breyts, bilanaminnsti bílinn heitir FORD, þá reyndar örugglega ekki F bíllinn:-)
l.
19.04.2011 at 09:37 #728039Sammála umræðunni hér að ofan um ástæðulausan utan-"slóða"-akstur. Hvernig komum við því hugarfari inn, að [b:uf8to0c6]betri er kelda en krókur[/b:uf8to0c6]! Lárus
16.04.2011 at 14:46 #727775Ágætur bíll ef þú ert "verkfæravanur". Á sér sínar veiku hliðar, eins og aðrir eldri jeppar, sem mest kemur fram í pilleríi. Umboðið gott miðað við annað hérlendis og a.m.k. einn partari.
27.12.2010 at 21:26 #714540Handbókin öll var hérna:
http://www.atao.ro/2008/02/21/manuale-d … re-daewoo/
Er með hana sem stóran fæl ef þetta gengur ekki
mbk.
L
19.12.2010 at 21:58 #714008Safe mode (limp home mode) kemur á þegar skiptinguna vantar upplýsingar um hraða. Ef þú sérð hraðamælinn kippast til þá getur þetta verið sambandsleysi í haðamælabixinu sem leiðir til þess að sjálfskiptingin skiptir sér ekki rétt. Ef svo er þarftu að hreinsa öll tengin frá hraðmæliskynjara. Þetta er sam,set á 2 eða 3 stöðum ef þetta er nýrsri sjálfskiptingin með W(winter= og P(power) mode takka.
25.11.2010 at 13:41 #711538Held að menn fari oft offari í sverun á pústi og fái orgelpipu. Hef átt 38" 2.8 pajero, með 2,5" opnu pústi uppskrúfuðu olíuverki og hækkuðum blow-off þrýstingi og munurinn var umtalsverður miðað við óbreyttan bíl á 33" sem mér fannst vita kraftlaus.
Menn verða að klára jöfnuna, þ.e.a.s. minni mótstaða > dæla inn meira lofti > sprauta inn meira eldsneyti. Annars verður engin aflaukning.
Svo hafa menn verið að reka sig á þá staðreynd að aukning í kæliþörf er nálega í beinu hlutfalli við aukið afl, sbr. 2.8ltr Patarnir.
Lárus Elíasson 3 -4 -4 -7
22.11.2010 at 13:54 #710936Sæl,
Nákvæmlega það sem þið biðjið um á kannski ekki rétt á sér í stjórnaskrá, en ég við beita mér m.a. fyrir tveimur hugtökum sem eru eftirfarandi.
a. Valdmörk stjórnvalds (ríkisins) gagnvart einstaklingum. Þannig er t.d. kveðið á um rétt einstaklingsins til að haga sínu lífi án órökstuddra takmarkana hin opinbera.
b. Skilgreining eignarhalds og afnotaréttar
a. Almannaeign (þ.m.t. þjóðlendur) s.s. á náttúru auðlindum
b. Séreign (einkaeign) s.s. jörðum og lóðum. Þó hlynntur upptöku hugtaka úr þýskri og danskri stjórnaskrá um að einkaeign fylgi ávallt samfélagsleg ábyrgð. Dæmi er kvöð til um að smala.
c. Afnotaréttur s.s. á afréttum fiskimiðum og fl.Ef þið berið þetta saman við spurningarnar ykkar:
1. Finnst þér rétt að binda í stjórnarskrá ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar?
2. Munt þú beita þér fyrir því að ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar verði sett í stjórnarskrá?
Þá má glöggt sjá báðir þessir liðir væru leystir með ákvæðunum hér ofar, þar sem a segir að hið opinbera mætti ekki takmarka frelsi einstaklingsins að ástæðulausu og b gefur möguleika á skilgreiningu á ferðafrelsi (og takmörkun þess) bæði fyrir þjóðlendur, einkaland og land með skilgreindum afnotaréttiMbk.
Lárus Elíasson – 3-4-4-7 og félagi í 4X4
________________________________________
12.11.2010 at 17:34 #709900Hef keypt bæði gjörónýt og ágæt hálfslitin dekk notuð hér á síðuni. Þar sem óvissan er kaupandans þá er það oft í verðlagningunni.
12.10.2010 at 14:51 #706256Þú meintir örugglega
A: Alpha – fara valega
B: Bravo – einugis að fara til og frá vinnu og eftir nauðþurftum
C: Charlie – einungis saman 10 hnýttir í spotta á hertrukk
12.10.2010 at 10:26 #705992Hafa men kíkt á plasttanka sem eru til fyrir báta. Fást m.a. hjá Vélasölunni. Svart stál og dísil eiga illa saman.
27.09.2010 at 23:34 #704248Sæll,
Aron í Breyti, setti fyrir mig framlás í Pajero sem notaði, actuator og smádælu sem er í Galopper og Pajero or er notuð til að aftengja annan framöulinnn svona svipað og driflokur. Kostaði lítið og virkaði fínt. Nóg til að þessum bílum á partasölum.
Held að barkar og íslensk pækilsöltun fari illa saman.
l.
16.09.2010 at 11:14 #703070Sem þýðir á íslensku að frá því að einhversstaðar er snjór eða hálka (á landinu) og menn geta gefið sennilega skýringu á því af hverju þeir eru á nagladekkjum þá sleppa þeir frá sektum.
24.08.2010 at 21:27 #700342Vindustangir eru nálega alveg línulegar þannig að formið sem slíkt hefur ekki áhrif á einginleika fjöðruninnar að öðru leiti en því að lengri vindustöng gefur fyrirheit um lengra fjöðrunarsvið (frá max teygju í samslátt).
l.
-
AuthorReplies