FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Skúli Haukur Skúlason

Skúli Haukur Skúlason

Profile picture of Skúli Haukur Skúlason
Virkur síðast fyrir 8 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1,281 through 1,300 (of 1,301 total)
← 1 … 64 65 66 →
  • Author
    Replies
  • 11.04.2005 at 22:44 #520918
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég held að flestir geti verið virkilega sammála þér þarna Jón, meira að segja skriffinnar sem þekkja hálendið kannski aðeins úr skýrslum og greinagerðum. Það sem þarf að gera er annars vegar að merkja, stika, kortleggja, fræða og miðla upplýsingum um leiðir. Þarna er stórt og mikið verkefni og við höfum verið að vinna í þessu og vonandi ætlar slóðanefnd umhverfisráðuneytisins að leggja ríflega að mörkum þarna, allavega hefur verið rætt um það. Hins vegar þarf að refsa þeim sem vísvitandi vaða um allt, koma böndum á bandingjana, sekta þá ríflega og flengja opinberlega. Við komum líklega ekki nálægt slíku, enda ekki á okkar valdssviði, en það skortir örugglega ekki viljann hjá umhverfisstofu og meðan þeir beina þessu að þeim sem sannarlega aka utan vega er það bara hið besta mál. Boð og bönn, það þarf auðvitað að vera skýrt í lögum að utanvegaakstur (annar en á snjó og frosinni jörð) sé ólöglegur, en önnur boð og bönn ætti ekki að þurfa. Ég hef að vísu aðallega heyrt talað um slíkt meðal klúbbsmeðlima, en við skulum sjá hvað tillögurnar fela í sér, ef okkur finnst eitthvað ekki nógu sniðugt þar gefst okkur tækifæri til að koma með athugasemdir. Það sem ég ef helst áhyggjur af er að menn sem ekki þekkja til hálendisvega geri sér ekki endilega grein fyrir að þeir sjást stundum ekki í landslaginu. En það að þeir sjást ekki er auðvitað bara hið besta mál, þá þarf bara að stika leiðina vel.
    Kv – Skúli





    11.04.2005 at 21:50 #520914
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta er hárrétt ábending hjá Einari, en varla förum við að kvarta yfir því. Punktur ég vil benda á varðandi það að vinna með öðrum útivistarfélögum í þessu og það er að utanvegaakstur eða barátta gegn honum er hagsmunamál okkar með nákvæmlega sama hætti og annarra útivistarsamtaka. Eða liggur það ekki í augum uppi! Það skiptir ekki máli í hvaða félagi maður er, það er alltaf jafn leiðinlegt að sjá skemmdir í náttúrunni eftir utanvegaakstur og skiptir okkur öll miklu máli að það sé dregið úr slíku með öllum tiltækum ráðum. Eini munurinn er að til viðbótar við það að það sé leiðinlegt að horfa upp á slíkt, getur utanvegaakstur í okkar tilfelli spillt fyrir ýmsum hagsmunamálum okkar en e.t.v. í minna mæli fyrir aðra hópa. En samvinna við önnur félög í þessu er ekkert nema af hinu góða. Þannig tökum við t.d. þátt í mjög góðu verkefni sem Ferðafélag Fljótsdalshéraðs setti af stað og gengur út á dreifingu póstkorta með að mig minnir texta á fjórum tungumálum þar sem bent er á að akstur utan vega sé bannaður. Reyndar er formaður þessarar ágætu deildar Ferðafélagsins líka félagsmaður hjá okkur og mjög margir félagsmenn 4×4 eru félagar í Ferðafélaginu, Útivist, Ísalp eða Jöklarannsóknafélaginu svo nokkur séu nefnd.
    Svo skiptir bæði okkur og öll þessi félög miklu máli hvernig er unnið í þessum málum af hinu opinbera og þar er ég nokkuð viss um að ef við viljum að eitthvað sé unnið öðruvísi en gert er, stöndum við betur með því að geta fylkt liði með öðrum félögum, rétt eins og var með t.d. málefni Skaftafellsþjóðgarðs. Það er nefnilega alls ekki rétt að þrýstingur okkar hafi ekki skilað neinum árangri og nýjasta dæmið um það er breyting sem er væntanleg á reglugerðinni um þjóðgarðinn og við hefðum sennilega ekki fengið í gegn ef við hefðum ekki getað fylkt liði með hinum félögunum.
    Kv – Skúli





    11.04.2005 at 18:18 #520872
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég setti inn auglýsingu kl. 15 í dag vandræðalaust???
    Kv – Skúli





    11.04.2005 at 15:22 #520906
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þú loggar þig inn, opnar auglýsinguna og þá geturðu valið "Breyta þessari auglýsingu" ferð í það og hakar við Fela.

    Já þetta kemur allt smám saman. Annars hef ég áhyggjur af því hvað margir virðast eiga erfitt með að nota það sem á að vera í lagi, s.s. myndaalbúm. Það þarf að skoða þessa innskráningu alla og finna út hvað er að klikka þar. Eitthvað skrítið þegar sami fídus virkar hjá einum en ekki öðrum sem þó eiga að hafa sömu réttindi.
    Kv – Skúli





    11.04.2005 at 09:44 #520774
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Brynjólfur, þú þarft ekki að skrá þig aftur sem félagsmaður, en þegar þú nýskráðir þig á þessa síðu voru tvær spurningar sem voru spurðar. Annars vegar hvort þú sért félagsmaður og það hefur áhrif á réttindi þín hér og hins vegar hvort þú hafir verið skráður notandi á gömlu síðunni og það er til þess að kerfið geti tengt gamla myndaalbúmið þitt og vefpósta við notendanafn þitt hér. Kennitalan þarf líka að vera rétt skráð því hún er borin saman við kennitöluna í félagatali og gengið úr skugga um að um fullgildan greiðandi félaga sé að ræða.
    Kv – Skúli





    10.04.2005 at 15:40 #520752
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég hef heyrt að í einhverjum tilfellum hafa menn gleymt að haka í viðeigandi reiti þegar þeir logguðu sig inn í fyrsta sinn á síðuna. Það þýðir að þeir eru ekki skilgreindir sem félagsmenn í kerfinu og þá hafa þeir ekki aðgang sem félagsmenn. Gæti þetta verið hluti af skýringu hér?
    Kv – Skúli





    10.04.2005 at 15:24 #520750
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það er merkilegt ef það sem virkar hjá mér virkar ekki hjá öðrum. Er ég einn um að geta sett inn myndir eða hvað? Ég var einmitt að undra mig á hvað lítið kæmi inn af myndum. Ég er búinn að gera tvö albúm aðallega til að reyna á það, og setti inn 15 myndir og allt gengið án nokkurra vandamála. Og eins og ég segi finnst mér það mikið þæginlegra að setja inn myndir þarna heldur en á gömlu síðuna, þar fannst mér bæði seinlegt og þvælt að vinna og nennti því yfirleitt ekki. Skil ekki alveg hvað geti verið öðruvísi í mínum aðgangi eða annarra.
    Kv – Skúli





    10.04.2005 at 12:37 #520742
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég hef ekki lent í neinum vandræðum með að setja myndir í albúmið og finnst það bæði aðgengilegra og fljótlegra en á gömlu síðunni, fyrir utan að mér finnst það almennt skemmtilegra. Var einmitt að prófa að setja inn myndir bara til að sannreyna það. Eina sem vantar það er að geta valið albúm eftir notendanafni, sem var að vísu eitthvað sem ég gerði aðeins í undantekningatilfellum á gömlu síðunni. Spjallið virkar líka ágætlega og þar er kominn mjög góð viðbót sem er að geta leiðrétt bullið eftir að maður er búinn að pósta. Hins vegar er einhver bilun komin upp í smáauglýsingum og það þarf að komast í lag sem fyrst. En önnur vandamál hafa ekki orðið á vegi mínum
    Kv – Skúli





    09.04.2005 at 18:24 #520734
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég myndi nú ekk beint tala um hraða snigilsins akkúrat núna hefði kannski verið réttmætt á einhverjum öðrum tímapunktum í ferlinu. Þegar síðan var sett í loftið voru að vísu nokkur atriði sem við vildum betrumbæta fljótlega, en að öðru leiti sjá hvaða hugmyndir kæmu upp þegar við værum farin að nota hana. Hér á spjallinu (sem er að því ég best fæ séð er að virka ágætlega) hafa komið upp fullt af hugmyndum og að því ég best veit er verið að vinna í að koma mörgum þeirra á koppinn. Það er því kominn upp nokkuð langur og góður verkefnalisti sem örugglega tekur sinn tíma að vinna niður. Stundum hefur slíkt hliðarverkun á eitthvað annað þannig að það koma upp nýjar bilanir, hugsanlega er það málið með auglýsingarnar. En að flestu leiti hefur þessi síða verið að gera allt fyrir mig sem sú gamla gerði.





    09.04.2005 at 14:14 #520858
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Já svona er nú komið fyrir sjálfu heimsveldinu. Rover verksmiðjurnar að fara á hausinn, Land Rover kominn undir Ford ásamt bæheimska motor werkinu, prinsinn af Wales giftist borgaralegri giftingum, ekkert eins og áður var. Helsti óttinn að Defenderinn sem er náttúrulega einkennistáknið, missi sinn karakter í óþarfa nútímavæðingu. Það væri endanleg lok heimsveldisins.

    Kv – Skúli





    08.04.2005 at 14:23 #520544
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það er greinilegt aö mörgum þykir vænt um Setrið og það er gott mál. Ég held að það sé alveg hægt að halda lífi í því þannig að það standi undir sér, en til þess þarf einhver snjall auglýsingasali að bjóða sig fram í ritnefndina. Það er svolítil vinna og menn þurfa að hafa svolítið sölunef, en í sjálfu sér er þetta góður auglýsingamiðill þó því sé bara dreift í 2000 eintökum, því við lesum þetta blað upp til agna, þ.m.t. auglýsingar.

    Þannig að með framboði í ritnefnd getið þið bjargað Setrinu!

    Kv – Skúli





    07.04.2005 at 22:19 #520686
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Mér fannst nú til þess að gera fljótlegt að verða heimavanur á síðunni, enda ekkert ósvipað system og á mörgum öðrum síðum.
    En það er annað sem ég vildi nefna. Mér finnst skemmtileg hugmynd með random myndina á forsíðunni úr myndasafninu og hef nokkuð oft farið inn á myndasafnið sem kemur upp. En þetta gerir alveg óþolandi þessar óviðkomandi og/eða auglýsingamyndir inn á myndasafninu. Þegar undir textanum "Áhugaverðar myndir" kemur mynd af gamalli Mözdu eða ryðgaðri felgu!!! Og núna þegar ég opnaði vefinn var þetta áhugaverða myndin:
    https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/3296

    Ég legg því til að væntanleg vefnefnd fá vald til að eyða af eigin geðþótta myndum útúr myndaalbúmum og hreinsi svolítið til þarna.

    Kv – Skúli





    06.04.2005 at 23:04 #520664
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég sem hélt alltaf að meðlimir Rottugengisins væru vandlega valdir á bestu stöðum en kemst svo af því að þeir eru pikkaðir upp í Bónus. Þetta er alveg nýtt fyrir mér.
    Með þennan fídus þá veit ég ekki tilganginn og tek ekki áhættu á að fikta í þessu. Slíkt fikt gæti endað með að maður væri kominn í slæman félagsskap, kannski bendlaður við Bónus-rottur.
    Kv – Skúli





    06.04.2005 at 21:01 #520632
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég vil hvetja menn endilega til að nota flokkunina á myndunum, s.s. setja myndir í viðeigandi flokk. Það gerir þetta myndaalbúm verulega aðgengilegt og skemmtilegt þegar fram líða stundir.

    Kv – Skúli





    06.04.2005 at 20:42 #520630
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta finnst mér góðar hugmyndir og betri en þær sem eru í gangi hér á öðrum þræði að hafa þetta sem líkast gamla albúminu (ef ég skil umræðuna þar rétt). Mér fannst alltaf mjög freistandi hugmynd að hver notandi þyrfti að færa sínar myndir handvirkt, einfaldlega til að sía út auglýsingamyndir og fólksbíladruslur. Það var hins vegar ákveðið að flytja allt draslið (helv. kjarkleysi!).
    En þetta með að mynd úr hverju albúmi sjáist er frábær, þá þarf maður ekki að vera að opna fjölskyldubílaalbúmin frekar en maður hafi sérstaklega sjálfseyðingahvöt eða svona undarleg áhugamál. Eins þetta með stafrófslistann, sniðugra heldur en að vera með svona lengju eins og áður var.
    Kv – Skúli





    06.04.2005 at 18:25 #520526
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta eru góðar pælingar og alltaf rétt að spá í hlutina þannig að ekkert sé heilagt heldur sé gagnsemin það sem skiptir máli. En ég hef aðeins efasemdir um útgangspunktinn hjá Ofsa Snæland um að 99% félagsmanna séu nettengdir. En svo má auðvitað finna aðrar leiðir til að koma tilkynningum á framfæri. Einu sinni voru félagsfundir alltaf auglýstir í smáauglýsingum í DV og þær auglýsingar urðu á sínum tíma til þess að ég álpaðist á fyrsta félagsfundinn. But that was then!

    Kv – Skúli





    06.04.2005 at 18:21 #520626
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    … það virðist ekki vera hægt að nota leitarvélina á notendanöfnin, þannig að það er ekki hægt að finna myndaalbúm einstakra notenda með henni. Þá þurfum við að geta fengið upp listann.

    Kv – Skúli





    06.04.2005 at 18:06 #520624
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég held að nýjustu myndirnar komi efst, s.s. þær birtist í tímaröð. Svo er planið að thumbnail á þær allra nýjustu komi efst, það var skemmtilegur fídus á gamla vefnum. Að finna myndir einstakra notenda hlýtur líka að vera í burðarliðnum, annars er náttúrulega leitarvélin efst. Hún ætti að gagnast við þetta eins og aaaaansi margt fleira skemmtilegt.
    Kv – Skúli





    06.04.2005 at 11:12 #520586
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Um að gera að hafa skoðanir á málunum, þannig verður gott betra. Ég setti samt spurningamerki við eitthvað af þessum kommmentum. Annars vegar er ég ekki sammála þessu með hebresku röðina (nýjast efst innan þráðs). Þá þarf maður að byrja að lesa neðst til að fá samhengi sem mér finnst ekki aðgengilegt. Eins þetta með að skipta þráðum upp þannig að bara ákveðin fjöldi innlegga birtist á hverri síðu. Það eru kannski einstaka þræðir sem þyrftu að hafa þetta (einhverjir Pajero þræðir), en yfirleitt finnst mér pirrandi að þurfa að "flétta" á milli.

    Kv – Skúli





    05.04.2005 at 16:14 #520244
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það er ekki nema von að þetta vefjist fyrir mörgum þegar innan Vegagerðarinnar eru ekki allir með þetta á hreinu. Skv. kortinu á vef Vegagerðarinnar er allur akstur BANNAÐUR á þessum vegum sem og öðrum hálendisvegum skv. umferðamerkinu sem þar er sett (guli hringurinn með rauðum ramma). Ef merkið væri ekki á veginum en vegurinn hins vegar merktur ófær eða lokaður, þá gildir þetta sem hann segir hjá Vegagerðinni á Selfossi, þ.e. vegurinn lokaður en menn fara inn á hann á eigin ábyrgð. Með þessa merkingu uppi er hins vegar beinlínis bannað að aka þarna. Hins vegar sýnist mér aðstæður vera þannig á hálendinu núna að það er engin ástæða til að banna akstur, kominn snjór aftur og ætti að vera orðið þokkalega frosið.

    Auðvitað eigum við að hlýta umferðalögum og það þýðir að við getum sneitt framhjá merkinu "LOKAÐ" en ekki gula hringlaga merkinu sem við þekkjum sem "Allur akstur bannaður". Sá aðili sem við höfum verið mest í sambandi við hjá Vegagerðinni (sem er reynar jeppamaður) hefur mikið verið að reyna að fá aðila þar innan húss til að greina þarna á milli, en því miður með of litlum árangri. Það er raunar forsenda fyrir því að þetta virki til að hlífa slóðunum á aurbleytutímum að þessar merkingar séu notaðar rétt. Það er akstur sé bannaður þegar aurbleyta og vorleysingar eru í gangi, en þess utan séu vegirnir aðeins merktir lokaðir eða ófærir.

    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1,281 through 1,300 (of 1,301 total)
← 1 … 64 65 66 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.