FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Skúli Haukur Skúlason

Skúli Haukur Skúlason

Profile picture of Skúli Haukur Skúlason
Virkur síðast fyrir 8 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1,261 through 1,280 (of 1,301 total)
← 1 … 63 64 65 66 →
  • Author
    Replies
  • 22.04.2005 at 12:36 #521612
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Glowe ég vil meina að þessi hebreskuhugmynd væri ekki til þæginda nema fyrir allra verstu nördin sem fara oft á dag inn á síðuna. Ég get að vísu á köflum allavega flokkast þar undir en vill ekki sjá neitt slíkt, því í hausnum á mér er eðlileg tímaröð á þessu sem öðrum texta að það nýjasta sé neðst. Ég er líklega svona mengaður af vestrænni menningu! smelli bara á scrollbarinn með músinni og renni mér svo upp og niður eftir þörfum.
    Kv – Skúli





    22.04.2005 at 10:31 #521604
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Eru menn almennt gegnumgangandi búnir að gleyma öllum vandamálum sem voru með gömlu síðuna? Ég get alveg tekið undir að margt má laga hér og vill gjarnan sjá það gerast sem fyrst, en gömlu síðuna vil ég ekki aftur.
    Kv – Skúli





    20.04.2005 at 17:15 #521404
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta er einmitt málið Ólafur. Greinagerðin er bara ekki einhver marklaus pappír heldur er hann til skýringar á hver sé vilji löggjafans með lögunum. Þegar þingmenn samþykktu frumvarpið var það vilji þeirra að díselolía yrði ódýrari en bensínið og að menn sæu sér hag í að aka um á díselbíl. Nú stefnir í að framkvæmd laganna verði með þeim hætti að þessu verði snúið á haus og þetta bara notað sem tæki fjármálaráðuneytisins til að plokka meiri pening af bifreiðaeigendum. Með þeim afleiðingum að allavega fyrir okkur jeppamenn fara gömlu bensínrokkarnir að verða valkostur. Þar kemur til bæði þetta með breyttar forsendur varðandi verð á þessum orkugjöfum og svo er nokkuð líklegt að þingheimur hafi ekki áttað sig á þeirri brellu ráðuneytisins að leggja svo vsk ofan á þenna skatt, en þær æfingar eru náttúrulega kapituli útaf fyrir sig.
    Kv – Skúli





    20.04.2005 at 15:03 #521372
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Í framhaldi af tilvitnuninni hérna að framan þá vil ég bara árétta pointið sem ég var að setja fram. Ég er alveg á því að núna þegar sú staða er komin upp að díselinn verði dýrari en bensín og ríkið ætlar að hirða allt hagræði sem er af því að aka á díeselbíl, þá er full ástæða fyrir okkur að láta í okkur heyra. En punkturinn semsagt er að það þarf að velja aðgerðir út frá því hvað sé líklegast til að skila einhverjum árangri, ef á annað borð er eitthvað hægt að hnika þessu. Setja fram þau rök sem best eru í málinu, keyra á þeim og svo er hægt að vekja athygli á þeim með einhverjum aðgerðum (t.d. löglega framkvæmdri hópferð frá Select eða eitthvað slíkt undir dyggri forystu Dóra Glanna). Hins vegar held ég að ef við færum bara niður í miðbæ, myndum teppa allt og fylla bæinn af sótmengun, það myndi alveg ábyggilega ekki skila neinum árangri eða ávinningi í þessu máli, en þeim mun líklegra til að auka á fordóma og neikvæðni í garð jeppamanna. Eins mikið og við þurfum á því að halda! Gæfi líka einhverjum tilefni til að finna út að nauðsynlegt sé að leggja sérstakan mengunarskatt á jeppa með díselvélar. Að vísu hægt að nota það við refaveiðar að svæla útúr greninu, en ekki ráðherraveiðar. Þetta gæti virkað vel sem svona persónuleg útrás fyrir réttláta reiði yfir skattgræðgi ríkisstjórnarinnar, en það er bara ekki aðalmálið heldur er málið að hafa áhrif á ákvörðunina.
    Hugmyndin hjá eik að láta rigna inn tölvupósti hjá þingmönnum og ráðherrum held ég hinsvegar að geti virkað, það er aðgerð sem beinist beint að þeim sem hafa ákvarðanavaldið og vekur athygli þingmanna á því að markmiðið sem þeir þóttust vera að vinna að með því að samþykkja frumvarpið (s.s. beina landsmönnum að díeselbílum) er týnd og glatað í skattagræðginni.

    Ég veit það, hundleiðinleg svona jarðbundin rök, en samt nauðsynleg.

    Kv – Skúli





    20.04.2005 at 11:21 #521484
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Einhvern tíman sá ég hér á spjallinu einhverjar pælingar um að hafa örlítinn mun á hlutföllum að aftan og framan, en man hvorki á hvern veginn það átti að vera né heldur hver tilgangurinn var. Það man þetta kannski einhver eða þekkir. En gera menn þetta ekki í torfærunni?
    Kv – Skúli





    19.04.2005 at 17:10 #521306
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ritskoðun sko. Annars er ég bara að læra þetta, var svosem búið að segja mér að ekki væri gott að peista úr word inn í fréttakerfið.





    19.04.2005 at 17:09 #521302
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Já það verður örugglega ýmislegt áhugavert á fundinum og ég get "lekið" því hér að það er von á talsverðum lagabreytingum sem geta haft áhrif á starfið. Eins verður spennandi að sjá tillögur húsnæðisnefndar sem skipuð var af stjórn í samræmi við ályktun síðasta aðalfundar. Frá þeim hefur lítið heyrst þannig að ég á von á að mjög leyndardómsfullar tillögur séu að fæðast.

    Vek enn og aftur athygli manna á að nú verður fundurinn á laugardegi kl. 14 en ekki mánudagskvöldi. Það verður því enginn fundur mánudaginn 2. maí. Þessi breyting eða tilraun er skv. tillögu síðasta landsfundar og gerð í því skyni að auðvelda félögum á landsbyggðinni að mæta á fundinn. Eins vert að árétta að fundurinn verður í salnum hjá FÍ í kjallaranum inn í Mörk. Í framhaldi má svo velta fyrir sér hvort við ættum að flytja fundina almennt þangað, það væri örugglega ódýrari lausn fyrir klúbbinn en salurinn á Loftleiðum.

    Kv – Skúli





    19.04.2005 at 12:54 #521286
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Snöggir voru þeir að loka eftir að hlýnaði aftur. Lílega ferðast maður þá ekki mikið fyrr en fer að þorna á slóðum. Þó virðist vera hægt að fara á Langjökul um Húsafell og líklega á Vatnajökul um Skálafellsjökul.

    Kv – Skúli





    18.04.2005 at 18:56 #521238
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Fínt að fá ábendingar og tillögur um vefsíðuna og vefsíðan hlýtur að vera ágætur vettvangur. Eins má senda slíkt beint á Emil.
    Vefsíðan er í mótun og fjöldi breytinga frá upprunalegu plani komið fram og margar í vinnslu.
    Kv – Skúli





    18.04.2005 at 14:16 #195846
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/3532

    Vildi bara vekja athygli á þessu albúmi, óvenju flottar myndir þarna.

    Kv – Skúli





    18.04.2005 at 10:05 #521022
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Hrós dagsins fá Nína í Litlunefndinni, Ella í Skemmtinefndinni og Agnes gjaldkeri ásamt öllum þeim sem lögðu fram vinnu á sýningunni um helgina. Flott gert og ef fjármálastjórar annarra fyrirtækja þarna á sýningunni vissu hvað við erum að kosta til við þátttöku á sýningunni myndu þeir örugglega bjóða í þær við að skipuleggja sýningahald og markaðsstarf.

    Kv – Skúli





    18.04.2005 at 09:56 #521204
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég veit ekki skýringuna nákvæmlega, en skilst þó að það hafi verið ráðuneytið sem óskaði eftir frestun og hyggst taka meiri þátt í þessu en upphaflega var áætlað.
    Kv – Skúli





    15.04.2005 at 17:08 #521020
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það er ekki spurning að Ferðaklúbburinn 4×4 er langflottastur þarna á sýningunni. Þó básinn okkar sé lítill er hann uppfullur af spennandi hlutum, myndasýningar á þremur skjáum, úrval af áhugaverðu efni til kaups (bækur, könnur, fánar, húfur o.fl. ofl. o.fl.) Svo fyrir utan er gott þversnið af ferðajeppum allt frá litlum SéraJóka upp í 6×46" töll.
    Vel þess virði að kíkja þarna um helgina, jafnvel ekki útilokað að eitthvað fleira skemmtilegt megi sjá þarna.
    Kv – Skúli





    14.04.2005 at 12:21 #521152
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Nú veit ég ekki hvernig þú hefðir farið að þessu á gamla vefnum með þessar upplýsingar einar og sér, þ.e. að Beggi sé að spyrja einhvern Gísla út í myndir af breytingum. Með heppni hefði að vísu verið hægt að finna hann með því að leita í öllum notendanöfnum sem hafa tengingu við nafnið Gísla og það verður hægt hérna innan tíðar. En annars er þetta líklega þessi notandi hér:
    https://old.f4x4.is/new/profile/?file=3958. Fann hann efst á myndasíðunni.

    Kv – Skúli





    13.04.2005 at 21:12 #521104
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta er nú gott og blessað en hins vegar er það svo skemmtilegt með þetta að þessi setning er ekki frá mér komin, eins og reyndar sést ef menn skoða framsetninguna. Þetta er niðurstaða blaðamanns sem hann komst að algjörlega án minnar hjálpar og reyndar nefndi ég aldrei heimasíðuna í okkar spjalli. Ég held svei mér þá að hann hafi heillast svona af síðunni og í framhaldi af því ákveðið að hafa samband við mig ;o)

    Kv – Skúli





    13.04.2005 at 21:00 #521112
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Í fyrra voru jeppamenn í Bretlandi búnir að skipuleggja aðgerðir í þessa veru til að mótmæla reglugerð sem hefði lokað fjölda leiða sem þeir nota í sinni jeppamennsku, þessu sem tjallinn kallar Greenlaining. Þessar aðgerðir voru hins vegar blásnar af á þeim forsendum að menn töldu að þær myndu almennt ekki auka stuðning við málstað jeppaeiganda heldur þvert á móti auka andúð almennings og þar með þyngja róðurinn í hagsmunabaráttu þeirra.

    Ég er svosem ekkert að fullyrða að þessi rök eigi við hér eða í þessu tilfelli. Flestir landsmenn ættu að hafa samúð með baráttu gegn skattpíningu ríkisins á eldsneytisnotkun. Það þarf samt að spá í á hverjum aðgerðir bitna, lenda ekki í svona kennaradílemmu.

    Kv – Skúli





    13.04.2005 at 14:17 #521068
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Minn skilningur á hugmyndinni bak við þessa breytingu er að tilgangurinn sé að gera það hagkvæmara að reka díselbíl en bensínbíl á þeirri forsendu að díselmeningunin sé "skárri" en bensínmengun. Hvort sem það sé rétt eða ekki (eins og með allt sem snýr að mengun og umhverfismálum eru a.m.k. tvær hliðar á málinu) þá hljótum við að geta gert þá kröfu að því markmiði sé ekki slátrað fyrir fégræðgi ríkisins eftir að þeir eru búnir að fá þetta í gegn og það er alls ekki ásættanleg lausn að því sé bjargað með því að hækka gjöld á bensínið. Það er eitthvað sem allir hljóta að vera sammála um, FÍB jafn sem aðrir.
    Kv – Skúli





    13.04.2005 at 13:59 #521046
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta þýðir væntanlega að lögin sem lágu fyrir síðasta aðalfundi voru úrelt, því á þeirri útgáfu var byggt. Það þarf greinilega að leggjast aðeins í rannsóknarvinnu þarna.
    Kv – Skúli





    13.04.2005 at 12:08 #521040
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Gildandi lög eru komin á heimasíðuna undir Klúbburinn (linkurinn hérna efst).
    Kv – Skúli





    13.04.2005 at 10:31 #521038
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þau lög sem giltu fyrir síðasta aðalfund birtust í maí hefti Setursins á síðasta ári. Soffía er að vinna í því að uppfæra þau þannig að þau hljóta að koma á hverri stundu á vefinn.
    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1,261 through 1,280 (of 1,301 total)
← 1 … 63 64 65 66 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.