Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.05.2005 at 15:29 #522846
Þó svo veislan á Akureyri hafi verið ágæt þá er nú meiri hvati á að stíga á pinnann ef maður veit af Guinness á krana á áfangastað. Og Beggi, ef maður brýtur þjóðgarðslög á annað borð er ekki verra að vera búinn að fá sér einn. Annars eins og komið hefur fram tókst með harðfylgi að fá bannlínuna færða alveg upp að Hnjúknum og rökin fyrir því voru auðvitað að það væri of langt að bera kútana alla leið frá tindi Snæbreiðar þar sem línan var áður.
Svo í ljósi uræðunnar hér að ofan væri athugandi hvort Lella og Soffía komi ekki með til að servera Guinnessinn og við setjum upp á Hnjúknum hæsta "top-less Guinness bar" í heimi.
Kv – Skúli
19.05.2005 at 13:34 #522838Maður verður greinilega að fara að finna sér ný mission fyrir jöklaferðir til að vera með. Það er þó ljóst að við strákarnir eigum ekkert í stelpurnar í þeim efnum, bjóðum bara upp á pönnukökubakstur meðan þær … ja við skulum ekkert fara nánar út í þá sálma.
Annars er eitt af mörgum uppbyggilegum markmiðum Guinnessklúbbsins (http://www.mountainfriends.com/guinness/) að fara með Guinnessdælu ásamt tilheyrandi kútum upp á topp Hvannadalshnjúks og skeinka þar í glös eftir kúnstarinnar reglum. Hugsanlegt er að áhugasamir utanfélagsmenn fái að koma með, ekki vegna þess að okkur vanti fleiri til að súpa af mjöðnum heldur til þess að bera upp fyrir okkur kútana.
Kv – Skúli
19.05.2005 at 13:07 #523026Til þess þarftu að fara yfir Sóleyjarhöfðavað að sunnanverðu sem er svosem möguleiki, en öllu verra að komast Eyfirðingaveg norðan við jökul. Á þeirri leið þarf að fara yfir Blöndu sem getur verið býsna djúp að sumarlagi. Svo eru nokkrar kvíslar sem renna úr jöklinum sem geta verið með slæmum sandbleytum og loks er það svo Skálakvíslin upp við Ingólfsskála sem getur verið með öllu ófær. Við fórum þarna í ágúst í fyrra á tveimur 38" bílum og komumst ekki yfir Skálakvíslina. Gátum þó bjargað okkur með því að þræða í gegnum jökulruðninginn og upp á jökul og komumst þannig fyrir ánna. (myndir og frásögn hér http://www.mountainfriends.com/html/sum04a.html)
M.ö.o., það er ekki hægt að mæla með þessari leið fyrr en komið er vel fram á haustið, kannski byrjun okt, og þá á vel útbúnum bílum. Og alls ekki einbíla.
Kv – Skúli
18.05.2005 at 23:48 #522716Ætla bensíndraugarnir að hafa vinninginn í skoðanakönnuninni? Núna er staðan þannig að 46,2% kjósa dísilinn en 52,2% bensín. Veit ekki á hverju þessi 1,6% sem upp á vantar ætla að aka, sennilega reiðhjóli. Það eru kannski bara skekkjumörkin.
Er þetta í alvöru svona? Er rúmur helmingur félagsmanna sem vill í raun frekar aka á bensínbíl en ódýrari rekstrarkostnaður hefur haldið þeim að grútarbrennurunum? Að vísu eru svörin ekki nema rétt rúmlega 60 sem er svosem ekki stórt úrtak. Við þurfum að ná 2-300 félagsmönnum til að geta sagt að þetta sé einhver vísbending um eitthvað (10% af heildinni).
Hvet menn til að taka þátt í þessu, en nú er að vísu sú breyting frá því sem áður var að hver og einn getur aðeins kosið einu sinni og menn verða að vera innskráðir til að taka þátt.
Kv – Skúli
17.05.2005 at 23:03 #522772Annars úr því þessi þráður er orðinn svona tapað/fundið þá týndi ég grænum járnkarl (já grænn, sennilega hugsaður fyrir garðvinnu) á bökkum Búðarár fyrir rösku ári síðan. Ég fór reyndar í sumar og leitaði að honum án árangurs. Hann liggur nærri þekktu varavaði yfir ánna sem notað er í stórflóðum.
Kv – Skúli
17.05.2005 at 22:28 #522768Ég óttast að úr því þú notar XXXL þá passi stuttermabolurinn hennar Lellu ekki.
17.05.2005 at 21:34 #522764Greinilega verið viðburðarík helgi á fjöllum, Lúther tapaði dekki, Þorgeir álkarli, einhver skaftinu af drullutjakknum, símaloftneti og Lella spjörunum. Spurning hvaða áhrif þetta hefur á fjallaferðir hvort menn hætti að þora á fjöll eða kannski fara að flykkjast til fjalla!
Kv – Skúli
17.05.2005 at 12:32 #522800En eins og þú sérð Keli er ekkert víst að þú hefðir sloppið við Júrógaulið með því að fara með 4×4 í Þórsmörk. Tækninefndin hefði verið vís með að setja upp sjónvarpsendurvarpa á Valahjúk og strengja breiðtjald yfir þveran Langadal þannig að rjómi evrópskrar sönglistar (eða undanrennan) hljómi um alla Mörkina.
Kv – Skúli
17.05.2005 at 12:16 #522794Gæti trúað að ástæðan sé léleg sjónvarpsskilyrði inni í Mörk. Þar sem þjóðin mun sitja í andakt framan við skjái um allt land og fylgjast með Selmu rúlla þessu upp, var hætta á dræmri þátttöku næstu helgi.
Kv – Skúli
16.05.2005 at 12:35 #522684Ekki það að ég ætli að fara elta ólar við eik í þessu. Reikna með að honum hafi verið það nokkur vonbrigði að ná ekki kjöri í vefnefnd, jafnmikið og hann hefur lýst skoðunum sínum um vefmálin hér á spjallinu. En svona eik til upplýsingar þá er vefnefnd og stjórn búin að hittast og ekki merki um annað en gott samstarf þessara aðila sé framundan og ekki um það að ræða að ‘einhver segi einhverjum fyrir verkum´. Hins vegar þó svo væri þá er það misskilningur að með því væri framið lögbrot því í 9. gr. laganna sem fjallar um fastanefndir segir að þær starfi undir handleiðslu stjórnar.
Kv – Skúli
16.05.2005 at 11:46 #522678Eða einfaldleg skráir þig inn, ferð í spjallið, velur þann spjallflokk sem þú ætlar að hafa þráðinn í og þá kemur linkurinn ‘Hefja nýjan spjallþráð’.
14.05.2005 at 14:57 #522644Veit ekki með þessa þræði sem hefur verið eytt út en stórefa að það sé vegna ritskoðunar. Ég held að menn séu bara oðnir svona rólegir.
Kv – Skúli
13.05.2005 at 09:33 #522484Það má kannski bæta við þetta að miðað við kortin hjá Vegagerðinni um ástand fjallvega er ekki um margar leiðir að velja núna um Hvítasunnuhelgina.
http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/pag … lvega.html
Væntanlega hægt að fara á Vatnajökul um Skálafellsjökul. Veit einhver hvernig Breiðamerkurjökull er?
Kv – Skúli
12.05.2005 at 15:24 #522482Það er semsagt búið að færa línuna frá því sem var í upphaflegu reglugerðinni yfir í það sem Samút lagði til.
Meðal röksemda fyrir því að línan liggi þarna er m.a. að þessi lína liggur rétt undir hnjúknum að norðanverðu. Sé bílum lagt þar sjást þeir ekki frá hátindi Íslands heldur eru þeir í hvarfi. Svo er skemmtileg gönguleið upp á hnjúkinn þarna norðanmegin. Að vísu spurning hvernig sé með þessa snjóflóðahættu núna og hvort hún sé fyrir hendi norðan megin, kannski ólíklegt.Það má búast við mikilli umferð á hnjúkinn núna um hvítasunnuna og sjálfsagt að sýna tillitsemi og leggja bílum þarna undir hnjúknum.
Kv – Skúli
11.05.2005 at 14:27 #522428Fann blaðið á vefnum:
http://www.fib.is/myndir/FIB_1tbl-2005.pdfÞetta er nú eiginlega alveg frábær lesning eftir málflutninginn undanfarna daga. Hvernig var þetta aftur með sérhagsmunaleg sjónarmið?
Kv – Skúli
11.05.2005 at 14:03 #522426Á einhver blaðið á tölvutæku formi. Ef svo er væri gaman að fá það sent, skulihs@internet.is
Miðað við þetta finnst mér hljóma vel að túlka þetta þannig að FÍB hafi tekið athugasemd okkar til greina og sé orðið sammála okkur. Því fögnum við að sjálfsögðu með englasvip (eða kannski pokerface!)
Kv – Skúli
10.05.2005 at 22:33 #522412Já það virðist vera að flautuþeytingin hafi vakið einhverja af værum blundi þarna í húsinu við Austurvöll. Það var líka í fréttum í kvöld að Kristján Möller var að vekja athygli á því það kæmi vsk ofan á olíugjaldið og þar væri ríkið að leggja aukaskatt á þetta sem færi ekki í vegamál upp á einn milljarð króna. Þannig að ég held að við getum allavega sagt að okkur hafi aðeins tekist að hræra upp í málinu.
Hins vegar var í 10 fréttum Sjónvarps aðeins fjallaðu um þetta og þá aðallega með viðtali við blaðafulltrúa fjármálaráðuneytisins (lesist Runólfur hjá FÍB), en stuttlega vitnað í athugasemd okkar.
Kv – Skúli
10.05.2005 at 17:10 #522458Það er auðvitað erfitt að dæma um þetta sjálfur en ég held að þetta hafi svosem verið frekar rólegt, við görguðum ekkert á hvorn annan. Meira svona einhver smáskot. En ég held þó að allavega hafi tekist að koma þeirri staðreynd skýrt fram að við vorum ekkert að mótmæla kerfisbreytingunni sem slíkri heldur fyrst og fremst að markmiðum frumvarpsins sé fórnað á gjaldheimtualtarinu.
Kv – Skúli
10.05.2005 at 10:04 #522402Athugasemdin sem við sendum fjölmiðlum er komin á forsíðuna.
Kv – Skúli
09.05.2005 at 20:51 #522374Það er ljóst að FÍB kýs að lesa eitthvað allt annað út úr áskoruninni heldur en þar stendur og gerir okkur upp skoðanir í stað þess að byggja á staðreyndum. Á heimasíðu FÍB er umfjöllun um málið og þar koma fram nokkrar skrýtnar fullyrðingar s.s.:
‘FÍB hefur stutt breytinguna heils hugar vegna innbyggðrar ósanngirni hins gamla og úrelta þungaskattskerfis sem mótmælendur í Ferðaklúbbnum 4×4, Félagi hópferðaleyfishafa, Frama – stéttarfélagi leigubifreiðastjóra og bifreiðastjórafélaginu Átaki vilja nú viðhalda.’
‘.furðum okkur á því að mennirnir skuli ekki skilja það að meginmarkmið breytingarinnar er að koma á jafnræði milli eigenda dísilknúinna fólksbíla og bensínknúinna.’
‘Eru þeir að tala fyrir munn þeirra félagsmanna í Ferðaklúbbnum 4×4 sem eiga bensínjeppa? Varla!’
Frekar skrítnar fullyrðingar og ekki alveg í sambandi við raunveruleikann!
Það hefur alla tíð verið alveg á hreinu að Ferðaklúbburinn 4×4 sem slíkur hefur ekki tekið afstöðu til kerfisbreytingarinnar sem slíkrar, þó svo hún stórauki auðvitað kostnað fjölda félagsmanna af sínum ferðalögum. Sú kostnaðaraukning er ekki vegna aksturs á vegum sem slitna heldur miklu frekar á snjó og jöklum. Engu að síður töldum við ekki rétt að taka afstöðu til kerfisbreytingarinnar.
Hins vegar þegar ljóst var að hið opinbera ætlaði í gjaldagræðgi sinni að henda fyrir róðra markmiðum kerfisbreytingarinnar, sem voru fyrst og fremst að ýta undir notkun díeselbíl, þótti okkur rétt að bregðast við.
FÍB virðist hins vegar líta svo á að markmið kerfisbreytingarinnar væri að tryggja að eigendur díeselbíla væru settir undir sama gjaldaokrið og eigendur bensínbíla. Það virðist vera aðalbaráttumálið, en það markmið að álögur á bíleigendur séu sem minnstar komnar í annað sæti.
Reyndar held ég að geðvonskuleg viðbrögð FÍB í þessu máli stafi af því að samtökin voru tekin í bólinu. Hér er stórt hagsmunamál fyrir stóran hóp bifreiðaeiganda en FÍB sá ekki ástæðu til að aðhafast neitt. Núna þegar velheppnuð aðgerð er að baki gremst þeim og vonandi skammast sín aðeins. Þá er lausnin að snúa útúr markmiðum aðgerðarinnar.
Eða eru kannski jeppaeigendur annars flokks bifreiðaeigendur í augum FÍB?
Skúli H. Skúlason
-
AuthorReplies