Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.05.2005 at 00:08 #523244
Á okkur ætti auðvitað að hlusta sem oftast, en þó er ekki rétt hjá Ofsa að á okkur sé aldrei hlustað. Ef svo væri gætum við pakkað saman strax og breytt klúbbnum í eina stóra litludeild. Ákvæðið um að það megi keyra utan vega á hálendinu á snævi þakinni og frosinni jörð er í upphafi komið inn fyrir tilstilli 4×4 klúbbsins og sú heimild er einsdæmi í veröldinni. Reglur um breytingar á jeppum er annað dæmi þar sem klúbburinn náði áheyrn. Með Skaftafellsþjóðgarð, þá náðum við fram nokkurri breytingu frá því sem var í upphaflegu hugmyndinni og þá á því sem skipti mestu máli. Ég tek hins vegar undir með eik að það telst varla fullnaðarsigur fyrr en ákvæðið um Skeiðarárjökul er farið út, þó svo hæpið sé að hann sé ökufær á banntímabilinu. Einmitt þess vegna er það ákvæði út í hött og bara til að skapa pirring. Og eins og ég hef sagt kæmi það mér mjög á óvart ef þetta 50 cm ákvæði birtist í endanlegu útgáfunni, þó óvíst sé hvað kemur í staðin. Þetta er því ekki bara vonlaust strax frá upphafi en upp á árangur að gera skiptir miklu máli hvernig við komum málum okkar fram. Þar þurfum við stundum að hemja ofsann og taka ábyrga og víðsýna afstöðu.
Kv – Skúli
24.05.2005 at 20:40 #523236Þetta er alveg rétt hjá eik, á þessu stigi er ekki tímabært að fara í formlegar aðgerðir í nafni klúbbsins. Það sem hefur verið að gerast er að það voru lögð fram reglugerðardrög til kynningar og í framhaldi af því óskað formlega eftir umsögn okkar og breytingatillögum. Við komum athugasemdum okkar á framfæri og núna þessa dagana er verið að vinna úr athugasemdunum okkar og annarra sem að málinu koma. Við þurfum því fyrst að vita hvort hlustað er á okkur áður en við mótmælum því að ekki sé hlustað á okkur. Auðvitað rétt að þessi 50 cm. hugmynd ber það með sér að vera sett fram af aðilum sem hafa litla þekkingu á snjóakstri á hálendinu, en þannig er nú farið um 90% þjóðarinnar. Mótmælasöfnunarþráðurinn segir hins vegar eitthvað um það hvort hópurinn sem samdi umsögn okkar hefur almenna félagsmenn að baki sér í málinu og hvaða leiðir séu færar ef ákvæðið fær að standa í reglugerðinni þegar hún lítur dagsins ljós.
Í umsögn okkar var lagt til að 50 cm ákvæðið falli brott og í staðin komi "Akstri á snjó ber að haga þannig að ekki skapist hætta á náttúrspjöllum".
Þá var gerð athugasem við skilgreiningu á náttúruspjöllum en eins og hún er í drögunum má túlka það sem náttúruspjöll ef menn þurfa t.d. að þræða sig eftir áraurum til að finna fært vað. Slíkt myndi gera ómögulegt að komast inn í Langadal í Þórsmörk svo dæmi sé tekið. Því var lagt til að skilgreiningin yrði svona "Spjöll á gróðri, dýralífi, jarðvegi, jarðmyndunum og landslagi, hvort sem um varanlegan eða tímabundinn skaða er að ræða. Ennfremur myndun slóða og hjólfara á landi, hvort sem það er þakið gróðri eða ekki. Þó teljast för þar sem tryggt náttúran muni afmá öll ummerki innan
skamms tíma ekki til náttúruspjalla. Þetta getur t.d. átt við um akstur í fjörum, árfarvegum, foksandi eða á snjó."Kv – Skúli
24.05.2005 at 13:10 #523094Án þess að ég hafi séð ferðaplan Slúttnefndar þá finnst mér líklegast að farinn verði Skeiðavegur og upp Þjórsárdal. Ef þú ert að koma úr Landeyjum Hrafnkell er auðvitað styttra fyrir þig að fara annað hvort Landsveitina (beygja rétt austan við Hellu) eða Holtaveg (beygja hjá versluninni Vegamót). Þó auðvitað sé skemmtilegasta leiðin úr þessari átt að fara upp hjá Gunnarsholti og fara Heklubraut eða til vara hjá Geldingalæk. Modingsplads væri þá frekar í Hrauneyjum þar sem hópurinn er að enda malbiksaksturinn.
Kv – Skúli
23.05.2005 at 16:11 #523144Eðlilegt verð er það sem einhver er tilbúinn til að borga fyrir hann, eða m.ö.o. það sem seljandinn kemst upp með að krefjast fyrir gripinn án þess að lenda í að geta ekki selt. Það eru kaupendur gamalla Krúsera sem ákveða hvað er eðlilegt verð.
Kv – Skúli
23.05.2005 at 13:51 #523302Tek fram að með bjartsýni minni er ekki ætlunin að slá af þessa söfnun. Gott að hafa þetta í erminni ef illa fer þó ég telji ekki miklar líkur á að á því þurfi að halda. Ég er búinn að mótmæla þessu þrisvar sinnum áður, fyrst á kynningarfundi ráðuneytisins, síðan í umsögn klúbbsins um drögin og loks á spjallfundi með fulltrúum ráðuneytisins.
Fari þetta ákvæði inn þarf væntanlega að boða til aukaaðalfundar til að taka ákvörðun um hvort við leggjum klúbbinn niður eða gerum drastískar breytingar á starfseminni.
Kv – Skúli
23.05.2005 at 13:25 #523298Um leið og við sjáum að þetta verði raunverulega í reglugerðinni mun ég melda mig með, en ég hef enga trú á öðru en okkur hafi nú þegar tekist að gera ráðuneytinu ljóst að þetta ákvæði fær ekki staðist. Ennþá er þetta aðeins í drögum að reglugerð.
Ég hef því litlar áhyggjur af þessum 50 cm. en meiri áhyggjur af því hvað kemur í staðin.
Kv – Skúli
23.05.2005 at 10:26 #523128Við höfum verið að fá þakkarskeyti frá farþegum okkar í ferðinni:
Kæru félagar 4 x 4 Ég vil fyrir hönd strákanna í Hulduhlíð og Þverholti sem boðnir voru í ferðina hjá ykkur á Langjökull þakka ykkur fyrir þetta framtak. Þeir komu allir alsælir heim og ánægðir með að upplifa áður óþekkta veröld. Það voru teknar um 100 myndir í ferðinni sem munu verða mikið skoðaðar í framtíðinni. Bestu kveðjur. Vibeke Þorbjörnsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi í Hulduhlíð og Þverholti
Og annað hér:
Hæ,hæ…Þökkum fyrir þessa frábæru ferð! Siggi og Valli sögðu að þeim fannst mjög gaman og við stelpurnar ætlum að finna okkur karla sem eiga jeppa,svo við getum farið í fleiri ferðir:-)
P.S Taskan hans Valla tíndíst í ferðinni,hún er svört og var á hjólastólnum hans,gætiði látið okkur vita ef hún finnst?!
TAKK,TAKK OG TAKK KV.SIGGI,VALLI,KUMRIJA,JOLANTA
23.05.2005 at 10:09 #523198Það er rétt Davíð að þetta er í drögum að reglugerð um akstur í óbyggðum. Þarna eru lögfræðingar í ráðuneytinu að reyna að finna konkret mælikvarða á það sem hingað til hefur verið mat hvers ökumanns fyrir sig, þ.e. hvort aðstæður séu þannig að aksturinn valdi ekki náttúruspjöllum. Klúbburinn hefur skilað inn athugasemdum við þetta þar sem bent er á að hér sé um að ræða óframkvæmanlegt, órökrétt og óþarft ákvæði sem ekki standi í neinu samhengi við raunveruleikann. Útivist hefur skilað samsvarandi athugasemdum og ég geri ráð fyrir að LÍV hafi gert það sama. Eins átti ég og formaður jeppadeildar Útivistar spjallfund með þessum starfsmönnum ráðuneytisins og trúi ég ekki öðru en að það sé orðið nokkuð ljóst að þessu tiltekna ákvæði verði að breyta.
Kv – Skúli
22.05.2005 at 13:28 #522934Þessar tölur er ég tilbúinn að samþykkja, en það auðveldar okkur aðeins framkvæmdina á Hvannadalshnjúk að í bæklingi sem ég hef hér undir höndum frá Guinness sjálfum er gefinn séns á bilinu 5-8°. Verði Lella og Soffía ráðnar til að skenka drukkinn þurfa þær að lesa þennan bækling spjaldana á mili því þarna er greint hvernig rétt sé skenkt Guinnessglas lítur út og hvernig þetta sé framkvæmt. Gæta þarf að því að froðan á að vera 14-21 mm. en á alltof mörg öldurhús klikka á þessu og láta mann hafa glas með froðu langt undir þessum mörkum. Þá verður drukkurinn flatur og lítt spennandi.
Kv – Skúli
21.05.2005 at 23:01 #523192Jú það var slíkur hnappur, hann virðist hafa dottið af. Keli kannski kemur því í farveg að finna hann aftur.
21.05.2005 at 22:58 #523124Þetta var Ofsa-lega góð hugmynd og frábær dagur. Væri óvitlaust að gera það að föstum lið í starfsemi klúbbsins að fara í jeppaferð með fólk sem hefur kannski ekki mikla möguleika til að upplifa þetta sem við eyðum öllum frístundum okkar í. Mér heyrðist líka að farþegar okkar hafi fengið heilmikið út úr þessu.
Kv – Skúli
20.05.2005 at 14:27 #523060Heyrist aðeins eitt vera til ráða. Stroch 80% þrisvar á dag. Skammturinn í hvert skipti getur verið frá 1 tsk upp í meðal sósuausu, allt eftir smekk.
20.05.2005 at 11:46 #522884Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá innleggið hans Benna hérna er að það þegar kemur að umsögn um Guinness er nú ekki mikið að marka mann sem ekur á Pajero. Ég sá hins vegar fljótt að sú kenning mín stenst ekki, enda er greinilegt að Keli er mikill smekkmaður í þessum efnum þrátt fyrir Pajero eign sína.
Annars er rétt hjá Bena að drukkurinn lítur ekki ósvipað út og mótorolía, en það eru nú eiginlega bara sérstök meðmæli.
Kv – Skúli
20.05.2005 at 10:08 #522876Það verður að játast að ég hef verið á báðum áttum með það, þ.e. hvort þörf sé að hengja þennan 1000 pósta hala aftan í mig. Var svosem ekki allt það djúp speki eða þannig. Og myndaalbúmin mín voru ekki mikil að vöxtum hér, þar sem ég hef nýtt Kárasíðuna í því. Byrjaði hér á síðunni sem "hreinn sveinn".
Ég verð líklega að missa af baðinu þetta árið, enda svosem ekki orðinn svo skítugur að orð sé á gerandi. En það verður spennandi að sjá hvort þið komist alla leið í baðið.
Björn Þorri, það er líklega rétt að þessi nýja mæling á Hnjúknum segi 2.111 m. Ég vill þó frekar nota tölun 2.119, mikið fallegri tala og örugglega komin nógu löng hefð á hana til að geta staðið á því.
20.05.2005 at 09:32 #523036Ég held ég muni það rétt að nafnið Skálakvísl hafi ég pikkað upp af vörum Ólsarans, hann leiðréttir mig ef ég fer rangt með. Allavega heyrði ég þetta nafn fyrst eftir sullið okkar Gunna þarna síðasta sumar. Nafnið á þriðju kvíslinni þekki ég ekki.
Kv – Skúli
20.05.2005 at 09:26 #522532Eins og Eina Elí segir þá er gerður greinamunur á aðstoð og björgunarútkalli. Þegar sveitirnar eru kallaðar út til að losa fastan bíl eða slíkt er bara sjálfsagt að greitt sé fyrir að lágmarki útlagðan kostnað. Ef líf og limir eru í hættu erum við hins vegar komin að því sem er meginhlutverk sveitanna og þá er ekki spáð í kostnað.
Hjálparsveitin okkar hefur ekkert með þetta seinna atriði að gera, hún er ekki björgunarsveit og hefur ekkert að gera í slíkt. Ef hins vegar þarf aðstoð við að koma bílum niður af fjöllum, koma með varahluti eða annað slíkt er hægt að nýta hana. En það er líklega alveg rétt að það væri gott mál að setja skýrari vinnureglur fyrir sveitina.
Kv – Skúli
19.05.2005 at 22:41 #523030Má vera, en þó má nefna að þegar við Gunni vorum þarna við Skálakvíslina í fyrra var megn brennisteinslykt af henni. Skv. því sem heimamenn sögðu mér getur áin verið sakleysisleg eina stundina en stórhættuleg á öðrum tímum og þá sé háhitasvæði þarna undir að hafa áhrif frekar en árstími og hitastig. Ég er viss um að Gunni er verulega á þeirri skoðun að taka skuli varann á þessari sprænu.
Kv – Skúli
19.05.2005 at 22:24 #522868Hér þarf að taka mið af því að skv. owners manual (sem allir Guinnessfélagar ganga með upp á vasann) á hitastig mjöðsins að vera +8°. Spurning hvort þetta verði vandamál í 2119 metra hæð yfir sjó (eða 2117 skv. nútíma mælingum)
Kv – Skúli
19.05.2005 at 21:21 #522862Sé það að þetta plan Guinnessfélagsins er að þróast í stórbissness. Dugar líklega ekki að taka einn kút með heldur þarf nokkra. Sérstaklega núna þegar stefnir í að ráðnar verði bardömur.
Kv – Skúli
19.05.2005 at 15:38 #522516Athyglisvert með að björgunarsveitirnar taki ekki ábyrgð á þínum bíl. Auðvitað á þetta að vera þannig, en venjulega er þetta ekki þannig. Mörg dæmi um að menn hafi lent í slæmu tjóni vegna hjálpsemi sinnar.
Sem kunnugt er hefur hjálparsveitin ekki lent í mörgum útköllum á síðustu árum og því ekki reynt mikið á þetta. Það er kannski búið að taka hring á þessari umræðu einhvern tíman, en svona hlutir þurfa að liggja fyrir og vera ákveðnar vinnureglur.
Kv – Skúli
-
AuthorReplies