FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Skúli Haukur Skúlason

Skúli Haukur Skúlason

Profile picture of Skúli Haukur Skúlason
Virkur síðast fyrir 8 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1,161 through 1,180 (of 1,301 total)
← 1 … 58 59 60 … 66 →
  • Author
    Replies
  • 21.06.2005 at 15:13 #524318
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    En af því þú nefnir skoðanakönnunina þá held ég einmitt að það sé mjög sniðugt að ekki sé hægt að greiða atkvæði nema vera skráður inn og þá helst bara félagsmenn. Það kemur t.d. í veg fyrir að hægt sé að greiða atkvæði oftar en einu sinni, en núna t.d. dauðlangar mig að greiða mörg atkvæði en get það ekki. Svo er spurning hvort það segi okkur nokkuð ef þetta væri opið öllum sem villast hérna inn og hafa kannski lítinn áhuga á ferðalögum eða jeppum. Kannski einmitt bara skoðanir félagsmanna sem við viljum fá, okkur getur verið skítsama um álit þeirra sem ekki borga félagsgjald í klúbbinn.
    Kv – Skúli





    21.06.2005 at 13:59 #524314
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Kannski ekki alveg nákvæmt að segja að það hafi átt að hafa þetta galopið utanfélagsmönnum. Það var lagt upp með það í upphafi að utanfélagsmenn gætu fengið aðgang en þeir þyrftu að kalla eftir því og þyrftu þá að gefa upp fullt nafn og kennitölu. Sem er hægt, þeir geta sent vefnefnd póst og fengið sig skráða í grunninn. Við vildum ekki að pétur og páll geti skráð sig hér inn undir fölsku nafni og þess vegna svívirt menn hægri vinstri án þess að hægt sé að rekja það til þeirra. Þetta er ekki hægt að gera öðru vísi en með því að það sé smá fyrirhöfn að fá aðgang. Það má vera að það dragi úr lífinu hér á vefnum ef menn geta ekki siglt undir fölsku flaggi, en þá verður bara að hafa það.
    Kv – Skúli





    21.06.2005 at 09:24 #524348
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég man reyndar ekki hvað það er sem Eik er að tala um, en endilega ef einhver man veit hvað verður til þess að ég gangi bersekjagang þá væri fróðlegt að vita. Líklega samt verið að tala um eitthvað annað en einhverja sveppi.

    En með núverandi könnun þá var nákvæmlega sama spurning á Ísland í dag fyrir nokkrum dögum og þá voru hlutföllin nokkurn vegin akkúrat öfugt við það sem hér er. En auðvitað er það alveg rétt að 64 svör er ekki markækt úrtak skv. ströngustu kröfum og netkannanir aldrei nein vísindi. Símakönnun á Ísland í dag er það ekki heldur, en þetta gefur samt örugglega einhverja vísbendingu.

    Kv – Skúli





    20.06.2005 at 14:45 #524270
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Vals, gæti verið að þú hafir verið með gæsalappir í textanum? Ég hef orðið var við að það má ekki því þá heldur kerfið að þetta sé einhver html kóði. Í staðin er hægt að nota ‘ s.s. gæsalöpp, vera með einfætta gæs.
    Kv – Skúli





    20.06.2005 at 14:42 #524296
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég vill samt þakka Benna fyrir ádrepuna, nauðsynlegt að staldra öðru hvoru við og kíkja til veðurs. Fín umræða.
    Kv – Skúli





    20.06.2005 at 14:36 #524294
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ágætur punktur fyrir vefnefndina Júníus, held að þau ættu að setja þetta á verkefnalista. En með punktana hjá Benna, þá er sumt rétt í þessu og annað ekki.
    – Frá því ég kom fyrst á fimmtudagsfund hefur mæting verið frekar takmörkuð. Góður kjarni sem mætti reglulega en lítið umfram það. Myndasýningarnar voru tilraun til að koma með nýbreytni inn í þau og stuðla að því að menn hefðu eitthvað að sækja. Þetta lofaði ágætu í byrjun, fyrstu kvöldin voru fleiri en ég hef nokkurn tíman séð áður á opnu húsi, en svo fækkaði aftur niður í venjulegra ástand. Ef mönnum finnst þetta ekki vera að gera sig og trufla opnu húsin er svosem í góðu lagi að slátra þessu, en ég er efins um að það verði til þess að það auki mætingu.
    – Lélegri mæting á mánudagsfundi. Það eru líklega engar tölur til um mætingu en eiginlega hefur mér fundist hún svipuð. Þetta hefur verið á að giska 100-150 manns lauslega áætlað. Það má hins vegar alveg gera þessa fundi skemmtilegri. Á Loftleiðum reyndum við að vera helst sem oftast með fyrirtækjakynningar, einskonar auglýsingadagskrá, til að fá upp í kostnað. Ef við flytjum okkur í salinn í Mörkinni værum við ekki eins háð því. Spruning hvaða efni mönnum finnst mest spennandi þarna. Annað með fundarstaðinn. Mér finnst salurinn á Loftleiðum frekar leiðinlega mjór og langur, sem gerir það að verkum að sitjandi úti í sal er maður hrikalega langt frá pontunni og lítil tengsl ræðumanns við áheyrendur.
    – Heimasíðan daufleg. Alveg rétt og maður þarf helst að ljúga upp einhverri vitleysu til að fá umræðu í gang. Hvað er að, eru allir komnir með ritstýflu? Ekki kenna vefnum um, þetta er spurning um ræðara en ekki árarnar. Nema reyndar ef menn eru í vandræðum með að komast inn, en þá er bara að senda póst á vefnefnd@f4x4.is og bera sig aumt.
    – Hvað meinarðu Benni! Við stóðum fyrir einni af fjölmennustu ferðum í sögu klúbbsins í vetur, nýliðaferðir hafa verið stútfullar, landgræðsluferðin kannski eitthvað fámennari í ár en áður sem gæti skýrst af breyttri tímasetningu, vetrarslúttin eiga sér ekki sögu sem hægt er að miða við, síðasta árshátíð var ágætlega sótt, stikuferðir hafa verið fámennar og góðmennar allavega undanfarin ár, bjórkvöld ágætlega sótt (enda ókeypis áfengi í boði). Eða hvað hafðir þú í huga?
    – Já það klikkaði núna sem er sennilega nokkuð sérstakt. Ég held þó að sú ákvörðun ritnefndar byggi á ágætum rökum, en þau hefðu mátt auglýsa hana hér á vefnum. Þarna er raunar útgáfufríið fært til en ekki felld niður útgáfa.
    – Og lokapunkturinn með að það sé valtað yfir okkur. Líklega nokkuð til í því. Við náðum þó fram mjög mikilvægri breytingu á utanvegareglugerðinni, þó við næðum ekki öllu fram sem við vildum. Eiginlega gildir sama um reglugerðina um Skaftafellsþjóðgarð. Þarna er vissulega varnarbarátta í gangi en samt mikilvægir varnarsigrar. Hluti af skýringunni er að það hefur fjölgað gríðarlega í þessu sporti og það verður bara að játast að það sýna ekki allir í þeim hóp ábyrga ferðamennsku, þó ég vilji meina að flestir innan okkar klúbbs geri það. Það var athyglisvert að sjá sviðstjóra náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun (Árna Bragason) tala með jákvæðum hætti í okkar garð í blaðaumfjöllun nýlega. Ég held ég geti fullyrt að þau ummæli eru ávöxtur af starfi og stefnu klúbbsins í náttúruverndarmálum.
    Kv – Skúli





    20.06.2005 at 13:50 #524266
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég skal játa að Benni hitti eiginlega naglan á höfuðið hér að ofan, enda eins og ég sagði, ég bara spurði hvort einhver hefði heyrt þetta því ég hef ekki heyrt þetta. En allavega þurfum við að vera vakandi fyrir umræðunni um hluti sem þessa og vera líka stöðugt á tánnum með að fylgjast með hvort það séu veikir punktar í breytingum, vera búin að uppgötvað þá áður en aðrir sjá þá. Við ættum líka að vera í aðstöðu til þess, bara spurning um að loka ekki augunum fyrir hlutunum þó það sé stundum einfaldasta leiðin. Þessi umræða um hvort tilteknir klafabílar þoli stærstu dekk hefur verið viðloðandi, en kannski ekki byggt mikið á rökum. Við þurfum að vita þetta fyrir víst, ásamt því hvað sé satt í fullyrðingum um að tannstangarstýri í Barbí þoli ekki álagið. Ef það þolir það ekki eigum við að gera kröfu um að því sé skipt út, þetta snýst jú um líf og limi.
    Kv – Skúli





    20.06.2005 at 10:13 #524214
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég er svosem ekki mikill tölvuspekingur, en þetta er skrýtið vandamál. Getur verið að þetta hafi eitthvað með skjáupplausn að gera?
    Kv – Skúli





    20.06.2005 at 00:21 #524252
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Jaaa. ég spurði bara hvort .!!!
    En þessi framtíðarsýn sem þú lýsir Benni væri náttúrulega bara nákvæmlega afturhvarf rúm 20 ár aftur í tíman þegar jeppabreytingar voru í raun bannaðar og menn fóru með dekkin á kerru upp að jaðri siðmenningarinnar.

    En hvað, þola klafarnir þínir þetta örugglega ;o)

    Kv – Skúli





    19.06.2005 at 19:26 #196047
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Hefur einhverjir hér heyrt eitthvað um að umferðastofa sé að skoða klafabúnað á jeppum sérstaklega? Einhver pæling um hvort eða hvaða klafar þola stærri dekk og jafnvel að bannað verði að setja stærri dekk en 35′ á klafabíla? Væri fróðlegt ef einhverjir hafa heyrt eitthvað um þetta.

    Kv – Skúli





    19.06.2005 at 14:57 #524174
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég fór í smá rannsóknavinnu í þessu, enda sömu spurningar að leita á mig. Ég fékk þær upplýsingar að ákveðið hafi verið að fella niður júní Setrið en gefa út júlí Setur í staðin sem annars hefði fallið niður. Ástæðan er að enn vantaði mikið af fréttum og upplýsingum svosem um sumarstarfið og slíkt. Við fáum því líklega eintak næstu mánaðarmót, fullt af spennandi efni. Og endilega ef menn hafa efni sem þeir vilja koma á framfæri þá er málið að senda það sem fyrst á ritnefnd@f4x4.is.

    Kv – Skúli





    16.06.2005 at 12:09 #524158
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Bjallan var náttúrulega svo skemmtilega útfærð að hún flaut ágætlega. Þannig að það var bara að binda hana aftan í góðan jeppa og þá voru ár engin fyrirstaða.
    Efast samt um að Impalan hafi notað þá aðferð. Það er svo margt hægt ef maður er nógu vitlaus til að reyna það.
    Kv – Skúli





    16.06.2005 at 09:26 #524144
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég hugsa að fljótlegast sé að fara einfaldlega Dómadalin og niður Holtaveg hjá Laugalandi og Vegamótum, allavega ef Dómadalsleið er greiðfær. Annars ferðu niður hjá Hrauneyjum og niður með Þjórsá að austanverðu og svo sömu leið niður. Ef þú ert ekki mjög mikið að flýta þér er skemmtilegur varíant á þessari leið að beygja útaf þessari leið ekki langt frá Galtalæk til austurs, ferð þá yfir Rangá á brú og niður Heklubraut. Minnir að það standi Næfurholt á skilti við þau gatnamót.
    Kv – Skúli





    15.06.2005 at 14:31 #196036
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Skriðgírinn frá Ashcroft er kominn aftur í framleiðslu úti. Þetta er gírinn sem boltaður er aftan á aflúrtakið á LT230 millikassanum og er til í nokkrum bílum hér á landi. Þessi gír gefur niðurfærslu um 2,69 og er þá hlutfallið í 1. gír LóLó komið í 116,8 eða þar um bil. Gírinn á að verða tilbúinn til afgreiðslu 1. júli 2005, en þeir eru byrjaðir að taka við pöntunum.

    Sjá hér

    Tók eftir því að þarna segja þeir að sögulega séð sé þetta framleitt fyrir ‘..the ‘Rock Crawlers’ in the USA and the ‘Glacier Crawling’ in Iceland.’

    Verðið er 1.500 pund eða 180 þús + flutn. og tollur.

    Einnig gömul umfjöllun um hann hér: hér

    Annar valkostur sem þeir eru að bjóða þarna er að skipta út hlutföllum í kassanum og verður þá hlutfallið í niðurgírun í háa drifinu 1,222 (í stað 1,411 og 5,950 (í stað 3,321) í láa drifnu. Með því verður engin skörun milli gíra, þ.e. 5. láa er lærri en 1. háa. Spurning hvort það sé ekki óþæginlegt í mismunandi færi (alltaf að hræra í millikassanum)

    Allavega það er eitthvað verið að framleiða fyrir þennan litla markað okkar (og kanana)

    Kv – Skúli





    14.06.2005 at 13:33 #196034
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Boltinn hennar Snotru (hundsins) varð eftir í Mörkinni og fannst við frágang á svæðinu. Boltinn er í geymslu klúbbsins inni í Mörk. Ætti að vera hægt að nálgast hann á opnu húsi.
    Kv – Skúli





    13.06.2005 at 15:36 #523632
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þessi reynslusaga af BFG Mud dekkjunum kemur mér á óvart. Ég hef alltaf haft tröllatrú á BFG og hefði haldið að það sé ekki mikill munur á AT og MT nema hvað varðar munstrið. Ég á 35" MT dekk sem sá breski var á fyrir breytingu og fara enn undir að sumarlagi og hafa þau verið algjörlega vandræðalaus. Má samt vel vera að dekkin sem ‘Benni Irok’ er að tala um séu ekkert síðri, en er komin einhver reynsla á þau?

    Kv – Skúli





    12.06.2005 at 14:32 #524002
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta hljómar ekki vel. Eitt er þegar náttúrunni er umturnað í nafni orkuvinnslu. Öllu verra þegar það er gert í nafni þess að bæta aðgengi fólks að óspilltri náttúru, þá er tilgangurinn farinn að týnast í aðferðinni. Það er auðvitað hið versta mál þegar hjólför sjást í óspilltri náttúru en hjólaskófluför eru hálfu verri. Og uppbyggðir vegir eiga ekki heima á hálendinu.
    Kv – Skúli





    11.06.2005 at 23:57 #524076
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þá erum við sammála eins og mig svo sem grunaði. Var einmitt með þann leiðara í huga þegar ég nefndi að þeir moggaritstjórar hafi gengið lengra í alhæfingum.
    Kv – Skúli





    11.06.2005 at 22:42 #524096
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Já Hlynur, það er ekki leiðinlegt að finna punkt þar sem við vitum meira en Jón ,o)





    11.06.2005 at 22:37 #524072
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Sé félagi Ofsi að tala um leiðara Moggans í dag þá er ég sammála Þóri og get eiginlega tekið undir allt í þessum leiðara. Allt frá því ég fékk vit til þess að ferðast um hálendið og njóta þess hafa skemmdir eftir utanvegaumferð farið óskaplega í taugarnar á mér, sama hvort þær eru eftir hesta, bíla eða það sem er orðið áberandi núna, hjól. Alltaf þegar ég sé tvö samhliða hjólför liggja einhvers staðar utan vega, við hliðina á vegi, upp brekku eða hvar sem er þar sem ekki er slóð, finnst mér orðstýr minn og annarra sem ferðast á jeppum vera spillt af sjálfselskum eða hugsunarlausum einstaklingum og ferðafrelsi okkar sett í hættu. Nákvæmlega þetta var eiginlega eina ástæðan fyrir því að ég gekk í 4×4 klúbbinn. Ég var ekki að leita eftir ferðafélögum, átti nóg af þeim, ekki eftir afsláttunum, ekki eftir aðgangi að VHF rásum (þær skiptu ekki svo miklu máli á þeim tíma), ekki ódýru gisitigjali í Setrinu eða neinu af þessum bónusum sem fylgja því að vera í klúbbnum. Ég sá einfaldlega klúbbinn sem þann aðila sem helst væri að vinna gegn utanvegaakstri og vettvang þeirra sem vilja ferðast um landið á ábyrgan hátt og um leið (og einmitt með því) verja ferðafrelsið og fannst engin ofrausn að leggja smá pening í það starf á ári hverju. Mér finnst þessi leiðari ekki vera að gera neitt annað en að tala fyrir þessum sjónarmiðum. Hins vegar hafa ritstjórar moggans gengið lengra og haft upp alhæfingar og kannski eru það þær sem eru í huga Jóns ofsa.

    Hugsanlega vinnur þessi reglugerð að þessum markmiðum sem henni er ætlað, það er að draga úr utanvegaakstri. Ég hef ekki ennþá lagst í hana (hægt að sjá hana [url=http://www.ust.is/media/aksturutanvega//Reglug_um_akstur_nr_528_2005.pdf:245p9dnd]hér[/url:245p9dnd]), en sé þó að 50 cm ákvæðið er farið út eins og reyndar var búið að koma fram. Í staðin er komið ákvæði sem ég held að auðvelt hljóti að vera að búa við, þ.e. að heimilt sé að aka á ‘jöklum svo og snævi þakinni og frosinni jörð svo fremi að ekki skapist hætta á náttúruspjöllum’.

    Annars er umræðan hér komin á hliðarspor en hugmyndin um þingmannaferðina er frábær. Eina sem ég hef að athuga við planið hans Ofsa er að við förum ekki að keyra heim eftir einhverjum Landsvirkjunarvegi meira en óhjákvæmilegt er, heldur förum auðvitað alvöru jeppaslóð um Búðarháls.

    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1,161 through 1,180 (of 1,301 total)
← 1 … 58 59 60 … 66 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.