FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Skúli Haukur Skúlason

Skúli Haukur Skúlason

Profile picture of Skúli Haukur Skúlason
Virkur síðast fyrir 8 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1,141 through 1,160 (of 1,301 total)
← 1 … 57 58 59 … 66 →
  • Author
    Replies
  • 21.07.2005 at 17:57 #524996
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Skv. upplýsingum frá framkvæmdastjóra Útilífs erum við með 10% afslátt af útivistarvörum, en ekki öðru. Í pósti frá Gerði framkvæmdastjóra segir:

    "4X4 Klúbburinn er er með 10% afslátt af öllum útivistarvörum en ekki sportvöum. Við höfum að vísu veitt ykkur 10% afslátt af öllum skíðavörum en
    ykkar menn eru að koma til okkar og kaupa föt í ræktina og hlaupaskó og vilja líka 10% afslátt af þessum vörum. Því miður er það ekki hægt því við kaupum þessar vörur af innlendum heildsölum og erum því með mjög lága
    framlegð af þessum vörum."

    Þetta væntanlega skýrir mismunandi svör sem menn fá, þ.e. þetta hefur með að gera HVAÐ er keypt, ekki hvar.

    Kv – Skúli





    18.07.2005 at 22:25 #524978
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þorsteinn sem kom með Tomcatinn bað mig um kveðjur og þakkir fyrir móttökurnar.

    Kv – Skúli





    18.07.2005 at 22:19 #525002
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta er líklega málið. Sverrir Kr. lenti í því sama, sbr. þessi þráður: https://old.f4x4.is/new/forum/?file=vefsida/5333

    Kv – Skúli





    15.07.2005 at 09:27 #524894
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta er örugglega hárrétt hjá Elías. Þessar hugmyndir um hálendisvegi koma auðvitað upp af því að það eru einhverjir hagsmunir í húfi. Mér finnst hins vegar mjög líklegt að það megi ná meira en einhverri 40-60 km styttingu á ódýrari hátt en með Kjalvegsleiðinni og án þess að fórna hálendissvæðum.
    Það virðist vera að töluvert margir geri sér ekki grein fyrir að það skipti máli að halda mannvirkjagerð á hálendinu í lágmarki. Það er því hlutverk okkar sem ferðumst um hálendið að reyna að gera mönnum það ljóst. Ég er líka viss um að þingmenn Norðurlands myndu hlusta frekar á ykkur í Eyjafjarðardeildinni en okkur hér fyrir sunnan.
    Kv – Skúli





    12.07.2005 at 18:07 #524858
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það er mín skoðun að hálendisvegir eigi að vera til að þjóna þeim sem eru að fara inn á hálendið. En það er auðvitað ekki það sem menn eru að spá, heldur að nota hálendið undir samgönguæðar milli byggðalaga. Ég veit ekki hvort er skárra, Stórasandsleiðin eða þessi. Eitt sem má hafa í huga þarna og það er að á Kili sunnan Hveravalla er mjög þröngt á milli jökla þannig að uppbyggð hraðbraut þarna eyðileggur svæðið verulega sem útivistarsvæði.

    Kv – Skúli





    10.07.2005 at 13:59 #524808
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Jón Snæland er líka með laugaskrá í nýju bókinni sinni, Utan alfaraleiða.
    Kv – Skúli





    08.07.2005 at 19:44 #524794
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég er að vísu svo mikill frummaður að eðlisfari að það mætti vera gamaldags ‘tobleron’ við Setrið mín vegna. En líklega ekki málið að hafa sjálfan sig sem mælikvarða alltaf og við sem keyrum um á Land Rover erum líklega ekki marktækir þegar kemur að kröfum um þægindi.

    Ég held að eins og þeir í skálanefndinni hugsa þetta sé ekki svo mikil hætta á að skítalykitin leggi um allt hús. Klósettið kemur í framhaldi af anddyrinu þannig að það er ágætlega skilið að frá restinni af húsinu þó það sé innangengt.

    Með hækkunina á gistigjöldum, þá má segja að gisting í flottasta fjallaskálanum sé ekki lengur ódýrust eins og verið hefur, en samt haldið opnum mjög góðum möguleika á að kaupa gistingu á sprenghlæginlegu verði með því að kaupa miða. Bara hið besta mál hjá skálanefndinni.

    Kv – Skúli





    08.07.2005 at 19:30 #524800
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Já júní eða júlí, þetta er náttúrulega næsti bær við. Rétt eins og bensín eða diesl, næsti bær eða næsta slanga og kostar hvort eð er svipað nú til dags.
    Takk Keli!

    Kv – Skúli





    06.07.2005 at 11:11 #196082
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Er einhver að fara inn í Þórsmörk á föstudagskvöldið? Ef svo er má viðkomandi gjarnan hringja í mig.
    Kv – Skúli, sími 664 5063





    03.07.2005 at 16:39 #524722
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Meðan annað er ekki tiltekið er leyfilegt að aka á Snæfellsjökul, svo fremur sem snjólína og vegslóði nær saman. Það kemur að því að ekki er hægt að aka í snjóinn beint af slóða og þá lokast möguleikinn að keyra upp.
    Kv – Skúli





    02.07.2005 at 12:02 #524620
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Jú það á að vera hægt. Þú ferð í Mínar upplýsingar og þá kemur listi yfir myndaalbúmin hægra megin. Þar velurðu albúmið færð þá fram möguleikann að breyta því.
    Kv – Skúli





    02.07.2005 at 11:58 #524646
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það er eiginlega engin spurning að af rafmagnsloftdælum ber Fini af í afköstum. Fæst m.a. hjá Fossberg og víðar.
    Kv – Skúli





    29.06.2005 at 23:46 #522962
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Já hér er margs að gæta. Guinnessbarinn á Hnjúknum hefur enn ekki verið opnaður formlega, en það mun ekki fara leynt þegar þar að kemur. Leiðtogi Guinnessfélagsins mun vera kominn undir feld.

    En þetta er rétt hjá Klakanum að játning Ofsans í útvarpsviðtali, þess efnis að ástæða VHF væðingarinnar sé aðallega af því jeppamenn séu svo leiðinlegir að enginn vill ferðast með þeim, ja hún var nokkuð athyglisverð. Þetta skýrir hvers vegna stöðugt verður erfiðara að finna kóara, þrátt fyrir loforð um frábæra skemmtun á fjöllum. Svona er nú nútíma tækni stórkostleg.

    Skaft af drullutjakki er nauðsynlegt í hverjum jeppa og til margra hluta nytsamlegt. Getur hreinlega bjargað manni til byggða ef út í það er farið.

    Kv – Skúli





    27.06.2005 at 21:58 #196063
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Vildi bara óska félaga okkar Jón ofsa Snæland til hamingju með nýju bókina, „Utan alfaraleiða“. Við fyrstu sýn virðist þessi ekki síðri en fyrri bókin og ómissandi í bílinn á ferðalögum.

    Kv – Skúli





    26.06.2005 at 22:42 #524242
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Velkominn í auglýsingaheim 4×4 klúbbsins, gott að heyra að það fannst skýring á þessu.
    Kv – Skúli





    23.06.2005 at 11:56 #196059
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Jæja nú virðist þetta allt vera á góðri leið með að opna. Fjallabakssvæðið allt orðið opið og Sprengisandsleið niður í Bárðardal. Það sem enn er lokað er Gæsavatnaleið og það svæði austur að Öskju, leiðir af Sprengisandi niður í Eyjafjörð og Skagafjörð, þ.m.t. Laugafell, línuvegurinn frá Kaldadal yfir á Haukadalsheiði (sem hefur verið til umræðu hér), Stórisandur, vegurinn inn í Þjófadali frá Hveravöllum og svo að mér sýnist Þeistareykjasvæðið (að vísu ekki mjög kunnugur staðháttum þar). Annars er hægt að sjá Vegagerðakortið hér undir Fróðleik.

    Kv – Skuli





    22.06.2005 at 18:01 #524228
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Eru fleiri í sömu stöðu og Sverrir, þ.e. að linkurinn á smáauglýsingarnar hverfi?

    Spurning hvort þetta geti haft eitthvað með stillingar á browser að gera, því tæpast er það tölvan sem er ný og hann er með nýjar útgáfur af browserum.

    Kv – Skúli





    22.06.2005 at 13:42 #524370
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Skemmtileg og klassísk umræða. Ég verð eiginlega að taka undir með Agnari og Nökkva að nokkru leiti. Auðvitað er hundleiðinlegt að bíða á ljósum og komast ekki yfir fyrr en á þriðju ljósum, en það er bara eitt af ótal mörgu sem er leiðinlegt við að búa í borg. Menn geta sætt sig við það eða losnað við það með því að flytja t.d. til Akureyrar þar sem umferðin gengur jafnan betur en þurfa þá að sætta sig við að það taki 5 en ekki 4 tíma að keyra til Reykjavíkur. Alveg væri ég til í það ef aðstæður hjá mér leyfðu slíka búferlaflutninga og það myndi ekki breyta skoðun minni á hálendisvegum. Það eru náttúrulega ýmis vandamál sem fylgir því að vera til og margskonar lausnir, en þá er þetta alltaf spurning um fórnarkostnað. Viljum við eyða milljörðum í að spara okkur 10 mín á leiðinni úr og í vinnu og viljum við fórna stórum sneiðum af hálendinu í að spara okkur klukkutíma milli landshluta. Kannski eðlilegt að þeir sem geta labbað í vinnu og þurfa ekki að hanga í röð upp á Höfða svari fyrri spurningunni neitandi og þeir sem aldrei hafa komið á hálendið og finnst það ekkert merkilegt svari seinni spurningunni játandi. Þess vegna er munur á könnuninni hér og á Bylgjunni. En t.d. hálendisvegur yfir Kjöl myndi raunar setja mark sitt á allt svæðið þar á milli jökla þar sem það er tiltölulega þröngt á milli. Vegur yfir Stórasand myndi skera í tvennt það svæði sem hefur hingað til fengið að vera hvað mest í friði fyrir ‘siðmenningu’. Þannig að þó það megi alveg taka undir að ávinningurinn af hálendisvegi sé allnokkur, þá er fórnarkostnaðurinn verulegur í óafturkræfum verðmætum. Það hafa verið færðar margar stórar fórnir á hálendinu á undanförnum áratugum og það er orðið tímabært að við spáum í það hvar eða yfirhöfuð hvort við ætlum að stoppa einhvers staðar á þeirri braut eða leyfa þessu öllu hægt og bítandi að verða mannvirkjagerð að bráð.

    Kv – Skúli





    22.06.2005 at 10:38 #196057
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Skilst að það verði umfjöllun umutanvegaakstur í morgunútvarpi Talstöðvarinnar í fyrramálið.

    Kv – Skúli





    21.06.2005 at 15:36 #524322
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Með gestaaðganginn þá er nóg af öðrum verkefnum hjá vefnefndinni. Ég myndi segja að það sé fyrst að tryggja að allt sé að virka vel fyrir "greiðandi" kúnna, þ.e. félagsmenn og svo þegar tími gefst til er hægt að setja effort í þá sem ekki borga fyrir þjónustuna. Almennt séð finnst mér aðgangur utanfélagsmanna eigi að vera sem minnstur og aðeins ef það gagnast félagsmönnum að þeir hafi þann aðgang.

    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1,141 through 1,160 (of 1,301 total)
← 1 … 57 58 59 … 66 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.