FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Skúli Haukur Skúlason

Skúli Haukur Skúlason

Profile picture of Skúli Haukur Skúlason
Virkur síðast fyrir 8 years, 8 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1,121 through 1,140 (of 1,301 total)
← 1 … 56 57 58 … 66 →
  • Author
    Replies
  • 10.08.2005 at 00:55 #525580
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Á þræðinum sem Hlynur særir upp þarna sést að fyrir sléttum tveimur árum hefur rennslið verið rétt um tvöfalt meira en það er núna eða 200 rúmmetrar á sek. Annað hvort hefur áin verið í miklu fjöri þá eða er frekar lítil núna miðað árstíma. Það var einmitt 2003 sem ég fór þarna í lok september og þá hafði hún minnkað verulega, þurfti lítið að leita að vaði, en ég hafði heyrt af bílum sem snéru frá ekkert löngu áður.
    Kv – Skúli





    10.08.2005 at 00:41 #525406
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Gaman að sjá þessar elstu þarna frá þeim árum þegar enn sást amerískt á fjöllum og Willis var helsta hetjan í torfærukeppnum.





    09.08.2005 at 21:21 #196144
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Vil vekja athygli á þessari úrklippu af mbl.is sem er í myndaalbúminu:
    https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/2369/24699

    Þetta er svo sláandi dæmi að það ætti eiginlega að búa til plakat úr þessu. Það er ekki bara ríkisvaldinu að kenna að olíuverð sé hátt, þó ríkið eigi mikla sök.

    Kv – Skúli





    09.08.2005 at 21:08 #525572
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þú getur séð rennslið og vatnshæðina hér:
    http://vmvefur.os.is/cgi-bin/Vatn/Vatn.exe?Station=v261

    Þessi mælir er við Maríufossa sem er eitthvað þarna fyrir neðan. Mér sýnist að það sé ennþá fullt sumarrennsli í ánni þannig að ég myndi ekki veðja á að vaðið sé fært. Þegar ég hef farið þarna hefur verið komið vel fram í september og vatnshæðin komin niður undir 50 cm ef ég man rétt.

    Kv – Skúli





    08.08.2005 at 10:04 #525394
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Já endilega meira, ég er alvega sammála Hlyni og Hilmari. Þessar gömlu myndir eru í miklu uppáhaldi hjá mér og verulega skemmtileg tilbreyting frá myndum af Patrollum í snjó frá öllum sjónarhornum. Sérstaklega gaman þegar góðir textar fylgja.
    Annars hef ég dottið um hin ýmsu myndaalbúm með tilkomu random myndarinnar á forsíðu.
    Kv – Skúli





    03.08.2005 at 00:19 #525304
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta er örugglega góður punktur að koma skilaboðunum skýrt til ungra manna sem eru að byrja í þessu og kannski svolítið gr… á pinnann. Gemlingarnir ættu kannski að setja í gang umhverfishóp, ég er viss um að þeir gætu haft mun meiri áhrif þarna en umhverfisnefndin. Þeir ná örugglega betur til þessa hóps en einhverjir "gamlir heflar" í umhverfisnefndinni (with all respect;).
    Annars það sem við höfum verið að gera er skilti við upphaf flestra meginleiða inn á hálendið með texta á ensku og íslensku, bæklingar, tókum þátt í útgáfu korta með áróðri gegn utanvegaakstri á fjölda tungumála og svo núna síðast létum við setja upp skilti sambærilegt við kortin á bakkanum á Seyðisfirði sem er staðsett þannig að trukkarnir komast ekki hjá því að keyra framhjá því. Auk þess höfum við notað fjölda tækifæra til að koma baráttunni gegn utanvegaakstri á framfæri, t.d. hefur Jón ofsi verið iðinn við það í viðtölum útaf bókinni.
    Mér finnst þetta vera slatti og umræðan búin að vera mikil síðustu ár og þess vegna finnst mér ergilegt að þetta virðist ekki hafa meira að segja en þetta.
    Kannski öflug auglýsingaherferð í blöðum og sjónvarpi af svipuðum krafti og baráttan gegn ölvunarakstri.
    Kv – Skúli





    02.08.2005 at 17:14 #525300
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta eru slæmar fréttir af fjöllum sem því miður koma ekki á óvart. Það er því miður staðreynd að maður sér allt of víða ummerki eftir utanvegaakstur og þessi saga með Linerinn er alveg dæmigerð. Það er óneitanlega þetta sem kallar á hluti eins og nýjar reglugerðir og strangara eftirlit og þannig bitnar svona háttarlag á öllum sem ferðast um hálendið.
    En svo er spurningin hvað við getum gert, er eitthvað sem klúbburinn getur gert sem ekki hefur verið reynt áður til að sporna við þessu?
    Kv – Skúli





    30.07.2005 at 11:10 #525276
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Hér er verið að vara minni jepa við Lindá, sem hefur hækkað vegna vatnavaxta í Jökulsá á Fjöllum:
    http://www.ust.is/NyttEfni/nr/3231





    30.07.2005 at 00:02 #525160
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það var nú svolítið forvitnilegt að fylgjast með þessu máli öllu saman og þegar uppvar staðið var þetta bara einhver smá hópakstur um bæinn á hægri ferð og olli svosem ekki miklum truflunum. Þarna finnst mér þeir hafa brugðist rétt við og séu að fá alla athygli sem hægt var að fá, en án þess að skemma fyrir sér með því að skapa almenna andúð á stéttinni. Allt gert í góðri samvinnu við lögguna, sem er einmitt það sama og við gerðum í flautukórnum, Glanni var orðinn besti vinur löggunnar meðan á skipulagningunni stóð. En þetta kannski finnst mönnum vera svik við málstaðinn, eða hvað?

    En þetta mál og þessi þráður finnst mér athyglisverð pæling út frá baráttutækni. Mér sýnist eik og ofsi vera á því að menn hafi ‘..fullan rétt til þess velja þær aðferðir sem telja vænlegastar til þess að vekja athygli á sínum máli’. Skiptir þá ekki máli hvort aðgerðin sé lögleg eða ólögleg? Gildir þessi regla um alla eða bara suma? Ég veit að öfgahópar múslíma svo ég haldi áfram að taka ýkt dæmi og ýmsir fleiri eru sammála ykkur þarna. Þessi hugmyndafræði er ekki ný af nálinni, mannkynsagan er full af dæmum, en ég held að þessi pæling hafi í flestum tilfellum staðið í vegi fyrir að það finnist skynsamleg lausn á deilum og vandamálum. Nærtækt dæmi er hjá grönnum okkar Írum.

    Mér hefur gengið illa að finna nákvæmlega hvaða kröfur eru bak við aðgerðirnar, þ.e. er krafan að fá þungaskattinn aftur, fá olíugjaldið almennt lækkað eða sértækar aðgerðir til að minnka kostnað atvinnubílstjóra. Það má vera að þetta hafi komið fram en ég hef ekki séð það, enda hafa fréttamenn því miður ekki áhuga á svoleiðis hlutum, bara hasarnum.

    Eik, góða ferð á slóðir Hálslóns. Láttu ekki stinga þér í steininn fyrir ólöglegar mótmælaaðgerðir, þeir eru harðir þarna fyrir austan;o)

    Kv – Skúli





    29.07.2005 at 16:59 #525274
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Sá einmitt þennan Voffa þarna við Steinholtsá, eiginlega á vitlausum bakka að mínu mati, þ.e. innan við ánna. Var að undrast það hvaða vitleysingur þetta væri.
    En á Defender er ekkert mál að meta vatnið, maður fylgist bara með að vatnsyfirborðið fari ekki yfir ákveðið mark … í mælaborðinu.

    Kv – Skúli





    29.07.2005 at 13:11 #196122
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég var að heyra í Jóni Ofsa sem er á leið í Illugaver og hann vildi koma því á framfæri að honum sýnist jökulár sem hafa verið á vegi hans vera býsna vatnsmiklar. Rétt að hafa það í huga í ferðum helgarinnar og stíla inn á að vera snemma á ferð í ánnum. Ég hef líka haft spurnir af því að árnar inn í Mörk séu sæmilega sprækar að sjá.
    Kv – Skúli





    29.07.2005 at 11:03 #525152
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Og í mótmælaskyni munum við teppa internetumferð úr Grafarholtinu!





    28.07.2005 at 20:42 #525144
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    "I rest my case"
    Meira hér: http://www.ruv.is/main/view.jsp?branch= … ID=2213589
    Ég vísu ekki búinn að sjá hugsanlega hættu af þessu.

    Kv – Skúli





    28.07.2005 at 00:14 #525072
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Eyþór, til að bæta gráu ofan á svart er ég félagsmaður í FÍ og Landróver klúbbnum og dauðlangar líka Jörfís. En reyndar óvirkur í þessum félögum, en finnst sjálfsagt að eiga þessi skíreini. FÍ og Útivist eru sjálfsagt í samkeppni um félagsmenn en tæpast 4×4 og Útivist, til þess eru þetta of ólík fyrirbæri. Þú færð einfaldlega ólíka hluti með félagsaðild í þessum félögum. Eins og ég segi, annað er ferðaklúbbur fólks sem ferðast á eigin vegum, hitt er ferðafélag sem stendur fyrir skipulögðum ferðum í stórum stíl.

    Það má samt vel vera að það geti komið upp mál þar sem hægt er að tala um hagsmunaárekstra. Það er hins vegar líklegt að þá séu þau mál á borði stjórnar Útivistar og þá er hægt að víkja sæti í stjórn 4×4 meðan þau eru tekin fyrir. Slíkt ætti þó ekki að vera algengt, allavega kom ekkert slíkt upp á síðasta starfsári. En ef ég hef rangt fyrir mér með það að þetta sé ekkert vandamál, þá þarf hreinlega varaformaður að taka við. Hér að ofan er svo hins vegar bent á góðar hugmyndir um samstarf og reyndar er samstarfssamningur í gangi um VHF sem mætti víkka út.

    Með verð á ferðum Lúther, þá skýrist munurinn í fjölskylduferðunum á því að rúta er innifalin í verðinu hjá Útivist. En þar fyrir utan byggir verðlagning í ferðir hjá Útivist á því að tekjur standi m.a. undir kostnaði fararstjóra og reyndar þar fyrir utan höfum við í 4×4 alltof oft verið að tapa eða borga með ferðum og uppákomum. Nægir að nefna þorrablót sem dæmi þar. Verð hefur alltof oft verið keyrð niður úr öllu þannig að ekkert má klikka til að ekki sé komið tap. En það er kannski annað mál, en samt slæmt mál.

    Kv – Skúli





    27.07.2005 at 23:39 #525210
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég hef ekki farið hana í ár en þetta er víða grafið og úrrennsli og skemmtilegheit. Sæmilega háfættur jeppi kemst þetta sjálfsagt vandræðalaust á lagninni einbíla, en ég myndi ekki mæla með því fyrir minna breytta jeppa.
    Kv – Skúli





    27.07.2005 at 23:36 #525124
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Fyrst nokkrir punktar til Jóns ofsa. Það er rétt að kjarabarátta hefur byggst á aðgerðum sem bitna á þriðja aðila enda er loksins að renna upp ljós fyrir mönnum að þær aðferðir virka ekki. Það sannaðist berlega í kennaraverkfallinu síðasta þegar hver vika sem kennarar sátu heima sparaði sveitarfélögum stórar fúlgur og fórnarlömbin höfðu ekki einu sinni kosningarétt. Það var því ekki nema von að verkfallið stæði lengi og margt sem bendir til þess að viðsemjendur kennara hafi gagngert reynt að draga það á langin eins og hægt er. Í þokkabót voru svo kjarabæturnar í skötulíki að venju. Eina ástæðan fyrir að menn nota verkföll ennþá er að menn kunna engar aðrar leiðir og svo virka þær hjá þeim stéttum sem geta látið aðgerðirnar bitna á stjórnvöldum. Svo ertu nú kominn langt út fyrir það sem orð mín gáfu tilefni til þegar þú talar um skæruhernað gegn einræðisstjórnum og frelsisheri, ég var aðeins að benda á ákveðna samsvörun með því þegar al-Qaeda raskar almenningssamgöngum í London með sprengjum og að raska almenningssamgöngum á Íslandi með því að loka vegum. En ítreka enn og aftur að með þessu er ég ekki að segja að atvinnubílstjórarnir séu terroristar, það skilur jú að hvort notaðar séu sprengjur við verkið eða einfaldlega trukkunum lagt fyrir veginn og á því er mikill stigsmunur. Eftir situr samt að báðar aðgerðir bitna á saklausum borgurum en ekki ráðamönnum. En enn og aftur, ég var ekki að segja að slíkar aðgerðir geti ekki skilað árangri og það má vel vera að lokanir á vegum hreyfi við einhverju. Kannski fá atvinnubílstjórar í gegn einhverjar sértækar aðgerðir, endurgreiðslu eða afslátt sem opnar holur fyrir einhverja til að misnota kerfið meðan aðrir búa áfram við skattpíninguna, er það ekki svolítið íslensk niðurstaða!

    Ég tek undir með Helenu að það er vanmat að flautuaðgerðin hafi ekki skilað neinum árangri. En hélt einhver í alvöru að við fengjum 20 kr. lækkun á líterinn??? Því miður held ég að það sé sama hvaða aðferð við beitum, við náum ekki slíkum árangri. En til viðbótar við það sem Helena nefnir í árangri náðum við að vera fyrst til að vekja athygli á málinu svo eftir væri tekið, við vöktum þetta mál upp og komum í veg fyrir að hægt yrði að lauma þessu í gegn án þess að neinn tæki eftir. En eins og ég segi, þegar fram kom aðili sem gegnir því hlutverki að gæta hagsmuna bifreiðaeiganda og snýr út úr málinu, þá skaðaði það verulega árangur aðgerðarinnar.

    Nóg að sinni – Skúli





    27.07.2005 at 15:31 #525108
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta kom líka inn í umræðuna um olíugjaldið. Með árangur þá er ég ekki að segja að það skili ekki árangri að valda sem mestum truflunum, en ég er samt ekki viss um að þetta sé rétt aðferð eða eitthvað sem rétt sé að setja nafn sitt við.

    Bara rétt eins og með terroristana, aðferðir þeirra skila heilmiklum árangri og koma þeim á forsíður heimspressunar dag eftir dag og öll vesturlönd skjálfa undan þeim, en þetta er ekki beint það æskileg baráttuaðferð.

    Kv – Skúli





    27.07.2005 at 12:53 #525104
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þegar þessar aðgerðapælingar voru hér í gangi sem leiddu svo til þess að við fórum í laaaaaaangri lest fyrir framan Alþingi og flautuðum, þá var ég á móti því að við gerðum það að markmiði að loka götum og trufluðum samgöngur. Röskun á almenningssamgöngum, er það ekki einhver aðferðafræði Ósómanum Binna-Lata og félaga hans í al-Qaeda! Allavega sýnist mér það í London. En til að taka fyrir allan misskilning er ég ekki að leggja þessar aðgerðir að jöfnu við einhver hryðjuverk, en það er þessi sama þversögn samt þarna, aðgerðir gegn stjórnvöldum sem bitna fyrst og síðast á almenningi.
    Það er ekki rétt að það hafi ekki skilað árangri að flauta fyrir utan Alþingi, þó það hafi reyndar skemmt mikið fyrir þeirri aðgerð að framkvæmdastjóri FÍB skildi ráðast gegn henni opinberlega. En þá var valdið truflun HJÁ ÞEIM SEM BERA ÁBYRGÐINA, þ.e. alþingismönnum. Það varð m.a. til þess að málið kom til umræðu inni á þingi og við gátum komið okkar sjónarmiðum á framfæri beint við fjármálaráðherra. Nú á að valda almenningi truflun en almenningur ber bara enga ábyrgð á skattlagningu díselolíu. En vonandi gengur þettta sem best hjá þeim og skilar árangri.

    Kv – Skúli





    27.07.2005 at 09:35 #525058
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Sammála Lúther þarna. Þessi félög eru ólík í grundvallaratriðum þar sem Ferðaklúbburinn er félagsskapur fólks sem ferðast á eigin vegum meðan Útivist og FÍ eru ferðafélög sem standa fyrir og skipuleggja ferðalög fyrir félagsmenn sína og reyndar utanfélagsmenn. Hins vegar er fullt af sameiginlegum málum, sérstaklega mál sem snúa að hinu opinbera (reglugerðir o.þ.h.) og t.d. var ég talsvert í sambandi við formann jeppadeildarinnar um það mál.
    Kv – Skúli





    22.07.2005 at 10:06 #525044
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það sem er hæft í þessu er að ég er starfsmaður Útivistar og starfa þar sem framkvæmdastjóri. Það má alveg velta því fyrir sér hvort það fari saman með formennsku í 4×4. Ég lít ekki á þessi félög beinlínis sem samkeppnisaðila, en auðvitað eiga þau ýmiskonar samskiptum og geta átt gott samstarf. Slíkt er hins vegar frekar á borði stjórnar Útivistar en skrifstofunnar. Ef reyndin sýnir að þetta skapi einhver vandamál er auðvitað ekkert annað að gera fyrir mig en að láta af formennskunni.
    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1,121 through 1,140 (of 1,301 total)
← 1 … 56 57 58 … 66 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.