Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.03.2009 at 14:11 #643808
http://www.britpart.co.uk/AccessoryCate … oryRef=104
http://www.mm-4×4.com/sand-track-2586-p.asp
http://www.roversnorth.com/store/p-5649 … t-set.aspx
kvstv
06.03.2009 at 11:17 #642534sem mætti leita í þegar menn eru að kaupa notað…og sjá hvort eitthvað matchar..
kv
stv
06.03.2009 at 11:16 #642530..fylgjast með….
06.03.2009 at 09:57 #203975Jæja kappar það er aldrei friður fyrir neinu þessa dagana.
Í nótt var brotist inn í bílinn hjá mér Land Rover Defender 110 þar sem honum var lagt á mótum Frakkastígs og Njálsgötu.Engu var stolið að því er mér sýnist en miðjustokkurinn rifinn úr og skemmdur , greinilega verið truflaðir í miðju kafi við að reyna að ná úr talstöðinni. Sem reyndar er með front og svo er gúmmelaðið boltað fjarri.
Vildi bara deila þessu með ykkur að taka sem flest úr bílunum og hafa inni við en ekki út í bíl.
Blessunarlega voru GPS og önnur slík tæki geymd inni við en ekki úti við.
kv
stv
04.03.2009 at 22:57 #642334Ég tók olíu á Shell síðasta föstudag borgaði eins og venjulega með rauða viðskiptakortinu eins og ég hafði gert undanfarið árið án athugasemda.
Þá hafði afgreiðslumaðurinn orð á því hvort ég vildi ekki fá punktana mína!!! Er ég kváði þá spurði hann hvort ég hefði ekki grátt kort.
Fyrir einhverja tilviljun hafði ég gamla 4×4 gráa kortið meðferðis.
Semsagt ég var búin að kaupa olíu í góðri trú með notkun á rauða kortinu eingöngu og án athugasemda. En á sama tíma var ég búin að missa alla punkta ársins af því að ég notaði ekki bæði kortin.
En þvílíkt og annað eins bull, mér er skapi næst að hætta að versla við Shell, hver er lógíkin að vera með viðskiptakort og þurfa svo að nota gamalt kort til viðbótar? Af hverju er ekki 1 kort með öllu?
Mér fannst ég hafa verið plataðaur upp úr skónnum verð ég að segja.
Ég vildi gjarnan fá skynsamlega skýringu frá Shell áður en ég helli af fullu úr skálum reiðinnar.
P.s. eins held ég að ég hafi fengið einhvern vatnsskammt úr olíunni hjá shell vesturlandsvegi
þann 27 feb áður en ég lagði í norður ferð….alla vega var bíllin hjá mér vel undarlegur í langan tíma á eftir þrátt fyrir síuskipti etc. Svo þegar eg notaði 1 árs gamla olíu er á tti í lausum olítönkum þá snarbatnaði gangurinn…….hafa einhverjir sambærilegar sögur? Eru gæðin á olíunni í dag eitthvað á flökti. Tek það fram að ég hef verið að nota bætiefni þegar það verður sem kaldast.kv
stv
28.09.2008 at 23:09 #629926Tja það sem er helst að sækjast eftir í LED er akkúrat að fá endinguna umfram glóðaperuna. Því væri áhugavert að sjá gæðamunin á þessum perum sem munar 300% á í verði.
Snilld ef þetta myndi duga, flott birta, minni rafmagnseyðalsa og meiri ending.
En meðan maður er búin að brenna sig einusinni þarf að sannfæra mann aftur.
kv
stv
28.09.2008 at 20:52 #629922Ég er búin að prófa þessar útskipti LED perur og hef sett þó nokkur settin í Parkið hjá mér. Allar þessar perur hafa farið á sama veg og það tiltölulega fljótt og með skömmum endingartíma. Þ.e. hver pera er samsett af mörgum LED ljósum. En svo fer eitt og eitt LED í einu þangað til að þau sem eftir eru fara að blikka og þá er tími til komin að henda þeim út.
Eru fjandi björt og flott meðan þau virka, en þegar endingin er minni en á almennum perum þá er maður fljótur að henda þeim úr.
kv
Stv
04.07.2008 at 12:11 #625448Sæll
Ég ek sjálfur um á Defender á 38" Mickey Thompson og búin að glíma svolítið við titring.Eftir að vera búin að glíma fram og aftur við þetta, m.a. að balansera allan hringinn og swoppa dekkjum fram og aftur (og nú síðast fólst í því að skipta um alla gorma og dempara, sem kannski kom þessu ekki við en bætti aksturseiginleikana mikið) Þá loks lagaðist þetta eftir að ég fór til Heklu og lét þá balansera allan hringinn. En þá kom í ljós að 1 dekk að aftan og 1 að framan var eitthvað úr takti.
þannig að að einhverju leyti er þetta eins og það hafi ekki verið nægilega vel balanserað þar sem ég lét gera það fyrst….Enn Ein gúmmívinnustofan.
í dag er ég titringslaus, sjö, níu, þrettán :o)
P.s. þetta var á titringur sem kom inn í kringum 80 km hraðann.
kv
stv
04.03.2008 at 09:20 #202013Verð erlendis
+flutningur
(+vörugjöld/tollur annað?)
+VSk 24.5%
= upptjúnuð heildarupphæðt.d. Intercooler, tölvuheili etc.
Allar upplýsingar væru vel þegnar svona áður en af stað er farið.
mbkv
Stv
14.02.2008 at 13:08 #614050:o(
13.02.2008 at 20:31 #614044Að sögn kunnugra þá er 2.5" púst á þeim orginalt þannig að það breytir víst ansi litlu og er eiginlega ekki ráðglagt, alla vega þegar ég fór að kanna það á sínum tíma. Yrði jafnvel bara verra ef farið yrði í víðara…..
Þannig að nú er þetta spurning með Túrbínu af yfirstærð….Heyrði reyndar af einhverjum sem hefði sett slíkt í hjá sér með stærri Intercooler þannig að ég er forvitnin ein..
kv
stv
13.02.2008 at 17:05 #201859LR Defender 110 Td5
búin að superchippa og ITG sía
nú er spurning um eitthvað meira.Intercooler stækkun fær góða dóma en nú er spurning um hvort einhver hér veit eða hefur prófað stærri Túrbínu til viðbótar?
Það veitir ekki af nokkrum hestum til viðbótar…líklega er þetta komið upp í um 150 hesta í dag frá 122 orginal.
Einhverjar tillögur
kv
Stv
30.01.2008 at 17:17 #612256Ef það á að gera við svona fjallagalla, goretex, sympatex, taitex eða hvað þetta allt heitir. Myndi ég leita til Jóa Vilhjálms hjá Ellingssen úti á granda. Hann var með síðstar er ég vissi. Græjur sem sérstaklega eru gerðar til að "sjóða" bætur á goretex og annan fjallafatnað þannig að oft verður betra en nýtt. Þetta kom víst upphaflega til vegna veiðivöðluviðgerða (ekki þó neoprene).
Bæði hefur hann verið í vöðluviðgerðum (goretex) sem og að gera við t.d. þurrgalla úr hinum ýmsu tex efnum.
Þetta er það eina sem virkar almennilega ef á annað borð er hægt að gera við viðkomandi flík. Og ef einhversstaðar er gerð krafa um að svona viðgerðir haldi, þá er það með vöðlur ;oÞ
kv
stv
23.01.2008 at 16:15 #201694Var í ferð nú um síðasliðna helgi þar sem ég lenti í því að VHF stöðin hjá mér (Standard Horizon handstöð Hx370) var eitthvað að „bila“. Þ.e. snilldar stöð hingað til en núna kom upp sú staða að þegar ég var með stillt á rás útivistar líkt og aðrir í hópnum þá heyrði ég í öllum en ekki nema 2 af um 12 bíla flota heyrðu í mér!!
Er einhver sem hefur einhverja glóruhugmynd um hver skrambinn er í gangi. Svo ef ég skipti yfir t.d. á 4×4 rás 47 þá var allt í sómanum!!
hvaða kenningar hafið þið ágætu sómamenn?
kv
stv
17.01.2008 at 14:39 #610512það er engin sammála þessu þ.e. þetta er of eða van…
Nú var nælonhúð á grindinni sem þarf að losa af og eitthvað smá ryð. En nú segja Polyhudun.is að fara í sandblástur (HK sandblástur í Hafnarfirði treystir sér að afhúða svona þykkt plast.)
Polyjudun segir að þeir epoxysinkhúði undir Polyhudina og ef það sé galvaniserað þá tolli húðin ekki almennilega á!
Sandblásarinn segir að ekki eigi að setja neitt á á undan polyhúduninni!Hverjum á eiginlega að trúa???’
Ég er vægast sagt orðin kolruglaður. En mín raffræði og ryðþekking segir mér að það verði að vera einhversstaðar Zink á málminn…ef vera skyldi að einhversstaðar kæmi gat á Polyhúdina og járnið kæmist í snertingu við bert járn…þá alla vega tefur Zink ryðmyndun.
Hjálp!
Mér er næst að trúa Reyni hjá Polyhúdun þ.e. hann hlýtur að vita eitthvað um þetta….en svo……er nóg um óvissu og engin almennilega sammála…
Kannski maður fari bara með sandpappír og rúllu á þetta :o) Enda bara Defender!
KV
Stv
17.01.2008 at 09:41 #201641Ágætu félagar nú vantar mig að fá hjá ykkur ráð. Mál er þannig vaxið að ég hef í hyggju að pólýhuða grind(bullbar) sem fer framan á bílinn hjá mér. En ég var að velta fyrir mér hvort það sé nóg að sandblása og svo pólýhúða eða hvort ætti kannski að heitgalvanisera fyrst áður en pólýhúðað. Hvað finnst ykkur? Er það kannski óráðlegt eða ráðlegt?
Þ.e. nú ef sandblásið er og pólýhúð beint yfir þá er ekki mikil ryðvörn ef húðin fer að springa og saltvatnspækill fer að smjúga inn á milli.
Alla vega ég óska eftir kommentum um málið áður en ég æði í einhverja vitleysu.
Mbkv
Stv
04.01.2008 at 23:41 #609014..endar með því að ég verð að bjóða fram aðstoð mína…hvar ertu í bænum annars? ég er með sambærilega uppsetningu þannig að það ætti að vera auðvelt að prófa þetta og útiloka annaðhvort GPS móttakara eða tölvu.
04.01.2008 at 23:35 #609010þ.e. hvað ertu með mörg USB tengi á tölvunni þinni og ertu búin að prófa þau öll?
04.01.2008 at 23:22 #609006Hugbúnaður er svona eins og konur…þú veist aldrei hvað er í gangi ;o)
Þannig að best er að byrja á að uppfæra og sjá svo hvort meinið lagast ekki…….þ.e. hugbúnaðurinn…ekki konan…hehe
En uppfærslan er frí..þannig að ef þú ert með lappan tengdan við netið þ.e. þann sem Mapsource er á þá er þetta lítið mál…
04.01.2008 at 23:00 #609002#MapSource
Opna Mapsource
help
about map sourceVersion?
(Hjá mér kemur upp 6.13.4 sem er það nýjasta og ekkert vesen við GPS móttakara)
#NRoute
sama og hér að ofan nema útgáfan af NRoute á að vera 2.6.1Að auki hvað varðar að finna tæki þá hef ég stundum lent í því að vegna nokkurra fjölda USB innstungna á vélinni hjá mér þá er stundum nóg að
A) breyta um innstungu
C) fara í Mapsource-utilities-rename GPS-find gps…en hér má velja á milli porta USB ef ég man rétt…alla vega prófaðu þetta og smelltu svo inn athugasemdum ef þetta virkar ekki…..
kv
stv
-
AuthorReplies