Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.07.2013 at 10:37 #766637
Upp. 😉
19.07.2013 at 10:02 #766825Sæl/ir.
Jæja félagsmenn. Nú er að sýna samstöðumátt F4x4 og taka til hendinni við að reysa björgunarskýlið okkar. Það eiga örugglega margir eftir að stinga inn húddinu til lagfæringa og viðgerða þarna uppfrá í vonskuveðrum. Því fleirri sem mæta verður álagið þess minna á mannskapnum og ferðin verðu bæði vinnu og skemmtiferð. Ég ætla að eyða þessum rúmlega tveimur dögum af viku sumarfríi sem ég tek mér því þessar ferðir upp í Setur eru allar mjög eftirminnilegar. Síðan er afmæli Setursins þann 16 til 18 ágúst. Þá verður ánægjulegt fyrir þá sem tóku þátt í byggingunni að horfa stoltir á verkið sem þeir tóku þátt í að reysa.
Ég ætla að vera einn þeirra og mæta til að hlaða efninu á bílana og fara síðan upp í Setur í byggingarvinnuna. Myndavélin verður að sjálfsögðu með og verður allir þeir sem mæta myndaðir í bak og fyrir. 😉 Auðvitað fara þær síðan á myndasafnið okkar.
Kv. SBS.
10.07.2013 at 20:21 #766487Sælir.
Hér eru nöfn þeirra sem sent hafa myndir í ljósmyndakeppnina.Agnar Benónýsson
Andri Þór Gíslason
Aron Bendsen
Guðmundur Magni Helgason
Heiðar Snær Engilbertsson
Hörður Bjarnason
Jóhann Þórisson
Kristján Hagalín
Magnús Guðmundsson
Rúnar Sigurjónsson og
Sveinn Haraldsson.Ef fleirri hafa sent myndir vinsamlega látið vita á sbsissbs@gmail.com.
Að sjálfsögðu höldum við áfram að senda inn myndir þar til Jón Snæland segir stop.
Sýnum nú þátttökuvilja félagsmenn og sendum inn myndir er hæfa góðri bók.Kv.SBS.
16.06.2013 at 23:48 #766351Nú er komin tími til að sleikja sárinn eftir þessa skoðanakönnun. Strákar! Getið þið virkilega hugsað ykkur Björgunarskýlið bárujárnsklætt meðan Setan er Steníklædd eins og Skáli ferðaklúbbsins . Mér er alveg sama hvað hver segir og þótt bárujárnið sé nothæft, Þetta er besti og reisulegasti skáli landsins og er stolt okkar félagsmanna. Er ég virkilega sá eini sem er fylgjandi minni sannfæringu með heildarsvip svæðisins og að byggingarnar séu allar með sömu klæðningu.
Hér er mynd sem sýnir tvær byggingar sem heild. Ef Setan væri bárujárnsklædd tilheyrði hún varla skálanum eða svæðinu sem heild. Nú stendur til að reisa þriðju bygginguna sem skapar þríhyrning á svæðinu. Þessi bygging verður að vera með sömu klæðningu og hinar. Þær eiga að vera sem ein heild sem lýsir sterkum félagsskap.
Sveitabýli er allt annar handleggur. Þar er íbúðarhúsið miðja svæðisins en aðrar byggingar snúast um afkomu ábúenda.
Strákar og telpur! Þessi munur á kostnaði eru bara aurar þegar fram í sækir. Höldum áfram að vera höfðingjar á hálendinu eins og við höfum verið hingað til og vonandi hér eftir.Kv. SBS.
[attachment=0:1vy6u85a]_MG_0087.jpg[/attachment:1vy6u85a]
15.06.2013 at 15:57 #766483Þótt ég í vefnefnd sé að setja hér inn myndir er óvíst að þær verði teknar með. Úr þeim myndum sem berast velur Stjórn F4x4 og Skrudda sem gefur út afmælisbók klúbbsins vinnings-myndina. Ég vil ítreka annað veffang sem er sbsissbs@gmail.com Það hefur mun meira geimslupláss en vefnefndar veffangið.
Þessi er frá vinnu skálanefndar í fyrra. Undirbúningur fyrir flutning á einingum í björgunarskýlið er nánast lokið og verða einingarnar fluttar inneftir von bráðar.
[attachment=0:1qdfon2w]_MG_4365.jpg[/attachment:1qdfon2w]
10.06.2013 at 23:53 #766481Jæja. Ég kem þá með fyrstu myndina í ljósmyndakeppnina fyrir utan þær sem hafa verið sendar á [color=#BF0000:2e02qwew][b:2e02qwew]sbsissbs@gmail.com[/b:2e02qwew][/color:2e02qwew] Hún er úr síðustu Landgræðsluferð.
Kv. SBS.[attachment=0:2e02qwew]_MG_6502.JPG[/attachment:2e02qwew]
10.06.2013 at 23:26 #766479Ekki vantar montið í Óla. Hann er að hóta að senda 80 myndir í keppnuna. Ég þarf nú bara að senda 5 frá mér og hann á ekki séns.
Nú eru komnar 17 flottar myndir frá 5 aðilum. Myndir sem eru 1280 pixlar eða stærri er kostur en smærri auðvitað líka.
Það mætti gera tilraun að setja myndir hér inn. Ég set þær síðan í möppu hjá mér, merktum eiganda.
Þið smellið á "Bæta við viðhengi" og "Choose file". Veljið myndina og "Bæta við skrá" Síðan "Fella inn" Myndin kemur þá þar undir sem stafakjóðin er. Síðan má velja fleirri.
Gott er að smella á "Skoða" til að sjá hvernig texti og mynd koma út. Síðan "Senda" þegar allt passar.
Kv. SBS.
07.06.2013 at 10:10 #766419Er það ekki rétt hjá mér að þetta sé framtíðarútivistasvæði okkar félaga í klúbbnum? Held að þess hafi verið getið fyrir fyrstu landgræðsluferð okkar á þetta svæði.
Þetta verður mín önnur ferð í Þjósárdalinn í landgræðsluferð og með tilhlökkun. Það þarf engin að vinna meira en hver og einn hefur þrek til. Höfum gaman af félagsskapnum og vinnunni við að græða upp landið. Þetta verður uppbyggjandi fjölskylduferð og sérstaklega þroskandi fyrir stálpuð börn og unglinga.
Kv. SBS.
04.06.2013 at 15:14 #766329Sæll Jón.
Ég er nú ekki að tala um slíka krafta. Það verður nú eitthvað annað sem gefur sig áður. Ef við segjum að eitthver öflugur taki sér grófa möl í hönd þeyti henni af afli í bárujárnið og síðan Steníið þá er Alocink húðin ónýt og bárurnar beiglaðar en Steníið myndi standast grjótkastið.
Svo talaði ég um holur en ekki göt.Kv. SBS. Ps. Jæja ég fer nú að hætta þessu.
04.06.2013 at 12:51 #766323Sælir.
Jæja. Ég er mættur eini sinni en. Hefur einhver heyrt um að Gæsavatnaskáli hafi tjónast verulega vegna grjótfoks í stórveðri sem gekk yfir á því svæði? Það varð til þess að skipta þurfti um klæðningu á hluta húsins. Aðkoman var þannig að stórar holur voru í klæðningunni eftir eins til fjögurra sm. smásteina sem lentu á klæðningunni. Ég var fræddur um þetta í hádeginu í dag og áréttaði ég við viðkomandi að hann segði mér þetta satt.Strákar!! Hvað þarf til að víkja ykkur frá þessari hugmynd að setja þetta örþunna skæni með handónýtri húð á húsið sem á eftir að standa þarna í yfir 100 ár í einu mesta veðra-víti á landinu!!!
Kv. SBS.
03.06.2013 at 23:07 #766317Þessi þráður er líka til að skiptast á skoðunum og sætta sig síðan við það sem verður valið.
Kv. SBS.
03.06.2013 at 22:53 #766313Sæll Guðmundur.
Ég sleppti einu hér sem sölumaðurinn tók fram en það var að hann vissi til þess í fleirrum en einu dæmi að Alocink húðin hafði verið stórsködduð eftir eitt sumar. Þetta fer allt eftir hvernig efnið er með-höndlað fyrir og við uppsetningu. Einnig umgengni eftir á. Ég treysti skálanefndarmönnum og þeim sem þá aðstoða fullkomlega til þessa verks.Það sem fær mig til að velja Steni klæðningu er að það eru tvö hús klædd þannig. Það er Setrið og svo hin reisulega Seta sem stendur austar.
Annað er að Gæsavatnaskálinn er alveg skelfilegur í þessari náttúru sem hann er. Málmlitað eða málað bárujárn á bara alls ekki heima á miðhálendi landsins. Þetta er mín staðfasta skoðun.
Félagsmenn eru fljótir að sækja og vinna fyrir þessum mun sem er á þessum klæðningum en björgunarskýlið á eftir að standa þarna í 50 til 100 ár ef ekki lengur. Ég er sannfærður um að ef þessi málmklæðning verður sett á skýlið komi það út eins og ljót skyndi-redding. Þannig lít ég á málið og ekki á annan veg.
Kv. SBS.
03.06.2013 at 16:00 #766307Sælir.
Jæja. Þetta er orðið dálítið snúið. Nú þegar kostning er hafin á að kynna annan kostin betur. Nú vissi ég ekki hversu kosninginn átti að standa lengi þannig að ég er búin að velja. Ef ég skipti um skoðun við kynninguna er það sem ég greiddi atkvæði um ekki rétt mat. Látum það vera mín vegna. Svona þarf að undirbúa miklu betur í upphafi.Kv. SBS.
03.06.2013 at 10:52 #766297Sælir félagar.
Ég hringdi í Límtré-Vírnet sem eru framleiðendur að Alocink húðaðuðum bárujárnplötum. Þeir kaupa efnið inn á rúllum sem síðan er valsað og húðað hjá þeim. Eftir þeim upplýsingum sem ég fékk endist húðin í 5 til 30 ár. Allt eftir álagi á hverjum stað. Sagði hann að gott væri að grunna í alla sagaða enda svo síður myndaðist rið. Eins ef húðin rispaðist á fletinum væri hætta á slíku. Ég held ég fari rétt með að yfirleitt væru þessar plötur málaðar eftir að veðrun er lokið á þeim. Enga mynd áttu þeir af litaprufu en myndin frá Loga og svo Gæsavatnaskála eiga að gefa góða hugmynd.Freyr. Þessi tala hjá þér 100,000kr. er töluvert hærri.
Kv. SBS. Ps. Ég vona að Logi hundskammi mig ekki fyrir þetta innlegg. ;(
02.06.2013 at 00:12 #766279Þakka þér fyrir myndina Logi. Ég tek þátt á morgum.
Kv. SBS.
01.06.2013 at 22:24 #766273Logi Már Einarsson.
Ef þú ætlast til að menn beri saman tvo hluti þá skulu báðir vera sýnilegir. Það vita allir hvernig Setrið lítur út og þá líka af myndum. Hinn kostin hefur engin eða fáir séð. Um leið og þú hefur sett inn mynd af réttum lit og lögun á aluzinc málmklæðningunni hér á spjallið skal ég taka þessar myndir út. Samkvæmt lýsingu taldi ég þessa klæðningu nokkuð nærri lagi. Að öðrum kosti er þessi skoðanakönnun ómarktæk.
Kv. SBS.
Ps. Heyrðu félagi ég skal taka þetta út eftir stuttan tíma en ég tek ekki þátt í að bera saman tvo hluti og annar er eingöngu sýnilegur.
01.06.2013 at 20:42 #766265Sælir félagsmenn.
Hér er Setrið Steníklætt og Alusinc klæðning. Myndin af Setrinu er kanski ekki alveg nógu góð. Að mínu álita á Alusinc klæðning ekki heima á hálendi Íslands heldur eingöngu í borgum sem eru fullar af sérhönnuðu gerfiefni. Steni kemst nær því að vera náttúrulegt efni og hentar betur þrátt fyrir hærra verð.
Kv. SBS.[attachment=1:30v0htl9]Setur alusinc.jpg[/attachment:30v0htl9]
[attachment=0:30v0htl9]Alusinc..jpg[/attachment:30v0htl9]
31.05.2013 at 21:30 #766237Sælir félagar.
Það er þá best að hefja umfjöllun um þennan þráð. Ég stend sjálfan mig oft að því að velja dýrari leiðina. Það er leiðin sem oft leiðir að betri endingu og sú sem gleður augað frekar. Það er þó ekki einhlýtt. Ef við segjum að báðar klæðningarnar endist allavega í 50 ár. Þá kostar að jafnaði árlega aukalega að klæða með Steni 17400 kr. Ef í klúbbnum eru 3000 félagsmenn eru það um 6 kr. á ári pr. mann.Þá skulum við fara upp í Setur og hugsa okkur skálann og væntanlegt skýli. Annars vegar er það klætt Aluzink og hins vegar Steni.
Þar sem ég er að tjá mig um þessa tvo kosti get ég ekki hugsað mér skýlið bárujárnsklætt við hliðina á Steniklæddum skálanum. Slíkt er ekki heild sem hæfir hrikalegu og fallegu umhverfi þar sem við höfum valið okkur áfangastað. Grá bárujárnsklæðning í þessari heild er ekki það sem ég vil sjá þarna. Það minnir mig á hermanna-bragga eða útihús til skjóls fyrir skepnur.
Jæja. Þá er ljóst hvað ég ætla að velja þegar könnunin birtist.
Kv. SBS.
31.05.2013 at 00:11 #766189Sæll Hjörtur.
Ég hætti mér ekki inn á milli veggja þar sem þessir menn eru að vinna. Maður á á hættu að fá hamarinn eða sperru í hausinn í öllum látunum hjá þeim. Það eina sem getur stoppað þá eitt augnarblik er að gefa þeim pönnukökur og mjólkursopa.
Kv. SBS.
30.05.2013 at 15:52 #226148Opið hús verður í kvöld 30 maí. að Eirhöfða 11. Opnað verður kl. 20:00 og opið á meðan málbeinin endast. Einar Sól lofar kaffi og tertum. Einnig ætlar hann að mæta í nýja Strumpa-Toyota-BOLNUM.
Kv. F.h.Húsnefndar SBS.
-
AuthorReplies