Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.12.2013 at 00:52 #441866
Sælir Landsbyggðarmenn.
Ég er að hvetja landsbyggðarmenn til að taka betur þátt í Virkum umræðum hér á síðunni. Bæði að stofna þræði og vera virkir á þráðunum. Þótt umræður deilda sé hér aukalega á forsíðu fyrir ykkur þá er öll síðan til afnota fyrir alla félagsmenn og þá sem geta skráð sig inn. Eins er með mynda-albúmið, að vera duglegir að setja inn myndir. Höldum áfram að þroska vefinn okkar og gerum hann notendavænni.
Kv. SBS. Vefnefnd.
16.12.2013 at 09:04 #441464Sæll Trausti.
Ég sé að þú ert ekki með neitt félagsnúmer skráð. Vinsamlega hafðu samband við skrifstofu og fáðu Rögnu til að senda mér félagsnúmerið þitt á vefnefnd. f4x4@f4x4.is
Kv. SBS.
14.12.2013 at 11:11 #441402Sæll Hjörtur. Ég ætla að taka smá æfingu á þessum möguleikum sem þú talar um. Ég á eftir að biðja um fleirri en ástandið er dálítið erfitt vinnulega núna hjá þjónustuaðilanum.
„b“ Feitletrað „Boild“
„i“ Skáletrað
„link“ Tengill yfir á vefsvæði með textamöguleika. Rita þarf textann og draga músina yfir hann og smella á „link“ Wagoneer tekin og endurbættur.
„img“ Mynd sótt af netinu.
Áður en ég hætti mér lengra þarf ég að kynna mér hina möguleikana eða biðja kunnáttumann að skýra tenglana.
Stafastærð og litir mættu koma inn.
Kv. SBS.
13.12.2013 at 20:36 #441377Sæll Trausti.
Hvernig væri að taka skrefið alla leið og ganga í klúbbinn. Kjarninn í Ferðaklúbbnum 4×4 samanstendur af atorkusömum einstaklingum með margvísleg áhugamál.
Kv. SBS.
13.12.2013 at 18:24 #441366Sæll Jón. Það er greinilegt að áhugaefni félagsmanna er af mörgum toga. Það eru ekki eingöngu bílabreitingar, ferðamennska, videomyndir, ljósmyndun, og svo fr.v. Nú geta áhugamenn um hnúta bæst í hópinn til að gera síðuna okkar lifandi og áhugaverða. Já og ekki má gleyma ferðafrelsi og áhugi á gömlum bílum.
Kv. SBS.
11.12.2013 at 20:29 #441314Það sem þarf að laga hér næst er skoðun mynda á spjallinu. Þetta er allt of óþjált.
11.12.2013 at 19:37 #441308Ég verð að redda þessu.
Kv. SBS.
10.12.2013 at 19:08 #441252Ég ræddi það hér á þræði https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/reykjavik-fljotshlid-strutur-myrdalsjokull-solheimar-reykjavik-3011-112-13/#post-441227 að búa til fastan tengil fyrir safn videomynda undir Áhugaefni félagsmanna.
Þar er hægt að gera fjölda samskonar tengla.
Tenglar um Breitingar á bílum og jafnvel breitingar eftir bíltegundum.Svo megum við ekki gleyma tengli með gátunum hans Magnúsar ( MHN) Þær eru vinsælar og fræðandi.
Þarna geta verið um og yfir 20 fastir tenglar um áhugaefni félagsmanna. Þá er að koma með tillögur.
Kv. SBS.
10.12.2013 at 17:30 #441236Ég þurfti nú að fá mér verulega sterkt kaffi til að ná þessu sem þú spyrð um.
Tenglar eru ekki á myndum og líklega ekki þörf á því. En það er hægt að setja tengla á texta við myndamöppur, við texta með myndum og með ummælum.Þá er það færsla á gögnum frá fyrri vefsíðu. Það er spjallið og myndasafn. Hvernig sem á því stóð þá gekk ekki 100 % að yfirfæra gögnin á núverandi síðu. Ástæðan fyrir því eru líklega fleirri en ein og hætti ég mér ekki út í þá umræðu. Það er vilji til að lagfæra það eins og hægt er en við verðum að forgangsraða og taka það sem liggur mest á. Ég vona að kaffisopinn hafi hjálpað mér eitthvað.
Kv. SBS.
10.12.2013 at 16:47 #441231Sæll Trausti.
Eins og þetta er núna eru allar innsettar myndir alltaf sýnilegar.
Ekki hefur þótt þörf fyrir að hafa myndasafnið tímabundið opið eða lokað eða sýnilegt sér hópi.
Kv. SBS.
09.12.2013 at 23:24 #441141Fínt framtak. Videomyndir félagsmanna þurfa að hafa sinn aðgengilega samastað hér á síðunni.
Ég hafði hugsað fasta tengla í kassanum „Áhugaefni félagsmanna“ Þar gæti tengillinn heitað „Videomyndir úr ferðum“ Þar röðuðust vidomyndir eftir innsetningar-tímaröð með möguleika á að spjalla um hvert myndband. Síðan yrði talning sem sýndi þegar bættust við myndbönd.
Kv. SBS vefnefnd.
08.12.2013 at 21:17 #440862Sæll Bjarki.
07 2013 07:29 Jeppaspjallið.
07 2013 07:34 F4x4.
En nóg með það. Hins vegar er ég mjög ósáttur með hversu félagsmenn eru út og suður og hver í sínu horni. Það er að vísu margt eftir að bæta hér á vefsíðunni s.s. á spjallinu hvernig myndir birtast. Það er til fyrirmyndar á Jeppaspjallinu.Kv. SBS.
08.12.2013 at 19:15 #440860Sælir félagsmenn F4x4.
Hér er gerð könnun af Árna Bragasyni sem er stofnandi þessa þráðar. Tilgangurinn er að mér sýnist að bera saman virkni spjallþráða F4x4 og Jeppaspjallsins. Þetta er bara nokkuð góð hugmynd sem leiðir báða aðila áfram í að gera betri vefsíðu. Niðurstaðan er að 10 aðilar tóku þátt í að svara þræðinum á Jeppaspjallinu en engin hér á spjalli F4x4.Ég tók saman lista yfir þá 10 aðila sem svöruðu á Jeppaspjallinu.
Niðurstaðan er þessi:
10 aðilar tóku þátt.
7 aðilar eru félagsmenn í F4x4.
2 aðilar hafa skrifrétt á vef F4x4.
1 hefur ekki réttindi á vef F4x4.Meðalaldur 8 aðila sem ég hef upplýsingar um er 39 ár.
Nú er að setjast niður og athuga gang mála með vefsíðuna og þá félagsmenn sem ekki vilja vera hér á spjallinu og fá upplýsingar um hvað vanhagar.
Frá mínum bæjardyrum séð er þetta köld vatnsgusa í andlitið frá þeim félagsmönnum sem velja annað spjall að vera á þótt menn ráði sjálfir hvar þeir spjalla.
Kv. SBS. Sem auglýsir eftir fleirri vefnefndarmönnum á næsta aðalfundi eða eitthverja að taka við starfinu.
08.12.2013 at 13:45 #44085706.12.2013 at 19:28 #440821Já. Þetta er góður pungtur. Set hann strax í forgang. Menn verða að geta leiðrétt stílinn.
Kv. SBS.
06.12.2013 at 18:40 #440817Sæll Hjörtur.
Við jeppamenn erum lítið fyrir að ferðast á puttanum.
Við tökum á þessum vanda hér bráðlega þótt hægt gangi.
Kv. SBS.
06.12.2013 at 17:42 #440813Sælir.
Gott væri að fá Stórferðina á viðburðadagatalið með þeim upplýsingum sem komnar eru. Á viðburðadagatalinu er hægt að breita og bæta við jafnóðum nýjar upplýsingar berast.Alla viðburði þarf að skipuleggja vel fram í tímann til að auka þáttöku.
Kv. SBS.
06.12.2013 at 16:18 #440802Sæll Hjörtur.
Þetta er rétt. Viðburðadagatalið er ekki til að skrá liðna sögu heldur væntanlega atburði, sex til átta mánuði fram í tímann.Ég held ég verði að setjast niður og búa til tengil sem heitir „Vefsíðan.“ Þar yrði sýnt og kennt hvernig helstu hlutir eru framkvæmdir hér á síðunni.
03.12.2013 at 16:04 #440699Komið á listann ásamt fleirru. Ætti að koma fljótlega.
26.11.2013 at 14:21 #440183Já, já. Hann er opin öllum þegar hann kemur loks.
-
AuthorReplies