Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.11.2005 at 12:58 #530838
Takk fyrir myndina Óskar ég áttaði mig ekki á þessu að þetta væri hægt. Kveðja Rúnar Sv.
03.11.2005 at 12:36 #196572Jeppanum hans Jóns Bjarnasonar var stolið í nótt fyrir utan hús hans í Reykjanesbæ. Þetta er rauður Nissan PATROL sknr. YU-646 á 38 dekkjum árgerð 1991. Þetta er fullbúinn jeppi með öllum tólum og tækjum. Þeir sem hafa séð bifreiðina vinsamlegast látið lögregluna vita í síma 420-2400 Sjá mynd í albúmi.
Strákar stöndum saman og höfum augun opin.!!!
Strákar hvað er að verða um þetta þjóðfélag, bíll sem er harðlæstur fyrir utan manns heimili og svo þegar maður ætlar í vinnuna þá er enginn bíll fyrir utan hjá manni.
05.03.2005 at 07:39 #512802Hvernig er það, er ekkert að frétta??
21.01.2005 at 22:38 #514252Sæll Höddi, ég heyrði í Heiðari áðan og voru þá komnir ca 9 jeppar inn í Setur af ca 25 jeppum og gekk mjög vel innúr færi gott og veðrið líka. Heiðar var á Kvíslárveituvegi ásamt nokkrum jeppum og þeir síðustu að tanka í Hrauneyjum.
Kveðja Rúnar Sv.
08.01.2005 at 12:00 #512930Var að tala við þá á Grímsfjalli voru þeir komnir í skála ca um miðnætti í gær í þungu færi en í mjög góðu veðri.Voru menn að gangsetja og gera sig klára í að skoða gosstöðvar og sprauta eitthvað þarna í kring í góðviðrinu í dag.
Kv Runar Sv
07.01.2005 at 23:11 #512928Sæll Alli þeir voru 13 jepparnir mínus Heiðar svo að það eru 12 núna að skemmta sér þarna uppá jökli og allur hópurinn komin saman.
Kv. Runar Sv
07.01.2005 at 22:45 #512924Núna kl 2230 áttu þeir ca 7 km í skála og voru komnir uppá Háubungu en Marteinn hafði brotið framöxul í Cruser 60 (bara eðlilegt viðhald) í brekkunni og 44" bíll með Beadlock hafði affelgað tvisar, já hvernig er það hægt jú dekkið hafði affelgast að innan svo að það er allt hægt.
Kveðja Runar Sv
07.01.2005 at 21:05 #512922Var að tala við Martein Núna kl 21 voru þeir þá í mjög þungu færi í brekkunni uppá Háubungu ca 9 km frá skála í himnesku veðri og í góðum gír en Heiðar komst ekki lengra en í 1300m hæð ca 20 km inn á jökul þegar fram drifið fór hjá honum og sneri hann þá við og er nú að komast að Þóristindi á heim leið
Kveðja Rúnar Sv.
15.11.2004 at 20:02 #508710Patrol í staðin fyrir TOYOTU er ekki lagi með þig Hlynur.En gagnvart felguboltum þá er annarhver Patrol að missa dekk frá sér vegna þess að felguboltar í Patrol slitna.En oftast er það vegna þess að menn ofherða rærnar (nota loftlykla). Boltar af 100 Cruser hafa mikið verið notaðir og svo á að nota átaksmæli við herslu á felgu róm. Þá slita þessir boltar síður.Hlynur mér skilst að það eigi líka við Beadlock er það ekki. Kveðja Runar Sv.
23.10.2004 at 15:15 #506752Hann er 54mm er hann ekki til í Bílanaust
Kveðja Runar Sv
23.10.2004 at 15:01 #506686Ég er búin að eiga LC-80 með 4.2 og 24 ventla vél í ca 3 ár og hefur þessi bíll aldrey eytt meira en 14 lítrum á hundraði svo að 4.2 TOY og 4.2 Nissan eru ekki að eyða svipuðu. Þá er ég að bera saman beinskipta bíla. Kveðja Runar Sv
16.04.2004 at 13:25 #49891216.04.2004 at 07:18 #498908Það eru komnar betri myndir af tracinu hans Sæþórs að íshellinum á Langjökli í möppuna hans runarsv. Ef að þið þurfið tracið þá emalið til Sæþórs á gunnar@mmedia.is þá mun hann reyna að senda ykkur það. Þetta er bara til hjá honum í Nobelteck formi Kveðja Runar Sv.
21.02.2004 at 11:06 #489604Talaði við þá ca kl 10 í gærkvöldi og þá var allt gott að frétta af þeim voru þeir austan megin við Hattafellið og áttu ca 8 km eftir.Höfðu þeir lítið skyggni og voru krapapyttir að gera vart við sig en það vantaði ekki ferðahugann í þá. Kveðja Runar Sv.
21.02.2004 at 11:06 #496186Talaði við þá ca kl 10 í gærkvöldi og þá var allt gott að frétta af þeim voru þeir austan megin við Hattafellið og áttu ca 8 km eftir.Höfðu þeir lítið skyggni og voru krapapyttir að gera vart við sig en það vantaði ekki ferðahugann í þá. Kveðja Runar Sv.
05.02.2004 at 17:18 #487174Vegna umræðunar um slæma þjónustu hjá Fjallasport,þá langar mig að vekja athykli á að það hafa ekki allir þessa reynslu af þeim hjónum ég hef bæði keypt aukahluti og dekkja ganga af þeim og hef ekki nema góða reynslu af þeim viðskiptum !!Var þetta ekki bara mánudagur hjá þeim eins og gerist hjá okkur öllum.
Kveðja Rúnar Sverrisson Nr 1247
09.11.2003 at 15:06 #193139Vita menn hvar er hægt að kaupa snjóakkeri.
Kveðja Runar Sv.
05.11.2003 at 18:36 #479490Ég er sammála Stjána þeir hjá Bílar og Hjól eru snillingar þegar þarf að breyta bílum og mála. Kveðja Rúnar Sv
27.09.2003 at 20:11 #476998Já Lúter er ekkert að frétta af Seturs mönnum.
Hvernig gekk hjá Krílinu fór hann ekki létt með að keyra í Setrið og hitta aðra jeppamenn þar.
30.06.2003 at 20:28 #474596 -
AuthorReplies