Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.12.2013 at 18:50 #442493
Frá og með áramótum hækka Skálagjöldin í Setrinu sem hér segir:
Félagsmenn ………………….. 2.000. kr.
Börn 13-16 ára ……………….. 1.000. –
Utanfélagsmenn ………………. 4.000. –
Börn utanfélagsm. 13-16 ára … 2.000. –
Aðstöðugjald …………………….. 300. –
(Notkun á aðstöðu skálans án gistingar)Frí gisting fyrir börn yngri en 13 ára
Hægt er að leggja inná reikning skálanefndar
Kennitala: 701089-1549
Reikningur: 1175-26-024444Ath. Sá sem pantar skálann er ábyrgur fyrir greiðslu skálagjalda og verður stofnuð krafa á hann í heimabanka hafi ekki verið greitt innan viku frá gistingu.
Kv. Skálanefnd.
23.12.2013 at 14:43 #442377Jón, ásin sem er í vélinni frá Crane Cams man ekki hvaða týpa.Já gólfið lítur illa út hjá mér.En það er komin upp ný stað, fer að öllum líkindum að skoða annað boddy á milli jóla og nýárs.Vona að það sé í betra ástandi.Á frekar von á því að þetta verkefni verði unnið í lotum og teknar pásur á milli.
kv Rúnar
18.12.2013 at 18:14 #441960Þakka ykkur Jón og Gunnar fyrir ábendingarnar.Fyrir nokkru var ég að kynna mér hvað væri í boði varðandi knastás og fl.Úrvalið er ekki mjög mikið en leist einna best á þennan http://www.compcams.com/Company/CC/cam-specs/Details.aspx?csid=20&sb=2 Það er líka annað hægt að gera, það er að gefa upp hvernig mótorin er uppsettur og í hvað maður ætlar að nota mótorinn í.Þá er nýr ás tekin og honum breytt eftir þörfum.Að síðustu myndir sem sýna hvað er framundan hjá mér 😉
Viðhengi:
16.12.2013 at 19:17 #441828Gunnar þakka ráðleggingar varðandi rafgalv og grunnin.AMC 360ci mótorin hjá mér er með innspýtingu frá Edelbrock sem heitir 3531.Annað er nánast orginal.Í stuttu máli þarf mótorin að torka meira og vera snarpari,hversu mikið hef ég ekki myndað mér ákveðna skoðun á.
Ef einhver þarna úti hefur skoðun á hvað þarf til endilega komið með tillögu,en eingöngu um AMC 360ci.Kv Rúnar
15.12.2013 at 23:22 #441456Jæja,verkefni dagsins var að taka boddýið af grindinni og stilla því rétt upp.Það tókst með góðra manna hjálp.Næstu skref eru að tjakka botninn niður á réttan stað þar sem hann var gengin upp.Hér fyrir neðan eru myndir frá æfingum dagsins.
Kv Rúnar
ps. Gunnar Ingi, ég vona að lagerinn hjá þér af rafgalv. sé þokkalega stór. 😉Viðhengi:
14.12.2013 at 21:39 #441425Wagoneerinn fékk að fara út í snjóin í dag en í drætti. Honum var bakkað inn aftur en á morgun verður boddýinu lyft upp inn í skúr og grindin dregin undan og boddýinu sett á stillanlegar fætur.
Kv Rúnar
ps. Theodór, ég vona að andi ykkar Bjarna verði ekki mikið á sveimi í skúrnum hjá mér, þá verð ég seint búin. 😉
13.12.2013 at 22:47 #441386Er að rífa Wagoneerinn til að gera upp. Botninn er orðin lélegur út við sílsa og gengin upp um rúma 2 sm. við farangursrýmið. Tek boddýið af grindinni um helgina og rétti það af með stillanlegum fótum svo það verði í lágréttu plani. Reikna með að gera eitthvað í vélamálum en ætla að nota amc 360ci áfram. Ætlunin er að færa aftur hásinguna eitthvað aftar. Set inn myndir eftir því sem verkinu miðar. Markmiðið er að þetta verkefni taki ekki of langan tíma því við í Wagoneerfélaginu erum spenntir að halda saman á fjöll. 😉
Kv. Rúnar.
Viðhengi:
20.10.2013 at 19:33 #379249Sæll Sveinbjörn
Rúnar Sigurjónsson í skálanefnd hefur ekki ennþá greitt miðanna á árshátíðina nema Rúnar Sigurjónsson í tækninefnd hafi greitt fyrir Rúnar Sigurjónsson í skálanefnd en það telur Rúnar Sigurjónsson í skálanefnd ólíklegt. Þar sem Rúnar Sigurjónsson í Skálanefnd mætti Rúnari Sigurjónssyni í tækninefnd í stigaganginum á fimmtudagskvöld upp í klúbb gerir Rúnar Sigurjónsson í skálanefnd ráð fyrir því að Rúnar Sigurjónsson í tækninefnd hafi verið að greiða fyrir miðan á árshátíðina.Rúnar Sigurjónsson í skálanefnd finnst með ólíkindum að okkur sé ruglað saman, annar á Wagoneer en hinn er á Toyota.;-)
kv Rúnar SKÁLANEFND.
18.10.2013 at 08:03 #379351Við Logi förum Kjöl og norður fyrir Kerlingarfjöll.Kjölur er leiðinlegur að Innriskúta en þokkalegur eftir það upp í Kerlingarfjöll.
Gott að heyra Jakob,ef þú rekst á rafvirkja á leiðinni hentu honum þá í skottið og taktu hann með 😉kv Rúnar skálanefnd.
17.10.2013 at 16:26 #379347Sæll Jakob
Það yrði sannnarlega gagn ef þið kæmuð í Setrið um helgina.Við Logi leggjum af stað úr bænum milli 18 og 20 á morgum.Kv Rúnar skálanefnd S:8967078.
16.10.2013 at 00:14 #379343Sæll og blessaður Logi.
Skálanefndargráni hefur nú ekki kvartað mikið ræfillinn þó hann hafi verið fyltur af verkfærum og látin draga kálfa og kerru.
Ég hallast að þeirri tilgátu þinni að við séum bæði hundleiðinlegir og djöfull harðir húsbændur
en ég hef þó aðra tilgátu sem er ekki síðri, að matseldin þín og lopasokkurinn minn sé nú ekki beinlínis til að lokka menn í vinnuferðir.
Varðandi Sveinbjörn er honum fullkunnugt um hvað við erum djöfull leiðinlegir,kunnum ekki að skera læri og fær aldrei nema hálfan tappa úr lopasokknum.;-)Kv Rúnar skálanefnd
PS.Að gefnu tilefni ætla ég að minna á vinnuferðina um helgina.
12.10.2013 at 19:15 #379360Til hamingju Suðurnesjadeild,hlakka til að koma til ykkar og skoða skálann.
Kv Rúnar skálanefnd Setursins
18.09.2013 at 22:12 #378991Sælir félagar
Það er gott að heyra að skálin og skemman stóðu af sér veðrið og eiga þeir í Kerlingarfjöllum þakkir fyrir að hafa
gert sér ferð inn í Setur.Skálanefndin fer upp í Setur á laugardagsmorgun kl.8 frá Select.Þeir sem hafa áhuga að
slást í hópin eru velkomnir með.Kv Rúnar skálanefnd
16.09.2013 at 20:57 #378986Sælir félagar
Fyrir tæpu ári síðan mældist á veðurstöðinni sem er talað um hér fyrir ofan , sem er um 1. km frá Setrinu
120 m/sek.Þá hafði ég samband við Veðurstofuna og fékk þær upplýsingar að um villu væri að ræða en ef ég
man rétt þá er mesti staðfesti vindstyrkur sem hefur verið mældur á landinu 78m/sek.Það þýðir samt ekki að
við í skálanefndinni höfum verulegar áhyggur en vonum það besta.Setrið sjálft hefur staðið af sér öll veður
hingað til en við höfum vissulega áhyggur af skemmuni en vindurinn hefur staðið á skemmuna þar sem hún
er einna sterkust. Skálanefndin fer í síðasta lagi snemma á laugardaginn upp í Setur að kanna aðstæður.kv Rúnar skálanefnd
24.07.2013 at 22:31 #766885Sælir félagar
Minni á að á morgun fimmtudag kl 18 verður hlaðið á vörubílanna fyrir flutning
upp í Setur.Bílarnir verða hlaðnir að Hyrjarhöfða 6.Okkur í skálanefndinni
vantar vinnufúsar hendur við að aðstoða okkur að hlaða á bílanna.
Þeir sem ætla að koma og reisa með okkur skýlið vinsamlega látið vita vegna matarinnkaupa
fyrir laugardagskvöldið.Ef þeir sömu eiga battarísborvél og hamar takið það endilega með.Kv Rúnar skálanefnd.
19.07.2013 at 07:58 #766823Sælir félagar
Láðist að setja inn hvar bílarnir verða hlaðnir en það er að Hyrjarhöfða 6 kjallara, Reykjavík.
kv Rúnar skalanefnd@f4x4.is
18.07.2013 at 22:49 #226330Sælir félagar
Nú styttist í að neyðarskýlið verði flutt upp í Setur og reist.Skýlið verður reist helgina 26-28 júlí.
Skálanefnd leitar til ykkar með aðstoð að hlaða á vörubílana sem fara með efnið í skýlið.
Það verður byrjað að hlaða á vörubílana fimmtudaginn 25 júlí kl.18.
Einnig leitar skálanefnd til ykkar eftir aðstoð við að reisa skýlið.Margar hendur vinna létt verk og skálanefndin vonast til að sjá sem flesta,bæði við að hlaða bílana og við að reisa skýlið.Vinsamlegast tilkynnið um þáttöku með pósti á skalanefnd@f4x4.is eða á spjallinu.Vikuna eftir helgina sem skýlið verður reist munu 2-3 skálanefndarmenn vera áfram við vinnu og ef einhver vill vera áfram væri það vel þegið.Kv,Rúnar skálanefnd
24.06.2013 at 20:32 #766627Sæll Björgvin
Undanfarin ár höfum við farið fyrstu ferð upp Gljúfurleitina en annars er Kjalvegur og norður fyrir Kerlingarfjöll
ríkisleiðin okkar í skálanefndinni. 😉kv Rúnar skálanefnd.
19.06.2013 at 23:02 #766193Nú er undirbúningsvinnu lokið við smíði á skemmunni en hún gekk betur en við þorðum að vona.
Það sem er næst á dagskrá er að safna saman því efni sem ekki þarf að forvinna hér í bænum,
en það er stefnt að flytja allt efnið í skemmuna í einni ferð upp í Setur í lok júlí.
Skálanefnd samþykkti að leggja til við stjórn að klæða útveggi skemmunnar með Aluzink bárujárni,
þakkant með steni í sama lit og mála þak í sama lit (þegar þar að kemur) og er á Setrinu.Kv Rúnar skálanefnd.
25.05.2013 at 17:07 #766173Þetta er einmitt það viðhorfið sem hefur verið einkennandi fyrir þessa síðu að "þetta er ekkert mál"en hver ætli
sé þá ástæðan fyrir því að það sé sett lítið að myndum hér inn eða inn í myndaalbúið kreppan kannski en henni
er nú kennt um flest.kv Rúnar
-
AuthorReplies