Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.11.2006 at 14:38 #567942
enda spurningarnar fáránlegar með eindæmum.
14.11.2006 at 14:33 #198957hef reyndar ekki fylgst með þessu vefsvæði upp á síðkastið, en var að fá afskaplega sérkennilega könnun í tölvupósti, sem sendur var frá stjorn4x4@hotmail.com og hljóðaði svona:
Sæll félagi
Vinsamlegast taktu þátt í stuttri skoðanakönnun á vegum klúbbsins
http://www.createsurvey.com/c/43339-OkUuQF/
kv
stjórninEr þetta eitthvað grín eða hvað ?
06.10.2006 at 20:12 #562578ég skipti um fóðringar í stífunum, og þá lagaðist svona hristingur hjá mér, en hann var aftur í bílnum en ekki að framan.
20.01.2006 at 20:12 #538988arb, að aftan, er ekki með neitt að framan…
17.01.2006 at 23:21 #538984hann eyðir eitthvað minna, ekki mikið, 5. gírinn er kominn aftur, og hann virakr allur mun léttari.
eyðslan breyttist ekkert gríðarlega mikið. minna en ég átti von á.ég var lengst af að velta fyrir mér að fá mér 4:57, en ákvað svo að fá mér 4:88, í ljósi þess að þá gæti maður hugsanlega sett 36 eða jafnvel 38 undir…. 36 væri eflaust fínnt næsta skref….
15.01.2006 at 16:55 #538980hæ,
ég er með samskonar setup (blár, 35" dekk, 2.5 vél 97 árg. nema brúnt þak). er með 4.88.1, og núna getur maður loksins notað 5.gírinn.það munar c.a. 13-15% held ég á þessu og orginal sem er 4.10 í þessum bílum.
ég keypti Yukon hlutföll í usa, og kom með þau heim, kostaði um 30þús, með öllum fóðringum og drasli. og fékk svo bræðurna í s.s. gíslason til að setja þetta í. … mæli með því.
15.01.2006 at 16:50 #539024hæ, ég er með tuffcountry kit, progressíva gorma, allt of stífir. Ég myndi líklegast mæla með gormum frá old man emu, en þeir hafa reynst vel.
-r
03.11.2004 at 14:27 #507670Ég ætla bara árétta að ég var ekki með neina óþolinmæði gagnvart þessari uppfærslu, heldur bara pirraður að tína svörunum mínum. Uppfærlsan á forsíðunni var heldur ekki komin inn fyrr en ég var búinn að senda þetta inn, og kom reyndar ekki fyrr en seinna um kvöldið.
Ég hafði heldur ekki í hyggju að fara að metast um tækniumhverfi, ASP eða perl, Java eða .NET. Ég ætlaði bara að benda á að sessiontimeout væri frekar stutt, og það er mjög lítið mál að lengja þann tíma, fyrir þá sem stjórna tæknilegum hliðum á vefsvæðinu.
Þessi þráður fór semsagt langt út fyrir það sem ég skrifaði í upphafi, sem var ekki skrifað í neinni bræði yfir einhverjum uppfærslum heldur bara því að þetta var ekki að virka eins og til skildi.
Hafandi margra ára reynslu í vefsmíðum get ég sagt að hvað sjálfboðastarf í þessu varðar, henntar það yfirleitt ákaflega illa við uppsetningu svona vefsvæðis. Sjálfboðar eiga aftur á móti á seinni stigum að geta komið að efnis-innsetningu, skrifað greinar, bætt við veftréið og svoleiðis, mun frekar en að vera að hringla í útliti vefsvæðisins. Útlit vefsvæðisins þarf bara að vera sveigjanlegt og byggt upp með það til hliðsjónar að hægt sé að stækka veftré á alla mögulega kannta.
í stuttu máli sagt: áherslum félagsins má koma til skila í gegn um efnið á vefsvæðinu, ef það byggir á réttum grunni, þ.e. sveigjanlegu kerfi og útliti.
Það að skipta um einhverja mynd í haus eða gera einhverjar smávægilegar útlitsbreytingar ætti ekki að vera mikið mál, en það er ákveðið öryggi í því að svoleiðis breytingar fari í gegn um þann aðilla sem samið var við um samvinnu í þessu þ.e. Castor.
02.11.2004 at 17:38 #507644Ég var ekki lengi að skrifa, í allra mestalagi 10 mín, venjuleg vefsvæði eru með 30 mínútna session timeout. t.d. er default stilling í httpd (apache vefþjónum) er annað hvort 20 eða 30, man ekki hvort.
En, það skiptir í raun ekki máli, ef ég væri lengi að skrifa, væri þetta bara ennþá meiri skaði fyrir mig að lenda í þessu í sífellu (3 svar í dag), þar sem ég nennti ekki að endurskrifa allavega eitt svar. En hin tvö voru í copy bufferinum hjá mér.
02.11.2004 at 12:49 #507584hérna eru upplýsingar um 4.0l vélina :
http://www.off-road.com/jeep/tech/engine/amc242.htmlog að sama skapi eru hér upplýsingar um 2.5l vélina :
http://www.off-road.com/jeep/tech/engine/amc150.htmleyðslan er að meðaltali töluvert meiri í 4.0 vélinni, í wrangler, ég þekki ekki með cherokee, en grunar að þar sé eyðslan á 2.5 jafnvel eitthvað aðeins hærri en í wrangler, þar sem um þyngri bíl er að ræða. Ef þú ætlar að fara í einhverjar breytingar, t.d. 38 tommu dekk, þá mæli ég með 4.0l vélinni, þar sem ekki er hægt að fá lægri hlutföll en 4.88 í hásingarnar undir þessu. Ef þú ert að velta fyrir þér breytingum upp í svona 35" þá er 2.5 alveg nóg, og með réttum hlutföllum er 2.5 að eyða innan við 15/100 í innanbæjar. En ef þú vilt geta prjónað af stað og hafa einhvern gríðar kraft, þá ættirðu kanski bara að skoða v8 5.0l vélina
02.11.2004 at 12:38 #194777alltaf þegar maður er að svara einhverjum þráðum hérna, skrifar í smástund og sendir svo svarið fær maður einhverjar svona villur :
Microsoft OLE DB Provider for ODBC Drivers error ‘80040e14’
[Microsoft][ODBC Microsoft Access Driver] Syntax error (missing operator) in query expression ‘NumerNotanda =’.
/vefspjall/skrifapost.asp, line 161
Þetta er aaaaaaalveg óþolandi, maður þarf alltaf að skrifa allt nokkrum sinnum, sem þýðir náttúrulega það að maður nennir ekki að svara fyrirspurnum þar sem maður þó veit svör.
kv
-reynir.net
08.09.2004 at 14:14 #505486sæll,
ég var með lödugorma (lödu steisjón) að aftan á 91 árg af xtracab.
það virkaði alveg bjútífúllí, mjög mjúkur og góður þannig.
Fékk að rífa þá úr gamalli lödu í vöku, kostaði pínulítið á þeim tíma.kv
reynir
14.07.2004 at 18:41 #504548Ég er ekki með svoleiðis… var að spuglera í því, en mér er sagt það muni mun meira um flækjur og púst, þ.a. ég fer fyrst í svoleiðis breytingar.
Ég veit þó reyndar af einum sem er með svona, á 4l. mótorinum og hann lætur vel af því. þetta gerir engan stóran mun….
13.07.2004 at 20:58 #504544til hamingju með bílinn…
Ég hef nánast ekkert verslað sjálfur á netinu, en mér skilst að 4wd.com sé öruggt og gott.
Hverju ertu að leita að, ég á slatta af dóti í TJ, og
ég er reyndar með einhverja linka á vefsíðunni minni, http://www.reynir.netkv
-reynir.net
02.07.2004 at 22:01 #504530einhverjir árgangar af YJ wrangler eru með vacúm kerfi á lokum (sama og cherokee xj), sem á það til að vera hundleiðinlegt þegar til á að taka, það eiga reyndar að vera til nokkur einföld fix við því. en ég myndi mæla með hinu systeminu, eða handvirkum lokum.
kv
-reynir
02.07.2004 at 21:55 #504528Sæll,
Um er að ræða 2 tegundir, yngri og eldri en 1997.
1997 týpan heitir TJ en eldri en það heitir YJ. Munurinn felst að stærstu leiti í því að TJ er kominn með gormafjöðrun allan hringinn, kringlótt ljós og grill sem svipar meira til gamla willys, og svo nútímalegri innrétting. Mótorarnir eru nokkurnveginn þeir sömu ár eftir ár. Það eru aðallega 3 mótorar í gangi, 2.5l, 4.0l, og 4.2l. Sá síðastnefndi er ekki mjög vinsæll, en 4.0l þykir vera besti mótorinn, feikna kraftur og eyðslan í lagi. 2.5l er ekki eins kröftugur, þó um 150 hö í nýjustu bílunum, en 97-2000 árgerðin er um 130 hö held ég, en eyðslumunur á 2.5. og 4l ekki svo gríðar mikill. Hinsvegar er 2.5. vélin mun léttari, og í lága drifinu hefur maður feiki nógan kraft.
hérna er linkur með nánari útlistun á vélum úr jeep :
http://www.off-road.com/jeep/tech/engine/amc242.htmlMisjafnt er hvernig setup er á hásingum, en oftast eru þeir með dana 30 og dana 35, en sumir þeirra eru þó með dana 44 að aftan, frá verksmiðju, það fer þó ekkert endilega eftir því hvort þeir eru með 4l vél eða ekki, þó held ég það hljóti að teljast til undantekninga ef 2.5l bíll er kominn með D44. Sumir skella svo ford 9" undir þessa bíla.
hér er tafla þar sem hægt er að sjá nákvæmlega hvað er hægt að fá :
http://www.off-road.com/jeep/swb/articles/specgrid.htmsjálfur er ég á TJ 97 með 2.5l vél á orginal hlutföllum með 35" dekkjum, og það er orðið of þungt, þ.a. næsta breyting er uppfærsla á hlutföllum, en það lægsta sem hægt er að fá í báðar hásingar er 4:88.
kv,
-reynir
18.05.2004 at 20:43 #502807xcab er mun lengri milli hjóla en 4runner, það gefur vissulega allt aðra aksturseiginleika, en ekki er óalgengt að menn lengi bæði double cab og 4runner þegar þeim er breytt.
aftursætin í 4runner eru þægilegri (síðast þegar ég gáði) en aftursætin í double cab, og í xcab eru náttúrulega mjög lítil aftursæti.
08.03.2004 at 14:22 #490930ég er með "willys" af nýrri gerðinni í albúminu mínu…
reyndar wrangler, þetta lítur allt svipað út á mynd.
08.03.2004 at 14:22 #497512ég er með "willys" af nýrri gerðinni í albúminu mínu…
reyndar wrangler, þetta lítur allt svipað út á mynd.
22.12.2003 at 18:56 #193327Hefur einhver hérna samanburð á því sem kallast í USA „BRUTE FORCE/Airaid Intake system“ og „venjulegum“ K&N filterum ?
Er á Wrangler með 2.5l mótor, og er kanski aðallega að spá hvort maður eigi að skella í hann einhverju upgrade á loftintakið eða bara setja venjulegan K&N filter, sem passar í orginal loftsíuboxið. Þeir lofa allt að 18 hestafla aukingu (tek reyndar ekki mikið mark á því).
þessi system eru t.d. :
http://www.4wd.com/shopwrangler/DisplayProduct.asp?ProductSKU=21831
og
http://www.4wd.com/shopwrangler/DisplayProduct.asp?ProductSKU=310110Það væri gaman að heyra ef einhver hefur reynslu af þessum kerfum.
kv
-reynir
-
AuthorReplies