Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.04.2013 at 11:19 #765387
"Gríðarlegt offramboð" af formannsefnum gæti bent til þess að það væri snjallt að koma einhverju af störfum hans til launaðs framkvæmdastjóra svo að formennskan taki ekki jafn svakalegann tíma af mönnum frá öðru.
kv.
ÞÞ
01.03.2013 at 10:49 #764035Náttúrlega leiðinlegt að geta ekki farið þessa leið þegar maður telur hana í lagi.
En ég held að stjórnin hafi mikilvægari hnöppum að hneppa en að berjast fyrir að menn fái að keyra á malbiki….
kv.
ÞÞ
23.12.2012 at 03:07 #761857Sá sem er á ytri hring er aldrei í rétti gagnvart þeim sem er á innri hring og ætlar að beygja út. Og þá skiptir engu hvort sá hinn sami hafi ekið kvarthring eða fimm heila hringi. Hins vegar má alveg taka undir að það sé góð venja ætli maður út á fyrsta útakstri að vera á ytri hring, en sé maður á ytri hring og ætli áfram verður maður að fylgjast mjög vel með þeim sem eru á innri hring hvort þeir ætli út. Og aki maður áfram í veg fyrir einhvern sem ætlar út og sýnir það með stefnuljósi er maður ekki bara að brjóta lög heldur líka að svína fyrir (sem er rakinn dónaskapur).
kv.
ÞÞ
29.11.2012 at 22:39 #761073[quote:2k5590dz]Hvað með V8 Rover (Buick), er úr áli og hægt að ná helling útúr henni.[/quote:2k5590dz]
Verst hvað bensíntankurinn verður þungur….
Þetta eru annars fínar vélar og taka ekki óhóflegt pláss heldur.
kv.
ÞÞ
05.09.2012 at 23:17 #757313Augljóslega þarf að girða svona víðerni af með mannheldri girðingu svo hægt sé að sjá til þess að þar sé aðeins einn staddur þar í einu……..
kv.
ÞÞ
03.09.2012 at 13:00 #757159[quote:tp08lawj]Eru gerð upptæk ökutæki manna sem stofna lífi samborgara sinna í stórhættu með ofsaakstri eða akstri undir áhrifum áfengis eða vímuefna, hvað þá ef þeir valda limlestingum eða dauða þeirra?
Er ekki rétt að það gæti samræmis í refsingum eftir alvarleika brotanna ?.[/quote:tp08lawj]Það er heimild til þess í lögum og einhver tilvik rámar mig í að hafa heyrt um að lögregla/saksóknari hafi farið fram á að ökutæki yrði gert upptækt. Hef ekki fylgst með niðurstöðu dómstóla.
kv.
ÞÞ
22.06.2012 at 06:48 #755217Kom fyrir hjá mér um daginn.
Í ljós kom að ég var ekki loggaður inn…
kv.
ÞÞ
08.03.2012 at 22:54 #751553Finnur heitir hann víst, og er dreift um allt hér á þessu landshorni a.m.k.
kv.
ÞÞ
03.03.2012 at 12:11 #751091Ætli sé ekki óhætt að draga saman ástæður fyrir andstöðu manna hér við lögin þannig:
1. Menn treysta því ekki að ekki verði farið offari í framkvæmdinni.
2. Mönnum finnst asnalegt að það sé alvarlegra brot að valda stórfelldum náttúruspjöllum með jeppa en öðrum verkfærum.
3. Eldri umræða um hvað sé utanvegaakstur og hvað ekki og svo um það hvort utanvegaakstur sem veldur engum spjöllum eigi að vera glæpsamlegur; þ.e.a.s að hefðbundin ábyrg ferðamennska verði ekki lögbrot.
Mér finnst allavega gott að það sé á hreinu af hverju mörgum innan F4x4 er illa við þessi lög og að það sé ekki vegna þess að menn vilji geta ‘spænt upp landið’ óáreittir.
kv.
ÞÞ
17.02.2012 at 21:18 #750085Það er greinilega ekki að fara vel í alla að deildaspjall sé ekki inni í ‘virkar umræður’.
Er þá ekki fínt að koma með tillögur? Hér eru tvær:
1. Deildaspjall komi með í ‘virkar umræður’. Þráðum sem þar birtast verði fjölgað. Flokkurinn komi líka fram t.d "Austurlandsdeild: Skúrabras" og "Vefsíðan: Umræður Deilda og fl."
Spurning hvað það er mikið mál að framkvæma það síðasttalda – finnst samt að það hljóti að vera hægt án stórkostlegra tilfæringa.2. (Þetta er kannski ekki auðvelt þó það sé eflaust hægt; einhvernveginn) Skráðir notendur geti auk þess að hafa virkar umræður auglýsingar og það allt, sér ramma með flokkum sem þeir vilja fylgjast með hvort sem það eru deildir, auglýsingaflokka eða spjallflokka.
kv.
ÞÞ
29.01.2012 at 11:50 #748568Mér fannst nú þráðurinn eiga að heita: "Hvenær á að drullast til hafa þetta eins og ÉG vil hafa það?". En það er kannski af því að ég var eitthvað pirraður.
Best væri náttúrlega að það væri hægt að bæta við, en ekki eyða. En það er líklegast ekki mögulegt með góðu móti.
Þá eru tveir möguleikar í stöðunni:
1. Bæta við póstum með núverandi stöðu (bla selt en blabla enn til sölu).
2. Stofna fleiri þræði (einn fyrir hvert stk.). Það hefur þann kost að auðveldara er að fletta og finna það sem mann vantar, en gæti verið ‘overkill’ ef verið er að selja t.d. grams úr einhverjum bíl.
Annars er þetta eins og með umferðarreglurnar, það er yfirleitt hægt að komast þangað sem maður vill, þó manni finndist stundum þær mættu vera einhvernveginn öðruvísi en þær eru.
kv.
ÞÞ
10.01.2012 at 22:04 #746567Þetta hefur ekkert með Skeljung að gera heldur bankana/kortafyrirtækin. Þetta er einfaldlega leiðin sem kortafyrirtækin bjóða upp á til að hægt sé að nota debetkort á eldsneytissjálfsala.
kv.
ÞÞ
09.01.2012 at 18:48 #746497Þetta er náttúrlega ekki frétt í þeim skilningi orðsins, heldur er hér einfaldlega tilkynning frá Hvolsvallarlögreglunni um helstu viðburðum helgarinnar. Bæði Vísi og Mogganum þykir þetta pínulítið fréttnæmt og Mogginn setur þetta í sér frétt, en hvort þetta þyki nógu fréttnæmt til að þeir hringi í lögguna til að fá nánari upplýsingar er svo annað mál.
kv.
ÞÞ
20.12.2011 at 16:59 #744521Tekur því varla að spá í þetta, verður ekki bannað að fara þangað hvort eð er….
kv.
ÞÞ
14.10.2011 at 09:02 #739527101 Reykjavík
Að vísu er mögulegt að umferð vélknúinna okutækja verði bönnuð þar…
ÞÞ
08.10.2011 at 23:08 #739021Ef menn vilja rökræða fram og aftur um hvort þetta virkar eða ekki, er hægur vandinn að finna a.m.k. tvo tiltölulega nýlega þræði sem fjalla um það. Telji menn sig geta bætt einhverju við það sem þar kemur fram er tilvalið að bæta við þá þræði (held t.d. að það sem er á fíb vefnum sé í báðum þráðunum; jafnvel oftar en einu sinni).
Hér væri hins vegar gott að fá fleiri reynslusögur.
kv.
ÞÞ
24.09.2011 at 12:10 #737665Væri ekki ráð að hafa þessa ferla í sér skrá, jafnvel á sér stað á vefnum, þar sem vel og rækilega væri tekið fram að óheimilt væri að aka þessa slóða. Þar með gætu venjulegir kallar eins og ég séð hvaða slóðar þetta eru, auk þess sem við værum þá einnig að sinna upplýsingagjöf fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Þannig væri ekki væri með nokkru móti hægt að saka klúbbinn um að vera að hvetja til þess að þeir slóðar væru eknir.
kv.
ÞÞ
23.09.2011 at 20:47 #737655[quote="Ofsi":2n56xqa1]Mér er bannað að merkja slóðirnar rauðar. þ.e sama sem lokaðar. Ég á að eyða þeim út.[/quote:2n56xqa1]
Hver bannar?
kv.
ÞÞ
11.08.2011 at 10:44 #735123Þeir eru fleiri held ég sem hafa ekki getað fylgst almennilega með sýnilegum aðgerðum stjórnar F4x4 undanfarið.
kv.
ÞÞ
03.08.2011 at 12:55 #734067Hvaða íslendingur sem er má koma í veg fyrir lögbrot, svo fremi að hann noti lögmætar aðferðir.
Sjálfur tel ég mig sjaldnast (ef nokkurn tímann) vera þess umkominn að skera úr um að tilkeinn slóði sé villuslóði, en þekki menn til og séu vissir í sinni sök, kynni ég þeim góðar þakkir ef þeir lokuðu slíkum slóðum.
kv.
ÞÞ
-
AuthorReplies