Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.09.2004 at 13:05 #506182
Hvernig er annars árgerðin fundin? Tekið meðaltal?? 😉
kv.
ÞÞ
20.09.2004 at 17:48 #506014Ég get allavega sagt að ef ég ætti tíu bíla á hlaðinu hjá mér lægi mér á að selja einhverja þeirra.
kv.
ÞÞ
26.07.2004 at 00:40 #505082Ég hef bara séð einn 35" breyttan og hann er þrælflottur. Prófaðu að senda inn fyrirspurn á spjall Íslandrover klúbbsins http://www.islandrover.is
kv.
Þorsteinn Þ.
26.07.2004 at 00:35 #50508423.07.2004 at 13:37 #504978Einu sinni var mér sagt að í uppþvottalegi væru efni sem færu ekki vel með lakk (einhver sölt minnir mig). Á rúðupissið hjá mér fer hins vegar aldrei venjulegur lögur heldur vatn, rúðupisssápa (sonax og fleiri merki) og ísvari eftir þörfum á veturna. Sápan virkar mjög vel og dugar ágætlega á flugur en að sjálfsögðu ekki eins vel og rain-x.
Með lakkaða hluta er hæfilegt kæruleysi ágætt (fer á endanum).
kv.
Þorsteinn Þ.
20.07.2004 at 12:36 #504814Eftir því sem mér hefur skilist hér er kostnaðurinn (verð + breyting) – (endursöluverð eftir 5 ár) – (niðurfelling á opinberum gjöldum). Miðað við þetta þurfa ódýrustu innkaupin ekki endilega að vera þau hagstæðustu þegar til lengri tíma er litið. Allavega hljóta þeir í Garðabænum að kunna að reikna auk þess sem mér þyki það persónulega líklegt að seljarinn og breytirinn slái eitthvað af (fín auglýsing).
En almennt talað (og þá fyrir okkur sem fáum ekki niðurfellingu og/eða stóra afslætti) þá fór ég að velta fyrir mér hvort það hlyti ekki að vera ódýrara að kaupa ný sæti og hljóðeinangrun í Defender en að slíta burt hálfan undirvagn og setja nýjan?
En að sjálfsögðu óskum við þeim í Garðabænum svo til hamingju með bílinn þegar þeir fá hann og vonandi þurfa þeir (og allir hinir) sem sjaldnast að nota hann í alvöru.
kv.
Þorsteinn Þ.
06.07.2004 at 22:45 #504624Öryggisreglur fyrir alvöru keppnishald eru það stífar að það þarf talsvert batterí til að halda slíkt. Auk þess þurfa bílarnir að vera útbúnir ýmsum öryggisbúnaði sem ég myndir t.d. ekki hafa áhuga á að setja í minn (sem er þó gamall).
Ég mæli frekar með því sem við Land Rover eigendur ætlum að skemmta okkur við á Landrover helginni okkar en það er að reyna okkur við jeppaþrautir og verðlaunin eru lófatak fyrir þá sem standa sig vel en hinir fá klapp á bakið. Austfirðingarnir geta e.t.v. bætt einhverju slíku inn á sumahátíðina.
kv.
Þorsteinn Þ.
26.05.2004 at 11:24 #503223Einn af göllum vefjarins er náttúrlega sá að menn geta breytt eftirá. Ætli Guffi fylgist með á f4x4.is ??
ÞÞ
26.05.2004 at 10:21 #503135Frumherji er með ágætis lesningu um þetta [url=http://www.frumherji.is/uploads/files/3DB1298FD3F7.pdf:24hzri6d]Hér[/url:24hzri6d].
kv.
Þorsteinn
19.05.2004 at 09:48 #502768Haltu endilega áfram að leita að ferðum sem félagar í 4×4 (eða aðrir sem hér eiga myndir eða spjallinnlegg) hafa farið yfir lokaða vegi. Það er nefninlega svo að við erum öll að læra hvernig við eigum að gera betur. Og þó að þessi ferð sem þú vitnar til hér að framan virðist (eftir því að dæma sem hér hefur komið fram) hafa verið til fyrirmyndar í því að athgua vel fyrirfram hvort leyfilegt hafi verið að fara vegina þá er náttúrlega ekki útilokað að einhver hafi freistast inn á lokaðan veg a.m.k. í den.
kv.
Þorsteinn
18.05.2004 at 11:30 #495777Það tvennt sem ég sá helst í tilkynningu FÍB var annars vegar það sanngirnissjónarmið að við borgum jafnt fyrir notkun á vegunum hvort sem við brennum grút eða bensíni og hins vegar að blanda þessu máli ekki saman við heildarskattheimtu ríkisins af bíleigendum.
Það er svo annað mál hvort hægt sé að slá af þessari skattheimtu þegar menn eru ekki að slíta vegum t.d. í veggöngum sem þeir borga hvort eð er sérstaklega til að fá að nota eða á vegleysum og jökulum. Þess má t.d. geta að vegagerðin vildi fá að nota GPS til að rukka aukalega fyrir akstur flutningabíla. Þetta er verðugt athugunarefni fyrir f4x4 þar sem það gæti nýst okkur öllum.
Evrópa er nú full af litlum díselfólksbílum sem eru þýðir, hljótlátir, sparneytnir og kraftmiklir. Það eina sem hefur staðið í veginum fyrir innflutningi þessara bíla hér er þessi sérstaka skattlagning á díselbíla hérna.
kv.
Þorsteinn Þ.
18.05.2004 at 11:30 #503101Það tvennt sem ég sá helst í tilkynningu FÍB var annars vegar það sanngirnissjónarmið að við borgum jafnt fyrir notkun á vegunum hvort sem við brennum grút eða bensíni og hins vegar að blanda þessu máli ekki saman við heildarskattheimtu ríkisins af bíleigendum.
Það er svo annað mál hvort hægt sé að slá af þessari skattheimtu þegar menn eru ekki að slíta vegum t.d. í veggöngum sem þeir borga hvort eð er sérstaklega til að fá að nota eða á vegleysum og jökulum. Þess má t.d. geta að vegagerðin vildi fá að nota GPS til að rukka aukalega fyrir akstur flutningabíla. Þetta er verðugt athugunarefni fyrir f4x4 þar sem það gæti nýst okkur öllum.
Evrópa er nú full af litlum díselfólksbílum sem eru þýðir, hljótlátir, sparneytnir og kraftmiklir. Það eina sem hefur staðið í veginum fyrir innflutningi þessara bíla hér er þessi sérstaka skattlagning á díselbíla hérna.
kv.
Þorsteinn Þ.
13.05.2004 at 09:44 #502091Discoveryinn er ekki á unibody eins og RR heldur grind. Rörin eru hins vegar horfin.
kv.
Þorsteinn
12.05.2004 at 14:53 #501913Sammála Lúther með að aðrir klúbbar gætu haft áhuga á að nýta slíkt húsnæði með 4×4. Ég er t.d. í félagsskap Land Rover sérvitringa (http://www.islandrover.is) þar sem kaup eða föst leiga á húsnæði er út úr kortinu en að fá að vera með í einhverju slíku púkki yrði eflaust skoðað.
kv.
Þorsteinn
ps. ég er ekki í stjórn þessa félags svo þetta eru bara mínar prívat skoðanir.
10.05.2004 at 10:46 #501762Eins og vitum er það ekki góður ökumaður sem getur ekið hraðast heldur sá sem ekur af skynsemi, miðað við astæður og tekur tillit til annara í kringum sig.
Einu sinn lærði ég þá reglu við mætingar á þröngum vegum að sá sem á auðveldar með á að víkja betur. Jafnvel hefur maður þurft að stöðva vel út í kanti til að hleypa framjá t.d. litlum fólksbíl sem kemst ekki eins út í kantinn og ég, og einnig stórum flutningabílum sem mega illa við því að vegkanturinn gefi sig undan einhverjum tugum tonna.
Svo er það að þegar ég tók bílprófið fyrir einnugis tveim áratugum, þurfti mikið að hafa áhyggjur af grjótkasti bæði við að mæta bíl og svo við að aka of nálægt þeim sem á undan var. Mér finnst einhvern veginn að þó að malarvegunum hafi fækkað talsvert, hljóti enn að vera talsvert grjótkast undan bílum þar sem þessir vegir eru ennþá og muni ég rétt hafði hraðinn talsvert um það að segja hversu stór tjón urðu vegna þess.
Kv.
ÞÞ
05.05.2004 at 10:08 #501335Aðalgagnrýnin sem hér hefur komið fram snýst um að menn hafi farið inn á lokaðan veg sem er eins og menn vita ekki það sama og að vegurinn sé merktur ófær. Lýsingin á ferðalaginu staðfestir svo að það hafi verið ástæða fyrir því að vegurinn var lokaður.
Menn hafa svo verið að giska á að þetta hafi verið ungir og óreyndir menn til þess að finna þeim eitthvað til málsbóta.
kv.
ÞÞ
28.04.2004 at 13:32 #500389Það er þó sá munur á skrifum þeirra tveggja að Hreggviður telur all breytta jeppa hættulega en Leó viðrar fyrst og fremst áhyggjur (væntanlega óþarfar) af því að ekki sé nægt eftirlit með að breytingar séu gerðar almennilega og að þeir sem aki þeim viti hverju þeir eru að aka. Hér í spjallþræðinum um grein Leós er einmitt hægt að finna skýrslu um breytingu á LC80 á 44" í Ástralíu og þar er einmitt tíundað hverju var breytt, hvernig og að sumt (t.d. lenging á drifskafti) hafi verið unnið af viðurkenndum fagmönnum.
ÞÞ
-
AuthorReplies