Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.11.2013 at 19:07 #438749
skráningu verður lokað á fimtudagskvöldið
16.11.2013 at 10:06 #438637koma svo….. það er bara vika í þetta
16.11.2013 at 10:05 #438636þetta er að bresta á
08.11.2013 at 19:09 #437680,,smemtun“ hehe, átti held ég að vera skemtun.
08.11.2013 at 19:08 #437679koma svo púngar og ,,,,, allir að skrá sig, dúndur ball að smemtun lokinni með GREIFUNUM frá Húsavík, ekki missa af þessu gott fólk
29.09.2013 at 15:19 #379080sælir
ég er búinn að keyra á svona dekkjum í tæpt ár núna og er hæðst ánægður með þau, er með þau á 16″ breiðri felgu sem passar þeim mjög vel, þau eru merkilega hljóðlát miðað við þetta grodda munstur sem er í þeim og þau eru alveg kringlótt svo það er mjög gott að keyra á þeim, þau eru reyndar öll míkróskorin hjá mér og búið er að opna hliðarkubbana vel, er ekki búinn að ná að prufa þau nægilega vel í snjó en það sem af er lofar góðu, mér finnst þau endast vel og hef ekki verið í neinu veseni með þau, en það er nauðsinlegt held ég að vera með annað hvort góðan kannt á felgunum eða með valsaðar felgur, stæðsti gallinn finnst mér að það getur verið erfitt að eignast svona dekk þar sem það er ekki svo mikið flutt inn af þeim í einu, þegar ég verslaði mín var ég búinn að tala við Gunna Icecool sem að átti von á sendingu þá en var búinn að selja allt úr gámnum áður en hann kom til landsins, svo það getur verið smá bið að fá annað dekk ef maður skemmir eitt, stór snild við þessi dekk er líka að þau fást í flest öllum stærðum fyrir 15″ felgu.Kv, Gunni
07.06.2008 at 00:29 #623780seinasti ræðumaður smell hitti naglan,,, þetta er alveg lýsandi dæmi fyrir háspennukefli.
KV, Gunni.
07.06.2008 at 00:26 #624198Það vill svo skemtilega til að ég vinn á bílaverkstæði, og bara í morgun var ég að vinna í svona vél með nákvæmlega þessu banki ( samkvæmt lýsigunni ), þetta hljóð kemur frá dísonum og það gæti verið nóg fyrir þig að kaupa þér 1 líter af tvígengisolíu og skella honum í tankinn og atuga hvort hann lagast ekki, annars þarf að öllum líkindum að fara í spíssana á honum.
vona að þetta gagnist eittthvað.
Kv, Gunni.
20.05.2008 at 20:43 #623096Það er alveg rétt hjá þér, það er ekki hægt að fá neina útgáfu af honda fjórhjóli götuskráð, ódýrustu götuskráðu hjólin eru þessi kóresku.
kv Gunni
20.05.2008 at 18:33 #623092Vdo og K2 icehobby eru að selja allar þessar þrjár tegundir sem og Fóðurblandan. Já það er rétt að þetta eru alltsaman ágætis hjól en kymcoin er svona aðeins vandaðra en linhai og með 500cc mótor á móti 300cc, bæði hjólin eru með fjórhjóladrifi og háu og láu drifi, linhai hefur það hinnsvegar fram yfir að hægt er að fá það skráð 2 manna, varahlutir eru á mjög góðu verði í þessi hjól og er hægt að fá allan andskotan í þetta, heitan ás, kraftpúst, kúpplingskitt og margt fleira.
kv Gunni fjórhjólakall
18.05.2008 at 23:01 #623098Skoðaðu skr-atv.com
kveðja, Gunni
18.05.2008 at 22:59 #623074hjól eru mörg mjög góð miðað við verð, eins og t.d. kymko, catain og linhai koma bara þokkalega vel út en það er bara ekki hægt að setja þau í sama flokk og merkjavöruna.
kveða, Gunni
-
AuthorReplies