FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Pétur Blöndal Gíslason

Pétur Blöndal Gíslason

Profile picture of Pétur Blöndal Gíslason
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 132 total)
← 1 … 5 6 7 →
  • Author
    Replies
  • 18.03.2003 at 01:15 #470924
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Tillaga Wolf fær mitt atkvæði….jafnvel þó hann sé bara á Pajeró…;) Sérstaklega þessi hugmynd um sandkassann…hefði náttúrulega átt að vera snjókassi…en veður leyfir það víst ekki…
    Kveðja
    Pétur G





    17.03.2003 at 21:26 #470914
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Og til að bæta aðeins við nöldrið…Sjáiði td auglýsinguna sem er búin að vera á forsíðunni núna í óratíma…."Kaupi og sel kanta" Einhver sem kallar sig Jón Ólafsson… Hann er kannski að ná inn fyrir væntanlegum sektum vegna hugsanlegra skattsvika…hver veit… Hann virðist ekki vera félagi þessi ágæti maður… og ég er satt að segja orðinn svolítið leiður á að sjá þessa auglýsingu stöðugt…kannski er það bara ég…það eru allavega svona dæmi sem fá mann til að hugsa í hvað félagsgjöldin fara. Ég held úti heimasíðum fyrir minn rekstur, og ég veit alveg að þetta er ekki frítt.

    Áfram 38" og líka hinir þarna niðri og þið montprikin þarna uppi.
    Pétur Gíslason





    17.03.2003 at 21:17 #470912
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Þetta á náttúrlega ekki að vera umræðuefni. Auðvitað á þessi vefur að vera fyrir félagsmenn…td valsson segir "Eina ástæðan fyrir því að ég fór að velta þvi fyrir mér að ganga í klúbbinn er þessi vefur, en að vísu eru skrifin hér líka eina ástæðan fyrir því að ég er ekki búinn að ganga í hann. Þetta er ekki spurning um að tíma eða ekki tíma, þetta er spurning um það hvort maður vilji vera í klúbb þar sem bíll er ekki bíll ef hann er undir 38".
    Er okkur ekki bara slétt sama hvort hann vill ganga í klúbbinn…ef að skrifin hérna fæla hann frá..hvað er hann þá að bögga sig á að vera með…. meðfædd Íslensk nirfilssál segi ég…megi hann komast sem lengst á því…
    Og auglýsingarnar…þær svínvirka, það selst allt sem maður auglýsir..mér finnst allt í lagi að borgað sé fyrir það…Auðvitað eiga allir að geta lesið síðuna, en fyrir réttinn til að birta á henni finnst mér sjálfsagt að borga…þetta er flottur vefur og við eigum að hlúa að honum…
    Finnur segir.."Þetta er bara skítamórall og fordómar í ykkur. Þessir stælar gera ekkert annað en að fæla fólk frá klúbbnum ykkar, ef þið haldið áfram að vera svona leiðinlegir, og með þessa stæla og móral þá fáið þið ekki nýtt fólk í klúbbinn."….sem sé..þetta er bara skítamórall og fordómar…flott rök ekki satt??…hann endar pistilinn sinn á…"Reyniði nú að hætta þessu eilífa væli og skæli, og elskiði friðinn…"…. Hver er að væla og skæla??

    Strákar tímum að vera til…það er ekkert kikk í því að láta aðra alltaf vera það fyrir sig…

    Klúbburinn lengi lifi
    Pétur Gíslason





    06.03.2003 at 16:00 #470048
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Innilega sammála Elmari…
    Það er allt of mikið að kellingum úr Vesturbænum hérna á spjallinu… hlaupa með eitthvað af stað vitandi ekkert í sinn haus…hvarflar yfirleitt ekki að mönnum að athuga málið.. bara gaspra eitthvað út í loftið oft á tíðum bara til að koma einhverju rugli í gang…
    Sem sé…Pössum á okkur túllann..
    Gleðikveðja
    Pétur Gísla





    04.03.2003 at 22:26 #469846
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Þá höfum við það loksins skjalfest…Toyota er jeppi…
    Þessi þráður er greinilega mesta þarfaþing…allavega ef það er hægt að koma þessu máli á hreint… þetta hefur nfnilega sennilega ekki legið alveg ljóst fyrir..
    Baráttukveðja
    Pétur Gíslason





    04.03.2003 at 22:11 #469970
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Einar Þór á Bílaverkstæði Einars Þórs ekur um á svona 38" breittum. Hann svínvirkar og fer rosalega vel með mann. Hann er kominn með Túrbó vél og heldur mjög vel áfram og togar heilt helvíti. Hann er léttari en Patrol. Sem sé.. hörku græja..
    Kveðja
    Pétur Gísla





    01.03.2003 at 16:43 #192258
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Það voru að berasr fréttir af leiðangri sem er í gangi. Nokkrir vaskir sveinar að ná í TOYOTU sem skilin var eftir á Hveravöllum í þorrablótsferð hinni fyrri í Setrinu. Þetta er bíll úr hópnum sem snéri við undir Loðmundi. Semsé… Þetta Toylett veiktist í skiptingunni og varð að hafa vetursetu í heita pottinum. Þeir voru annars rétt í þessu að gangsetja gripinn með nýupptekinni skiptingu og allt virðist virka. Ætla bara að spóla aðeins í krapanum í grendinni í dag og bruna svo suður jökul á morgun. Þeir komu upp norðanfrá í dag og var það ekkert svo slæmt, nokkrir krapapyttir en annars færi þokkalegt. Það er samt rigning og hiti vel yfir frostmarki þarna núna þannig að það gæti enn átt eftir að slá einhver þorraferða met… hver veit.
    Með kveðju af blautum fjöllum.





    27.02.2003 at 11:21 #469342
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Er þá líka í lagi að nauðga konum bara ef einhver veit ekki að þær eru til, og einhver hefur aldrei séð þær…
    bara spyr..

    Hrein Hálendiskveðja
    Pétur Gíslason





    24.02.2003 at 22:59 #469148
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Ég skil nú ekki alveg suma hér á þessum þræði. Kíkja í budduna áður en kallað er í björgunarsveit??.. mætti ég ráðleggja mönnum að kíkja í budduna áður en þeir halda til fjalla…hafa þeir efni á að eiga yfirleitt druslurnar sem þeir aka… Auðvitað er erfitt að vera í dómar sæti og dæma um hver lenti í vandræðum af óviðráðanlegum orsökum og hver fyrir hreinan aulaskap… á svo að rukka menn fyrir að vera aular, er það í sjálfu sér ekki nógu slæmt þó það fylgi því ekki líka sérstakt gjald. Einusinni sem oftar var ég nettur auli og festi gamla Broncoinn minn í drullu inn á Hellisheiði. Það komu þrír björgunarsveitarmenn úr Hveragerði og mokuðu og mokuðu og mokuðu áður en við náðum honum upp. Þetta var fyrir sirka 20 árum og ég ungur og staurblankur. Þegar við komum loksins upp á veg þá spurði ég þá hvað það kostaði, og þeir sögðu að í raun kostaði svona lagað ekki neitt, en allur stuðningur við rekstur sveitarinnar væri vel þeginn. Ég bara snéri við vösunum og afhenti þeim allt sem ég átti, og leið mjög vel með það. Hefði örugglega móðgast ef þeir hefðu a) sagt nei takk eð b) sagt þetta er of lítið. En þeir bara brostu, og síðan hef ég líka passað að kaupa allt mitt púður hjá björgunarsveitum en ekki hjá einhverjum gámaköllum út í bæ. Bottom line… Auðvitað á okkur að finnast sjálfsagt að láta eitthvað af hendi rakna til þeirra sem bjarga okkur. Ef ég lendi í vandræðum er yfirleitt einhver úr félagahópnum sem kemur til hjálpar. Ekki hvarflar að mér að láta viðkomandi bera stóran kostnað af því. Ég fékk símtal frá vini mínum sem var í vandræðum í haust fyrir innan Svínárnes. Ég var í startholum í björgunarleiðangur, en hann ákvað að hringja frekar í sveitina á Flúðum. Þeir komu uppeftir til hans, en þá var hann nýbúinn að basla sig út úr vandræðunum. Hann bauð þeim borgun samt, og þeir sögðu að stundum væri tekinn einhver bensínpeningur fyrir svona reddingar, en vildu samt ekki taka við peningum, sögðu að ef það yrði metið svo að það ætti að rukka fyrir þetta tilvik þá fengi hann sendan gíróseðil því þeir mættu persónulega ekki taka við neinum peningum. Veit svo reyndar ekki hvernig það mál endaði.
    Strákar verum flottir …TÍMUM AÐ VERA TIL…
    Kveðja
    Pétur Gíslason





    19.02.2003 at 14:19 #467738
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Just in case…ef "eik" tókst að lesa einhveja öfund út úr mínum pistli, þá væri gaman að láta Kára rannsaka úrlestrargenið hans bara svona í leiðinni. Og í sambandi við Hummerinn þá er margt gott um hann að segja. Hann drífur fínt meðan færi er þokkalegt en þegar þyngist á fer hann að ver4ða til vandræða. Kemur einna best út óbreittur í léttustu útgáfunni. En það er önnur saga, þessi þráður er víst um Pajeró….hann lengi lifi húrra húrra húrra..
    kveðja
    Pétur Gíslason





    19.02.2003 at 11:00 #467728
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Það er ekki rétt. Það er búið að setja allskonar dekk unir Hummerinn. Ég fékk einusinni það vekefni að prufa svoleiðis græju á 38". Í stuttu máli þá var ég í spotta um allt hálendið heila páskahelgi ýmist aftaní Toyotu eða Patrol… það var hrikaleg reynsla.. var með lambhúshettu langt fram á sumar, en læknaðist alveg af ameríska draumnum. Það eru ekki bara framklafarnir sem eru að þvælast fyrir…líka þeir aftari nefnilega, og svo er þessi sjálfstæða fjöðrun ekki nægilega slaglöng. Allavega ekki í Hummer.. en til hamingju samt.. það verður gaman að sjá þetta á fjöllunum.
    kveðja
    Pétur





    18.02.2003 at 19:54 #468764
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Gaman að fá þessar myndir… það nebblega jaðraði stundum við að mann langaði til að vera á staðnum… er bara svo lítið fyrir skemmdan mat, sérstaklega eftir að ísskápurinn var fundinn upp… en mér sýnist að í þessari ferð hafi maturinn ekki leikið aðalhlutverkið. Gaman væri að fá smá ferðasögu frá einhverjum ritliðugum úr hópnum… svona bara þegar menn vakna aftur….
    Krapakveðja
    Pétur Gíslason





    16.02.2003 at 23:42 #192192
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Hvernig er með ykkur suðurlandsmenn… eru engar sögur úr þorrablótsferðinni… maður heyrði allavega á vhf..inu að það var fjör á leiðinni í Landmannalaugar og af veðurfréttum að dæma ætti ekki að hafa verið minna stuð á leið heim í dag… undirritaður skaust í Laugarnar og til baka á laugardagsmorgun og fannst krapinn þá lofa bara góðu.
    Áskorun….koma nú með fréttir
    Kveðja
    Pétur Gíslason





    06.02.2003 at 00:57 #467910
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Vei… svínvirkaði.. Þá kann ég það
    Kærar þakkir
    kveðja
    Pétur





    05.02.2003 at 12:49 #467906
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Sæll BTH
    Einmitt rétt, gott væri að vera laus við gamlar símhringingar. En fyrst þú ert hissa á að menn ekki hendi þeim út og veist að menn kunna það almennt ekki, hefði ekki verið sóknarfæri hjá þér að setja hér inn leiðbeiningu??
    Ég var svo sem ekkert að leggjast yfir það, en fann allavega ekki út úr því hvernig það væri gert þannig að ég sendi fyrirspurn á vefstjóra. Það er svoldið síðan og ég hef ekki fengið neitt svar. Þannig að…go ahead man….
    kveðja
    Pétur





    05.02.2003 at 00:10 #467894
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Að ég best veit er ekki hægt að vinna neitt með trökk í þessu forriti. Þú getur unnið með gps signal og séð hvar þú ert, en ekki skráð neitt þar um. Einungis handteiknað inn leiðir.
    Kveðja
    Pétur





    02.02.2003 at 00:09 #467430
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Það verður sennilega munað lengi þorrablótið snjólausa-veturinn mikla 2002-2003. Og ég sem nennti ekki að mæta af því ég á ísskáp og er hættur að borða úldið…shit… en kannski fær maður björgunarleiðangur út úr þessu… hver veit…;) Er allaveg tankaður og klár með stuttum fyrirvara og síminn stilltur á hæstu hringingu…
    Baráttukveðja úr Kjósinni





    30.01.2003 at 20:33 #467310
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Hmm.. Hvernig stendur á að vatnið í ánni minnkar fyrir ofan lónið?





    29.01.2003 at 01:08 #192070
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Það er athyglisverður vefur http://www.halendid.is þar sem hægt er að taka afstöðu. Endilega kíkið inn.
    Einn sem elskar fjöllin





    13.01.2003 at 13:13 #466362
    Profile photo of Pétur Blöndal Gíslason
    Pétur Blöndal Gíslason
    Member
    • Umræður: 15
    • Svör: 227

    Hvernig er það. Geta sveitamenn sem ekki eiga alltaf erindi í Mörkina skráð sig til þjónustu reiðubúna á einhvern annan hátt en að beisla Datsúninn og geisast alla leið úr Kjósinni suður í Mörk til að skrifa sig á lista??
    Kántríkveðja
    Pétur





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 132 total)
← 1 … 5 6 7 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.