Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.03.2006 at 23:45 #546334
Strákar mínir endilega ekki missa þennan þráð út í einhverja vitleysu og viðkvæmni. Ef þið ætlið að slást þá endilega verið bara úti. Þessi þráður er ætlaður uppgjöri á frábærri ferð út í óvissuna. Ekki einhverja sprænukeppni. Annars ætlaði ég bara að láta vita að ég er búinn að setja inn myndasögu úr ferðinni í myndaalbúminu hjá mér. Einig vildi ég láta vita að verið er að rannsaka gögn úr gervihnetti sem varpað gætu ljósi á hvað varð um Utangarðsmenn og Ellu. Það hefur einnig verið upplýst að Ofsi og Gulli Mullha stungu ekki af frá hálfkláruðu uppvaski, heldur bara alveg ókláruðu uppvaski. Þeir vildu hvorugur þurrka og náðu ekki samkomulagi og fóru sömu leið í þingið með vatnalögin. Þeir köstuðu þessu inn í framtíðina og brunuðu svo burt. Þannig að ef einhver vill skjótast framm í tímann og þurrka….þá bara gjörið þið svo vel.
Frekari upplýsingar verða birtar um leið og þær verða birtingarhæfar.
Verið þið svo stilltir
Kv
Fararstjórinn
14.03.2006 at 15:21 #546314Sko…. einhverjir mestu ritsnillingar þessa vefs voru með í þessari ferð. Mætti ég benda á að allri óvissu og nafnleynd hefur verið létt af ferðinni. Ykkur er óhætt að koma út úr skápnum og tjá ykkur. Það vantar lokaskýrslur. Moggi Verkfræðingur Tuddi Ella Ofsi Fastur…. hvað er í gangi, er frosið blekið í lyklaborðinu hjá ykkur… eða bara ekki búin að jafna ykkur enn??? Eða á eftir að semja sæmilega trúverðuga sögu?? Hvað veit maður. Ekki eruð þið öll í ritbanni???
Svona nú. Hysja upp um sig 44 tommurnar og skrifa eitthvað fallegt.
kv
Pétur
13.03.2006 at 17:50 #197536Þá er óvissuferðin að baki. Langflestir skiluðu sér tiltölulega ótjónaðir til baka.
Hópurinn safnaðist saman í Hrauneyjum síðastliðið fimmtudagskvöld og þjófstörtuðu menn misjafnlega gleðinni. Það voru þó allir ferðbúnir á rétturm tima föstudags morguns og gífurleg gleði og eftirvænting í hópnum. Ekki síst í þeim rottum Gulla og Ofsa sem töldu sig komna inn í nýtt og betra umhverfi með Utangarðsmönnum. Hlakkaði þá þvílíkt til að sýna hópnum rottubælið í Illugaveri og ekki hlakkað þá minnst til að sýna sínum nýju félögum bælið. Jafnvel var talað um að nú yrðu Utangarðsmenn ekki lengur utangarðs á hálendinu. Til að gera langa sögu stutta þá var stoppað stutt í Illugaveri því Ofsa lá svo á að testa nýju félagana í Svartánni. Fann hann þar ódýra gildru (sennilega rottugildru) og þar veiddi hann einn lítinn Hummer bara strax. En, viti menn. Hann sá ekki fyrir afleiðingarnar því þarna bara missti hann allan hópinn sinn í burt niður á Selfoss að snapa varahluti og sást frekar lítið til Utangarðsmanna það sem eftir lifði ferðar. Upp sátum við fararstjórarnir með Gulla og Ofsa og var það ærinn starfi. Þeir ætla þó að freista þess að fá a ð ganga aftur í rottugengið. Vonandi gengur það eftir.
Áfram með smjörið. Héldum sem leið lá um Vonarskarð í mestu bongóblíðu vetrarins, ókum um Snapadal og stoppuðum við Hníflana til að þjappa hópnum saman. Þar næst stoppuðum við í Gæsavötnum en sökum veðurblíðu neyddumst við til að borða nesti utandyra. Þaðan var stefnan tekin niður með Skjálfandafljóti austanmegin og fyrsta stopp við Hitulaug sem Ofsi vildi endilega kalla Bárðarlaug og hafði það eftir Sverri Kr. Sel ekki þá sögu fyrir mikið. Þegar við komum svo niður að hrauninu þá var bara allur snjór búinn. Útlitið var mun skárra vestan við fljótið þannig að í snatri var fundin leið vesturyfir og melarnir og hraunið þrætt vestur í Kiðagil og svo áfram norður Sprengisandsleið. Úr Bárðardal var ekið stystu leið yfir hálsinn yfir á Mývatn og tékkað inn á flottasta hótelið þar, Hótel Gíg. Var það uþb 12 tímum eftir brottför frá Hrauneyjum. Laugardagurinn var tekinn snemma . Mættir voru félagar úr Húsavíkurdeildinni þeir Bjarni Eyjólfs og Oddur Icemann. Stjórnuðu þeir hópnum með glæsibrag þennan dag, sýndu okkur Dettifoss og þræddu okkur í gegn um Gjástykkið stórslysa laust. Reyndar tókst þeim að finna brekku þar sem undirritaður náði að brjóta í drifloku í góðu flugi. Þrátt fyrir mikið spól og spangól var aðeins einn gamall 2,8 Patrol sem komst þar upp. Skrýtið, eins og var þarna mikið af allskonar barbíum og ofurcrúserum og Wranglerum og 4runnerum og ég veit ekki hvað og hvað. En svona er lífið stundum ósanngjarnt. Seinna fundu þeir svo ansi flottan snjóskafl þar sem margir fengu að prófa spottana sína og spilin og var dundað þar dágóða stund. Eftir að hafa svo skoðað vítin tvö, litla og stóra var brunað í skála félagsins við Þeystareyki þar sem formaður Húsvíkinga Hallgrímur Óli beið með kaffi kakó og kleinur eins og menn gátu í sig látið. Kunnum við þeim félögum hinar bestu þakkir fyrir. Hallgrímur fylgdi svo hópnum niður á Kísilveg þ.e.a.s öllum nema þeim Gulla og Ofsa. Þeir fréttu af tækjum sem til eru víst á Húsavik og eru þeirrar náttúru að geta gert tvo járnbúta að einum með einskonar ljós eða eldgeisla. Töldu þeir sig þurfa að berja þessi tækniundur augum. Við sáum þá svo seinna um kvöldið skælbrosandi og sólbrunna.
Um kvöldið var frammreidd fyrir okkur þessi fína veisla á hótelinu og var síðan gerð einhver úttekt á skemmtanalífi þeirra Mývetninga. Ekki hefur fararstjórn enn borist áræðanleg og byrtingarhæf skýrlsa frá þeirri úttekt.
Sumir tóku svo sunnudagin snemma því fjallasýnin og veðurspáin lofaði góðu. Einhverjir laumuðust sjoppuleiðina, og ekki er alveg vitað hvað Utangarðmenn gerðu eða hvenær þeir vöknuðu og er hér með lýst eftir vitnum, en lungað úr hópnum lagði í hann til fjalla. Ofsi og Gulli urðu eftir til að vaska upp. Það var ekið upp með Skjálfandafljóti austanmegin og farið yfir á vaðinu við Hrafnabjörg. Ansi mikið var í fljótinu og þurfti að aka fyrst niður vaðið og síðan upp til að krækja fyrir ís. Sáu menn fljóta vel yfir 44 tommuna á köflum. Síðan var haldið áfram suður Sprengisandsleið og suður undir Bleiksmýrardrögum tekin stefnan á Laugarfell. Var þar kominn nægur snjór til að skella metalnum í botn og stýra. Stutt stopp við Landakot og svo beint í laugina í Lagafelli. Þar var líka hópurin fóðraður. Í miðri samloku brunuð tvær rottur í hlað með rauðglóandi túrbínur og ekki laust við smá skömmustusvip. Er talið að þeir hafi stungið af í miðju uppvaski. Enda greyin verið hálf hrædd að þurfa að rata ein heim.
Frá Laugafelli var stefnan tekin að miðju Íslands og hún skoðuð vel og vandlega. Hún var reyndar hulin snjó þannig að við vitum ekki alveg hvernig hún lítur út.
Héldum svo sem leið lá austur með Hofsjökli um Arnarfellsmúlana og þar inn á Kvíslaveituveg.
Það var svo bara kúludráttur niður allan Kvíslaveituveg og bara bætti í snjó eftir því sem sunnar dró. Menn kvöddust svo í Hrauneyjum eins og vera ber, og hélt hver til síns heima. Undirritaður vill þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við undirbúning þessarar ferðar svo Jóni Snæland úr ferðanefnd og Karen, einnig Wurth fyrir stuðninginn KEA Hótel fyrir sitt framlag Húsvíkingum fyrir ómetanlega aðstoð og þeim í Hrauneyjum sem aldrei klikka. Undirritaður vill svo þakka hópnum fyrir frábæra helgi.
Að lokum. Ef einhver veit hvað varð um Utangarðsmenn og Ellu þá vantar alveg upplýsingar til að geta gengið frá fullnaðar skýrslu. Einnig óskast upplýsingar um Fast og félaga. Eitthvað heyrðist af Wrangler haltrandi yfir Holtavörðuheiðina með fatla og plástra, og eins fréttist af ósigruðum snjósköflum á Langjökli.
Hætti núna
Kveðja
Pétur Blöndal Gíslason
11.03.2006 at 09:03 #546114Jæja þá er allt að gerast. Þvílíkt morgunveraðhlaðborð á Hótel Gíg og allir komnir í gírinn og verið að halda af stað út í óvissuna. Í morgun var þessi fíni Hummer á hlaðinu ásamt föruneyti en reyndar enginn bílstjóri sjáanlegur, enda enginn þörf á slíku í þessu tæknivædda hertrölli.
Farinn
Pétur
10.03.2006 at 21:46 #546112Höldum að við séum á Mývatni en erum ekki viss því það er þreifandi stormur og búinn að vera í allan dag. Sumir halda að skilinn hafi verið eftir minnisvarði í Svartá grænn amerískur á minnstakosti 46 tommum. Talið er líklegt að einhverjir hafi skotist á Selfoss að ná í meiri kentucky bita eða eitthvað annað nauðsynlegt. Við þessir sem höldum að við séum á Mývatni ætlum að handlanga okkur inn á næsta bar og horfa á Idolið og spyrja frétta. Gætum hafa komið um Vonarskarð og kannski var drukkið kaffi í Gæsavötnum og kannski ekki. Gæfum hálfa Toyotu fyrir að fá að vita hvað morgundagurinn býður upp á.
Óvissukveðja í bili, ég er orðinn svangur
Kv
Pétur Gíslason
04.03.2006 at 18:36 #543228Finnst eins og hysterískir heimasitjandi kallar séu að yfirtaka spjallið og stela allri athyglinni frá Óvissuferðinni. Næst mæli ég með að kvennaferðin verði óvissuferð svo þeir þurfi ekki að hafa áhyggjur af hverri einustu þekktri lækjarsprænui á leiðinni…. geti bara setið heima áhyggjulausir. Þetta hlýtur að bitna hrikalega á bleyjustússinu hjá þeim…
kv Pétur
03.03.2006 at 13:37 #543224Það verður ekki tekið við neinum pappírum í þessari ferð, hvorki víxlum pappakössun né seðlum. Við viljum bara hardcore millifærslur og vísitölur og gengistryggingar,,,, og hana nú
kv
Pétur
02.03.2006 at 22:07 #543220Ætla ekki fleiri að gera grein fyrir fjarveru sinni. Nú fer nebblega að færast fjör í leikinn. Kannski er kvennaferðin bara yfirskyn, kannski eru þær hluti af óvissuplottinu, kannski eru þær bara senditíkur sem eiga að finna snjó fyrir okkur jeppaMENNINA…
Annars er að síga á seinni hlutann með gistipláss í óvissuferðinni og satt best að segja er búið að finna fullt af snjó og meira á eftir að finnast…. eina sem vantar núna er laghentur trúbador til að svæfa liðið á laugardagskvöldið þannig að ekki verði nú vakað óhóflega….
Stuðkveðja
Pétur
27.02.2006 at 13:05 #543196Það styttist í óvissuferðina. Skráning er kominn vel í gang og ljóst að þarna verður fríður hópur fagurra manna og kvenna á ferð. Stemmingin eflaust hrikaleg og veðrið gott (hvað sem það þýðir)
Koma svo þið sem eruð enn að hugsa málið, ekki hika of lengi.
kv
Pétur
24.11.2005 at 09:58 #196700Ég tók eftir því þegar ég var búinn að borga gíróseðilinn með félagsgjöldunum í heimabankanum að það var búið að klína á hann dráttarvöxtum. Hvaða rugl er það?? Bara svona prisippsins vegna þá hefði ég ekki greitt þennan seðil ef ég hefði rekið augun í þetta fyrirfram. Þetta var svo sem ekki stór upphæð, enda eindagi fyrir 4 dögum, en hvað næst? Ef ég hefði ekki greitt væri þá Intrum eða álíka á leiðinni til mín að gera lögtak í jeppanum?? Hefur stjórn heimild til að dráttarvaxtareikna félagsgjöldin. Ef svo er þá þarf að kippa því umboði til baka hið snarasta.
Kveðja frá einum sem er svekktur, ekki út af 45 kallinum heldur prinsippinu.
Pétur Blöndal Gíslason
R-2343
17.09.2005 at 16:29 #196267Er ekki að finna linka á síður deilda… getur einhver hjálpað?
kv
Pétur Gíslason
08.03.2005 at 01:45 #195619Hvað er í gangi. Nú hef ég ekki komist inn á spjallið í rúman sólahring. Er eitthvað að hjá mér eða er þetta enn allt í skralli?
Kveðja
Pétur B Gíslason
17.02.2005 at 22:14 #517044Dóri
Jú það þarf að taka allavega gírkassa með henni en það er sami millikassi á 4.2 og 2.8. Svo er líka möguleiki á sjálfskiptingu.
Agnar. Ég hef ekki heyrt um að þessar vélar séu að hrynja neitt. Það er reyndar ekki mikið af þessum vélum í umferð hérna þannig að reynslan er ekki mikil. Það er allavega ekki álhedd eins og á 2.8. Annars ef þú ekki veist af því þá hafa líka hrunið vélar í Toyotu Bens Pajero og öllum þessum druslum. Held að þessi draugasaga um ónýtu vélarnar í Patrol sé ekki byggð á neinni annari tölfræði en typpametingnum hér á þessari síðu… og hana nú….)
Kveðja
Pétur
15.02.2005 at 20:40 #517012Sæll Steini
Ég hef flutt inn þessar vélar og ekki lent í neinum vandræðum með að tolla þær.
Gæti athugað með vélar fyrir ykkur ef áhugi er.
kv
Pétur B Gíslason
12.02.2005 at 01:45 #516570Þetta er ekki bara grín með þessa síðu. Ef hún verður í drasli mjög lengi hætta menn að nenna að skoða hana, ég veit um nokkra sem eru búnir að skipta henni út sem upphafssíðu og er það slæmt. Hefði náttúrulega átt að klára nýja síðu alveg áður en hún var sett í lftið. Hins vegar sé ég eeki nema gott eitt um það að skoða nýju síðuna á vinnuferlinu, bara ekki gefa aðgang inn á spjall og fleira.
En um nýju síðuna, þá er hún hjá mér allavega alveg jafn slow og sú gamla. Er með örbylgju sem er yfirleitt hraðari en ADSL. Svo er síðan að mínu mati hræðilega ljót. Look frá öndverðri síðustu öld, og uppsetningin eitthvað dularfull. Einmitt allt skemmtilega dótið falið neðst. "Hrikaleg mistök"
Er samt bara jákvæður þessa stundina, þó ég sé ekki á fjöllum þessa helgina…(
kveðja
Pétur B Gíslason
30.01.2005 at 00:43 #515156Ég hef lent í þessu á Patrol, þá var tengiborðinn í stýrinu fyrir loftpúðann og flautuna að gefa sig. Er flautan að virka eðlilega hjá þér?
Kveðja
Pétur B Gíslason
16.01.2005 at 22:15 #506734Ég flutti inn vél úr tjónabíl sögð ekinn 115000km (líklega nærri lagi) Með gírkassa millikassa og öllu utaná plús turbo intercooler kit sem ég keypti líka var þetta rúm 800.000 komið heim. Þetta er aðgerð sem ég sé ekki eftir. Það er það mikill munur á bílnum. Aðallega í togi og áhyggjuleysi með hedd kúplingu og annað. Ísetningin var ekki svo stort mál, passar í festingar og söma drifskaftslengd og annað, bara fiff með púst og lagnir ýmsar.
Mæli með þessu
kveðja
Pétur Gíslason
02.01.2005 at 13:13 #512184Það er sömu innflutningsgjöld frá Ameríku og frá öðrum löndum, og þau eru mismunandi eftir gerð og vélarstærð og ýmsu öðru.
kv Pétur
30.12.2004 at 12:49 #195135Ég er oft að lenda í því að komast bara alls ekki inn á spjallið. Ég næ að opna forsíðuna og smelli á spjall-linkinn og ekkert gerist kemst þá heldur ekki inn á auglýsingar og ýmsa fleiri linka. Hvað er í gangi. Er einhver deyfð í vinnu við síðuna. Þetta er ekki gott. Ef síðan verður lengi í drasli þá dofnar áhuginn fyrir henni og það er slæmt því þetta er td síðan sem ég skoða hvað oftast. Og mér finnst einhvernveginn að stemmingin og umræðan sé ekki jafn fjörug og undanfarin ár. Vonandi er þetta bara ímyndun í mér, eða hvað finnst ykkur.
Jólakveðja
Pétur B Gíslason
14.11.2004 at 17:23 #508608Ég er með 19" skjá og nota upplausn 1024*768. Ég þarf samt að skrolla til að sjá allt á forsíðu. Reyndar finnst mér það bara allt í lagi. Sakna þess að sjá ekki nýjustu þræðina og geta farið beint í þá af forsíðu. Mætti jafnvel vera linkur á fleiri þræði og færri auglýsingar en var á gömlu síðunni. Líst annars bara vel á gripinn og er alveg til í að vera smá þolinmóður meðan mennirnir klára sína vinnu.
Kveðja
Pétur B Gíslason
-
AuthorReplies