Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.03.2003 at 20:38 #471554
Reyni aftur
26.03.2003 at 20:35 #471552Hvað klikkaði???
>img scr=http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/images/213-206-1145.jpg
26.03.2003 at 20:32 #471550Ætla sem sé að reyna að sýna ykkur mynd af gamla bílnum mínum frá þeim tíma þegar enn snjóaði á Íslandi
26.03.2003 at 16:48 #471542Klikkaði núna…??
[url=http://www.hvammsvik.is/loftmynd.shtml:32n114h8]svona er þetta alltaf hér[/url:32n114h8]
26.03.2003 at 16:46 #471540[url]svona er þetta alltaf hér[/url]
Annars…hvernig setja menn myndir inn í þráð??
kveðja
Pétur
26.03.2003 at 16:42 #471538Þetta virkar…;))
Takk fyrir
Pétur
26.03.2003 at 16:39 #471536[url=http://www.hvammsvik.is:1nijgt6n]heima hér[/url:1nijgt6n]
Bara að gá hvort þetta virkar
26.03.2003 at 16:31 #471534Þetta breittist ekki í link…;(( Sko ég er að meina…menn segja td " skoðaðu HÉR", og þá er HÉR undirstrikað og er um leið smelli linkur beint á viðkomandi síðu….how is that??
Ég kann sko að skrifa copera og peista html kóða…;(
Svo setja menn inn allskonar myndir og tákn líka.
Verð að læra þetta.
Nördakveðja http://www.nörd.is
26.03.2003 at 16:26 #47153026.03.2003 at 15:50 #192404Hvernig fara menn að því að setja linka hér inn á spjallinu td beint inn ða einhverjar myndasíður og þessháttar. Jafnvel setja menn inn heilu gerfihnattamyndirnar…hey einhver tölvu vis…pleaase upplýsa okkur nördana
Kveðja
Pétur Gíslason
26.03.2003 at 15:47 #470336Þetta sem Skúli segir er eiginlega það sem vantaði í pistilinn minn…. takk fyrir að klára þetta Skúli.
Kveðja Pétur
26.03.2003 at 15:15 #461780Datt í hug út af veðurhræðsu umræðunni á 4 ferða spjallinu að endurvekja þennan þráð. Veit einhver um sambærilega veðursíðu og Halo var. Eru ekki fleiri sem sakna þeirra. Mér fannst bara ekki klikka spá hjá þeim. Síðan þeir hurfu af sjónarsviðinu er eiginlega bara búið að vera vitlaust veður.
Blíðukveðja
Pétur Gíslason
26.03.2003 at 15:11 #470332Þetta kallar maður að túlka hlutina til helvítis. Það er verið að tala um hvort manni finnist ok að undir aldri sé leyft að keyra, maður svarar því frá eigin samvisku, og það er eiginlega túlkað þannig að maður sé að mæla með ölvunarakstri. Hvernig er þetta hægt?? OGI ef þú vilt mína skoðun á ölvunarakstri, þá finnst mér það eiginlega alvarlega en að setjast á vegbrúnina með haglabyssu og skjóta á vegfarendur. Ef ég verð vitni að ölvunarakstri þá tilkynni ég það samstundis, hvort sem á í hlut einhver sem ég þekki eður ei. Svo einfalt er það. Samt, fyrst við erum byrjaðir og þú væntalega jeppamaður, þá veistu að það er allt of algengt að bæði jeppa og sleðamenn haldi að um ölvunarakstur gildi önnur lög til fjalla. Sko…mitt common sense segir að það sé ekki í lagi að haga sér þannig. Þannig að þú skalt fara varlega í að snúa hlutum svona upp í vitleysu. Þó manni finnist eitt getur þú ekki ákveðið að mér finnist líka annað.
Auðvitað er það alfarið á mína ábyrgð ef ég brýt lög, og ég sagði líka í pistlinum mínum að ég vissi að þetta væri lögbrot. Þú veist þú ert líka að brjóta lög ef þú ferð upp fyrir hámarkshraða. Ekki reyna að sannfæra mig um að þú hafir aldrei gert það… Þú hefur jafnvel gert það með börn í bílnum. En ertu þá orðinn glæpamaður?
Það er nú bara þannig að sumt gerir maður, hvað sem lögin segja þó svo ég sé ekkert að segja að lögin séu bara fyrir aðra, ekki fyrir mig. Og ég er ekkert að segja að mér finnist að allir hinir eigi að gera eins og ég. Ég er bara frjálshyggjumaður eins og þú sagðir, og er MJÖG ánægður með þá skilgreiningu. Þú mátt svo túlka það eins og þú vilt, en farðu samt varlega í að ákveða að ég sé hlyntur ölvunarakstri.
Free spirit kveðja þarna norður
Pétur Gíslason
26.03.2003 at 11:50 #470326Það á held ég að fara varlega í að alhæfa svona. Einhver gerði eitthvað og eitthvað gerðist. Á þá ekki að fordæma allt sem úrskeiðis hefur farið í mannkynssögunni? Afhverju haldið þið að æfingaakstur hafi verið innleiddur? Af því að í mörgum tilfellum eru foreldrar mjög vel hæfir í að kenna sínum afkvæmum hlutina. Ég held að minn tiltölulega óhappalausi ökumannsferill sé ekki síst pabba sáluga að þakka. Hann var atvinnubílstjóri, og var byrjaður að kenna mér að keyra 5 ára (meðan ég hafði ennþá smá ábyrgðartilfinningu og hlustaði enn á eldri menn) Þetta var náttúrulega alveg jafn ólöglegt og það er nú, en verður samt ekki almenn skynsemi að ráða, eða eigum við að láta ES slétta okkur alveg út með forsjárhyggu reglugerðum. Ef svo, þá þurfum við allavega ekki að hafa áhyggjur af því eftir það að einhver yfir höfuð aki um upp á Skjaldbreið fimmtán eða fimmtugur, það verður allt jafn bannað.
Stráka látum common sense ráða og höfum gaman af lífinu.
Fjallakveðja
Pétur Gíslasonps
Minn strákur fékk að keyra sleða og bíl og fjórhjól og traktor löngu fyrir aldur, og ég skammast mín ekkert fyrir það. Tel örugglega að það eigi eftir að koma honum bara vel.
24.03.2003 at 00:05 #459986Já gauitoy..það væri fróðlegt að vita hvers konar skilyrði menn þyrftu að uppfylla til að fá lykil. Hvað sérðu fyrir þér. Og ef þú segir að það sé alveg sama hvað gert er menn finni alltaf leið framhjá því, finna menn þá ekki bara leið framhjá þessu líka? Mér finnst þetta samt hljóma eins og með tjakkinn… ef menn eru sanfærðir um að eitthvað sé ekki hægt, þá er það ekki hægt…og öfugt.
Ofsi… það er ekki hægt annað en að taka svona opinberri áskorun. Ef þú heldur að ég geti gert eitthvað gagn í skálanefndinni þá er ég alveg til í það. Þú kannski meilar á mig hvar ég get nálgast ykkur, eða kannski bara hringir í mig. Það er… petur@hvammsvik.is eða 893 1791
Kveðja
Pétur Gíslason
23.03.2003 at 13:34 #459978Enn um raflyklana..teknique það þyrfti sennilega að vera sér rafkerfi fyrir kerfið þeas geymir og sólarsella til að koma ekki að læstum kofanum einhverntíman…
Annars vantar kannski bara öfluga áróðursherferð til að koma þessum málum í lag. Ég skal alveg viðurkenna að ég hef oft á árum áður verið kærulaus í sambandi við skálagjöld, enda oft á tíðum í hinum ýmsu gangnamannkofum sem maður hefur verið að gista í engar upplýsingar um skálagjöld. Sumstaðar er bara ekki gert ráð fyrir slíku. Það er svoldið annað mál í dag þegar þessir skálar eru orðnir útbúnir með allskonar þægindum, rafmagni , kyndingu vatni og fleiru. Þá er að sjálfsögðu kominn rekstrarkostnaður sem er allt annar en í hráum gangnamannakofa fortíðarinnar. Svo er þetta líka þetta gamla (svíkja undan skatti) hugarfar okkar Íslendinga og menn halda að þeir séu að hagnast á þessu. Ætli gróðinn af því að stela skálgjaldinu, heilum 500 eða 1000 kalli verði ekki sá að einn góðan veðurdag þegar men mæta á svæðið til að gist frítt, verði bara búið að læsa öllu draslinu, mæti mönnum bara skilti með upplýsingum um hvar þeir hefðu getað bókað gistingu og fengið lykil. Góður gróði það…. Þarf ekki bara að hamra þetta inn í skeljarnar… Birta td rekstrarreikning fyrir skálana… útskýra hvað er í gangi og gera það bara oft..Hver veit
Kveðja
Pétur Gíslason
23.03.2003 at 01:01 #459972Myndavél..nei takk ómögulega… Í fyrsta lagi myndast ég mjög illa, og í öðru lagi.. hver ætti að sitja yfir spólunni og reyna að þekkja þá sem ganga um… meinarðu þá að það væri smellt mynd í hvert skipti sem ég fer út að pissa?? Eins gott að menn fari varlega í bjórin… til að fá ekki fimm sex skálagjöld á gíróseðilinn eftir helgina. Nei án gríns… þetta yrði allt of mikil vinna. Þetta með rafrænu lyklana… þetta er dót sem er notað á útihurðir um allan heim… afhverju ætti það ekki að virka…. þetta er tölvustýrt að því leiti að þú plöggar fartölvu í samband við boxið af og til til að forrita hvaða lyklar hafa aðgang og til að lesa af hverjir hafa gengið um. Veit svo sem ekki um það hvort það virkar. Við erum með svona kerfi á óupphituðu húsnæði út í Nauhólsvík…virkar fínt þar…
Annars bara góða nótt
Pétur
22.03.2003 at 22:38 #459968Hjörtur, ég get ekki verið sammála þér. Í fyrsta lagi er nýbúið að skipta um skrá í Setrinu, það er ekki sniðugt að vera alltaf að því. Auðvitað á að halda góða skrá yfir lykla sem eru úti og reyna að endurheimta þá ef menn hætta að borga félagsgjöld, engin ástæða til að utanfélagsmenn séu með lykla. Svo finnst mér ekki að þessir nískupúkar sem ekki tíma að borga skálagjöldin eigi að leggja línuna fyrir restina af hópnum. Það er þó allavega einhver hluti jappamanna sem tímir að borga þetta. Það þarf bara að auka áróðurinn fyrir þessu. Reyna koma því inn í þykkar skeljarnar að menn séu ekkert að hagnast á þessu. Ég held bara að menn hafi það ekki nægilega vel á tilfinningunni að þeir eigi þessa skála og eigi að passa hag þeirra. Persónulega finnst mér að rekstur skálanna eigi að vera inni í félagsgjöldum. Og þá að passa að einungis félagar séu með lykla. Sama finnst mér um heimasíðuna. Hún er kostuð af klúbbnum, og þá finnst mér ekki að myndasíðan ætti að vera yfirfull af utanklúbbsdekkjum og dóti, og auglýsingasíðan ekki full af kanta auglýsingum frá mönnum út í bæ. Það er eiginlega ekki mikið point í því að vera í klúbbnum ef maður getur notað allt sem hann á án þess. Persónulega er ég hvort sem er með jafn góða og stundum betri afslætti á flestum þessum stöðum sem klúbburinn fær afslætti. Ég er í klúbbnum fyrir félagskapinn, til að mynda breiðfylkingu jeppamanna til varnar sérhagsmunum, vegna heimasíðunnar en fyrst samt og fremst til að vera meðeigandi í þessum skálum.
Strákar, það hlítur að vera hægt að ná utan um þessi mál svo flestir séu sáttir. Það er allskonar nútíma tækni í boði.
Er ekki málið að setja góða nefnd í þetta mál. Ég skal bjóða mig fram í þá nefnd glaður.
Er annars bara að reyna að ímynda mér hvernig ástandið er núna á Hveravöllum…maður hefur ekkert heyrt lengi…allir graseklarnir löngu farnir á djammið náttúrulega…búnir með kínamatinn og pizzurnar.
Gleðikveðja
Pétur Gíslason
22.03.2003 at 15:18 #459964Það er hægt að setja rafrænt lyklakerfi. Er held ég ekki mjög dýrt. Þetta er bara pínulítill kubbur sem borinn er upp að skynjara og opnar. Þett kallar á eina litla sólarsellu til að halda kerfinu á lífi. Þetta heldur skrá yfir með kvaða lykli er opnað og hvenær. Það er hægt að opna og loka fyrir lykla, þannig að td eftir að eindagi félagsgjalda er liðinn þá þarf bara að setja inn hvaða lyklar hafa aðgang þannig að þeir sem eru með lykla en eru hættir í félaginu hafa ekki lengur aðgang að skálum.
Ég verð að segja fyrir mitt leiti, að höfuð ástæðan fyrir því að ég gekk í félagið var að öðlast aðgang að þessum frábæru skálum sem það á. Þetta eru þvílík forréttindi.
Mér þætti mjög miður ef læsa ætti húsum, eða setja á það kerfi að fá þyrfti lykil í hvert skipti sem maður ætlar að nota skála. Ég hef verið á Grímsfjalli og við ákváðum að fara Norðuryfir, og þá gistum við í Réttartorfu. Þarna vorum við að enda 7 daga ferð, og aldrei hafði verið spáð í að þessi staða kæmi upp. Annan túr á Grímsfjall ákváðum við að enda með því að aka suður Langjökul. Þá gistum við í Setrinu. Það var líka óvænt ákvörðun. Í vondu veðri eitt sinn urðum við að gista í Árbúðum á leið í bæinn…og svona gæti ég lengi talið. Hefði eiðilagt alla stemmingu að þurfa að bruna í bæinn eftir lykli.
Ég væri frekar til í að borga ársleigu fyrir lykilinn eða eitthvað þannig. Samt fyndist mér bara eðlilegast að hækka félagsgjöldin og hafa fría gistingu fyrir félagsmenn.
Með þessum rafræna lykli mætti líka senda rukkun eftirá til skráðs lykilhafa, og það væri þá á hans ábyrgð, því í raun væri ekki mikið mál að tengja saman við lykilinn td upplýsingum um hvað ljósavélin gekk lengi, og rukka þá bara í samræmi við það.
Strákar… metum hvað þetta er frábært…ekki deyja nískir.
Fjallakveðja
Pétur Gíslason
18.03.2003 at 10:17 #470930Afsakaðu minn kæri….auðvitað get ég ekki kallað þig nirfilssál…þekki þig ekki neitt, enda má ekki taka þetta sem hér birtist svona harkalega nærri sér. Fannst bara svolítið undarlegur rökstuðningur að síðan hefði verið það sem fékk þig til að vilja ganga í klúbbinn, en síðan hefði síðan verið það sem stoppaði þig í að ganga í klúbbinn…nettur Ragnar Reykás segi ég…(og ekki meint á neinn móðgandi hátt sko)…vonandi sefurðu bara á þessu…og mætir svo í Mörkina og færð þér kaffi…og ábót…;))
Kveðja
Pétur Gíslason
-
AuthorReplies