Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.01.2004 at 00:23 #483900
Innilega sammála síðasta ræðumanni. Það er ástæðulaust að vera nánast að þjófkenna menn og stofna um það sérstakan þráð án þess að hafa nokkuð fyrir sér í því. Er skálanefndin kannski sjálf í því að borga ekki skálagjöld? Ég hef sjálfur lent í því að vera ekki með aur á mér og lenda óskipulagt í gistingu í Setrinu. Ég var í mesta basli eftirá að finna út hvert ég gæti komið peningum, lagði þá meðal annars til að upplýsingar um reikning kæmu inn á heimasíðuna. Er reikningsnúmerið eitthvað leyndarmál?
Það er vissulega slæmt ef menn borga ekki skálagjöld. Þetta er það lítið brot af kostnaði hverrar ferðar að það er hreint rosalega nördalegt að svíkjast um það. Oft held ég að sé reyndar á ferðinni þetta alkunna klinkleysi korta aldarinnar. Ég er með nánast allt mitt fjármálavafstur on-line orðið en reyni samt að muna eftir klinki ef ég er á leið í skála þar sem ég veit að er baukur.
Höfuðástæðan fyrir því að ég er félagsmaður er sú að félagið á þessa fínu skála um allt. Ég er hvort sem er með betri afslætti víðast heldur en félagsskírteinið býður, og er ekki duglegur að mæta á félagsfundi. Ef að lykillinn verður tekinn af mér hef ég sennilega ekki neinn hvata til að halda áfram að borga félagsgjöldin því utanfélagsmenn geta alveg eins fengið lykil yfir helgi. Ég væri persónulega til í að borga árgjald fyrir að halda lyklinum því ég nota skálana mikið,ferðast mikið. Hugmyndin um samræmt kerfi í hálendisskálana er er mjög góð, en kannski erfið í framkvæmd. En það er líka erfitt að sofa í bílnum fyrir utan 10 eða 20 milljóna lúxuskála bara af því að maður kann ekki við að brjótast inn í hann, jafnvel þó maður eigi hann (sem félagi)
Þetta frelsi að leggja af stað og láta vindinn og snjóinn aðeins ráða för er yndislegt og við meigum ekki fórna því á altari þeirra sem verða að hafa allt niðurnelgt og njörfað fram yfir jarðaför.
Baráttukveðja
Pétur Gíslason
R-2343
09.01.2004 at 21:36 #483682Ég hef flutt inn frá Bretlandi frá þokkalega traustum aðila. Verksmiðja sem bæði gerir upp, og verlsar með yfirfarna mótora úr tjónabílum. Fékk meðal annars 4,2 Nissan sem hefur reynst alveg glimrandi vel og er örugglega ekki keyrð meira en upp var gefið. Það er auðvitað með þennan bransa út í hinum stóra heimi sama lögmál og hér. Maður getur aldrei verið alveg öruggur þegar notað véladót er annarsvegar. Ég hef verslað notaðar vélar hér heima sem voru keyrðar margfalt meira en verðmiðinn sagði, og ég gat ekkert gert í því. Ég hef líka látið vélaverkstæði taka vél upp með frekar slæmum árangri og ekkert getað gert í því heldur. Svo hef ég líka hina söguna, þar sem allt var eins og það átti að vera.
Kveðja
Pétur Gíslason
05.12.2003 at 18:46 #482188Við fórum reyndar í 1200 metra hæð ekki 1200 metra inn á jökul. Mér reiknast til að það hafi verið um 12 til 15 kílómetra inn á jökulinn. En skiptir ekki öllu. Höfum greinilega bara verið heppnir, bæði á leið upp og niður því við sáum engar sprungur og þaðan af síður svelgi enda náttúrulega miðvikudagur, mið nótt og kolniðamyrkur. Þetta hafa menn nú upp úr því að vera að þvælast þetta um miðjan dag og það líka helgidag. Var annars bara einn svelgur í ferðinni, það er vel sloppið.
Kveðja
Pétur Gíslason
20.11.2003 at 11:19 #481034Ég er líka eins og maðurinn með stafinn…sé ekki eina einustu mynd, hvorki fólksbíla né annað????
Nett spældur sko. Hvað er í gangi?
Kveðja
Pétur Gíslason
06.11.2003 at 23:20 #479824Prufaðu…. Pyrometer
kv pétur
15.08.2003 at 00:43 #475508Ég var að koma Fjallabak þvers og krus (alltaf í slóðanum ((enda með konu og barn í bílnum)) og var í góða veðrinu einhverra hluta vegna að hugleiða þessi utanvegaakstursmál. Hlýt að hafa fjarskynjað þennan þráð þarna inn á hálendi. Verð bara að segja, hef farið oft og víða til fjölda ára, og mér finnst ástandið hafa batnað þvílíkt. Skil ekki alveg þetta væl alltaf hérna, aldrei minnst á það sem gerist gott.. td á fjallabaki er greinilegasti átroðningurinn á náttúrinni hesta og göngumannaslóðirnar…þessi kvikindi meiga fara um allt…hvernig stendur á því…( mér er reyndar slétt sama) ég tjaldaði á mosavöxnum bletti sem ég segi ekki hvar er því hann er örugglega á bannlista fyrir ferðamenn að tjalda á..og þegar ég var að sleikja morgunsólina í mosanum sá ég með glöggvu auga að ég lá þvert á mosavaxin hjólför eftir Willis 46 örugglega ævaforn. Þetta fannst mér bara krúttlegt… leið eins ög fornleyfafræðingi… hinsvegar var barðið ofan við mosabalann minn allt sparkað þvers og krus eftir lambalæri… og í ofanálag fann ´´eg lambasparð undir tjaldinu mínu þegar ég pakkaði því saman…það fannst mér tú möts… étum þessi kvikindi…og hestana líka og hættum svo þessari tveggja akreina fælni. Reynum svo að muna þegar við vorum ungir og áttum skellinöðrur…
Bara innlegg
Pétur Gíslason
11.05.2003 at 23:02 #473214Sko BÞV… engin viðkvæmni hér í gangi.. finnst þó örla á smá viðkvæmni hjá þér, er það nokkuð? Getur varla verið. Verð þó að viðurkenna að þú byrjaðir einn pistilinn rosalega Pabbalega…."Sælir.
PBG hefur fullan rétt á sinni skoðun, en ég er ekki endilega sammála henni.""
Fannst þessi partur bara nett hallærislegur.
Biðst bara afsökunar á því, kannski er það svona sem stóru strákarnir tjá sig. Er að spá í að reyna bara að læra þetta.
Lýsi bara yfir hér með að þér má alveg finnast ég hafa fullan rétt á minni skoðun, og þú mátt alveg vera ósammála mér….hmmmm…þetta hljómar eitthvað svo pointless..
bæbæ..
Kveðja
Péturps…eins gott að kosningum er lokið
09.05.2003 at 22:48 #473224Jamm…ég er með 4,2 Nissan í húddinu og 1,4 ghz lapptop á mælaborðinu…svaka stuð
Kveðja
Pétur
09.05.2003 at 22:45 #473206Mikið er ég nú feginn kæri BVÞ að ég skuli hafa fullan rétt á minni skoðun….var nebblega ekki alveg viss sko… veit ekki hvernig færi ef ekki væru svona færir ritskoðarar hérna á spjallinu…. keep going big bro..
kveðja
Pétur Gíslason
08.05.2003 at 21:26 #473218Ekki auglýsingar á spjallið í guðanna bænum. Halda þeim á sínum stað.
Kveðja
Pétur Gíslason
08.05.2003 at 21:25 #473200Vinsamlega halda auglýsingum á sínum stað. Ekki drekkja spjallinu í þeim.
Kveðja
Pétur Gíslason
09.04.2003 at 20:20 #472178Ja hérna…Rúnar… Ég get nottlega ekkert sagt við þessu. Það má samt fá ansi stóra kajaka líka…til sko kajakar sem fara vel ofan á sæmilegan liner… nottlega ef menn eru að fíbblast eitthvað í straumvatnskajak þá er hann auðvitað mega hallærislegur ofan á öllu öður en kannski dobbara…
Þetta með stærri bjórskammt er erfiðara…var reyndar sko ekki með bjórdælu í linernum….en það hefði verið pláss fyrir hana..hefði þá bara þurft að innrétta sér bílstjóraíbúð í kjallaranum, og mér fannst það bara ekki þess virði.
Er annars bara sæll og saddur og glaður.
Kveðja úr sveitinni
Pétur
09.04.2003 at 12:26 #472172Ég veit ekki hvaða mórall þetta er hjá öllum þessum smájeppaeigendum út í alvörubílana. Econolinerinn minn flaut um allt með rúðmið og eldavélina og ísskápinn og olíumiðstöðina og allt hitt sem ég man ekki eftir. Var mest að ferðast með Hiluxum og Landcruserum og þessháttar vögnum. Átti aldrei í neinum vandræðum með að fljóta yfir það sem þeir flutu. Einu vandræðin voru að ég var alltaf að snúa eitthvað í sundur, enda stoppaði 6,9 turbóið ekkert fyrr en eitthvað gaf sig, enda gífurlegir kraftar í lógírnum. Eftir að ég setti sverari hásingar var það vandamál úr sögunni. Ég fór kannski ekki alltaf jafn hratt og þeir, en var samt alltaf kominn áður en að kveikt var í grillinu….;) Og núna kominn á fínan japana dreymir mig samt alltaf gamla góða linerinn.
Rúnar minn vertu duglegur að borða og taka lýsi, og þá verðuru kannski stór….=)
Kveðja
Pétur
09.04.2003 at 01:24 #472166Ég átti Econoline sem var á dana 44 og Ford 9 og á 15" felgum 14" breiðum. Affelgað alltaf reglulega. Síðan setti ég undir dana 60 að framan og 10 og kvart að aftan. Fékk með því dóti 16,5 og 12" breiðar. Slóraði aðeins með að láta breikka þær, og endaði svo náttúrulega í vetri áður en ég vissi af. Það var svo aldrei neitt úr að ég léti breikka, því mér fannst bíllinn fljóta mun betur á þessum útbúnaði og svo affelgaðist bara alls ekki. Kannski er þetta tilviljun, en samt sat ég sveittur margt kvöldið í einhverjum fjallaskálum og reyndi að smíða kenningar um málið. Það tókst auðvitað bara mjög vel, en ég ætla ekkert að hætta mér út í að birta þær hér.
Strákar höldum áfram að spá út í eitt….
Kveðja
Pétur Gíslason
06.04.2003 at 14:29 #472106Ég lenti í þessu sama. Að vísu var það 97 bíll en í grunninn er það sama vélin. Það sem var að hjá mér voru spíssar. Eftir að ég lét yfirfara þá hvarf vandamálið.
Kveðja
Pétur Gíslason
26.03.2003 at 22:42 #471568Ég ætla samt að prófa
[img]C:Documents[/img]
26.03.2003 at 22:35 #471564Nördaleg mistök hjá mér þarna áðan…ég gerði sCr í staðin fyrir sRc…
sorry man
Tæknikveðja
Pétur
26.03.2003 at 22:30 #471562Held að ég sé búinn að fatta þetta. Allavega ættuð þið að sjá Danna með fullt húdd af snjó….
[img:1qjychja]http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/images/213-206-1143.jpg[/img:1qjychja]
26.03.2003 at 20:41 #471558Afhverju gat ég látið þetta heppnast með myndina sem þú settir inn, en ekki mynd úr albúminu mínu hér á síðunni???
Notaði alveg sömu aðferð.
kveðja
nörd nörd n-örd
26.03.2003 at 20:39 #471556[img:27m24wdw]http://klaki.net/gutti/03mar21/t/20030323_100304.jpg[/img:27m24wdw]
-
AuthorReplies