Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.02.2014 at 12:30 #451520
Límmiðana fékk ég, en mig vantar félagsskírteini, líka fyrir aukafélaga.
Hvernig fær maður svona kort?
05.02.2014 at 23:25 #451414Hvernig virkar þetta? Þarf ég að sækja um Skeljungskortið/Félagsskírteinið hjá Skeljungi? Þarf maður að gefa eitthvað upp þegar það er gert?
Ég finn engar uppl. um þetta hér á síðunni eða hjá Skeljungi.
19.01.2012 at 21:44 #747259Þetta er skemmtilegur þráður.
Þessi átti heima á Egilsstöðum:
08.02.2011 at 11:49 #217305Hvaða reynslu hafa menn af tryggingafélögum hvað varðar tryggingar breyttra bíla? Hefur einhver fram að færa reynslusögur eða samanburð á tryggingaskilmálum?
22.12.2010 at 00:18 #714150Ef þið takið Hrútfjallstinda með finnst mér að þið verðið að taka með Sveinstind í Öræfajökli 2044m og jafnvel Snæbreið 2041m.
Þetta er áhugaverður þráður, gaman að tína þetta til. Listinn má alveg verða lengri en 10 stk.
07.10.2010 at 09:33 #695640Er eitthvað að frétta af 3GL loftnets og farsímamálum hjá kaupfélaginu?
23.02.2010 at 13:00 #684556Hver er skráningarfresturinn?
Hvað er að frétta af snjó og færi norðan Vatnajökuls, Snæfell Kverkfjöll?
23.11.2009 at 23:08 #562946Hefur enginn prófað að setja stýrisdempara í LC 90?
12.11.2009 at 18:45 #666370Þetta finnst mér áhugaverð og góð hugmynd – [b:1t1ppw33]en…[/b:1t1ppw33]
Þegar ég lenti í árekstri á mínum fyrsta 90krúser splúndruðust báðar hliðar-skottrúðurnar og þeyttust út í buskann. Samt var bara framendinn sem varð fyrir höggi.
Þegar loftpúðarnir sprungu varð mikil og skyndileg rúmmálsaukning inní bílnum sem olli þessu. Ég held að þessar afturrúður séu hannaðar til þess að gera einmitt þetta; þ.e. aflétta þrýstingi inn í bílnum svo að hljóðhimnur og svoleiðis dót springi ekki í staðinn. Hitaþenslur og litur eru semsagt minnsta áhyggjuefnið…
Það er ekki þess virði að gera tilraunir með þetta ef þú myndir síðan lenda í árekstri. Þú skalt allavega vera alveg viss um þetta atriði fyrst.
26.03.2009 at 23:36 #644448Agnar þú verður bara að brenna austur til að prófa hana í sól…
Ég er mjög spenntur fyrir þessari mini-laptop lausn. Hefur alla kosti fartölvunnar og meira til. Ég hef verið með 14" og 15,4" fartölvur frammí hjá mér og finnst það of stórt.
26.03.2009 at 18:10 #644442Annað – útaf þessum Asus EEEPC pælingum;
Er einhver að keyra kortaforritin á Linux stýrikerfi? Ef svo – hvernig gengur það?
kv. Pálmi
26.03.2009 at 18:00 #644440Sammála Agnari. Ef þú ætlar að nota tölvu yfir höfuð finnst mér 10" -12" skjár henta vel, 8,9" lágmark.
Mér finnst Lenovo S10 mjög spennandi einmitt út af glampa"fríum" skjá sem sést á af öllum mögulegum hornum.
En hvernig er skjárinn á Asus EEE tölvunum, er það ekki svona skjár sem glampar á? Er það ekki b.rassgat? Hvernig finnst þér hann vera að koma út Agnar?
25.03.2009 at 18:36 #644390Það verður að segjast eins og er að rekstraröryggi tölva er ekki til þess að treysta því algjörlega. Það eru sennilega flestir windows notendur sammála því. Ég held að það sé alltaf öruggara að vera með gps tæki með tölvunni. Þá geturðu alltaf trakkað með tækinu og haft í tækinu mikilvæga punkta, svo maður rati nú heim ef skyggni verður slæmt. Ódýrustu handtæki kosta hvort eð er svipað og gps pungur.
En tölvan gefur mikla möguleika og mér finnst mun þægilegra að nota tölvuna til þess að rata eftir.
Garmin-kortin eru góð og þeirra helsti kostur er að flestir eru að nota þau.
Langar að benda ykkur á nettölvu (þeir vilja hana kalla það frekar en fartölvu) sem ég held að gæti hentað vel í jeppann. Lenovo S10.
Skjárinn er 10,2" og með einhverri glampavörn og svo sést vel á hann frá flestum hornum.
Það skaðar ekki að hún kostar ekki nema ~400$ í USA.Lenovo S10:
http://shop.lenovo.com/SEUILibrary/cont … AEBC064493
17.03.2009 at 00:19 #643504Sæll Agnar og takk fyrir upplýsingarnar. Ég vissi að það væri svona pakki til, með calibreruðum kortum, en ég vissi ekki hvar ég gæti nálgast þau eða á hvaða formati þau væru.
Ég er búinn að vera að dunda mér sjálfur með skönnuð kort og reyna að calibrera þau sjálfur, svo næst er að prófa loftmyndirnar og þarf ég að verða mér úti um innmæld kennileyti til þess.
Calibreruðu LMI kortin á .map formati eru frekar stór er það ekki? Eru þau of stór fyrir tölvupóst? Ég þekki engan sem er að nota Ozi svo að… einhverjir sjálfboðaliðar?
16.03.2009 at 13:20 #643496Sæll Hafsteinn og takk fyrir svarið. Ég sé núna að þetta var ekki nógu skýrt orðað hjá mér…
Ég átti nefnilega við einmitt það hvernig þið Ozi menn notið skönnuðu kortin í Ozi Explorer. Ég veit að þetta gengur ekki saman enda annað format á gögnunum.
Mér finnst Mapsource gps kortin ekki alveg nógu skemmtileg og langar að prófa hitt. Þessvegna var ég að velta fyrir mér hvernig maður "kalibrerar" skönnuð kort og ef það er hægt að nota skönnuð kort (jpeg, gif eða annað myndaformat) hlýtur að vera hægt að nota loftmyndir. Eða hvað? Vill einhver deila þessu með okkur?
13.03.2009 at 23:49 #204028Eða réttara sagt ný útgáfa. Fannst þetta bara áhugaverðari titill.
Mig langar til að benda ykkur á útgáfu Íslandskortsins frá Samsýn / Garmin sem er nýkomin út. Útgáfan heitir v.2009
Sjá meira hér:
http://www.garmin.is/product/kort/islandskort.shtmlSvo langaði mig til þess að spyrja ykkur Ozi snillingana – hvernig setjið þið kortin upp í forritinu?
Hvernig kort notar maður. Get ég notað Visit kortin og/eða loftmyndir?kv. Pálmi
11.03.2009 at 22:04 #643218?
11.03.2009 at 08:59 #204012Vitið þið hvort að þessar týpísku nælonslöngur (loftslöngur) eru olíuþolnar?
22.01.2009 at 21:05 #632876Ég hef aðeins prófað þetta kort í tölvunni (nota mapsource í bílnum) og í Garmin gpsmap 76CSx og virkar kortið bara eins og íslandskortið frá Garmin. Hinsvegar er það ónothæft eitt og sér, þar sem það inniheldur svo litlar upplýsingar, en það er gaman að hafa það með hinu. Það er reyndar hægt upp að vissu marki að nota það með pappírskorti ef næg þekking er til staðar.
En ég hef ekki séð eftir einni krónu sem fór í kortakaup, því að það skiptir verulega máli að hafa góð kort og leiðsögutæki í slæmu skyggni á fjöllum. Mér finnst að margir mættu setja kortaeign og þekkingu á rötun framar í forgangsröðuninni hjá sér áður en haldið er á fjöll…
Færir netverjar ættu að geta fundið heilmikið fræðsluefni á netinu, en kannski gæti Klúbburinn gert meira af að útvega fræðsluefni á vefinn okkar? Bara svona hugmynd.
13.01.2009 at 13:00 #203551 -
AuthorReplies