Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.06.2013 at 11:26 #766513
Var þarna innfrá fyrir rúmri viku, og vatnsmagnið sem slíkt ætti ekki að stoppa Original 120 LC. En kantarnir á Hvannánni voru ansi krappir, búið að ýta þeim ansi vel upp til að verja veginn, sem eiginlega gerði það að verkum að ekki var fært yfir kantinn og oní ánna sjálfa nema á talsvert háum bílum, og alls ekki "rass-síðum"
18.10.2012 at 00:01 #759067Hæ.
Ég var þarna á svæðinu um síðustu helgi, og það er enginn snjór neðan við c.a. 800 metrana. Algerlega snjólaust á Dómadal og við Landmannahelli. Enginn snjór fyrr en komið var langleiðina uppá Pokahrygg á leið í Hrafntinnusker.
18.04.2012 at 10:42 #223283Sælir jeppabræður og systur.
Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn, en frá mér var stolið 38″ dekkjagangi, á felgum einhverntímann núna á síðustu tveimur-.þremur mánuðum. Var í porti í hafnarfirði, ekki langt frá slökkvistöðinni í Hafnarfirði.
Sjá myndir hér: http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150519575752510.394117.701082509&type=3Ef einhver skyldi kannast við að hafa séð þetta, þá má hinn sami endilega láta mig vita…. Dekkin eru svosem talsvert slitin, en felgnanna sakna ég meira, 12″ breiðar, tveggja ventla, sem ég ætlaði að nota undir núverandi jeppling sem ég á….
Palli V.
6699753
pilko@islandia.is
29.03.2012 at 10:47 #752415Já, ég er búinn að heyra í nokkrum sem hafa ráðlagt mér að halda mig frá þessu svæði, og það mun ég gera !
Fer þetta vonandi síðar, er snjór verður meiri á svæðinu.
27.03.2012 at 14:03 #223072Hæ.
Ég er að spá í hvort einhver hérna hafi farið nýlega yfir Eyjafjallajökul, þ.e.a.s. upp frá Hamragarðaheiðinni og yfir á Fimmvörðuháls.
Ef svo er, þá hefði mig langað að forvitnast um hvort einhver ætti handa mér „track“ og upplýsingar um hvort eitthvað vafasamt sé á leiðinni. Hef heyrt af tveimur sprungum á leiðnni upp að Goðastein, en að hægt hafi verið að komast hjá þeim með smá krók.Endilega henda á mig trackinu á pilko@islandia.is ef einhver á þetta til, og eins upplýsingum ef einhver hefur verið þarna nýlega.
Með kveðju,
Palli V.
pilko@islandia.is
18.10.2011 at 16:54 #739705OK Takk takk !
17.10.2011 at 16:45 #220842Hæ.
Er einhver hérna inni sem þekkir hver er munurinn á Musso frá SsangYong og/eða DAEWOO ?Ég sé bara það augljósa, en það er mismunandi „look“ á framenda, en er einhver hér sem getur frætt mig um frekari mun, ef einhver er ?
12.01.2011 at 13:39 #713372Snilld, takk takkk !
12.01.2011 at 11:21 #713368Bara af forvitni, hefur einhver verið þarna uppfrá nýlega, og veit hvernig vegurinn er frá Þingvöllum og yfir í Húsafell ?
Palli V.
-
AuthorReplies