Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.11.2009 at 20:21 #666042
Yfirleitt eru notaðir HT gormar frá AT en OME eiga líka gorma.
Færð þá upp í Arctic Trucks.
21.04.2009 at 20:25 #645614Ef að það fór of mikið af lóðum á felgu í ballanseringu þá fór dekkið í B flokk, ef að það var kringlótt og hopplaust fór það í A flokk.
Ég hef ekki hugmynd útfrá hverju var gengið.
kv.
Palli
12.04.2009 at 13:11 #645608Bróðir minn keypti B dekk og þau voru sett á breikaðar stálfelgur og ekkert vesen.
B dekkin eru eins og venjulegur Mudder.
19.09.2008 at 23:17 #629674Það er sama vélin og Gunni Egils var með, veit ekki hvað er búið að gera fyrir hann eftir að Jói kaupir hann. Skilst að það sé búið að taka mikið í gegn.
kv.
Palli [img:1kj6siti]http://www.heimska.com/Myndir/2008/09_torfaera_kollafjordur/images/MT8V8034.jpg[/img:1kj6siti]
03.09.2008 at 18:20 #628708Ertu spenntur fyrir því að versla við þá???
24.08.2008 at 21:52 #628044Ætli það hafi skilað nokkru að hafa Setirð ólæst þegar þessir kumpánar komu við, nema þá að það væri ekki brotin rúða.
Þetta er lýsandi dæmi um virðingaleysi um eigur náungans í dag, bíll má ekki bila á Reykjanesbraut að kvöldlagi að þá er búið að afgreiða hann næsta morgun. Það er ekki einu sinni hægt að klína þessu á unglingana því ekki komst þau uppeftir fylgdarlaust.
Slá á puttana á þessum gaurum með hamri!!!!!
17.08.2008 at 12:56 #627304Það vita allir sem eitthvað vita! Að Willys er hinn eini sanni jeppi, allt annað eru eftirlíkingar.
Ef þú átt alvöru Willys, þá þarftu ekki spil, spotta og skóflur.
26.05.2008 at 10:57 #623458Af hverju ætti umboðið að eiga tölvu til að forrita eina Tacoma tölvu? Undarlegt að ætlast til þess.
Þetta er nákvæmlega eins að ætlast til þess að Seglagerðin eigi til fóðringar og loftpúða í alla mixaða tjaldvagna landsins.
Mér finnst það eðlilegast að þú sendir tölvuna til þess aðila sem þú keyptir blásarann af og hann forriti tölvuna til að klára söluna.kv.
Palli
19.05.2008 at 23:51 #623116Þjófurinn hlítur að hafa lykil af bílnum.
Lyklarnir eru með örflögu svo lykillinn þarf að vera codaður við þennan bíl.
Athugaðu fyrri eigendur hvort þeir hafi haft lykla eða að þjófurinn hafi fundið týndan lykil.
Annars gangi ykkur vel með leitina, ég hef augun hjá mér.
Kv.
Palli P
12.05.2007 at 19:36 #590836Var okkar eina von, svo fór þetta allt niður á við þegar forkeppnirnar byrjuðu.
17.04.2007 at 09:50 #588416Snilldar þráður um ekki rassgat.
Skemmtilegt hvað þessi þráður er kominn langt út fyrir upphaflegt umræðuefni.
´
Mér fannst þessi spurning forvitnileg og eftir lesninguna sem er meiri tímasóun en að koma Patrol í gegnum skoðun.Hefur virkilega enginn sem skipt hefur á milli 44 og í 46 neitt til málanna að leggja.
kv Palli
18.03.2007 at 19:03 #585058Er þetta þegar þú beygir í botn, þá ættiru að prófa að smyrja beygjustoppin með koppafeiti, það eru boltarnir sem takmarka hvað þú getur beygt mikið, þeir eiga að vera með plasthlíf yfir en yfirleitt er hún horfin og þá er koppafeiti málið.
kv.
Palli
14.02.2007 at 18:51 #578768‘Eg er sammála þessu með Wranglerinn rauða hann ætti að vera sem útskýringamynd í orðabók yfir "snilldarsmíði"
Þessi gamli Ford sem er vísað er í hér f. ofan er ekki tilbúinn en langt kominn að ég held, mjög vandaður og léttur.
‘Eg heyrði að i breikkuðu súkkuna ætti að fara 2.8d rocky en það var fyrir olíubreytingu.
kv.
Palli og Willysinn
09.02.2007 at 23:46 #579952Þú ættir að geta notað Hilux bremsur, ef þú færð nöfin, diskana og dælur.
04.02.2007 at 19:52 #578740https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … 4544/33744
Þarna eru myndir af honum, er ekki alveg eins gangfær núna eins og þarna.‘Eg hélt að það væru færri súkkur í smíðum en þetta, en þetta er besta mál.
04.02.2007 at 16:55 #578734‘Eg var búinn að skoða þessa súkku sem er verið að breikka, fín vinna á þessu og hugmyndin góð.
Sá bíll er í Sandgerði, fínt að nota súkkurnar í smíðadæmin ef þeir eru ekki ónýtir af ryði.
‘Eg er sjálfur með Willys CJ5 og 4runner og að sjálfsögðu allt í smíðum í einu, ætti að koma hér inn myndum af því.
‘Eg var búinn að heyra að 6 hjóla Willysinn væri í endursmíðum, gaman væri að sjá myndir af honum.
Hér er Willys í smíðum
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … ingar/4554kv. úr sveitinni.
Palli P
02.02.2007 at 20:35 #199575Eru menn ekkert að smíða sniðugt og vilja leyfa okkur þessum forvitnu að fylgjast með.
Það eru örugglega fullt af forvitnilegum tækjum í smíðum og gaman að sjá myndaalbúm með smíða og grúsk myndum.
Endilega bendið mér á sniðug albúm og eða setjið inn myndir af græjunum.
kv.
Palli P
05.01.2007 at 15:38 #573814Þeir eru fáanlegir með rafmagnslás, en verðin er ég ekki með á hreinu.
Komið bara og skoðið.
05.01.2007 at 09:58 #199294Vil minna á stórsýningu Toyota um helgina, þar sem 3.0L Hiluxinn verður frumsýndur.
Þar verða 33″, 35″ og 38″ breyttir bílar.
kv.
Palli P
02.01.2007 at 22:08 #573296Þetta er skammarlegt að þurfa að treysta á þetta sem vinnutæki, allavega heldur bifvélavirkinn sem heldur Troopernum gangandi jólin hátíðleg og bölvar örugglega í hljóði ef þeir kaupa Toyota löggubíl. Þar fær hann bara að stinga í koppa tvisvar á ári.
-
AuthorReplies