Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.02.2007 at 15:40 #580404
Hæ Haffi Topp.
Það er ekkert mál að trekkja svona bíla upp… fyrst með alvöru síu, svo að fá sverara púst, svo að hræra smá í olíuverkinu (ef maður þekkir Rúnar M Jóns…)
Hugsa að ég sé að fá um 20 – 25 % meira afl út úr þessu…, ekki veitir af :o)
kv,
Palli
14.02.2007 at 23:44 #58037880 kg er ekki neitt… hann verður allfaf léttari en Patrol, mætti þá setja rúmlega 4 ganga undir…
Svo má allaf henda kóaranum út…. og sætunum… og skilja eftir brauðið… eða …. bara sætta sig við þetta..
Ég hef bara áhyggjur af einu… að það sé erfiðara að snúna þessum 46 tommu hjólum… Ég er ekki með 400 hp, bara tæp 160…
Kv
Palli
14.02.2007 at 20:00 #580362Sælir félagar.
Þegar ég breytti mínum fína Pajero 2,8 á 44 tommur var ég að horfa á gróf 44 tommu dekk og var skíthræddur um að bíllinn myndi ekki hafa kraft í þessi hjól. Þess vegna ákvað ég að fá mér DC.
En hvað halda menn um 46 tommu hjólin nú, þau virðast vera mjórri en DC 44. Halda menn að Pajeróinn myndi snúa þessu betur eða verr en hann gerir í dag ?
Kv
Palli
08.02.2007 at 09:18 #579708er þetta Mercedes..
P
06.12.2006 at 12:54 #570408Hæ aftur.
Bara svona innskot, þá hef ég verið að staðsetja leitarljósið mitt á topp hægra megin. Ástæðan er einföld, þetta er sú hlið sem ég á erfiðara með að stinga út handljósinu. Svo nota ég þetta leitarljós mikið í miklum skafrenning, læt hann lýsa upp kannt og stikur og er þannig ekki með upplýsan skafrenninginn beint í augum mínum (og er svo bara með stöðuljósin á).
P
06.12.2006 at 12:53 #570406x
05.12.2006 at 23:32 #570384Sælir félagar.
Þrátt fyrir að vera í félagskap sem merkir sína bíla PIAA, þá verð ég að viðurkenna að þetta IPF leitarljós er bara helvíti gott, mitt er búið að vera á mínum jeppum í ca 8 ár og í fullkomnu standi. Peran er meira að segja sú sama…
Kv
Palli
30.08.2006 at 01:45 #198460Sælir félagar.
Er ekki einhver bílaleiga sem leigir út 33 tommu jeppa ? Eða 35 Tommu ?
Kv
Palli
22.08.2006 at 09:50 #558380sem eru óþarfir
22.08.2006 at 09:20 #558376með Datsun aftaní
22.08.2006 at 08:52 #558370drífur lang mest
14.08.2006 at 20:55 #557576Nú eru þrír búir að skrá sig hjá Tryggva og það er pláss fyrir 1 – 2 bíla í viðbót Nú er bara að taka upp símann, áður en allt verður uppselt… ;o)
Kv
Palli
10.08.2006 at 23:50 #557574Hæ félagar.
Veit að menn hafa haft samband við Tryggva, sem er auðvitað frábært….. Svo er Tryggvi með síma líka…, sem hann getur svarað í á kvöldin.. 692-3672.
Kv
P
09.08.2006 at 19:20 #557572Hó.
Jú, auðvitað má hringja í mig, ekkert mál. Best að ná í gegn á kvöldin… 664-2103. kv Palli
09.08.2006 at 13:40 #198344Sælir félagar.
Seinnipartinn í næstu viku verður alþjóðlega rallið haldið, Rallý Reykjavík. Við Jói erum víst búnir að lofa okkur sem undanfarar í keppninni sem hefst eftir hádegið á fimmtudag og stendur yfir fram á laugardag.
Tryggvi Þórðarson keppnisstjóri rallsins hefur áhuga á því að komast í samband við fleiri félaga klúbbsins, því við jeppamenn erum vel búnir tækjum og græjum. Það sem sagt vantar 2 – 4 jeppa í smá vinnu og sú vinna er einföld. Vera til staðar á ákveðnum stöðum, er rallíbílarnir bruna hjá.
Snýst um einn hlut, að keppendur geti á þessum lengri sérleiðum (Tröllháls / Uxahryggir, Kaldidalur, Dómadalur og Hekluleið) stoppað við þessa jeppa og beðið um hjálp við að ná sambandi við keppnistjórn, ef td verður alvarlegt slys inná leiðunum. Nú, ef allir keppendur aka hjá, hefur ekki orðið neitt slys og því einfaldlega hefur viðkomandi voðalega lítið annað að gera,en að horfa á bílana.
Þeir sem hafa áhuga á þessari vinnu, eru beðnir að senda meil á tryggvi@rallyreykjavik.net
Að sjálfsögðu er ekki verið að tala um að menn geri þetta frítt, einhver greiðsla er í boði, annað hvort í peningum eða í formi eldsneytis.
Kv
Palli
28.07.2006 at 00:00 #556922Sælir félagar.
Við Jói áttum svona kerru undir rallýbílinn hér um árið. Það var enginn friður hjá okkur með þessa kerru, hún gat verið í láni alla daga, þvílík var eftirspurnin. Og það var svo skrítið að menn skiluðu henni ætíð í ólagi, brotin ljós, beygluð, bretti af, sprungið, eða á annan hátt. Og það var líka svo skrítið að menn voru ekkert endilega að segja frá því að þeir höfðu lent í brasi…Í mínum huga ætti klúbburinn að kaupa eina öfluga kerru í þetta mál, fá einhvern góðan í klúbbnum til þess að passa uppá og leigja út á x pening. En það er eins gott að sleppa því strax að hugsa um svona kaup, ef menn halda að það kosti ekki eitthvað að eiga og reka svona kerru og algjört frumskilyrði að einhver einn (eða tveir) sjái um.
En við jeppamenn eru pínu heimskir, viljum alltaf fá allt fyrir ekki neitt, sjáum bara heimtur á gistitekjum í húsinu okkar Setrinu. Nú á að fara enn einu sinni að gera skurk í því máli, sem er gott.
En gaman væri að sjá þessa hugmynd verða að veruleika, mér skilst að Pajero kerran sé enn í góðu standi, þökk sé þeim sem smíðuðu og þeim sem passa uppá hana…
kv
Palli
27.07.2006 at 17:44 #556792Hæ.
Jú ég kannast við þennan bíl… þú mátt hringja í mig ef þú vilt… 6642103.
Kv
Palli
12.07.2006 at 23:31 #556302Hæ Hlynur
Heldur þú að Krakatindsleiðin sé alveg snjólaus núna ?
P
12.07.2006 at 23:19 #198242Sælir félagar.
Veit einhver um færð af Dómadal, td yfir Mógilshöfðana, eða framhjá Krakatind. Frændi minn þarf að fara þessa leið á laugardaginn og verður á óbreyttum bíl. Er eitthvað að eltast við kerlinguna sína, sem ætlar að hlaupa Laugaveginn (alveg með ólíkindum, hvað þessar kerlingar eru harðar af sér). Þarf að komst í Álftavatn í veg fyrir þá gömlu, eftir að hafa kysst hana bless í Landmannalaugum.
Kv
Palli
27.04.2006 at 23:09 #550924Hæ þið.
Greinilega allt á milljón. Hvernig er hægt að gleyma okkur Jóa og Bjössa Pajerogæjum ? En útvarpsendirinn var sérstaklega búinn til fyrir Pajeroklúbbinn en hann er í eigu EXTOON hjóðkerfa. Ég er nærri viss um að þeir lána hann í þetta göfuga verkefni. Í versta falli er ég viss um að Hekla væri til í að greiða leiguna ef til þeirra væri leitað. Þessi sendir er mjög góður…
Ef ég mætti leggja smá til, þá ætti að skipta þessari verð upp í tvo leggi, annars vegar stuttan túr, fara uppá heiði, pollar og lækir, fara síðan á sandana, leyfa krökkunum að stýra.. Hins vegar að fara lengri túr með þá sem treysta sér að sitja lengur í bílum. Sumir þessara einstaklinga eru þannig að þeir una sér ekki lengi í bílum. Annars bara góða ferð..
Palli
-
AuthorReplies