Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.07.2006 at 12:17 #555614
Það er stór munur á þessum bílum sem eru í götubílaflokki eða hinum flokkunum, okkar bílar eru á númerum og þurfa skoðun, annar Willysinn er í Willys breidd og lengd, svo munurinn er mikill.
Synd finnst mér að menn sjái sér ekki hag í að smíða veltigrind í ferðabílana sína, þetta er jú öryggisþáttur sem mér finnst að eigi að skylda í alla 38"+ jeppa. Bílar með ásoðna toppa þurfa bara veltigrind og 3ja punkta belti til að geta keppt.
Kv
Palli
01.07.2006 at 09:13 #198184Nú er mál að fara að græja bílinn, götubílaflokkurinn kominn af stað og ef við ætlum að halda honum inni þurfum við fleiri keppendur.
‘I keppninni í Mosó vorum við tveir, en þriðji bíllinn var skráður en mætti ekki. Brautarlagning í flokknum á að vera þannig að líkurnar á veltum séu í lágmarki, svo að bíllinn komi ekki heim í plastpokum, og að menn keppi sín á milli í þröngum brautum með fullt af hliðum svo að ökuleikni ráði ferðinni. Þetta er hrikalega gaman og hvet ég þá sem hafa gaman að þessu að kynna sér reglurnar og mæta.
Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega að spyrja.
Kv
Palli PReglur fyrir götubílaflokk í torfæru.
Hæfar bifreiðar.
1.Bifreiðar skulu vera á númerum og tryggðar, keppanda er skylt að hafa tryggingaviðauka til keppna
og æfinga.
2.Bifreiðar skulu hafa fullnaðar skoðun frá skoðunarstöð, eða endurskoðun innan uppgefins tíma
skoðunarstöðvar, og skal keppandi sýna fram á að viðgerð hafi farið fram og öll skoðunaratriði séu í
lagi. Það er á ábyrgð keppenda að sýna skráningarskírteini og viðeigandi pappíra við keppnisskoðun.
3.Hjólbarðar skulu vera löglegir og D.O.T merktir, leyfilegt er að skera í dekk en ekki breiðari skurði
en 10mm og skal þá brún yfir í næsta skurð 10mm eða meira. Bannað er að skera heila kubba úr
dekkjum. Stærð hjólbarða er frjáls. Aðeins má stækka dekk um 10% frá því sem bíllinn er skráður á
í skráningarskirteini.
4. Notkun hálkubúnaðar er heimil í samræmi við íslenskar reglur. Allur slíkur búnaður, hvort heldur
eru sérstök dekk eða naglar, skulu vera í samræmi við íslensk umferðarlög og reglugerðir um þessi
atriði.
Stjórnendur geta þó alltaf veitt upplýsingar í þessum efnum. Þó mun eftirfarandi ávallt vera bannað:
Keðjur á hjólbarða.
Málmhjól eða málmspyrnur.
5.Allar keppnisbifreiðar skulu meðan á keppni stendur hafa:
Opnar bifreiðar skulu hafa veltibúr úr lágmarksefni 42mm x 2.5mm, með skástífu (nánar í
veltibúrareglum LIA).Skástífa má vera boltuð í en samkvæmt reglum LIA.
Lokaðar bifreiðar skulu hafa veltiboga úr lágmarksefni 42mm x 2.5mm. Boginn á að vera yfir
ökumanni og þá annar aftast og stífur milli þeirra, eða bogi yfir ökumanni og stífur úr boga ská niður
í gólf í ca 45° halla. (Nánar í veltibúrareglum LIA)
Plattar undir veltibúr skulu vera 120 fersentimetrar.( Nánar í reglubók LIA)
Belti af viðurkenndri gerð, í opnum bíl fjögurra punkta belti skylda, í lokuðum bíl lágmark þriggja
punkta en fjögurra punkta æskileg.
Tryggilega festan og óskemmdan stól, körfustóll æskilegur
Dráttarkrók eða auga að framan og aftan.
Rafgeymir skal vera tryggilega festur, og ef rafgeymir er staðsettur í ökumannsrými skal það vera
Þurrgeymir.
Straumrofa sem drepur á og rýfur aðalstraum ökutækis, barki skal tengdur straumrofanum sem er
staðsettur undir framrúðu vinstramegin(bilstjmegin) og drepur á bílnum sé togað í hann, útfærsla
frjáls svo lengi sem barkinn virkar og er greinilegur.
Ekki skal vera hægt að ræsa sjálfskipt ökutæki nema í P on N.
Tryggilega festan eldsneytistank með þéttu loki og vel frágenginni öndun.
Baksýnisspegill.
Opnar bifreiðar skulu hafa plötu í toppi, álplata lágmark 2mm eða 1.5mm stál, með lágmark fjórum
festingum. Púströra klemmur 8mm eða soðin eyru eru ákjósanlegur kostur því ekki má bora í
veltigrind/búr.
Allan búnað í bifreiðinni tryggilega festan.
Slökkvitæki skal staðsett í bifreiðinni þannig að ökumaður nái í það úr bílstjórasæti, spenntur í belti.
Stærð slökkvitækis er 2kg eða 2 stk 1kg tæki.
6. Eldsneyti skal fást á bensinstöðvum, nitró gas er bannað.
7. Keppnisaðili á að hafa á reiðum höndum allar vitneskju um bílinn og búnað hans sé hann spurður.
8. Æskilegt er að fjarlægja rúður úr ökutækjum, eða skrúfa þær niður.
9. Net á að vera fyrir hliðarúðugati bílstjóramegin, í opnum bílum skal vera net alveg fyrir hurðaropi.
Hæfir keppendur
1. Ökumaður skal hafa gilt ökuskirteini og keppnisskirteini, útgefið af LIA.
2. Ökumaður og aðstoðarmenn skulu vera félagar í klúbbi með aðild að LIA.
3. Ökumaður ber ávallt ábyrgð á aðstoðarmönnum sínum.
Búnaður ökumanns
1. Hjálmur af viðurkenndri gerð, óskemmdur.
2. Eldtefjandi galli, leyfilegt er að nota kart galla eða rafsuðugalla(með stroffum á höndum og fótum).
3. Kragi og hanskar æskilegir.
Skýringar.
4. Opinn bíll, er bíll með losanlegan topp/blæju, og lokaður bíll er bíll með ásoðinn topp.
06.03.2006 at 20:38 #197482Sælir félagar.
Vinur minn er með 98 Patrol, óbreyttann og er farinn að reykja ljósbláu, reykti kolsvörtu áður en þá voru teknir spíssar og verkið stillt, en svo er hann erfiðari í gang milliheitur, en áður.
Ljósblái reykurinn bendir á olíusvelti en það eru nýlegar síur.
Fróðir Nissan kallar segja honum að nú sé tími á að taka olíuverkið upp og kostar það lágmark 150-200 þús. ‘Eg hef ekki trú á því að það þurfi að taka upp verkið í bílnum sem er keyrður rétt 150þús.
Endilega deilið ef þið hafið lent í svipuðu með svona bíl.
kv.
Palli
27.02.2006 at 23:08 #197430Halló
Man einhver hver smíðaði plastskúffurnar á Willys cj5.
kv
Palli
29.01.2006 at 21:58 #540166Sniðug síða, þarna má finna þyngdir á þeim hlutum sem oftast voru notaðir í jeppamix.
kv.
Palli
25.01.2006 at 19:52 #540228Stefnan er sú, að brautarlagning verði þannig að menn eyðileggi ekki bílana sína þarna, ekki nema fyrir slysni, sem gæti svo sem gerst á Miklubrautinni. Nú er bara að fara út í skúr og klára kaggann og mæta.
kv.
Palli
25.01.2006 at 09:28 #197158Nú er komið að því að reglur eru klárar fyrir götubílaflokk í torfæru, fyrir jeppa skoðaða á númerum.
Flokkurinn kemur inn sem þriðji flokkurinn og keyrist svipað og þegar voru tveir aðskildir flokkar.
Reglurnar eru á síðunni http://www.lia.is, undir „Reglur“.
kv.
Palli P
24.01.2006 at 23:42 #197154Kvöldið
Eru einhverjir hér sem hafa vigtað dana 44 framh undan scout og dana 44 undan gamla wagoneer, hilux og fleiri hásingar sem gætu hentað undir gamlan Willys. Eins væri gaman að vita breiddir á þessum hásingum ef þið hafið þær í kollinum.
kv.
Palli P
15.12.2005 at 22:59 #531154Patrol er nú ekki gáfulegasta "getaway" græjan í dalnum, eðlilega vill pilturinn nissansjúki að bíllinn vinni eitthvað þannig að selfoss löggan grípi hann ekki á löggu hjondaiinum fullum af grasi.
Annars vona ég að eigandinn komi honum í samt lag, getur kannski fengið þann fingralanga til að hjálpa sér, það þarf örugglega að fela piltinn (í fangageymslu) svo blóðþyrstir 4×4 félagar nái honum ekki.
kv.
Palli
05.12.2005 at 00:31 #535020Þessi bíll er með tölvustýrðu olíuverki, og færi ég varlega í að prófa mig áfram með vírbút.
Talaðu bara beint við verkstæði Toyota og þeir geta lesið útúr honum, og fundið út hvað hrjáir hann. Klikkin sem þú heyrir þegar þú svissar á er örugglega glóðarkerta hitarinn.
kv.
Palli
14.11.2005 at 22:16 #532368Þeir eru fluttir í Skeifuna, þar sem Fjöðrin var.
Orka/Poulsen
kv.
Palli
09.10.2005 at 00:22 #528480Ef þjófurinn hefði farið Hvalfjörðinn, hefði hann örugglega komist óséður til RVK, og hefði náð að rífa bílinn og koma dótinu í umferð í skömmtum.
Þarna sannar sig tilvist vöktunar eins og í göngunum, veit einhver hvort bíllinn sást í myndavél eða mundi vaktmaður eftir honum?.
‘Eg vona að eigandi komi bílnum í fyrra horf og fái tækifæri á að eiga við þjófinn með járnkalli og skóflu.
kv
Palli
07.09.2005 at 20:39 #526388Finnst ykkur þá sanngjarnt að kaupa pajero 95 á í kringum 900 þús.
‘Eg tek þá toyotuna frekar á milljón+
Það er staðreynd að toyoturnar eru seldar langt yfir viðmiðunarverðum.
Kv
Palli
4runner diesel eigandi.
05.09.2005 at 22:35 #526358það er líklega 87mm.
kv
Palli
19.08.2005 at 00:07 #525752Bensin bílarnir komu allir á klöfum, dc og xc,
Svo finnast einnig dc bílar, bensin með krókapalli.
Svo það skiptir litlu, maðurinn er einfaldlega að leita að passandi fjöðrum og þær ganga ekki úr diesel bíl í bensin bíl, bensin fjaðrirnar eru lengri.
Profaðu að tala við fjaðrabúðina Part uppi á höfða neðan við Vöku, eða Jamil.
kv.
Palli
16.08.2005 at 23:26 #525740Halló
Fjaðrirnar úr bensin bíl eru lengri og færri (burðaminni) en í diesel.
Fjaðrirnar úr bensin bílnum eru þær sömu og í nýja Hiluxnum.
Þannig að þetta gengur ekki saman hjá þér.
Kv.
Palli
12.08.2005 at 22:05 #525638‘Eg myndi giska á eins og fram hefur komið að gatið sé of stórt eða splittið of lítið.
Eins ef gatið fyrir splittið sé ekki í miðjunni á boltanum sem festir krókinn, og geti því dottið auðveldlega úr.
Það mé leysa þetta með að setja bara bolta og ró og herða þetta svo myndarlega.
03.07.2005 at 23:51 #524630Prófaðu olíuhreinsi……………………
29.06.2005 at 22:03 #522780Þetta hefur ekki verið jeppakall, fyrst hann skildi eftir bjórinn, og matinn????
Fyrirgefið inngripið, leiðinlegt mál, vonandi finnið þið kallinn ykkar.
kv.
Palli
26.06.2005 at 20:25 #524476Það var á gömlu árunum þegar það voru jeppar sem kepptu í torfæru…..
-
AuthorReplies