Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.11.2016 at 11:32 #941058
Þátttakendur í ferðinni lögðu af stað frá Stöðinni Vesturlandsvegi nú í morgun og var stefnan sett á Kaldadal. Ferðalangar urðu að snúa frá í Meyjarsæti vegna erfiðra snjóskafla sem voru í brekkinni. Ný stefna sett á Gjábakka og inn á gömlu Lyngdalsheðar leiðina. Menn voru að glíma við skafla á þeirri leið og ekki búið að ákveða hvort beygt yrði upp að vörðunni Bragabót eða haldið áfram gömlu Lyngdalsheiðar leiðina.
ÓE
27.01.2015 at 09:08 #776325Er merkið frá throttle position sensor (TPS) að skila sér á réttan hátt til tölvunnar?
ÓE
13.06.2014 at 15:34 #769450Þú getur farið inn á Íslandskortið á ja.is og leitað að örnefninu „Illviðrahnjúkar“. Þá sérðu (vestan við Illviðrahnjúka) daufa punkatlínu sem er merkt „Illviðrahjúksleið“. Þetta er leiðin inn að Miðju.
Leiðin á ja.is kortinu endar við árfarveg sem ekki er alltaf vatn í, en sandblreytur geta leynst þar ef ég man rétt. Slóðin ætti að vera sýnileg alla leið inn að Miðjusteini, jafnvel stikaður að einhverju leiti.
ÓE
10.03.2014 at 10:35 #453918Fullt af myndum sem Eiríkur Kolbeinsso tók í ferðinni. Hann var kóari hjá Andrési Magnússyni. Þess má til gamans geta að Andrés er búsettur fyrir norðan en komu suður til að taka þátt í túrnum norður.
http://diesel.123.is/photoalbums/258493/
ÓE
09.03.2014 at 11:27 #453800Tek undir með Kjartani, það var erfitt að ná sambadi. Að mínu mati stóðu Logi Már og Rúnar sig vel miðað við aðstæður.
Nú bíður maður spenntur eftir ferðasögum og myndum frá þeim sem voru í ferðinniÓE
08.03.2014 at 11:59 #453770Afreksmaðurinn Gunnar Ingi skoðar söpunarverkið eftir aksturinn norður í Skagafjörð. Flottur árangur.
ÓE
Viðhengi:
07.03.2014 at 11:21 #453728Ég heyrði í Jeep-genginu áðan og var hópurinn á Kvíslaveituvegi norðan við Versali, í bongó blíðu. Menn voru seinir á fætur í morgun og rekur hópurin lestina þessa stundina. Fremstu bílar eru lílega komnir norður fyrir Þjórsárlón.
Gunnar Ingi Ultimate er í hópnum og ætlar sér í Skagafjörðinn.
Endilega að sem flestir pósti hér inn slúðri og fréttum ;).ÓE
Viðhengi:
07.03.2014 at 10:14 #453725Virkaði ekki, linkurinn hvarf.
Eftir að komið er inn á síðuna aprs.fi þá þarf að TF3WJ-9 í „Track callsign“ reitinn í hægra horninu efst.Er einhver með depilinn sem f4x4 á ?
ÓE
07.03.2014 at 10:07 #45372418.01.2014 at 21:51 #444355Heyrði í Frey áðan. Hópurinn er búinn að eiga góðan dag í dag, fóru í Ásgarð (Kerlingafjöll). Það mætti vera meiri snjór á svæðinu, en færi annars ágætt. Allt gengið vel, góð stemming í hópnum og stefnt á að fara Klakkinn heim á morgun.
ÓE
03.01.2014 at 11:23 #443054Þegar aðili er dæmdur til greiðslu skaðabóta vegna þess að tjón hlaust af við að draga annað ökutæki. Hafa þá dómar verið byggðir á 88. grein Umferðalaga eingöngu, eða hafa fleiri ákvæði komið til?
88. grein Umferðarlaga hljómar – “Sá sem ábyrgð ber á skráningarskyldu vélknúnu ökutæki skal bæta það tjón sem hlýst af notkun þess enda þótt tjónið verði ekki rakið til bilunar eða galla á tækinu eða ógætni ökumanns. Ábyrgðarmaður dráttartækis er skaðabótaskyldur ef tjón hlýst af þegar skráningarskylt vélknúið ökutæki dregur annað ökutæki.”
ÓE
22.12.2013 at 17:39 #442302Þýðir þessi skammstöfun ekki bara China Export ?
ÓE
22.10.2013 at 08:58 #379254Rétt Gunnar, koma LS smiti í kallinn :), en Back on topic.
Taka frá tvo miða fyrir Óskar Erlings, Flugsveitin EJS – Jeep-gengið, – þ.e. ef ekki er orðið uppselt.
ÓE
13.10.2013 at 13:23 #379395Miðað við hnitin sem VÍ gefur upp (N64 49.500 W18 52.000) þá ók ég þarna yfir í stórferðinni 2005, ásamt fleirum. Jökullinn er stórvarasamur á þessu svæði.
ÓE
14.03.2013 at 13:10 #225751Nú eru ferðalangar væntanlega að ljúka undirbúningi og gera sig klára til brottfarar á fyrsta náttstað.
Fyrstu jeppar í Jeep-genginu eru lagðir af stað í Jökulheima. Bjartmar Örn er með Depil klúbbsins um borð og hægt að fylgjast með framvindunni hjá Jeep-genginu í rauntíma á http://www.depill.is/f4x4. Allavega meðan gsm sambad er til staðar.
Hvet alla sem hafa fréttir af ferðalaginu að pósta hér inn á þráðinn.
ÓE
12.05.2012 at 07:09 #223490Ágæti félagsmaður.
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um ökutækjatryggingu (heildarlög), 733. mál.
Í bréfinu er þess er óskað að undirrituð umsögn þín berist í síðasta lagi 23. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is eða bréflega til Nefndasviðs Alþingis, Austurstræti 8-10, 150 Reykjavík.Ef engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/1171.html
Vakin er athygli á því að allar umsagnir um málið birtast á vef Alþingis undir fyrirsögninni Innsend erindi á síðu viðkomandi þingmáls.
Bent skal á að leiðbeiningar um ritun umsagna er að finna á vef Alþingis á slóðinni http://www.althingi.is/vefur/nefndaumsagnir.html.Það er mikilvægt fyrir fólk sem ferðast í óbyggðum að vita tryggingaskilmálana sem gilda. Nú lyggur fyrir að gera breytingu og spurningin er, ert þú sammála að haga þessum málum á þann hátt sem greint er frá í áðurvefndum drögum. Þín skoðun skiptir máli.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá;
Sigrúnu Helgu Sigurjónsdóttur
ritara nefndasviðs AlþingisSjá einnig umræður hér https://www.facebook.com/groups/ferdafrelsi/
ÓE
06.05.2012 at 08:44 #223438Fyrirtæki í bænum verður með bíladag einn laugardag í maí og falast eftir 8-9 jeppum (44+) sem gætu verið á „bílasýningu“ hjá þeim. Þeir verða einnig með bíla frá fornbílaklúbbnum, en hafa meiri áhuga á að hafa jeppa á stórum dekkjum líka.
Þeir sem sjá sér fært um að hafa bíl á sýningunni, vinsamlegast sendið póst sem fyrst á stjorn@f4x4.is og látið okkur vita.
ÓE
27.04.2012 at 18:04 #223358Nemendur í tómstundaáfanga sérnámsbrautar Borgarholtsskóla óskðu eftir að fá að kynnast starfi klúbbsins og úr varð að nokkrir félagar í klúbbnum buðu þeim í stutta jeppa- og útsýnisferð upp á Úlfarsfell.
Ferðin var farin fimmtudagskvöldið 26. april 2012. Ég held að sé óhætt að segja að allir skemmtu sér konunglega í ferðinni.
Hópurinn frá vinstri aftari röð, Vignir, Andri, Inga, Ragga, Anna Kristín, Gulla, Óskar, Sigrún, Arnþór, Ella
og fremri röð Logi Már, Guðný María, Jón Haukur og Dagur. Hjörtur tók myndina.ÓE
21.02.2012 at 18:37 #222375Það er margt um að vera á Mývatni helgina 23 – 25. mars og margir í leit að gistiplássi, en möguleiki er auka gisti framboðið.
Hótel Gígur Mývatni er alla jafna lokað yfir vetrar mánuðina. Hótelið verður opnað fyrir þátttakendur í Stórferðinni 2012, að því gefnu að náist að minnsta kosti 20 manns í gistingu. Á Hótel Gíg eru í boði 67 rúmpláss. (1 þriggja manna herbergi-28 tveggja manna herbergi og 8 eins manns herbergi). Hótelið er vel staðsett. http://www.keahotels.is/is/Hotel-Gigur
Þeir sem vilja nýta sér þetta er bent á að skrá sig sem fyrst hjá móttöku í síma 460-2000
ÓE
26.10.2011 at 21:48 #220992Til stendur að fara að Kistuöldu n.k. sunnudag og reisa við krossinn sem reistur var á öldunni í fyrra. Krossinn féll síðast liðið sumar eins og fram hefur komið hér á spjallinu.
Sjá nánar í frétt á forsíðunni.ÓE
-
AuthorReplies