Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.11.2015 at 00:38 #934324
Takk fyrir fundinn félagar.
23.06.2013 at 22:02 #766589[quote="Snorri Freyr":2ync40pf]Þú þarft bara að fá grindarbút með grindarnúmeri úr stórum bíl, t.d suburban, tekur gamla grindarnr af og setur þennan grindarbút í og þá heitir bíllinn suburban. Þetta hefur verið gert og ef ég man rétt þá eru myndir til af breytingunni á þeim bíl hér á síðunni.
Mér skilst að engu hafi verið breytt í þeim bíl nema grindarbútnum með númerinu.Bestu kveðjur
Snorri Freyr[/quote:2ync40pf]
Og svoleiðis flokkast undir skjalafals…. en það er kanski eitthvað sem menn eru að gera, þetta var svosem bara pæling, að hugsa málið til enda
Kv. Dóri
23.06.2013 at 21:10 #766585Svo má velta því fyrir sér ef vélin kemst ofaní og allt gengur upp í sambandi við það, hvernig ætlar þú að skrá bílinn með þennan þunga á framás…. veit ekki alveg leyfða ásþyngd að framan á pajaro en get ímyndað mér að það sé nálægt 1200 kg. Og ekki er 6,2 nein léttavara
Kv. Dóri
17.06.2013 at 20:10 #766535[quote="runar":w1zw2203]19:1, rendirðu af stimplunum til að ná því? Og þá hvað mikið?[/quote:w1zw2203]
Já það voru renndir stimplarnir en ég man nú ekki lengur hvað það var í millimetrum.
13.06.2013 at 22:35 #766527Já Rúnar það er akkurat þetta fikt alltaf hreint sem veldur þessu veseni hjá mér. Er bara að velta fyrir mér hvort maður á að kaupa orginal Aisin eða að finna eitthvað sterkara….
Þjappan hjá mér er reyndar komin niður í 19:1 og eftir síðasta fikt var hann að blása 33 pundum
Vilhjálmur ertu sáttur við Centerforce…. er hún ekkert leiðinlega þung í ástigi?
13.06.2013 at 21:16 #766521Sæll Rúnar! Er kúplingin í orginal túrbó að pressa meira? Marlin crawler kúpling væri þá í V6 bensín er það ekki? og þá 236 mm. ( Er að boosta yfir 30 psi þannig að mig vantar eitthvað betra en orginal :))
13.06.2013 at 20:14 #226201Sælir félagar! hvaða lausnir hafa menn verið með þegar orginal kúpling í 2.4 diesel hilux er hætt að halda?? (240 mm kúplingin)
10.07.2012 at 23:02 #755671Skemmtileg hátíð hjá ykkur. Takk fyrir mig og mína.
Kveðja úr Skagafirðinum
23.05.2012 at 23:36 #754591Er möguleiki á því að ég fengi að fljóta með?
15.04.2012 at 12:28 #753267Sæll! Ef það er hjámiðja í boltaaugunum á bremsudælunni og bíllinn er á 15 tommu felgum þá er búið að renna utanaf diskunum og færa dælurnar innar til að búa til pláss fyrir felgurnar.
kv. Dóri
09.12.2011 at 16:44 #743679[quote="player1":6y2izisv]Max 14psi , og það er túrbínan sem fer ef það farið hærra.[/quote:6y2izisv]
Hvað er það sem fer í túrbínuni ef þrýstingurinn fer yfir 14psi ?
16.06.2011 at 20:42 #732013Hráolíusía?? Slöngur á bakflæði frá spíssum? Slangan frá túrbínu í membru ofaná olíuverki?
03.06.2011 at 18:32 #730825Skar Mudderinn minn mjög mikið og fór mest 8mm niður fyrir mynstur á köntunum. En það stendur í reglugerð að: Óheimilt er
að skera nýtt mynstur í hjólbarða á bifreiðum sem eru 3.500 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd. Er nú samt búinn að fara í gegnum skoðun á þessum börðum. Dekkin léttust um 1,2 kg stikkið ca. og virka mjög vel í snjó og hálku
-
AuthorReplies