Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.08.2010 at 05:13 #214010
Þar sem lítið ( tveir viðburðir ) eru skráðir á viðburðadagatalið, langar mig að spyrja þessarrar spurningar og kannski fá einhverja umræðu
Kv. MG
29.07.2010 at 06:19 #213768Hvernig Mig/Mag suðuvél er hentugt að fá sér í skúrinn, hversu sterka, hvar er hagstætt að kaupa þær og hvað er gott og kannski nauðsynlegt að ath. við svoleiðis kaup?
Kv MG
19.07.2010 at 09:24 #698608Sæll Nafni, Hann Kristján K. Kolbeinsson ( skúri) er með risa myndaalbúm af Willis og öðrum Jeep, hér á síðurnni. Kíktu endilega á það, mjög flott. sláðu bara skúri í leitarorðið og þá færðu upp albúmin hans.
Góða skemmtun. Kv. MG
18.07.2010 at 09:31 #695974Gærkvöldið var bara flott á Þórisstöðum í Svínadal. Góð þátttaka félagsmanna, alveg frábær staður og aðstæður mjög góðar.
Takk Seinagengis skipulagsstjórar,
Kv. MG
13.07.2010 at 14:14 #695954Sælir félagar. Það væri eflaust gaman að renna upp eftir eftir vinnu seinnipartinn á föstu- og laugardaginn, þó maður komi kannski ekki til með að gista , vegna vinnu.
Sjáumst hress
Magnús G. og viðhengin (allavega 2 börn)
03.07.2010 at 02:29 #697524Ja sko litli jeppakarlinn á hana ekki eins og þú segir Einar, því hann lifir frá degi til dags og þarf á öllu sínu að halda. Stóri jeppakarlinn á hana ekki heldur því hann er með yfirdrifið nóg af aukatönkum til að þurfa ekki að nota svona tunnur. Ég gæti best trúað að innihaldið væri illa fengin lituð olía sem ekki hefur verið á hættandi að taka með til byggða. :)))
Kv. Magnús G.
03.07.2010 at 02:21 #697644Frábært, að koma með svona. Þetta auðgar og er mjög áhugavert og skemmtilegt. Takk.
Kv. MG
01.07.2010 at 01:19 #697158Sæll Logi, Dauði og djöfull og margmyglaðar gulllaxar í norðurhöfum, að missa af því. Verð bara að hætta þessarri vaktavinnu, eingöngu dagvinna eftir ákv. aldur
Þetta hefði verið gaman og ekki hefðu krakkarnir haft minna gaman að því. En svona er þetta, það er ekki við öllu séð.
Kv. Magnús
30.06.2010 at 22:37 #697152sælir, því miður verð ég að sinna vinnunni þessa helgi upp á K-Velli.
Kv. Magnús
27.06.2010 at 02:33 #695920Góður Jói, en ég hitti nú formann Seinagengisins á síðasta fimmtudagskvöld, þar sem hann var helvíti öflugur við að kynna sér uppþvottavélina upp á Eirhöfða. En ég veit barasta ekki hvað er verið að blanda því ágæta gengi Sóðunum inn í þessa SUMARHÁTÍÐAR-UMRÆÐU, því þeir eiga ekkert að sjá um hana. ???
Kv. Magnús G.
25.06.2010 at 22:23 #695912Jæja Seinagengi, eruð þið ekki að fara sjá um sumarhátíð klúbbsins? Hvernig væri nú að fara byggja upp einhverja stemmningu fyrir gesti og gangandi og láta okkur vita hvað verður í boði ( í grófum dráttum ) sýna skráningu hér í þræðinum og reyna að standa þokkalega að þessu.
kv. MG
18.06.2010 at 03:10 #213245Hvernig er það með Musso sport; ef driflokur sem eru auto svíkja er þá bara að skrúfa þær af og setja manual í staðin eða þarf að breyta einhverju í millikassananum?
Hvernig er auto driflokunum stjórnað? Er það eitthver gissmo sem er raftengt við millikassann og skiptitakkann í mælaborðinu?
18.06.2010 at 00:13 #696560Hún kemur í bílinn rétt fyrir neðan Stapann á leiðinni til Reykjavíkur og fer út rétt áður en komið er að Kúagerði á Reykjanesbrautinni.
13.06.2010 at 05:53 #696074Já ég er kominn á sömu skoðun og frummælendurnir hérna, Opnum þetta aftur og lífgum upp á síðuna með betri aðgangsstýringu á myndasíðunni, áður en lengra er haldið.
[i:3hezu2d2]Annars getum við alveg lýst yfir andláti Ferðaklúbbsins 4×4 .[/i:3hezu2d2]
Það er reyndar reyndar búið að gera, enda er enginn áhugi á einu né neinu. Gott dæmi er mæting á nýafstaðinn aðalfund klúbbsins, skráningu í tilætlaða landgræðsluferð ( sem þurfti að aflýsa vegna mannfæðar) og meira segja bjórkvöldin sem hér áðurfyrr voru fjörleg og vel sótt hafa séð fífil sinn fegurri.
Ekki skal ég fullyrða neitt um orsökin að þessu en kannski er fjármálastöðu heimilanna um að kenna, húsnæðinu eða einhverjum öðrum örsökum. En eitt er víst að við verðum að taka okkur saman í andlitinu og fara sýna það í réttu ljósi og á sem víðustum vettvangi.Kv.
Magnús G.
03.06.2010 at 20:22 #213048Hvar finn ég fundargerðir og reikningshald klúbbsins með viðhlítandi skýringum? Nú er tískuorðið “ Gegnsæi “ og því finnst mér vanta þetta þar sem almennir félagsmenn geta gengið að þessu og fengið upplýsingar.
Kv. Magnús Guðmundsson
R-2136
01.06.2010 at 00:51 #695110Ja bara svona smá hugdetta, en það væri skemmtilegt ef við hefðum eitthvert plan (pláss ) til að koma saman einhvern góðviðrisdaginn og sýna það sem er aðalatriðið í þessum klúbb þ.e. [b:1jvdpv5y]Jeppana[/b:1jvdpv5y] okkar. Margir klúbbar hafa svona; Fornbílaklúbburinn, Mustangklúbburinn og nokkrir aðrir, [b:1jvdpv5y]af hverju ekki við.[/b:1jvdpv5y] Þetta mundi einnig vera stórátak kynningu félagsmanna og eflaust margir fróðleiksmolar koma út úr því. Þarf ekki að vera neitt stórvægilegt eða dýrt bara að mæta.
Kv. Magnús jeppalausi
14.05.2010 at 11:01 #693580Ertu búinn að ath. í Wurth á Bíldshöfða?
14.05.2010 at 09:45 #692620Sælir félagar. Í fyrradag keypti ég bensín hjá Orkunni á Skemmuvegi og var skráð verð á dælunni 202.6 kr. Ég notaði félagsskírteinið og þá fór verðið niður í 199.60 kr. s.s. 3 kr.á lítra. Mér er spurn, eigum við ekki að fá 5 kr. afslátt hjá Orkunni. og 4 kr. á Selectstöðvunum?
MG. aurapúki
11.05.2010 at 01:47 #212661Ef mmaður á gamla Gufunestalstöð er þá hægt að nota hana fyrir þessi HF talskipti, að því gefnu að fá sér nýtt loftnet.
07.05.2010 at 02:22 #692882Hjá umhverfisnefndinni lítur dæmið svona út í dag, en það er háð breytingartllögu á lögum um aukafélaga.
Magnús Guðmundsson, formaður hættir.
Sæbjörg Richardsdóttir, Didda ritari, á eitt ár eftir.
Haraldur Þór Vilhjálmsson, á eitt ár eftir.
Baldvin Zarioh, á eitt ár eftir.
Benidikt Brynjólfsson hætti á árinu vegna veikinda og var Pétur Pétursson fenginn tl að fylla skarðið, en er ókosinn.Nefndin ætlar að halda fund 10. maí og eftir það skýrast línur.
Kv. MG
-
AuthorReplies