Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.10.2011 at 21:42 #740431
Magnús Guðmundsson og viðhengið = 2
31.08.2011 at 22:42 #735595Góða kvöldið, Vegna brottfalls, Myndar-legasta manns klúbbsins, skv. síðasta pósti vil ég endilega biðja ykkur hin að vera dugleg með myndavélina því bæði er það skemmtilegra og svo hitt að nefndin þarf stöugt að uppfæra myndir vegna starfsins.
Fari fyrir hann Guðmund Frey minn er reddað og verður hann farþegi hjá Lailu Margréti.Ég hlakka svo til að sjá ykkur á mánudagsfundinum með myndir og sögur. Góða ferð.
Kv. Magnús
31.08.2011 at 02:35 #735589Komiði sæl…..
Mikið er gaman að sjá hvað fólk er duglegt við að skrá sig og spjalla um þennann viðburð í starfi klúbbsins. Mér finnst það nánast vera helgispjöll að komast ekki með í þessa ferð.
Og þó ég verði með ykkur í huganum er það nú ekki nóg og því ég hef alið sömu áráttuna í mínum ungum og bíða þau hvers hausts eins og ég.En þar sem ég er greinilega orðinn syfjaður og eitthvað utangáttar, Því skráningarformið er ekki alveg að gera sig hérna hjá mér, langar mig til að óska eftir fari fyrir hann Guðmund Frey minn í þessa ferð. Hann getur ekki hugsað sér að sleppa þessu. Ég mun að sjálfsögðu taka þátt í skynsamlegu fargjaldi.
Kv. Magnús. "Geisp"
26.08.2011 at 13:51 #735913Já akkúrat, þú hittir naglann á höfuðið Bragi og samkvæmt því ert þú alveg tilvalinn í niðurneglingu á stikum í komandi stikuferð.
Flott og tak takk.
25.08.2011 at 14:28 #220162Hvað er orðið af gömlu Setursblöðunum og öðru gömlu efni sem var í bókasafninu?
Kv. Magnús G
10.08.2011 at 22:53 #735005Sælir félagar, Þið ætlið að láta hendur standa fram úr ermum einn ganginn enn og linnið ekki látum fyrr en búið er.
Hann Guðmundur Freyr sonur minn er alveg til í að leggja hönd á plóginn, ef einhver getur ferjað hann uppeftir og að sjálfsögðu borga ég farið fyrir hann, á einhverjum skynsamlegum nótum.
Hann kemst ekki fyrr en á föstudag eftir frekara samkomulagi. Vinsamlegast hafið samband við mig í GSM 896-8564
Kv. Magnús G.
09.08.2011 at 12:47 #734989Jæja þá veit ég það, ór í gangnabankann hjá Tóta Mussó og þarf ekki fleiri vitnisburð.
08.08.2011 at 07:23 #219982Mig vantar upplýsingar/reynslu og áreiðanleikasögur, Kosti og galla í SSyoung Musso 2.3 l bensín. 1997/1998. Hann er sjálfskiptur. Hvernig er þessi vél að koma út, eyðsla og kraftur/kraftleysi, hvernig er þessi skipting, Hp tölur og tork?,
Eins og er gengur bíllinn mjög skrykkjótt og drepur tíðum á sér og af þeim sökum er hann að eyða miklu bensíni ca. 16 – 17 á 100 km. :((((((
Eigandinn sagði það líklega vera bensíndæluna. Er hún ekki aftur í tanki? Hvað kostar að láta kóðalesa svona bíl?Hvað er raunhæft að borga fyrir svona bí?
Kv. MG
22.07.2011 at 00:23 #734123takk fyrir góðar veitingar í kvöld Nafni.
21.07.2011 at 00:51 #733879Allt er breytingum háð og ófyrirséðir hlutir sett strik í reikninginn. Nú verð ég að afturkalla skráningu mína og krakkana. Boðinn í fimmtugsafmæli hjá mág mínum á Laugardag. Fyrirgefið það en það var einlægur ásetningur okkar að koma upp eftir.
Kv. Magnús og börnin.
20.07.2011 at 00:35 #733869Kvöldið, Ég ætla að skrá mig og tvo krakka mína ef ég skyldi fá far einhversstaðar.
Kv. Magnús G.
02.07.2011 at 19:28 #733005Já flottur hann Nafni minn, alltaf leggst honum eitthvað til….
Ég vona nú að allir komi heilir heim úr þessarri svaðilför og brosandi út undir eyru.
Kv. Magnús G.
26.06.2011 at 23:48 #732235Tek undir með öllum hérna, aldeilis frábær helgi í góðum félagsskap. Takk fyrir okkur.
Magnús, Guðmundur Freyr og Herdís Ásta.
24.06.2011 at 15:07 #732225Kraftur veiga gærkvöldsins dugði til að breyta gangi mála og nú stefni ég hraðbyri með góðu fólki í Mörkina. Ég tek öll fötin svo við verðum í viðhafnarklæðnaði. Ég stefni á að vera í samfloti með "The Flame" og fleira góðu fólki seinnipartinn í dag.
Sjáumst hress á Select við Vesturlandsveg.
Kv. Magnús G.
24.06.2011 at 00:41 #732495Takk kærlega fyrir þetta Árni.
Kv. Magnús G.
24.06.2011 at 00:22 #732215Kæru félagar, eins og staðan er orðin núna, þá er frekar líklegt að ég afboði mig og mína vegna ofkólnunnar í heitum potti í sumarbústaðadvöl minni, í vikunni. Endurkoðendur óskast seinnipartinn á morgun. !!!!!!!!
Það væri alger bömmer að missa af þessu, og því sjáum við til hvaða töframátt kaffi og Cognac hefur að geyma.
Kv. Magnús G.
Ps. Didda hefur lítið pláss í farskjóta sínum og þarfnast líklega hjálpar við að koma góðu fötunum okkar, (kjólföt bæði á karla og konur) með inn í Mörk.
10.06.2011 at 01:19 #730979Nefndarmenn, vinsamlegast látið mig vita hvenig fer með grillið í síma í dag.
Kv. Magnús
09.06.2011 at 00:16 #730973Sæl öll,
Hvað er að frétta af skráningu Suðurlandsdeildar? Hafa einhverjar aðrar deildir látið vita af skráningu? Það væri gaman að sjá félaga úr öðrum deildum einnig.Ég verð að leiðrétta skráningu hjá mér því allt stefnir í að ég verði 1+2.
Grillið okkar er upp á Eirhöfða og bíður þess að fá gómsætan mat til eldunnar á laugardagskvöld og jafnvel fyrr ef einhver vill. Ég stefni á að fara uppeftir á Föstudagssíðdegi ef einhver vill verða samferða.
Kv. Magnús
31.05.2011 at 21:54 #731101Takk fyrir þennann fróðleik Gísli. Ég keypti þetta bara og allt nýtt í Poulsen og Kistufelli nú í síðustu viku og er það allt komið undir og svo fer bíllinn í hjólastillingu á morgun, í þriðja sinn á þessu ári sem ég er búinn að eiga hann.
Vona að ég þurfi nú ekki að gera þetta aftur á þessu ári.
Kv. MG
31.05.2011 at 21:42 #730939Sæll Árni, Hann Guðjón Magnússon ætlar með okkur á Merkurranann 26.06. að mér skilst.
Það verður gaman að sjá þar ummerki eftir gosfarir og síðan en ekki síst hvernig starfi okkar (F4x4) hafi vegnað þarna síðan við hættum. Þetta verður auglýst nánar síðar.Kv. MG
-
AuthorReplies