Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.10.2012 at 13:44 #224573
Við Snævarr Guðmundsson flugum yfir Langjökul í gær í ótrúlega fallegu veðri. Við fyrstu sýn virðist jökullinn fínn og lítt sprunginn. Það hefur þó snjóað aðeins í hann, sem getur villt aðeins fyrir. Snævarr á eftir að fara yfir gögnin en hér er myndband sem ég tók, svona hliðarafurð. Vona að þið hafið gaman af, og kannski örlítið gagn.
Kv,
Lalli
07.03.2012 at 08:53 #222825Set hér að gamni hlekk á myndband frá 2010. Flugum yfir Vatnajökul, byrjuðum að vestanverðu og fórum svo yfir Kverkfjöll, Grímsvötn og Hvannadalshnjúk.
Vona að einhver hafi gaman af, en landið lítur öðruvísi út úr lofti en úr jeppanum.
16.08.2011 at 09:45 #220055Í tengslum við sprungukortaverkaefnið fórum við Snævarr Guðmundsson landfræðingur og kortagerðamaður verkefnisins í flugferð vestur á firði, þann 11.8 sl.
Ég tók nokkur myndskeið í leiðinni og set þau hér að gamni. Njótið.
17.07.2011 at 23:23 #219774Við Snævarr Guðmundsson, sem er kortagerðamaður jöklakortaverkefnisins, flugum yfir Mýrdals og Eyjafjallajökla til ljósmyndunar. Þess má geta að sprungukort fyrir þessa jökla eru að verða tilbúin.
Hliðarafurð er þetta video sem ég tók á Canon G-12. Afsakið hristing og þessháttar, en það er stundum erfitt að sitja vinstra megin og fljúga með annarri og reyna að halda stöðugri myndavél útum hægri glugga með hinni.
Góða skemmtun.PS. Ef ég er að fara með fleipur í einhverjum örnefnanna, endilega látið mig vita.
09.03.2011 at 22:24 #719894Er nokkuð því til fyrirstöðu að setja Xenon HID í gulu IPF kastarana? Hefur einhver prufað það?
07.03.2011 at 18:32 #722564Bara smá pæling.
Hversu langt þarf ég að ganga frá jeppa mínum til að breytast úr jeppamanni í göngumann? Er ég ekki orðinn göngumaður strax og ég geng eitthvað? Má ég þá ekki tjalda?
Nú er ég ekki búinn að lesa allt sem komið hefur fram um þetta og kannski er þessi pæling byggð á misskilningi, eða er útgangspunkturinn kannski sá að ég verð að vera í fyrirfram skipulagðri gönguferð sem ég hef greitt vottuðum ferðaþjónustuaðila fyrir?
17.02.2011 at 21:43 #719890Ég skoðaði kastara hjá Benna í gær og leist mjög vel á. Það eina sem ég er að velta fyrir mér er að alternatorinn þarf að puða, því það eru 170w í hverjum kastara. Hvernig eru alternatorar að ráða við allt þetta? Er með Ram, sem er þú væntanlega með stóran alternator, en hver er reynslan?
03.10.2010 at 23:02 #700612Mikið rétt, fundurinn er í Mörkinni 6 hjá Ferðafélagi Íslands.
03.10.2010 at 15:32 #700608Annaðkvöld verður Snævarr Guðmundsson með kynningu á sprungukortaverkefninu, í höfuðstöðvum 4X4. ´
Hvet fólk til að mæta og kynna sér verkefnið.
26.08.2010 at 10:04 #700600Komið þið sæl öll.
Ég þakka Skúla fyrir góðan pistil hér að ofan. Ég get staðfest fyrir hönd þeirra sem að þessu standa, að verkefnið er vel á veg komið. Því er ekki síst að þakka ötulu starfi Snævarrs Guðmundssonar, starfsmanns verkefnisins, sem auk þess að nema landfræði við HÍ, með jarðfræðikortagerð að sérsviði (áhersla á jöklakort) er þekkingarbrunnur og mikill reynslubolti í fjallamennsku.
Við Snævarr hittum á góðviðriskafla um daginn og flugum yfir Langjökul fyrsta daginn, Hofsjökul þann næsta og Vatnajökul síðast. Snævarr hefur byggt kortlagningu sprungusvæðanna meðal annars á gerfihnattamyndum ásamt gögnum frá raunvísindastofnun háskólans, og síðan lagst í mikla vinnu við myndatöku til þess að hafa sem gleggsta mynd af aðstæðum eins og þær eru nú.
Skemmst er frá því að segja að sprungukort fyrir Langjökul eru nánast tilbúin, einnig kort af Snæfellsjökli. Vatnajökulskort eru vel á veg komin. Sjálfur hef ég ekki mikið komið að þessu nema fluginu.
Hugsunin bak við þessi kort er sú að þetta séu viðbótarupplýsingar fyrir ferðalanga. Þau ein og sér geta aldrei komið í stað hyggjuvits og varkárni. Hins vegar er það trú okkar sem komum að þessu, og það er býsna stór hópur fagfólks og áhugafólks með mikla þekkingu á ýmsum aðskiljanlegum sviðum, að nota megi upplýsingar sem koma á sprungukortum sem viðmiðun við leiðaval. Förin sjálf er og verður alltaf á ábyrgð ferðalangsins, en því meiri upplýsingar sem við fáum við undirbúninginn, því öruggara ætti ferðalagið vonandi að geta orðið.
Ég var í hópnum sem var á Langjökli, 30. janúar sl. Mikið er vinnandi til að koma sem frekast er unnt í veg fyrir að fleiri þurfi að standa í slíkum sporum. Hugmynd að þessu verkefni fæddist ekki löngu eftir slysið, og er mikið ánægjuefni hve vel á veg það er komið.Hér eru tenglar inná myndbönd sem ég tók í flugferðunum yfir jöklana. Best er að velja 720p eða hærri upplausn, en vert að geta þess að öllu betri myndir eru notaðar við kortagerðina. Þetta er bara hliðarafurð mín.
[url:2qm9d3o5]http://www.youtube.com/watch?v=T8Gw8CSmVH0[/url:2qm9d3o5]
[url:2qm9d3o5]http://www.youtube.com/watch?v=L1IljT0yluc[/url:2qm9d3o5]
[url:2qm9d3o5]http://www.youtube.com/watch?v=EhGwnmn0HrA[/url:2qm9d3o5]
Kv,
Lalli.
04.05.2010 at 18:22 #692698Kannski della, en er hægt að nota öskuna úr eldgosinu góða sem sandblásturssand?
15.04.2010 at 00:31 #690668[quote="Atli":2huuq4px]Vitið þið afhverju þarf tugi manna í Reykjavík til að stjórna gosum og flóðum út á landi?[/quote:2huuq4px]
Ætli það þyrfti ekki meira en tugi manna, sama hvar þeir væru staddir, til að stjórna gosinu. Flóðið lætur ekkert sérlega vel að stjórn heldur. Ertu með ráð?
03.04.2010 at 15:12 #688974[quote="lafsi":1cde3va2]…það var hverjum manni með fullu viti ljóst að þarna var engin sérstök hætta á ferðum gossvæðið breiddist ekkert út svo heita megi, og algerlega fráleitt að rýma jökulinn eins og hann leggur sig…
skyldi ég fá sms með´hótunum núna[/quote:1cde3va2]
Þá má með sanni segja að jarðfræðingar séu ekki með fullu viti. Sannleikurinn er sá að þeir höfðu ekki hugmynd um að ný sprunga væri að opnast, hvað þá hvar það gæti gerst. Það má vera að einhverjir ferðamenn séu það forspáir að vita þegar jörðin opnast að það muni ekki breiðast út, en því miður eru ekki allir þeim gáfum gæddir þrátt fyrir áralangt nám í jarðfræði og áratuga reynslu af hegðun eldfjalla.
Að sjálfsögðu er öllum heimilt að gagnrýna björgunarsveitir. Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna menn ættu að fá hótanir í formi SMS, eða einhverju öðru. Mér finnst umræðan oft hérna í upphrópunarstíl og harma það. Útgangspunkturinn er sá, að mínu viti, að björgunarsveitirnar eru að vinna þarna eftir sinni sannfæringu og að heilindum. Auðvitað gerist það alltaf að menn verða sér til minnkunar, á það jafnvel um björgunarsveitarmenn (ekki sveitirnar sem heild), lögregluþjóna og ferðamenn. Auðvitað reynir á þolrif manna þarna. Það er eðlilegt.
Setjum okkur í spor okkar, ef við skipulegðum ferð með 44" lágmarksstærð. Það mættu nokkrir 33" jeppar sem yrðu óðir yfir því að mega ekki fara með. Þetta væri frjálst land. Svo festu þeir sig. Hvað myndir þú gera? Skilja þá eftir bjargarlausa? Nei, auðviðað myndum við draga þá uppúr festunni og segja þeim að snúa við. Þá yrðu þeir óðir og segðu þetta frjálst land…. Þetta er í stórum dráttum það sem björgunarsveitir mega búa við.
Sýnum þeim smá snefil af skilningi og virðingu.
03.04.2010 at 11:56 #688956Ekki reynir maður að mótmæla pósti sem settur er inn af svona rökfestu, en get þess að ég er enn meðlimur í 4X4 þrátt fyrir að eitt sinn svínaði á mig jeppi.
03.04.2010 at 11:34 #688952Ágæt saga, en verður ekki til þess að ég fordæmi björgunarsveitamenn eða lögreglu á gosstöðvunum. Alls staðar eru til svartir sauðir, líka í lögreglu (að því gefnu að sagan sé rétt, en við höfum aðra hliðina eingöngu).
Hins vegar hef ég vissa samúð með þeim sem starfa þarna uppfrá. Fólk er ennþá að lenda í vandræðum vegna forheimsku og vanbúnaðar, og þá er ætlast til þess að því sé bjargað. Það hlýtur að fara í taugarnar á mönnum að horfa á eftir svona fólki, vitandi að það stefnir í vandræði. Við getum gefið okkur að ef allir hefðu ferðast af skynsemi (eins og mikill meirihluti hefur gert, en ekki allir) þyrfti ekki björgunarsveitir og lögreglu á staðinn.
Mikið er ég hræddur um að þessir fáu, háværu og óvarkáru myndu baula ef enginn nennti að bjarga þeim þegar þeir færu sér að voða.p.s. Ég er ekki í björgunarsveit, en ber mikla virðingu fyrir starfi þeirra.
03.04.2010 at 10:24 #688632Er ekki enn lokað fyrir bíla upp frá Skógum?
update:
Sá svarið á Vísi, en vegurinn var opnaður sem flóttaleið eftir að óveður brast á. Las það út úr fréttinni að vegurinn væri lokaður.
03.04.2010 at 10:13 #688948Mig langar aðeins að tjá mig um þetta.
Ég fór á jökulinn um daginn, og það fyrsta sem ég tók eftir var hversu mikil bjartsýni ríkti í fólki. Bjartsýni með að komast á hvaða farartæki sem er að gosinu. Econoline á of litlum dekkjum, fullur af fólki, sat fastur uppá jökli, búinn að brjóta drifbúnað. Þar var beðið eftir illmennunum í björgunarsveitinni. Fjórhjól sátu föst á jöklinum, og svo má ekki gleyma fjöldanum af göngugörpum sem voru eins og þeir gerðu ráð fyrir að fá far í bíl niður aftur.
Mikill meirihluti ferðalanga var til fyrirmyndar og umgengust þeir eldstöðina af virðingu. Örfáir voru sér hreinlega til skammar (í augum okkar hinna) með fíflagangi á bjargbrún og uppstillingum undir funheitum klettum sem gátu hrunið hvenær sem var. Það er eins og alltaf, fámennur minnihluti besservissera og sérfræðinga með áhættugenið sem ekki var til friðs. Ég frétti frá fyrstu hendi af virðulegum fjölskyldumanni á sextugsaldri sem öskraði á lögregluna að þetta væri frjálst land, og gaf henni svo ,,fokkmerki", þegar hann var beðinn að víkja af staðnum rétt eftir að seinni sprungan opnaðist. Á þetta horfðu björgunarsveitarmenn, sem að sjálfsögðu hefðu farið til björgunar ef þessi kurteisi maður hefði farið sér að voða. Maðurinn fór svo um leið og hætt var að tala við hann. Hann vann (að eigin áliti).
Þetta snýst allt um heilbrigða skynsemi. EKKI stolt. Því miður eru það alltaf einhverjir sem fyllast reiði þegar þeir eru beðnir að víkja, og misskilja það sem einhvers konar yfirgang. Þeir skulu sko ekki ,,tapa" fyrir einhverjum björgunarsveitarmanni sem hefur ekki ,,vald" til að reka hann í burtu. Málið er samt örlítið flóknara en það. Þessir sömu björgunarsveitarmenn eru kannski að koma í veg fyrir að þeir þurfi sjálfir að vaða eld og brennistein eftir hinum tapsára snillingi þegar hann er búinn að klúðra sér á hugrakkan hátt og sér enga aðra leið út en að hætta að bölva björgunarsveitinni og bíða þægur.
Óskandi væri að allir gætu skilið (99% vita það nú þegar) að það er ekki illmennska sem býr að baki þegar fólk er beðið að fara sér ekki að voða.
Náttúran verður ekki grimmari en í eldgosi. Það er hálf skrítið að standa og horfa á svona hamfarir, ekki þýðir að gala ,,umhverfismat" eða reyna að gera eitthvað. Gagnvart svona stendur maðurinn algerlega bjargarlaus og getur ekkert gert. Kannski það fari í skapið á fólki…
29.02.2008 at 15:26 #615602Hefur einhver reynslu af Warn VTC (V-twin compressor) dælunum sem Bílabúð Benna er að selja?
Á að dæla 566 lítrum á mínútu án álags og tæplega 230 lítrum miðað við 90 psi.
Max 100 psi.
Hljómar vel, en hefur einhver reynslu?
25.11.2007 at 11:42 #573176Ólsarinn segir að það sé sektað við 94 kílómetra hraða. Er það ekki misskilningur, því þegar lögum var breytt síðast voru vikmörkin lækkuð úr 10 í 5 kílómetra á klst. Það segir að enginn sektarskali er til fyrr en hraðinn er orðinn meira en 5 kílómetra yfir hámarkshraða (mældur eitthvað meiri þó og búið að draga 3% skekkju frá).
Þetta hefur mér skilist, þ.e. skv. nýju vikmörkunum er ekki sektað fyrr en á 96…
Correct me if I’m wrong.
25.03.2007 at 15:30 #585834Ford var að koma fram með nýtt snjóbræðslukerfi í 6,4 lítra Powerstroke.
Sjá hér:http://www.forddoctorsdts.com/wms/3kslk999wLL.mpg
Ekkert sérlega falleg hljóð í nýjum bíl.
Einnig smá lesning hér:
http://www.businessweek.com/ap/financia … 0P0K80.htm
-
AuthorReplies