Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.09.2013 at 23:39 #378943
Takk fyrir flotta sýningu
ég fór í dag til að skoða dýrðina, það sem ég var hrifnastur af hvað það var lítið af stöðluðum bílum þarna, þarna voru margir sérvisku snillingar á ferð með mjög frumleg og skemmtileg verkefni í bland við alls kyns ofurtrukka.
ég held að allir hafi fengið eitthvað fyrir sinn snúð, og dásamlegt hvað menn voru óhræddir við að sýna þarna hálfkláruð verkefni sem vöktu mikla eftirtekt.ég þakka öllum þeim sem komu að þessu fyrir frábært starf fyrir hönd minnar fjölskyldu sem skemmti sér vel þarna jafnt börn sem fullorðnir.
m.b.k.
Ólafur Ragnarsson
17.05.2013 at 15:05 #756127mig langaði bara aðeins að vekja þennan þráð aftur
eru einhverjar reynslusögur komnar af 6,4 ford vélinni eða þá nýju vélinni
14.05.2013 at 23:52 #226094Sælir
ég er með hobby 560 sem ég er að velta fyrir mér að loftpúðavæða, ég er lítið reyndur í þessum vísindum, og nenni heldur ekki að finna upp hjólið sem margir eru búnir að gera.
Er ekki einhver sem gæti leyft mér að skoða hjá sér vagninn sem er með vel heppnaða breitingu á þessu.
kv Ólafur
husheild@gmail.com
s 8565040
14.05.2013 at 23:41 #765681Ég endaði á að selja vinafólki vagninn á 600 staðgreitt,
sennilega frekar lágt verð, en ég held að báðir aðilar séu þokkalega sáttir,
Ég þakka svörin
kv Ólafur
30.04.2013 at 00:52 #226017Sælir spekingar.
Ég á coleman santafe 10 fet árg 2000 sem ég ætla að selja, með sólarsellu og markisu og einhverjum hliðum utan á það.
draslið í nokkuð góðu standi og lítur vel út.ég er búinn að skoða á netinu hvað er til sölu og sé eiginlega ekkert sambærilegt.
eru einhverjir hér sem geta ráðlagt mér hvað væri eðlilegt ásett verð á svona.
best væri að aðeins þeir myndu svara sem hafa einhverja þekkingu á svona vögnum
m. fyrirfram þökk
mbk Ólafur
03.02.2013 at 16:36 #763281sammála með auglýsingarnar,
einnig verð ég að vera sammála því að það var til vansa að loka á skrif manna sem voru ekki í félaginu,
Jeppaspjallið er að mestu tekið yfir með skemmtilega breytingaþræði og annað slíkt, annað sem ég hef tekið eftir á jeppaspjallinu sem er held ég öllum opið að ég verð ekki var við neitt skítkast á þeirri síðu frekar en á 4×4
sem segir manni það helst að jeppamenn og konur séu heilt yfir frekar kúltiverað fólk,
Ég fylgist einnig með síðum tengdum hestamönnum og þar logar allt í illmælgi, svívirðingum og dónaskap og virðist engu skipta hver á í hlut þar.
en það þarf litlar breytingar að gera til að gera þennan vef öflugri, Ég vil bara hvetja menn að setja inn myndir og lýsingar á þeim verkefnum sem þeir eru að vinna í , það er það sem gefur þessum vef gildi.
Og svo fjölfötlun mín þegar tölvur eru annars vegar, mér gengur skelfilega að setja inn myndir hér, síðast kom bara alltaf melding á að myndirnar væru of stórar, alveg sama hvaða smælki ég dró fram.
Og svo í blálokin vil ég þakka þeim fyrir sem lagt hafa á sig mikla vinnu í vefnefnd, ferðanefnd skálanefnd og öllum þeim öðrum störfum sem unnin eru á vegum félagsins,sumir eru að leggja mikið af mörkum til að gera þetta starf öflugrakv Ólafur
31.12.2012 at 20:00 #762037Já kjölur snjólaus að heita megi, Það er svona rétt í kring um hveravelli sem fer að koma snjór.
kv Ólafur
31.12.2012 at 01:00 #225251Ég fór á hveravelli frá Gullfossi og inn í þjófadali.
Greiðfært er fyrir flesta jeppa á hveravelli í dag en þungt færi inn í þjófadali.
Ótrúlega lítið snjóað á þessu svæði, og nánast autt alla leið að Gíslaskála
31.12.2012 at 00:54 #762019Takk fyrir þetta
það eru fínar myndir og upplýsingar um hann á jeppaspjallinu, ég held að þetta hljóti að vera einn af 5 flottustu jeppum á landinu, hrikalega verklegur.
ég skora á eiganda hans að henda inn myndum af breytingaferlinu ef eitthvað er til, gott fyrir okkur draumóra mennina að skoða þetta
kv Óli
30.12.2012 at 19:03 #225247Sælir,
Ég hef séð á götunni nokkrum sinnum svartan defender á að ég held 49″ dekkjum, einhver flottasti jeppi sem ég hef séð á götunni.Getur einhver frætt mig um það hvernig hann er útbúinn, hvaða hásingar eru undir honum og hvaða vél,
kv Óli
25.12.2012 at 00:47 #761881ég get verið sammála því að í öllum tilfellum sé heppilegra að vera á hægri akgrein ef þu ætlar á fyrstu beygju út úr hringtorgi.
En hitt kemur mér mjög á óvart ef maður sem keyrir á hægri akkgrein og ætlar framhjá útgangi geti verið í rétti, þetta var mér í það minnsta ekki kennt í meiraprófi.
Ég ítreka að ég er sammála því að maður ætti yfirleitt að vera á hægri akgrein ef maður ætla út á fyrstu beygju, en samkvæmt þeim upplýsingum sem ég sá hér á undan er talað um meginreglu en ekki skýr lög, og þar að auki er einhvers staðar talað um held ég að innri hringur á alltaf réttinn út úr hringtorgi, svo mér finnst þetta nu ekki kýrskýrt.
En vélin í jeppanum var fjandi spræk, ég fer ekki ofan af því
23.12.2012 at 09:40 #761861eitt sem ég þarf að bæta við.
Mig langar samt mikið að vita hvaða mótor er í þessum hilux, klárlega dísill og ótrúlega sprækur,
samt frekar ólíklegt að eigandinn fari að fræða mig um bílinn sinn svona til sömu tíðar og ég drulla yfir aksturslagið hjá honum, hehehe.
gleðileg jól
23.12.2012 at 09:38 #761859auðvitað er heppilegra að fara inn á ytri akrein ef þu ætlar út á fyrsta útgangi, og ég geri ég það reyndar oftast.
en þetta skipti var ég á innri og það liggur ljóst fyrir að innri akrein á alltaf réttinn út.
það sem var meginmálið hjá mér að á svona bíl 44" breittum eiga menn ekki að keyra á 110 innanbæar og með slíkum látum í hringtorgum að bíllinn nánast sleppi hjólum.
Og aftur fullyrði ég að þessi ágæti ökumaður hafi fengið í það minnsta 30 manns til að hugsa að svona tæki ætti ekki heima í umferðinni.
kv Ólafur
22.12.2012 at 22:07 #225220ég var á leið frá byko í kópavogi í átt að hafnarfirði og keyrði eftir Reykjanesbraut, þegar æðir fram úr mér gamall hilux jeppi á mikilli siglingu, sikk sakkandi á milli akreina að ryðjast fram úr bílum á 44″ dekkjum þetta var bíll sem var örugglega í breytingu hann var með mislitar hurðar og svarta brettakanta en í grunninn var hann grár og mig minnir að hurðar á honum hafi verið bæði rauðar og hvítar og kastarar á grind aftan á honum sem vísuðu aftur.
Aftur að sögunni, síðan lendum við á ljósum í átt að keflavík og lendi ég við hliðina á honum, þegar hann tekur af stað veiti ég því athygli að hann er óvenju sprækur og sé miðað við reykinn að þetta er dísell, ( langar að vita hvað vél þetta var)Nema bara það að ég held svo sem leið liggur á innri akrein inn í hringtorgið við n1 í lækjargötu og ætla að beygja inn lækjargötuna og með stefnuljós á , kemur þessi jeppi æðandi inni í hringtorgið á mikilli siglingu og í veg fyrir mig á ytri akrein, Vegna þess að ég var að veita honum athygli og fylgdist með honum sérstaklega gat ég afstýrt því að hann keyrði hreinlega yfir mig, og var ég þá á jeppa sjálfur.
Á þessum jeppa var ungur maður við stýrið og bíllinn merktur einhverju jeppagengi sem ég man alls ekki hvað var, stóð á hurðinni.ég var bara að vona að viðkomandi jeppaáhugamaður lesi þetta og sjái á þessu að svona jeppakynning fyrir fólk sem ekki hefur skilning eða áhuga á þessum tækjum, sé síður æskileg. Ég gæti trúað að nokkrir sem voru á ferð þarna til sömu tíðar og ég hugsuðu með sér að svona tæki ættu alls ekki að vera í umferðinni.
En nu hætti ég þessu tuði og segi gleðilega hátið
18.12.2012 at 22:09 #761643ágæt framsetning hjá Jóni G,
Hér á vefnum gæti þess vegna verið sér liður, þar sem menn legðu fram spurningar í einhverjar vikur og svo yrði því safnað samn og fróðari menn reyndu að gera mat úr þessu sem og öðru sem þeim dytti í hug og boðuðu til fundar.
gæti verið þokkaleg fjáröflun, ég er í það minnsta til í að leggja í púkkið,
kveðja Ólafur
16.12.2012 at 16:19 #761635Mér sýnist þetta vera blanda af því að vera þokkalegur járnsmiður, vandvirkur og svo hafa þekkingu á hvernig best sé að gera þetta.
F4x4 gæti lagað síðasta atriðið
kv Ólafur
16.12.2012 at 09:42 #761629Ég velti stundum fyrir mér hvað sé fagmaður í þessum geira.
Nú þekki ég marga sem legið hafa í þessu af miklum áhuga undanfarin ár og áratugi og prófað sig áfram með allan fjandann, og vita orðið helling um hvað gengur og hvað er betra en annað. Kallast þeir fagmenn?Ég leyfi mér líka að halda því fram að ég hafi töluvert meiri þekkingu á þessu heldur en meðal bifvélavirkinn.
kallast þeir fagmenn í þessu. Þá á ég við þann þátt sem kemur að efnis gæðum, og málmsmíði allri.Ég sæi fyrir mér að nokkrir gamlir hundar í bransanum myndu bera saman bækur sínar og setja saman efni sem kynnt yrði fyrir minna þjálfuðum mönnum í þessu. Það væri hægt að kalla þetta fræðslufund frekar en námskeið ef það hljómar eitthvað betur. Gæti verið meira að segja frekar lítið undirbúið, umræðufundur þar sem menn skiptust á skoðunum og spyrðu spurninga
hvert sem formið yrði þá teldi ég þetta skemmtilega tilraun,
Ég er næsta viss um að til að viðhalda skemmtilegri jeppamenningu hér á landi þurfa fleiri að koma að þessu heldur en þeir sem geta með vissu kallað sig fagmenn í þessu.Svo er hægt að gera þetta eins og alltaf hefur verið gert, maður byrjar bara og svo þegar maður strandar þá notar maður það úrræði að hringja í vin
kv Ólafur
15.12.2012 at 01:43 #225170Góða kveldið.
Ég er í þeim sporum að vera nokkuð hagur á járn og töluverðan áhuga á að smíða mér öflugan fjallabíl sjálfur fljótlega, það sem háir mér helst í þessum draumum mínum er að ég hef enga reynslu af jeppabreytingum, einhverja þekkingu þó lítil sé og mikið upp á með mörg praktísk atriði sem flestir jeppagrúskarar vita og þekkja.
Þess vegna fór ég að velta því fyrir mér hvort það væri margir í svipaðri stöðu og væri því hægt að skipuleggja einhvers konar kynningu eða námskeið á vegum f4x4 sem myndi kosta bara eitthvað x á mann, og færi yfir helstu þætti , svo sem eins og frágang á loftpúðafjöðrun, forlink , úrhleypibúnað og svo fjöldamarg annað sem þarf að vita.
Nú ef allir aðrir en ég vita þetta bara allt saman upp á 10 þá verð ég bara að lesa mér til og leyta ráða hjá góðum mönnum þegar ég fer af stað.bara smá pæling
12.10.2012 at 23:04 #758865takk fyrir greinargóðar upplýsingar,
Niðurstaða mín er því sú að þetta er miklu betri bílar heldur en almennt er talað um meðal þeirra sem hafa ekki komið nálægt þessum bílum.
Þetta er sennilega álitlegur kostur fyrir þá sem langar að breyta bíl og reka til fjallaferða en eyða ekki of miklu í þetta.
kveðja Óli
10.10.2012 at 22:20 #758857þetta eru fínar upplýsingar.
ástæða þess að ég fór að velta þessu fyrir mér, var einmitt að ég sá gráan musso á 38 minnir mig koma í bæinn á sunnudag í fylgd fleiri bíla með olíukálf aftaní.Mig minnir að hann hafi verið með 4×4 límmiða Það hefur kannski verið þinn Logi.
Fór því að velta fyrir mér hvort sniðug kaup væru í þessu, þeir eru til nokkrir á ágætu verðismá spurningar í viðbót.
hvað með ryðsækni
frágangur á rafmagni er hann þokkalegur
hverjir selja helst varahluti í hann fyrir utan Benna, og hvað með verð almennt á hlutum í hannannart takk fyrir það sem komið er
kveðja Ólafur
-
AuthorReplies