Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.03.2013 at 20:46 #760985
sælir,
veit ekki alveg hvort þetta rati í réttan dálk, en hér kemur þetta samt.
hvernig er það, væri ekki tilvalið og nauðsynlegt að kynna starfið betur og aftur fyrir almenningi?
Var að skoða myndband á youtube sem var gert 1994 og sýnt í sjónvarpi og mér finnst það skila sér vel.
Væri ekki hugmynd að nútímavæða svona mynd og fá hana sýnda í sjónvarpi á primetime, á slæmri íslensku?Þetta er myndin sem ég var að horfa á:
[url:1jc7c3sa]http://www.youtube.com/watch?v=TV-Cyat6EXI[/url:1jc7c3sa]Í dag er líklega öldin önnur og menn ekki alviljugir til að gera mikið í sjálboðavinnu. Hvað ætli kosti að gera um 30 min. mynd um starf félagsins og hagsmunamál. Væri jafnvel möguleiki á að fá afnot af myndum félagsmanna án endurgjalds.
Þetta er hugmynd sem mér langar að varpa fram, og ég held að það gæti skipt miklu máli fyrir félagið að fá almennigsálit okkur í hag.bestu kveðjur
Markús
11.02.2010 at 21:17 #210678Sælir,
er að fara norður til Akureyrar með bílakerru á laugardag ( 13 febrúar ), ef einhverjum vantar að flytja bíl norður fyrir lítinn pening.
Get tekið allt að 3 tonna bíl.
Hafið samband fyrir föstudagskvöld 12 febrúar.
kv.
Markús
849-2256
07.05.2009 at 22:52 #647146fór aðeins á youtube og fann þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=hkh2AVh30e4
reynið að bakka þessu
17.01.2009 at 06:49 #637108Það mætti halda að það væri eitthver að reyna að smíða sér jeppa, samansuða úr allskonar hlutum sem er stolið.
Fylgjast með, ef menn sjá eitthvað afbrigðilegt á ferð sem líkist jeppakv.
Markús
14.11.2008 at 18:05 #632764sem betur fer kanski…..
Hélt að allir JEEP væru bilaðir. En það gæti nú aldrei gerst…… hehehee
kv.
Markús
14.11.2008 at 16:42 #203200sælir,
svo virðist sem að http://www.jeepiceland.com/ sé lokuð, veit einhver hvort það sé tímabundið eða?
(kanski bara allir JEEP bilaðir í skúrnum) hehehe
kv
Markús
14.09.2008 at 09:05 #629326Sælir,
smíðaði Benni ekki einhvern bíl hérna um árið, minnir að hann hafi verið kallaður Extreme og var rauður.
Fékk hann ekki skráningu?
Veit einhver hvað varð svo um þennan bíl?kv.
Markús
12.07.2008 at 11:45 #202659eða hverjir selja Wildcat dekk. Hef verið að leita að svona dekkjum, vantar 2 stk.
kv.
Markús
01.03.2008 at 17:12 #614034Við erum búnir að mæla Crank sensor og allt í lagi.
Búið að skipta um háspennnukefli.
Búið að skipta um ALLT varðandi kveikjuna.
Eina sem við þannig eigum eftir er að fá aðra tölvu til að ath hvort það sé hún.Hann drepur ekki á sér í akstri, startar en gefur ekki neista þegar drepið er á þegar heitur. allt í fínu lagi þegar kaldur.
ég prufa að hringja í Kjartan.
Takk fyrir góðar ábendingar
Markús
28.02.2008 at 19:13 #614020Jæja þá erum við búnir að athuga nánast allt, og mæla, og allt er í lagi, finnum bara ekki bilunina.
Skynjarar eru í lagi.
Kveikjuheilinn er í lagi.
Kveikja og allt sem því við kemur skipt út fyrir nýtt.er ekki einhver sem gæti verið gáfaðari en við og komið með góða vísbendingu um hvað gæti verið bilað/ónýtt?
Eða bara selja í varahluti???
14.02.2008 at 21:25 #614190búinn að kvitta.
Markús
14.02.2008 at 21:04 #614016það er búið að skipta um háspennukefli, og líka kíkja á svissinn.
jeppesen: manstu hvaða skynjari þetta var?
13.02.2008 at 17:03 #201858Jæja nú vantar mig smá hjálp,
er með Cherokee ´96 2,5L ek 170þkm.
Þannig er að þegar hann er orðinn heitur, og drepið er á, startar hann en gefur engan neista. ??? og gefur ekki fyrr enn allt kólnar.
Allt í góðu þegar hann er kaldur.
Er búinn að skipta um allt varðandi kveikju, fór með hann í tölvu, hún sagði kveikjan, þannig að öllu var skipt út.
Mér er að detta í hug einhver skynjari/ nemi ??
með von um hjálp
Markús
01.02.2008 at 21:41 #612454eru ekki líka til yfir 30 orð um snjó á Grænlenzku??
En hvernig er með færðina? Veit einhver hvernig færið er núna?
Væri gaman að vita, við stefnum á Skjalbreið eða jafnvel lengra……
Markús
28.10.2007 at 09:54 #601118Það fer nú ekki mikið fyrir Suburbaninum við hliðina á Lappanum.
kv.
Markús
28.10.2007 at 09:52 #601116Sandur hf á Lapplander C306 sem er 6 hjóla á 49", ef ég man rétt er búið að breyta honum mikið og ku hann vera með 6,9 l TD Ford á pallinum og eitthvað fleira dótarí.
[url=http://www.123.is/album/display.aspx?fn=sms&aid=695718846:38jg75l8][b:38jg75l8]Volvo C306[/b:38jg75l8][/url:38jg75l8]
17.08.2007 at 08:11 #594762er í dag 9,87 dkr, reiknad á gengi dagsins gerir um 123,40 íslenskar. Tannig ad ekki er daninn ad borga mikid minna en vid.
Markús
09.08.2007 at 19:35 #594480Bíljöfur á Smiðjuvegi hefur verið að þjónusta þessar drossíur.
04.08.2007 at 11:27 #594396Það er ekkert mál að fara þetta, Geitlandsáin er ekki mikill farartálmi. En um hana gildir eins og öll önnur vöð, láta skynsemina ráða, skoða vaðið vel og jafnvel vaða yfir fyrst.
Góða ferð
Markús
21.07.2007 at 19:16 #593772Þakka þér fyrir Magnús, þetta verður lítið mál.
Gróf upp gamlar myndir af ferðinni fyrir tæpum 20 árum, fórum inní Setur, sem þá var í smíðum og ætluðum í Þúfuver og í Nýjadal, en urðum að snúa við hjá Hnífá eða Blautukvísl þegar ein áin af mörgum kom í framrúðuna á 38" crusernum hjá Adda bróðir (mynd: https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … 5147/38632)
þorðum ekki að láta súkkuna mína fara yfir, gamli Túni V6 Buick, 1050 Holley ofl. Snerum við og komun niður hjá Tungufelli, fórum svo áfram línuveginn í Hólaskóg. Mjög góður túr.
Þetta var kanski ekkert svo rosalegt eins og er í minningunni, gæjinn náttúrulega bara 17 og á sínum fyrsta jeppa og ALLT ROSALEGT MAÐUR….. hahahahahaGóða ferðahelgi og vonandi skemmta þeir sér vel í Vík.
Kveðja
Markús
-
AuthorReplies