Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.01.2015 at 23:15 #776257
Sælir, ég myndi mæta ef það væri á þeim tíma sem ég er á klakanum, ég líka ekki nógu góður á þessi tæki.
30.11.2012 at 18:23 #761047[quote="Siggi Pálma":2z4x0wn8]Aftengdum í Patrol bremsujafnara sem var hættur að virka, fengum tengi-stykki í Landvélum minnir mig sem við tengdum rörin í, í staðinn fyrir bremsujafnarann. Virkaði fínt á eftir og fengum skoðun á bremsurnar.[/quote:2z4x0wn8]
Já ok, ætla að ath landvélar takk fyrir það. En varstu þá ekki með 50/50 bremsur?
26.11.2012 at 19:38 #225014Sælir
Er svona að láta huga reika en er í lagi að tengja framhjá bremsujafnaranum að aftan á patrol, semsagt að tengja beint frá höfuðdælu og í aftur bremsurnar?
Getur líka einhver kannski frætt mig um hvernig hann virkar, að mér skilst þá eykur hann eða minnkar bremsurnar að aftan eftir því hvað hann er þungur en það eru semsagt 3 rör tengd í hann og það er semsagt 2 rör frá höfuðdælu og að mér skilst á bókinni frá patrol er þetta primary og secondary og svo eitt rör út í hjól, þá er mér spurn afhverju eru 2 rör í hann frá höfuðdælu? Vona að þetta skiljist sem ég er að spurja um…
K.v
Stjáni
31.12.2011 at 16:53 #745667Vel orðað hjá þér Laila.
Sömuleiðis vil ég óska öllum félagsmönnum og öllum jeppaáhugamönnum gleðilegt nýtt ár og farsældar á árinu 2012.
K.v
Stjáni
24.12.2011 at 16:07 #744755Sömuleiðis kæru félagar, Gleðileg Jól..
07.12.2011 at 08:02 #743549Langar að óska ykkur til hamingju með útgáfuna á bók og kvikmynd. Ég er búinn að panta bókina og hlakka mikið til að fá hana í hendurnar. Þakka líka gott boð og mundi koma en er staddur erlendis.
Bkv
Stjáni
19.11.2011 at 23:17 #742011Glæsilegt hjá ykkur, til hamingju.
K.v
Stjáni
14.11.2011 at 17:08 #741667Ég get verið sammála með Þorsteini að cummings er sterkari mótor enda vigtar hann 450kg á meðan að 6.5 er 350kg að mig minnir og ef við lítum á að 2.8td vigtar um 260kg þá erum við að tala um 200kg þyngdaraukningu að framan með að fara í cummings.
Með að auka aflið er mjög auðvelt á 6.5 líka.
Með rafmagnið fer nú alveg eftir því hvort þú sért með mechaniska eða tölvustýrt olíuverk um hversu auðvelt er að tengja.
Hitavandamálið á 6.5 er auðvelt að leysa.
Það er eins og með margt þá fara tvennar sögur með 6.5 en með cummings hefur maður heyrt bara góðar sögur og eru þetta mjög góðir mótorar en ef ég væri virkilega að spá í þessu í dag þá myndi ég fara í 6.6 duramax með allison skiptingu.
Með verð á 6.5td þá datt ég á mjög góðan mótor með skiptingu, rafmagni og tölvum á 350 þús..
13.11.2011 at 21:48 #741661[quote="hagalin":14sqn4aj]Já það væri gaman að kíkja á þetta hjá þér.
Hvað hefur þetta verkefni tekið langan tíma hjá þér frá því að þú byrjaðir???
Þú þurftir að skera úr hvalbaknum, hefði það sloppið ef bíllinn væri boddyhækkaður?[/quote:14sqn4aj]Ég byrjaði á þessu fyrir alvöru í feb-mars að mig minnir og þá tók ég og félaginn minn góða turn í þessu og þetta voru bara nokkrir dagar og þá var mótor og skipting komið ofaní en átti náttúrulega eftir að ganga frá öllu. Þetta er búið að taka dáldið langan tíma hjá mér því að ég vinn erlendis og maður hefur ekki alltaf haft tíma í að vera í þessu og líka það að ég er að breyta honum fyrir stærri dekk líka og bæta eitt og annað. En ég býst við að ná í númerinn í lok Nóv eða miðjan Des.
Mér var sagt í byrjun að bodyhækkan um 2 tommur og þá ætti þetta að sleppa en það gerði það ekki því að turbínan rakst í AC kassan. Til að það myndi sleppa með svona litla bodyhækkun þá hefði ég þyrft að færa mótorinn framar og þá hefði ég ekki komið fyrir almennum vatnskassa t.d, nema að breyta framendanum aðeins, svo ég ákvað að breyta frekar hvalbaknum til að geta komið fyrir góðum vatnskassa þannig að ég fór í 100mm bodyhækkun og þá slapp þetta allt og á endanum þá hefði ég ekki þurft að taka svona mikið úr hvalbakinum. Enn með því að bodýhækka svona mikið kom bara meiri vinna í að lengja í öllu og hækka þarf stuðara o.s.frv. En það er nóg pláss undir honum núna fyrir aukadót
Þetta er búið að vera hellings vinna en þetta er búið að vera bara gaman því ég hef sjálfur aldrei gert svona æfingar áður þannig að maður er að læra helling í leiðinni á þessu.
13.11.2011 at 20:21 #741657Sæll Kristján
Ég get ekki svarað neinu með 4.2 en ég heyrði einhverstaðar að 4.2 passaði beint ofaní, þyrfti ekkert að breyta mótorpúðum eða svoleiðis, en eins og ég segi þá get ég ekki staðfest það.
Ég er búinn að vera að setja 6.5td ofaní hjá mér, smá loka frágangur eftir. Það eru tvennskonar 6.5 blockir, önnur úr pickup og svo er úr van. Sú sem er úr pickup er með turbínuna hægramegin og túrbínan úr vaninum situr á blockinni á milli heddana. Lalli dísel heitin benti mér að að fara í van 6.5 þar sem að hann sagði að það væri auðveldara að koma henni fyrir, hún er mjórri um sig en úr pickup vegna hún er með öðruvísi eldgreinar.
Það eru allskonar útfærslu um hvernig þú getur gert þetta, þú getur notað 3.0 skiptinguna við 6.5 með kiti eins og er frá þessum t.d http://www.marks4wd.com/products/engine … Diesel.htm ég sjálfur notaði 4l80e og hafði patrol millikassann áfram og fékk Renniverkstæði Ægis til að smíða fyrir mig milliplötu og múffu.
Kostnaðurinn við svona fer rosalega eftir því hvað þú getur gert sjálfur náttúrulega, en það er erfitt að segja því að maður gleymir oft litlu hlutonum eins og boltar, slöngur allskonar hlutir sem maður skiptur um eða þarf að breyta.
Ég nenni nú ekki að skrifa allt niður hérna sem ég er búinn að gera og þurfti að breyta. Þú ert velkominn í kaffi og kíkja á þetta hjá mér og þá get ég sagt þér betur um þetta ef þú vilt. Endilega vertu í bandi.
Hér eru snillingar frá Pólandi sem eru mikið að gera Patrol véla swap http://www.karlowicz4x4.pl/ ágætt að vera með google translate ekki nema að þú kannt pólsku
K.v
Kristján
S:8960712
05.11.2011 at 00:49 #741243Talaðu við þá í Breytir, þeir hafa góða reynslu á þessum 46-54" breytingum.
Gangi þér annars vel með þetta.
Stjáni
11.10.2011 at 17:28 #739341Eigið þið ekki myndir af tækinu??
19.09.2011 at 14:33 #737489Sæll
Í loftinu þá er ARB ofarlega á lista. Breytir, artic trucks, benni eru að selja þær læsingar og kosta um 200þús. Í ameríku kostar framlásinn um 1000 dollara og í þýskalandi um 1200 evrur svo á eftir að flytja þetta inn.
K.v
Stjáni
10.09.2011 at 18:10 #736725Hérna er t.d heill bíll fyrir þig með 6.5 td á 350þús og lítið ekna, veit ekki hvort að hann sé búinn að selja hann…
https://old.f4x4.is/index.php?option=com … 26&t=28193
Það er erfitt að vera svona stöðu eins og þú ert, ef ég segi eins og er þá hef ég aldrei gert þetta áður að smíða aðra vél ofní annan bíl.. ég sagði bara við sjálfan fuckit ég geri þetta, og byrjaði að rífa og leitaði hjálpar hjá vinum og hægt og rólega og með nógu mikið að spurningum þá gekk þetta og er komið á loka stig. Það er alltaf einhver sem er til í að hjálpa.
Ekki hugsa of miki… bara framkvæma hehe
K.v
Stjáni
10.09.2011 at 17:48 #736721Sæll
Ef þig langar að eiga og vera á patrolinum þá myndi ég virkilega hugsa út í það að fara í eitthvað annað, 4.2 dísel eða eða fara í einvhern amerískan dísel rock, cummins, chevy eða alla leið duramax.
Ég er einmitt búinn að vera og er að leggja loka höndina á að setja 6.5 td í patrolinn hjá mér og hlakka mig mikið til að taka í hann í vetur. Það fór hedd hjá mér, var með 2.8 td og fékk tilboð upp á 300 og eitthvða þús fyrir nýtt hedd og það var ekki að ræða það að ég ætlaði að eyða þessum pening í kraftleysi. Datt inn á vél með öllu, rafkerfi, skiptingu og góðri 6.5 dísel vél á um 350 þús.
Það er bara hvað viltu gera og hvað geturu gert sjálfur….
K.v
Stjáni
03.09.2011 at 08:17 #735209Sælir
Ég hringdi í IH fyrir þverstífuna á aftan og voru þeir að selja gúmmíin sér og var það svipað verð og fyrir polyurethanið hjá stál og stonsum. Spurning með hinna stífurna??
K.v
Stjáni
22.08.2011 at 14:27 #735199[quote="RunarGests":1l6p8l1z]Er þetta mikið ódýrara en orginal gúmíin?[/quote:1l6p8l1z]
T.d í þverstífuna í patrolinn þá var það sama verð um 7500 kall setið. En eins og margir bentu mér á þá eru þær sterkari og henta betur breyttum bílum, ég hef enga reynslu á þeim en ætla að prófa þær..
K.v
Stjáni
18.08.2011 at 23:53 #735383[quote="villi":3radntkn]Sæll aftur. Googlaði þetta og í tveimur þráðum sem ég fann lýsti bilunin sér eins og hjá mér og bilunin var í báðum tilvikum bensíndælan. Þegar að þú talar um rauða o2 skynjara þá man ég að mínir voru svona riðbrúnir þegar ég tók þá úr. Hvar mæla menn með að kaupa bensíndælu í svona bíl? Er ekki viss um að ég þori að bjalla í umboðið og fá upp verð, hef grun um að það verði allavega annar handleggurinn
Kv Villi[/quote:3radntkn]
Sæll
Ég myndi prófa að bjalla í umboðið, Ford eru búnir að lækka verðið á varahlutum allverulega, ég var að kaupa hjólalegu um daginn og kostaði hún um 70þús fyrir um 1.5 ári síðan en kostar í dag 40þús úr umboðinu.
K.v
Stjáni
17.08.2011 at 23:11 #735195[quote="hbs":2uj4732r]Sælir, hvar eru þessar fóðringar seldar???[/quote:2uj4732r]
Stál og stansar eru til dæmis með þær, veit ekki um neina aðra.
K.v
Stjáni
17.08.2011 at 14:06 #735191Sæll
Takk fyrir svarið, er einmitt búinn að heyra það sem þú ert að segja. Ég ætla að prófa þær.
K.v
Stjáni
-
AuthorReplies