Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.02.2014 at 05:34 #451862
Sælir.
Ég á til svona hásingakobó undir þenna bíl ef þú vilt, d44 og Crysler 9.25. Það er meira að segja búið að breita framhásingunni fyrir lokubúnað.
ef þú hefur áhuga þá er númerið hjá mér 868 9065.
kv. Ragnar Karl
03.02.2011 at 22:37 #718362já Benidikt þetta þarf að vera ansi gott ef maður á að útdeila 250 ameríku peningum fyrir stykkið. Kemur kannski út á sléttu ef þessir krossar myndu bjarga einu öxlapari eða svo. Ég er nú þegar kominn með eitt par sem skemdist aftir að krossin tók tryllinginn…
Sæll Smári. Gaman að vita af þér vinur… ég er staddur í smá millibilsástandi með faratæki. Ég er búinnað vera á Ram 1500 síðustu þrjú árinn eða svo, bara svona til að svala Fjallaþörfinni meðan súkkan er í steraferlinu. Súkkan er annars inní skúr í Hveró í góðu yfirlæti, Þar gerist alltof lítið en þó aðeins smá nudd stundum og stundum. Er reyndar búin að velta bílnum einu sinni í breitingarferlinu (suðurlandssjálftinn 2008 setti hana á hliðina).
Myndir koma ekki hér inná þennan vef frekar en annað frá manni.
Það væri frekar að ég skrippi austur og kláraði að smíða bílinn og renndi svo á honum í hlaðið hjá þér til að sýna þér hann heldur en reyna að setja inn myndir af honum. Sennilega yrði ég fljótari að klára bílinn en setja inn nokkrar myndir.kv. Ragnar Karl
01.02.2011 at 21:46 #217182Sælir.
Er einhver hérna sem notast við hjöruliði frá CTM racing? Er aukastyrkurinn til staðar í þessu dóti og er þar af leiðandi penningana virði?
Kv. Ragnar Karl
Ps.. Þessi síða okkar, sem ég áður unni svo dátt, er andstyggileg léleg og leiðinleg orðinn. Allavega svona meðal tölvukunnáttumanni. Því er ver og miður
23.01.2011 at 18:06 #716842Ég man vel eftir þessum myndum.
Þetta var til á VHS einhverntíma þegar ég var í foreldrahúsum en ég tel líkurnar á því að ég finni þær frekar littla.
Ég skal gera leit af þessum myndum tvem næst þegar ég kíki til gamlasettsinns, það er aldrey að vita hvað háaloftið hefur að geyma.kv. Ragnar Karl
ps. Eru ekki lýkur á að þetta sé til í myndasafni sjónvarpsins?
30.08.2010 at 19:47 #214243Sælir og blessaðir félagar.
Það var brotist inní Jeppann minn sem er Dodge Ram 1500 árg. 96. Fyrir utan Iðnskólann í Reykjavík einhverntíman á tímabilinu 23 til 30 ágúst. Afturhlerinn á pallhúsinu var spenntur upp og þar var reynt að taka drullutjakkinn en þeir höfðu aðeins af að spenna upp eina festingu af tvem sem héldu honum svo þeir hafa snúið sér að skóflunni og brúkuðu hana til að brjóa rúðurnar afturí bílnum og komast þannig inní hann. Inní bíl hefur legið svo mikið við að kveikja ljós og opna hanskahólfið að inniljósið var brotið og sömu örlög hlaut hanskahólfið. Glerbrotin voru vel og vandlega útbreidd um allan bíl. Af pallinum sakna ég vöðlana minna svo og rauðs kassa með tappaviðgerðasetti í sem konan gaf mér í jólagjöf fyrir einhverjum árum.
Innan úr bíl var tekið; fjölsviðsmælir (sem hefur fylgt mér lengi), prufulampi, loftmæla(tvö stykki) en annan þeirra hef ég átt lengur en ég hef haft bílpróf og er hann mér því mjög kær, Loftslangan með krana og mæli, Talstöð, strappar, lyklar 17,19 og 3/8, skrúfjárn plús og mínus járn, einnig voru í honum varahlutir sem ég var búin að kaupa fyrir næstu skoðun, Demparagúmí og flauta. Einnig hvarf úr honum NMT símtólið af Storno gerð. Þetta er allavega það sem ég veit að var tekið og ég geri mér grein fyrir því að þetta eru ekki mikil verðmæti en fyrir mér eru þetta mikil verðmæti.
Ef einhver getur gefið mér upplýsingar um hvar dótið er niðurkomið þá endilega hafið samband eða þá að gerandinn sé að lesa þetta þá endilega hafðu samband og ég skal kaupa af þér allt dótið aftur.
Ragnar Karl Gústafsson 868 9065
07.09.2009 at 16:42 #206303Hvar get ég nálgast, á þessum blessaða vef, listan yfir afslætti sem veittir eru félagsmönnum. Er að fara með bílinn í skoðun og vildi athuga hvor stofnunin gefur afslátt til félagsmanna.
Kv. Ragnar Karl
07.01.2009 at 23:03 #636660Hvaða árgerð er bíllin og hvaða skifting er í honum?
Er þetta Power Stroke 7.3?Ég var að nota breitan Econline í vinnuni sem að lét svona, blikkaði O.D. ljósinu og gíraði sig upp og niður.
Hraðamælirinn fyrir skiftinguna er ofaná kúluin á afturhásinguni og les hann á krans sem boltaður er á Carrierin. Þessi lestur reyndist ekki réttur og lét bíllin því illa. Ekki man ég hvort neminn var ónítur eða drifið hafi verið í ólagi.Kv. Ragnar Karl
23.12.2008 at 20:33 #635188Ég skal smíða svona handa þér fyrir einhverja híru.
Eftir þínu eða mínu höfði.Síminn hjá mér er 868 9065 Ragnar Karl
10.02.2008 at 21:34 #613568Sæll Stefán..
Sko!!! FLJÓTLEGA er mjög afstæt hugtak.
Svo mörg voru þau orð.
kv. Ragnar
09.02.2008 at 19:43 #201828Sælir.
Hvernig var aftur hersluaðferðin við að herða saman efri og neðri spindla á dana 44 framdrifi?
Ausið nú úr Urðarbruninnum..
kv. Ragnar Karl
30.01.2008 at 22:24 #611394Ragnar Karl Gústafsson
X-5708
BE 759
Bíllinn er 74 árgerð 289cid og það er búðið að kaupa á hana "strípur úr áli,, C4 sjálfbíttari og 20 millikassi, 44 og 9" með lok,lok og læs. 38" til 44" dekk. Léttasti Broncoinn á landinu fyrir núverandi breytingu og verður það vonandi áfram eftir þessa breitingatörn.
Kv. Ragnar Karl
05.06.2007 at 23:22 #591946Sæll Brynjar.
Dana 20 úr Ford bronco passa. Stóri Bronko fram til 1991 eða 92 kom með C6 sjálfbíttara (eftir það kom AOD) en aftan á þeim kom svo 203 kassi (sem er sídrifs kassi en það er lítið mál að breita því) Einhverjir komu með 205 en hann er úr steypustáli og er töluvert þyngri en 203 kassin ef þú ert að eltast við kílóin.
Gírkassin sem kom í stóra bronko er NP453 og var 4gíra algjör klettur og ídial box í jeppa en 1gírinn er 6.69:1 (sama hlutfall og í pickup bílnum)
C4 var í framleiðslu frá 1964 til 1981C4 og C6 skiptingarnar eru allveg eins að aftan (gæti þó verið munur á fjölda rilla í outpout skaftinu) munurinn er bara lengdin á skiptingunum en C6 er talsvert lengri.
Gírhlutföll eru þau sömu (1gír 2.46 2gír 1.46 3gír 1.00) en það er til C6 3-speed wide ratio. 1gírinn er þá 2.71 og annar 1.56 Hún væri því heppilegri í jéppa.
Ég verð þó að mæla móti því að þú notir C6 í þennan létta bíl C4 er allveg nó ef þú ert að nota 302 mótorinn.Ef þú ert að setja EFI mótor í þá er það ekki spurning um annað en að setja AOD aftan á hana.
Svona fyrir forvitnissakir þá verð ég að spyrja hvaða 302 mótor er þetta sem á að fara í hjá þér? Árgerð og aukahlutir?
Ágæt í bili, góða skemmtun. Ragnar Karl
23.03.2007 at 00:05 #585752Í Raminum 96 er 12 ventla mótor sem er skráður 160 hestöfl sem útleggjast sem 117 kw. við 2200 sn á min. En togið er í hámarki við 1600 sn á min og er þá 550Nm.
kv. Ragnar Karl
19.02.2007 at 22:31 #580934Takk takk Skúli Þú er snillingur. Þetta er alger snild. Vaðandi Vodka stemari. Þarna er hver ofur-slagarinn á eftir öðrum.
Þessu verður dúndrað í steriogræjunum í skúrnum, samfara slípirokknum og rafsuðu suðinu.Kv Ragnar Karl.
19.02.2007 at 20:08 #580930Skítt með dekkin,, hvar kemst ég yfir tónlistina sem er spiluð undir myndbandinu!!!!!!!
Maður nær sér varla niður á jörðina aftur.
05.02.2007 at 15:17 #578748Sæll Stebbi.
ég ættla að biðja þig um að vera ekkert að mæta með neinar áfengar veigar í Atkvarfið,, það endar bara í einhverju ruggli sjáðu til. ,,sæktu nú stóra slípirokkinn hans föður þíns og legðu á endilangt"
svoleiðis ruggl má bara ekki gerast.Annars er hérna svolítið skemmtilegt grúsk: [img:1yai6e7p]http://http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=carmembers/4295[/img:1yai6e7p]
Það er gaman að þessu.. Bjall í þig þegar rafkerfisvinnan byrjar.
Kv. Ragnar
19.01.2007 at 09:15 #576230Ég skil þig þannig að þú viljir sjóða mismunadrifi saman.
Ef þú ert að tala um að sjóða saman tregðulás (snigil eða diska) þá þekki ég ekki til, því miður. En ef þú ert bara með mismunadrifið á borðinu fyrir framan þig eða í kúlunni undir jéppanum þá,,,
Ég hef séð þetta í örfáum útfærslum, ein er að sjóða saman þrjár rilur með 90 gráðu millibili á bæði mismunadrifstannhjólinn, svoleiðis sá ég það í torfærugrindini hjá Gísla G. Jónssyni.
Hin klassíska er að sjóða einfaldlega saman mismunadrifstannhjólin og öxultanhjólin, samtals átta stuttir strengir.
Reyndu að verða þér út um iðnaðarhreinsi eða fituhreinsi til að þrífa vel undir suðurnar. Ef þú ert að sjóða þetta undir bílnum þá ekki sjóða allt draslið saman í einum rikk þá stútarðu pakkdósunum úr hita og legunum, en reyndu að hafa strauminn á vélini í hærri kantinum. Einangraðu eins og þú getur legurnar fyrir suðu lús með t.d. álpappír. Og að lokum ekki tengja jarðsambandið í geggnum legu.Annars ef þú ert með diskalás þá myndi ég prófa að skipta um olíu á drifinu og athuga hvort hann virki ekki aðeins betur.
Góðar ljósboga-stundir Hjölli. Kv. Ragnar Karl
03.12.2006 at 22:17 #199091Góðir félagar!!
sudurlandsvegur.is
Hér er verið að safna undirskriftum til stuðnings tvöföldunar á Suðurlandsvegi.
Við vitum það öll að þetta er einhver þarfasta samgöngubót á Íslandi í dag.
Kveðja
Ragnar Karl
18.11.2006 at 11:38 #568626Sælir.
Fyrir stuttu var mér tjáð að það er minna frostþol á díselolíu sem kemur með vor og sumarskipunum eða rétt um 0 til -1. Frostþol á díselolíu sem flutt er til landsins með haust og vetrarskipum er talsvert bætt eða um -15 til -18gr minnir mig. Þetta þýðir að olían sem við fáum til landsins á veturnar er dýrari fyrir olíufélögin en þau standa straum af kostnaði vegna aukningar á frostþoli. Það er meðal annara ástæðna fyrir því að þegar olíugjaldið var sett á var það gert miðsumars,, með það að markmiði að menn myndu ekki hamstra 😉
Skipagasolíuna (marindisel) er ekki þörf á að blanda með bætiefnum til aukningar á frostþoli vegna þessa að olían er yfirleitt geymd í síðu eða botntönkum skipa og sjórinn sem umleikur skipið er jú aldrey fyrir neða frostmark.
Skipagasið hinsvegar er vaxríkara en diselolían, en við 0 gráður á Celsius fellur vaxið.Kv Ragnar Karl
10.11.2006 at 15:17 #567298Stefán Stefánsson!!!!!!
Að heira til þín,
Hvað heldurð að pabbi þinn segði ef hann læsi þennan þráð?
-
AuthorReplies