Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.03.2014 at 00:11 #453790
Logi gerði nú sitt besta, símasamband við menn var ekki upp á það besta á þessu svæði sem við vorum á, Logi reyndi að ná sambandi við mig áður en ég komst í símasamband sá það á skilaboðum að ég hefði misst af símtali, ég meina menn vissu ekki hvar einstakir hópar voru í hádeginu í dag.. hvað þá einhver sem er staðsettur í Reykjavík
annars var þetta flott ferð, fyrir utan að færið hefði mátt vera aðeins betra svo að minni bílar hefðu komist hjálparlaust yfir, 44″ bílar voru í fullu fangi með sjálfa sig í þessu færi sem var, botnlaus sykur
Annars gekk ótrúlega vel að ná Econoline upp , miklu betur en maður þorði að vona, miðað við hvað þurfti lítið í viðbót til þess að hann færi á hliðina.
en ég þakka bara fyrir skemmtilega ferð þó erfið hafi verið
08.03.2014 at 01:42 #453761Fjallagengið kom niður á bakkaflöt um 23 leytið, færið var mjög erfitt yfirferðar, allir bílar komust heilir til byggða, mikill snjór í kringum miðjuna, púður með skel ofaná
25.01.2014 at 19:11 #445079Sítónar á flestum rásum sem ég veit um sem eru notaðar hér á íslandi eru með sítóna undir 136hz, einstaka rásir með ofar
28.12.2013 at 02:13 #442551Mér finnst að það eigi að gæta hófs í svona hækkunum, gott og vel, 2000kr er ekki rosaleg upphæð, hinsvegar er eins og Bjarki segir, gríðarlega dýrt orðið að gista í ræningjaskálunum upp í Landmannalaugum og öðrum skálum sem FÍ eiga, hefur einmitt verið smá sem ýtir á eftir manni að gista í setrinu að verðið þar er hæfilegt, vona bara að menn stilli öllum verðhækkunum upp í Setri í hóf
22.12.2013 at 01:49 #442283Eitt sem ég tek eftir er að síðan er þung í keyrslu, þegar maður er með 100mbit ljósleiðara en hún er samt lengi að opnast, lengi að opna myndir í myndagallerí, þá finnst mér eitthvað vera skrýtið , 5 sekúndur að opna næstu myndi í gallerí ef maður er að fletta, það er eitthvað óeðlilegt við það
20.12.2013 at 14:37 #442070Ég er með HX370 vertex stöð sem handstöð, Vertex VX2200 sem bilstöð og svo Amatör stöð sem backup bílstöð , sem hefur komið sér vel, í stórferðinni síðast þá brotnaði hja mer loftnet á miðjum vatnajökli þannig ég missti aðra stöðina út, Handstöð hefur ekki mikla drægni þannig ég hafði þó aðra bílstöð til að nota , VX370 stöðin er fín og er ekkert svo hræðilega dýr
17.12.2013 at 15:24 #441883Tími til að leiðrétta færslur á náttúrulega að vera óendanlegur, ekkert meira pirrandi að geta ekki leiðrétt eða breytt því sem maður hefur sett inn, sérstaklega í söluþráðum , aðal ástæðan fyrir því að maður noti önnur spjallborð meira
17.12.2013 at 00:39 #441864Myndagalleri innsetning er orðin mun betri, hinsvegar finnst mer eitt vanta, finnst vanta að það standi undir myndunum með litlum stöfum tildæmis „2 umsagnir“ ef það eru umsagnir við myndirnar, þannig maður gæti séð án þess að fletta í gegnum allar myndirnar sinar hvort einhver væri buin að commenta á þær, einhver spyr spurningar og fær kannski aldrei svar því maður ser ekki að það sé buið að skrifa eitthvað við myndina
20.11.2013 at 17:56 #438849SSD er nátturulega mikið betra í svona notkun, enda engir hreyfanlegir hlutir í þeim og hægt að fá svona diska á ágætis verðum , ekki stórir diskar sem fást á minni peninginn en maður þarf ekki mikið pláss fyrir stýrikerfið og GPS forrit+kort , þolir mun betur hristing og minni hætta á skemmdum
08.06.2013 at 00:49 #766453Annars finnst mér rás 45 ekkert vera skárra að nota í svona atvinnutengt, bara fá sér rás undir svona starfsemi
03.06.2013 at 10:54 #766221Sagði aldrei að landslagið væri eitthvað leiðinlegt, bara leiðinlegt að keyra þetta nema það sé allt á kafi í snjó þarna
30.05.2013 at 18:38 #766213Þúsund vatna leið er líka bara ekkert skemmtileg leið , fínt að fara þarna á veturna til að komast í snjó stutt frá borginni, en annars er þetta ekkert skemmtilegt að fara
28.05.2013 at 00:31 #766181nei spjallborðið á að sjá um að formata myndirnar rétt, spjallborðið sem jeppaspjallið notar það lætur allar myndirnar sjást, en þetta spjallborð klippir bara helmingin af myndinni út svo hún passi á síðuna
27.05.2013 at 11:30 #766177Yfirleitt þegar ég set inn myndir hér í þræði , eins og í söluþráð og svona þá koma myndirnar ekki heilar, forumið minnkar ekki myndirnar sjálft eins og tildæmis jeppaspjalls forumið, þannig það vantar yfirleitt helmingin af myndinni sem maður setur inn beint af facebook
26.05.2013 at 10:34 #742483Ekkert verið gert, að minnsta kosti verið dauður í núna 2 ár eða eitthvað þessi sendir sem er frekar slæmt þar sem þetta er eiginlega mikilvægasti endurvarpin sem F4x4 á , þar sem maður gæti talað með honum um stóran hluta suðurlands og til reykjavíkur , hinir endurvarparnir nýtast mun minna allavega hérna á suðvestur horninu
einstaka tilfelli þar sem 58 nýtist , en 46 væri mjög gott að fá í gagnið
18.05.2013 at 11:18 #766081það er strákur á selfossi sem á hann í dag, var síðast skoðaður 2005 , hann er ekki afskráður bara úr umferð
spurning hvaða ástandi hann er í dag eða hvort hann sé til yfir höfuð
31.03.2013 at 18:13 #764927hvað er að þessum gömlu góðu? 30þúsund fyrir einhver svaka snúningshné finnst mér vera rosalegt verð.. allur pakkinn í úrhleypibúnaðin hjá mér var ca 40þúsund kall.. loftkista kranar, snúningshné þiltengi og allt sem ég þurfti sem var ekki til staðar í bílnum fyrir.. kosta minnir mig um 2500kr stk þessi standard snúningshné og hafa þau bara verið að virka fínt, ekkert klikkað hjá mér, og þau hafa verið að endast hjá mönnum mörg þúsund km.. svo er maður bara með vara hné ef eitthvað skyldi klikka..
29.03.2013 at 11:04 #764917Hvað kosta þessi hné, hef ekki ennþá lent í neinum vandræðum með þessi venjulegu snúnings hné
Og búin að vera með þau í mörgum aðstæðum og frosti yfir 20 gráður aldrei neitt gerst og eru ódýr
26.03.2013 at 13:48 #764537það er ekkert bara einfaldlega svona.. tækin koma mismunandi stillt frá framleiðanda, fæstir sem pæla eitthvað í hvernig þetta er stillt , það þarf að gefa út einhverja stillingu sem allir geta stillt tækin sín á, ég get alveg keyrt og ratað eftir tækinu hjá mér. þó ég hafi ekki vitað um format á punktunum sem aðrir voru að nota , enda kemur það bara upp þegar menn þurfa vera gefa staðsetningu sína, bæði tækin mín voru stillt á sekúndur , ég hafði ekkert átt við þær stillingar og búin að fara í helling af ferðum með þessum tækjum og aldrei hefur þetta skipt neinu máli fyrr en nú þegar maður gaf upp staðsetningu , sem var reyndar ekki tengt þessum vandræðum þarna á jöklinum heldur á öðrum stað á jöklinum þegar 2 úr hópnum okkar fóru til að aðstoða annan hóp við að sjóða eitthvað í einum bíl, og þeir þurftu að finna okkur aftur, gaf upp staðsetningu en þeir enduðu einhverjum nokkur hundruð metra frá okkur , þá reyndi annar í hópnum að gefa upp staðsetningu og hans tæki var líka stillt á sek
held það séu ekki margir sem eru að ferðast um hálendið sem eru með virkni gps alveg upp á 100% og þekkja muninn á þessum mínútum og sekundum og því því menn einfaldlega þurfa þess ekki, nóg að vita bara hvernig tækið á að vera stillt og þá getur maður keyrt eftir ferlum og gefið upp staðsetningu sína þannig að aðrir skilji hvar maður er staddur ef maður lendir í vandræðum eða maður þurfi að gefa upp staðsetningu sína af einhverjum öðrum ástæðum
26.03.2013 at 12:58 #764533Held að þetta hafi ekki endilega verið vankunnátta á gps tæki, margir voru að lenda í því að vera með tækin rangt stillt miðað við hina, það vantar að hafa einhvern staðal sem menn koma sér saman um að nota bara hvernig tækin eru kvörðuð, hvort það eru mínútur eða sekúndur eða hvað það er, margir sem nota tækin bara eins og þau koma default og spá ekki í öðru, svo eru menn að gefa upp staðsetningar á sig og það getur munað kílómetra þessvegna á staðsetningu
eins og hefur verið sagt hér í öðrum þræði, þá þurfa F4x4 og Landsbjörg og fleiri félög að koma sér saman um hvaða kvörðun menn nota og gefa það út , svo menn séu ekki að gefa upp rangar staðsetningar eða stimpla inn rangar staðsetningar í tækið sitt og svo finnast þeir kannski eftir einhvern tíma einhverja hundruð metra frá þeirri staðsetningu sem þeir töldu sig vera á
-
AuthorReplies