Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.03.2010 at 11:33 #687994
Sælir.
Já þetta er mjög undarlegt allt saman. Ég fór inn í Landmannalaugar um helgina og þurfti svosem ekkert að keyra á veginum ([i:2atjhmim]sem er jú harðlokaður[/i:2atjhmim]) vegna þess að allt var gaddfreðið og rennifæri um allt á fínum snjó. Fólk verður semsagt bara að aka við hliðina á vegunum sem búið er að loka því það [u:2atjhmim]má[/u:2atjhmim] keyra á snævi þakinni og frosinni jörð, ekki satt???.
Kv: Kátur.
05.10.2009 at 22:41 #643838Sælir.
Ég er búinn að prófa báðar þessar týpur og þær virkuðu bara báðar alveg jafn vel.
Ég er með yaesu núna og hef ekkert að kvarta yfir henni, hefur alltaf virkað mjög vel þannig að ef verðmunurinn er 25000 kall finnst mér þetta ekki nein spurning.
Getur keypt þér fjóra kassa af bjór fyrir mismuninn.Kv: kátur
16.04.2009 at 07:00 #645730Hér er líka ein dæla sem virkar vel.
[url=http://cgi.ebay.com/12v-1-5-gal-air-compressor-Puma_W0QQitemZ350190204352QQcmdZViewItemQQptZBI_Farm_Supplies?hash=item350190204352&_trksid=p3286.c0.m14&_trkparms=72%3A1205%7C66%3A2%7C65%3A12%7C39%3A1%7C240%3A1318%7C301%3A1%7C293%3A1%7C294%3A50:2lj1q5ps][b:2lj1q5ps]PUMA 12V[/b:2lj1q5ps][/url:2lj1q5ps]
Ég er að prófa eina svona núna og er hún að virka mjög vel, svipað og FINI nema hérna er kútur, pressure switch og allur pakkinn með sem síðan er hægt að taka í sundur til að koma betur fyrir í bílnum.
Kv:Kátur
02.03.2009 at 17:44 #624398Daginn.
i8 galleri hafði samband við mig og vildi nota myndir frá mér. Hún Lóa sem sér um verkefnið spurði mig kurteislega hvort ég vildi leyfa þeim að nota myndirnar og sagði að Ólafur hefði sjálfur valið þær úr fjölda mynda sem hún og Auður hefðu verið búnar að finna. Einnig verður verkið gefið listasafni Íslands, svo varla verður gróðinn nú mikill. Það er magnað hvað fólk getur verið neikvætt og fundið öllu til foráttu en auðvitað er það hvers og eins að dæma hvort það vilji láta myndir í eitthvað svona, ég ætla allavegana að leyfa þeim að nota mínar.
16.02.2009 at 15:55 #641022Færðin var mjög þung Kalli, ekki séns fyrir þig ;o).
Ferðakveðja: Óðinn Vald.
07.07.2008 at 01:42 #625516Ég ók þessa leið um helgina og það er ennþá slatti af snjó þarna. Óbreyttir bílar eiga ekki séns eins og er. Það eru stórar fannir á nokkrum stöðum sem þvera veginn og þurfti ég að setja 38 tommuna í 5 pund til að skríða yfir þær.
Kv: Kátur.
06.05.2008 at 23:17 #622526ALLS ekki fara í PITTSTOPP. Þeir stórskemmdu 38 tommu dekkin mín og þrættu svo fyrir það eins og sprúttsalar.
Kv: Óðinn V.
01.02.2008 at 00:24 #612492Vertu alveg óhræddur við að nota steinolíu út í dieselinn á meðan það er svona kalt, 30-40% er fínt, þá er steinolían farin að auka soldið frostþolið hjá þér og það er fínt að skella einum brúsa af 2T olíu með því.
Annars eru þotumótorar með ekkert ósvipað eldsneytiskerfi og er í dieselbílum. Það er byggð upp pressa með fuel pumpum og svo sér MFCU (mechanical fuel control unit) um að koma eldsneytinu til fuelnozzles sem eru bara spíssar sem sprauta keroseni (steinolíu) inn í brunahólfið. Þannig að ég held að þokkalega góð dieselvél ætti alveg að þola þetta í einhvern tíma.Kv:Kátur.
31.08.2007 at 10:21 #595692Hagalín
Ertu búinn að velja hvaða putti fær að fjúka??
21.12.2006 at 00:26 #572096Sæll Gulur.
Það er eitthvað af myndum af þessu svæði frá síðustu helgi á http://www.utlagar.isKv:Kátur
06.11.2006 at 15:27 #566946Takk Takk.kærlega, þetta svaraði spurningunni.
kv: kátur
06.11.2006 at 14:30 #198902vantar að vita hvort hægt sé að nota 5 gata felgur undan vitara undir explorer. Minnir samt að til sé bæði stór og lítil gatadeiling.
Endilega fræðið mig um þetta snillingarnir ykkar.Kv. Kátur
22.08.2006 at 01:14 #558406Margt býr í kýrhausnum.
06.03.2006 at 18:23 #545658Ég sagði ekkert um það að ég væri eitthvað betri
kv: Kátur.
06.03.2006 at 17:53 #545654Sjö ára börn yrkja betur en 95% af kveðskapnum hérna en ég verð nú að hrósa Jóni Garðari ( izan) fyrir góðan kveðskap. En þið hinir, oft er betur heima setið en af stað farið.
Kv: Kátur
26.02.2006 at 10:55 #544748Vegna þessa skelfilega atburðar á Hofsjökli langar okkur að senda vinum og ættingjum hins látna okkar dýpstu samúðarkveðjur, einnig viljum við senda þeim slasaða innilegar samúðarkveðjur og ósk um góðan bata.
Óðinn og Eyja.
17.02.2006 at 00:37 #543014Pant ekki ferðast með þér.
Það er ekkert grín að draga svona kvikindi af fjöllum, sem yrði of oft.Kv: Kátur.
16.02.2006 at 21:45 #542974Snöfli segir að hægt sé að virkja jarðvarmann með minni náttúruspjöllum en aðstaða ferðafélagsins í Landmannalaugum veldur.
Mér sýnist nú ekki veita af því að fólk skelli sér í bíltúr á Hellisheiðina á t.d. laugardag eða sunnudag og skoði framkvæmdirnar sem þar eru í gangi, alla borpallana, vegina og annað sem er gjörsamlega búið að jarða þetta svæði
Þar er í gangi mjög svipuð aðgerð og orkuveitunni langar svo að ráðast í í Kerlingafjöllum.Kv: Kátur
05.02.2006 at 23:54 #541658Held næstum því alveg pottþétt að þetta fáist í Ellingsen.
Kv: Kátur
02.02.2006 at 00:16 #540988Það hlýtur að vera fýluferð að fara til Danmerkur að sjá evrópumótið, hélt það væri í Sviss.
Kv: Kátur
-
AuthorReplies