Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.04.2009 at 00:02 #645428
Já ég var búinn að velta fyrir mér að setja hjálparpúða með blöðunum. En ég held að ég færi þá frekar yfir í gormavæðingu.
En þar sem ég ætla ekki að fara í neinar svoleiðis framkvæmdir fyrr en kanski í sumar þá var ég að spá í hvernig þetta kæmi út.
Ég mundi jú kippa blöðunum í sundur og smyrja , en var aðallega að velta fyrir mér hvort menn hafi einhverja reynslu af svona lift blöðum með slöppum fjöðrum.
07.04.2009 at 22:54 #204198Sælir/sælar
Ég á gamlan 38″ Cherokee sem er orðinn frekar siginn að aftan , ég var að velta fyrir mér skástu lausninni ( i bili amk ) ….Er ekki bara þolanleg lausn að bæta við lift-blaði og góðum samsláttarpúða? Þessi add-a-leaf blöð eru gefin upp fyrir lyft frá 2″ – 6″
07.04.2009 at 02:41 #645286En ég hef verslað mikið af summit.
Þeir selja allan fjandann , og þ.a.m allskyns adaptera og mótorfestingar fyrir svona swap.
Pottþétt fyrirtæki og hlutirnir koma yfirleitt 2 – 4 dögum eftir að þú pantar.
Kv. Kalli
04.04.2009 at 15:55 #645150Kanski að maður láti bara snífinn vaða í þetta
04.04.2009 at 00:20 #204171Sælir/Sælar.
Nú er ég að velta fyrir mer hvort það sé vesensins virði og hvort ég eigi að tíma að skera/breyta munstri í nánast nýjum Mudder sem er nelgdur og microskorinn.Hvað hafið þið um það að segja ?
Finnanlegur munur eftir að munstri hefur verið breytt , eða ekki vesensins virði ?Þá er ég aðallega að tala um í snjóakstri.
Kv. Kalli
02.04.2009 at 11:53 #644980Um að uppfæra lokið í leiðinni og hafa bæði Fill og Drain plug eins og þarna.
02.04.2009 at 11:52 #644978http://store.summitracing.com/partdetai … toview=sku
Svona eru þeir hjá Summit að selja.
Þetta er aftan á hásinguna , og lokið er fast við þetta.Svo er þetta ekki soðið á heldur "strappað"
Þetta er pæling fyrir þá sem eru að fara að smíða , ekki er þetta beint gefist þó summit séu ódýrir.
Kv. Kalli
31.03.2009 at 23:55 #644806Þá er þetta komið í ljós.
Afstaðan á krossum í framskaftinu var ekki vitlaus.En hinsvegar var ónýtur kross í tvöfalda liðnum.
Kv. Kalli
31.03.2009 at 16:19 #644804að það sé tiltölulega nýbúið að fara í skaftið og "balla" það með einhverjum punktsoðnum skífum utan á skaftið ………………. Það versta við þetta er að mér finnst þetta fara versnandi ( kanski bara ímyndun )
En eins og áður sagði , þá er þetta talsverður skjálfti sem fer alveg þegar ég slæ af …..
En ég held að það sé algjörlega vonlaust að sjá hvernig þetta var upphaflega ( einhverntíman )
En ég fer í það á eftir að taka þetta í sundur og setja saman eftir bestu samvisku. Það verður fróðlegt að vita hvort það verður einhver breyting á skjálfta.
Öll breyting er góð breyting , nánast sama hvort titringurinn eykst eða minkar. Þá er maður amk nokkuð öruggur á að þetta sé það sem er að hrjá þessa elsku.
31.03.2009 at 12:41 #644800Tvöfaldur liður að framan.
Ég prófa að snúa þessu og þá get ég skoðað krossana betur í leiðinni.Æll kíp jú pósted !
Takk fyrir.
Kv. Kalli
31.03.2009 at 09:27 #204144Kannist þið við svoleiðis leiðindi ?
Þetta er dana 30 , og þegar ég er í framdrifinu þá skelfur kvikindið alveg voðalega. Ég á að vísu eftir að skoða krossa betur , en þetta er talsverður skjálfti sem fer svo þegar ég slæ af , verð heldur ekki var við hann þegar ég er bara í afturdrifinu.
Mestur er skjálftinn við átak upp brekkur , lítill á jafnsléttu og enginn eins og ég sagði , þegar ég slæ af.Ég er nýbúinn að kaupa hann , en tók eftir að afstaða á krossum í draglið og framskafti er ekki alveg rétt … þ.e.a.s það þyrfti að draga skaftið úr liðnum og snúa því aðeins og setja aftur saman.
Hversu miklu skiptir það ? Verður maður var við skjálfta ef það munar nokkrum rilum ?Kv. Kalli
29.03.2009 at 13:13 #64469226.03.2009 at 21:12 #644474þú profaðir semsagt að taka í endann á barkanum með töng eða einhverju og toga aðeins meira til að sjá hvort það sé einhver færsla eftir?
Ég er semsagt ekki að meina slaki á vírnum sjálfum , heldur hvort að barkinn kæmist lengra ef þú mundir stilla hann.
Kv. Kalli
26.03.2009 at 10:05 #204113Sælir félagar.
Hefur einhver hér lennt í að viftukúpling bili þannig að spaðinn sé að ofkæla vélina.
Hann nær aldrei að hitna almennilega , ég er búinn að skipta um thermostat. ( 4.3 chevrolet )Reyndar verð ég var við skjálfta í vélinni á x snúning.
Hún er í toppstandi að öllu öðru leyti.Kv. Kalli
26.03.2009 at 03:42 #644470Prófaðu að gefa alveg í frammí húddi og taktu svo í pikkbarkann og ath hvort það sé einhver slaki eftir , þetta er merkilega nauið.
Kv. Kalli
18.03.2009 at 23:57 #643898skoða hvað þeir í ljósboganum eiga til áður en ég kaupi mér kastara, alternator ofl frá einhverjum öðrum.
Kv. Kalli
18.03.2009 at 20:16 #643874Er ekki bara málið að fá sér venjulega dempara í staðin fyrir þessa stillanlegu.
Þeir kosta augun úr !
17.03.2009 at 23:48 #643814Takk fyrir það strákar
17.03.2009 at 15:23 #204051Jæja.
Ég nú er ég kominn á JEEP.
Vagninn heitir Wagoneer ( litli , alveg eins og cherokee ) og er árgerð 1984
38″ , læstur og reyndar með 4.3 chevy í Húddinu.Mig langaði til að spurja ykkur jeep kalla sem hafið verið að panta af netinu hvaða síðu þið mælið með fyrir aukahluti og dót í svona bíl.
Ég hef alltaf notast við Summit , en langar að vita hvort það sé ekki einhver góð og áreiðanleg síða á netinu sem helst sérhæfir sig í JEEP og er með góð merki á góðu verði.
JEEPaKveðja.
Kalli
14.03.2009 at 14:17 #630492Mér finnst iðgjöldin á svona græju vera svínslega há miðað við að það er varla hægt að segja að maður sér tryggður. Fyrir hvað er maður eiginlega að borga ?
Ég skil dónaleg iðgjöld ef menn fá að laumast á þessu innan um aðra umferð eitthvert til að komast á braut ( svo lengi sem menn séu ekki bara á rúntinum )
En mér finnst þetta nú bara jaðra við móðgun
-
AuthorReplies