Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.07.2009 at 22:42 #205141
Sælir.
Veit einhver hér hvort að gömul 7.3 er “ direct bolt in “ í staðin fyrir 6.9 ?Og ef ekki , hver munurinn er þá ?
Kv. Kalli
09.07.2009 at 14:37 #205135Sælir.
Er einhver hér sem veit hvort það gæti gengið ?Mig grunar reyndar að diesel skiptingin passi ekki við bensínvélina …
Einhver sem veit hvernig er best að snúa sér í þessu ?
Mig dauðlangar að setja bensínhák í staðin fyrir grútarbrennarann
05.07.2009 at 21:21 #651160Takk fyrir það.
Góð byrjunKv. Kalli
05.07.2009 at 03:21 #205062Góðan dag.
Eg var að velta fyrir mér hvort einhver hér hefði reynslu af 49″ Irok?Ég er með 49″ Irok á 16.5″ felgum , en ekki nema 16″ Breiðum.
Hvernig hafa þessi dekk verið að koma út , bæði hvað varðar drifgetu og svo hvernig þetta tollir á felgunni?
Verður maður ekki amk að gera einhverjar ráðstafanir í samb. við beadlock eða eitthvað slíkt ?
Nú eru 16.5″ Felgurnar fjandi kónískar og ég er fullur svartsýni yfir að þetta dæmi eigi eftir að ganga að einhverju eða öllu óbreyttu , og langar til að heyra af því og gera viðeigandi ráðstafanir ( $$$ ) Fyrir veturinnOg svo langar mig til að skjóta inn spurningu með breytingu á munstri, er ekki vænlegt til vinnings að skera í stóru kubbana og jafnvel hliðarmunstrið?
Þetta er undir gömlum F350 sem viktar 3.7 – 4 tonn ( 3680 kg á hafnarvog , með ökumanni og 100 lítrum af olíu )
Kv. Karl Hermann
05.07.2009 at 02:03 #651164Uuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu ……………….
HA ?
04.07.2009 at 22:20 #205057Sælir félagar.
Hvar haldið þið að væri best að kaupa það sem þarf í 4-link smíði ?Langar að gorma eða púðavæða gamlan F350
Kv. Kalli
24.06.2009 at 22:17 #648432Guðni.
Mig langar að benda þér á að http://www.summitracing.com selur allt sem þú þarft til að setja 350 beint í lúxinn 😉Getur meiraðsegja notað gírkassann ef þú treystir honum.
Semsagt , alla adaptera til að bolta vél við kassa , mótorfestingu og alle græs.
Ég er búinn að panta mikið af stöffi frá þeim
23.06.2009 at 20:14 #650084Þakka þér , og já ég er sammála því.
Mér finnst nauðsynlegt að menn setji inn hvað var að þegar lausnin er komin.Fínn gagnabanki ef maður lendir í veseni.
Kv. Kalli
23.06.2009 at 16:55 #650080Jæja …
Þá er ég loksins búinn að finna út úr þessu.Þetta var nú bara glóðarkerta relay.
Það small í því , en það er lítill járnhólkur inn í þessu sem á að seglast að pólum og gefa straum á milli.
Hann fór ekki alveg nógu langt.
Komið í lag núna.( Svona fyrir þá sem eru að lenda í svipuðu )
19.06.2009 at 00:38 #650078Sæll.
Já ég var búinn að prófa það nokkuð oft en ekkert gekk.En ég neyðist víst til að skoða þetta á morgun ef það verður sæmilegt veður.
Ekkert varið í að standa í þessu í rigningu.Langar svosem ekkert að spreyja hann í gang , en læt mig kanski hafa það ef hann verður með múður á morgun.
Betra að skoða þetta inni
18.06.2009 at 22:11 #650074Enginn sem hefur lennt í svipuðu ?
18.06.2009 at 19:52 #649814Ebay er rusl.
Ég mundi notast við summit ef ég væri þú
18.06.2009 at 19:51 #204765Góða kvöldið.
Nú er ég að lenda í því að 6.9 diesel kveikjir ekki á glóðarkertum.
Semsagt , ljósið inn í bíl kemur ekki og þ.a.l neitar kagginn að fara í gangHef ekkert skoðað ennþá vegna skítaveðurs , en eruð þið með einhverjar góðar hugmyndir ?
Ég hef svona einhverjar hugmyndir um hvar ég ætla að byrja , en eitthvað sérstakt sem ykkur dettur í hug að prófa?
Kanski einhver góð bílskúrsráð / útilokunaraðferðir sem væri sniðugt að notast við.Þetta er ekki mín sterka hlið þar sem ég hef mest verið með bensínvélar hingað til.
Kv. Kalli
15.06.2009 at 21:22 #649542Svo er nú líka hægt að fá Yukon drif í patrol , og krómstál öxla … 😉
11.06.2009 at 15:01 #648880Prófaðu að smella á " spjallið" hér fyrir ofan.
Þá lúkkar þetta mikið beturKv. Kalli
07.06.2009 at 02:34 #648550Þetta var óneitanlega hughreystandi
06.06.2009 at 19:13 #648546sem hefur reynslu af þessum dekkjum ?
06.06.2009 at 08:53 #204480Sælir félagar.
Mig langaði að fræðast aðeins um 49″ Irok
Er algengt að það sé mikið hopp í þessum dekkjum?
Bíll sem ég var að eignast er nánast ókeyrandi út á vegi vegna hopps eða ballanseringar.
Maður verður ekkert var við þetta í „snattinu“
Skilst að hann hafi ekki alltaf verið svona.
Möguleiki að dekk hafi snúist á felgu einhverntíman sem gæti þá orsakað rugl á ballanseringu ?Hefur gengið ágætlega að ballansera þessi dekk eða er nánast skilda að láta “ Huntera“ þetta ? ( til þess þarf ég að keyra 200km á bílnum svona og þetta er ekki lítið skak sem kemur þegar það byrjar …. )
Og svo , hafa menn verið að skera í þessi dekk, semsagt stóru kubbana og hliðarmunstrið ?
Er það að koma betur út ?
Þetta er undir gömlum F350
Kv. Kalli
22.05.2009 at 22:38 #648060En ég hef verið með 38" TrXus undir Hilux.
Sá bíll var með 8 cyl vél , var áður á mödder hjá mér og kom mjög vel út.
Breytingin við að fara yfir á TrXus var gríðarleg og ég get sagt þér að ég dreif bókstaflega ekki neitt á þeim.
Það var eiginlega alveg merkilegt hvað hann var fatlaður á þessum dekkjum. Þau voru full microskorin , en munstrið fylltist af snjó um leið og maður vogaði sér út fyrir veg. Og maður sat fastur allstaðar. Þetta var svipað og vera í afturdrifinu á mödder.
Kv. Kalli
22.05.2009 at 22:35 #204428Góða kvöldið.
Er einhver hér svo magnaður/mögnuð að hafa keyrt eða átt Rexton og hefur einhverjar reynslusögur af þessum bílum ?Mér finnst þeir lúkka ágætlega og virðast nokkuð massívir
Þessi sem um ræðir er 2005 árg , beinskiptur
Þar sem ég þekki engan sem á eða hefur átt svona bíl , og er hálf smeykur við þá án þess að þekkja til , þá væri ágætt ef einhver getur miðlað reynslu sinni
Ég get hugsanlega fengið svona bíl í skiptum fyrir minn bíl. En langaði að kynna mér þetta svolítið fyrst.
Kv. Kalli
-
AuthorReplies