Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.10.2008 at 00:50 #630694
Ég átti 1992 Pajero 2.5 TDI
Að vísu bara 33" Bíll , en hann stóð fyrir sínu þó hann væri keyrður til tunglsins og aftur til baka.Merkilega duglegir í snjó miðað við það sem maður mundi halda , góð fjöðrun ( að vísu klafar að framan )
Gott að ferðast í þeim. 92 Bíllinn er að vísu með fjaðrandi framsæti en ég hef ekki hugm um hvort 91 er það þó mér finnist það líklegt. Sjálfsagt sami bíllinn.
Eyðslan þolanleg en vinnslan svona varla. Þessi var að vísu mikið keyrður og slit sjálfsagt eftir því , en hreyfði ekki smurolíu.Mín reynsla er að þetta eru áreiðanlegir bílar
Veist svosem ekki hvernig frambúnaður höndlar 38" En afturhásingin ætti að hlæja að því.
Vonandi ertu einhverju nær
Kv. Kalli
06.10.2008 at 19:53 #630608að fá sér bara bílaleiðsögutæki ?
T.d garminÞau eru einföld , innbyggt loftnet , tengjast í sígókveikjara , snertiskjár , hægt að plotta, Og svo er hægt að fá þau með FM sendi og bluetooth fyrir gsm
Hentar ábyggilega fínt fyrir þá sem fara ekki mikið á fjöll í langferðir og er nátturulega snilld í bænum
Bara hugmynd
Kv. Kalli sem á sjálfur Garmin Nuvi 710
05.10.2008 at 11:55 #630510Ég hef ekki skoðað það með runnerinn EN Summit selja adaptera fyrir Hilux SBC
Mótorfestingar og allan pakkann þannig að chevy á nánast að passa beint í , meiraðsegja sbc við Toy skiptingar
Skoðaðu þetta
http://store.summitracing.com/egnsearch … &N=700+115
04.10.2008 at 23:43 #630426110 stk. Þarna kom það
Ég held að 2 naglar í kubb á "öxl" sé tæplega 150 naglarMig langaði nefnilega til að negla aðeins í miðjuna líka.
En ég veit þetta þá.
Kv. Kalli
04.10.2008 at 21:34 #630418En þannig að ég vaaaaaaaaaaaaaði nú úr einu í annað þannig að ég sé ekki að stofna nýjan þráð.
Veit einhver hvaða naglafjöldi er löglegur í 38" Dekk?
04.10.2008 at 21:27 #630436Svona til að svekkja þig aðeins , þá held ég að 33" 2005 Pajero drífi ekki mikið ……………….
En þeir eru skemmtilegir og lúkka flott
04.10.2008 at 21:26 #630434Ég átti Hilux á 33" og ekki breytingarskoðaður og enginn setti útá það.
En ég held hinsvegar að maður megi stækka dekkin um 10% á milli skoðana ( sjálfsagt háð einhverjum takmörkunum )
Og ég er alveg viss um að ég hafi aldrei á æfinni séð 33" bíl sem er breytingarskoðaður
04.10.2008 at 21:16 #630458Tekið af http://www.sniglar.is/read_news.php?news=1473
Torfæruflokkur: Gífuleg fjölgun hefur verið í þessum flokki síðan á síðasta ári (hér eru ekki motocross-keppnismenn, en hjólin á rauðum númerum og því ekki leyfð á öðrum stöðum en í brautum og á einkalandi og þarf því að koma hjólunum á staðinn með bíl /kerru ).
——————————————————————Miðað við þetta þá held ég að þú sért nánast alveg réttlaus , ef ekki bara algjörlega réttlaus. Og í vondum málum í þokkabót ef bíllinn skemmdist.
Bataóskir.
Karl H
04.10.2008 at 20:45 #630416Já þá er það orðið spurning .. halda skelinni eður ei ….
Ég reikna nú samt með því að halda henni.
04.10.2008 at 15:32 #630410Hann fékk krapabað í einhverri ferðinni og blotnaði víst svolítið hressilega ! Held meiraðsegja að eigandinn hafi þurft að skipta um brók eftir baðið 😛
04.10.2008 at 15:31 #630408Nei Agnar , ég sé það á fotki síðunni þinni að þinn hefur líklega verið hvítur.
Ég eignaðist "Blautur" fyrir stuttu síðan og er að dunda mér að finna útúr aukarafkerfinu og merkja öryggi og þessháttar.
En sá einmitt áðan að það eru sverar lagnir aftur í skotti á honum og 80A öryggi í húddinu. Ég prófaði að taka það úr áðan og komst að því að þetta öryggi er einmitt fyrir þennan kapal sem er afturí.
En ég þakka ykkur öllum fyrir góð svör , og þar sem það eru lagnir í skottinu fyrir dælu þá nota ég þær.
Þarf bara að útbúa mér stýristraum frá aukarafkerfinu , úttak einhverrstaðar fyrir loft utan á bílnum og þá er ég góður.Kv. Kalli
04.10.2008 at 15:23 #630402Agnar … ekki var þetta patrolinn sem heitir Blautur núna ?
Kv. Kalli
04.10.2008 at 10:21 #630392Þetta er náttúrulega fáránlega mikil straumnotkun , og fer illa með alternator.
En hvað með staðsetningu í húddi ?
Er það alveg glórulaust ?Þola þær það illa ?
04.10.2008 at 09:26 #203009Sælt veri fólkið.
Mig langaði að spurja ykkur sem hafið notað 12V Loftdælur og beintengt þær í húdd hvernig endingin hefur verið.
Er raki og annað til einhverra vandræða?Eg er búinn að nota leitina til að finna uppl en það er einhvernvegin þannig að það sem ég hef fundið er gamlir þræðir og menn aðallega að ræða hvernig þessar dælur hafa komið út.
Nú er liðinn talsverður tími og ætti að vera komin reynsla á þetta. Það sem mér finnst freistandi við að setja dæluna í húddið er að sjálfsögðu hljóð frá dælunni og lengd á rafmagnsköplum.
Svo langar mig til að spurja útí rafmagnsnotkun á þessum dælum ( FINI )
Eg hef heyrt af því að menn séu að sprengja risastór öryggi ( Hvernig má það vera ? )Og ég ætla að ganni mínu að láta mynd fylgja sem menn voru að reyna að linka á í þessum loftdælu umræðum en sá linkur löngu dauður.
Vonandi virkar þetta
02.10.2008 at 21:33 #630338Já .. það væri gaman að fá almennilegar útskýringar.
Mér finnst þetta vera heldur mikill verðmunur , og það í öfuga átt miðað við það sem áður var búið að lofa.
01.10.2008 at 12:25 #630216Jah. Það er nátturulega til hitaþolið lakk á spreybrúsum.
TD Ford BlueSvo ætti ábyggilega að vera í lagi að nota grillsprey ( þó ég hafi nú aldrei prófað það )
En svart er alltaf gott á svona hluti.
Kv. Kalli
18.09.2008 at 11:53 #629406Og þar með gerðir þú vonandi von á uppl. frá Patrol snillingum að engu.
Kv. Kalli
17.09.2008 at 13:00 #629392Væri einhver hér til í að fræða mig um hvaða þykkt á smurolíu hentar best á þessa bíla. Einnig á drif og kassa
16.09.2008 at 22:36 #629390Þakka þér , og ykkur fyrir uppl.
Nú er ég orðinn stoltur patrol eigandi ( Keypti " Blautur " rétt áðan )
Nú er bara að fara inní skúr og skoða og sjæna
Kv. Kalli
15.09.2008 at 16:07 #629386Pabbi minn er VÍST sterkari en pabbi þinn !
-
AuthorReplies