Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.11.2008 at 14:29 #633378
Ég gleymdi að taka fram að ég er að tala um að skipta út aðalljósunum á bílnum og fá mér "aftermarket"
speglarnir hjá mér eru orðnir frekar slakir og mér finnst ljósin ( t.d lági geislinn ) vera alveg glórulaus.
Og ég var að velta fyrir mér hvaða aftermarket ljós menn eru að taka , eða hjá hverjum.
Þetta eru gömlu kringlóttu ljósin í 91 patrol
——————————————————————Svo væri gaman að vita hvort mönnum finnist það 15 þús króna virði að skipta út glerjunum á stóru 2gja geisla IPF ljósunum og setja gul í staðin ( kosta 15 þús núna hjá benna )
26.11.2008 at 17:21 #633546Það er það eina sem ég get sagt í bili ….
26.11.2008 at 16:12 #633372ég er einmitt að spá í að fá mér ný ljós í patrolinn.
Er reyndar að hugsa um að sleppa HID perum með tilheyrandi og fá mér gular/gull perur í staðin.
En hvort mæla menn með sléttu gleri og riffluðum speglum , eða riffluðum glerjum? Kv. Kalli
26.11.2008 at 16:07 #633540Ég sé ekkert …. grái hvað ?
22.11.2008 at 05:09 #633158Yktur þú ert ýktur snillingur !! Meid mæ dei ! 😀
17.11.2008 at 01:20 #203216og fann nokkur vídjó sem mig langaði að deila með ykkur.
Enda tímir ekki nokkur maður á fjöll eins og staðan er í dag , þannig að þetta verður bara að duga1
Og svo svona í lokin fyrir þá sem vita það ekki , þá er til svolítið sem heitir Patrol VTC og er 4.8 Bensín.
Menn hafa verið að setja túrbínur eða superchargera á þá og þeir virka ROSALEGA ! Væri nú ekki ónýtt að fá eina svoleiðis undir jólatréið !
réði ekki við mig , hér er eitt í viðbót
16.11.2008 at 00:16 #632914Takk fyrir það
Þá skoða ég þetta.
Kv. KalliÚps… átti víst að vera Pajero …
15.11.2008 at 17:24 #632910Þetta eru semsagt ágætir bílar , ágætt að ferðast í þessu og ásættanlegir frúarbílar ef það er horft framhjá eyðslu?
Skil ég þetta rétt ?
Veghljóð, fjöðrun og annað ásættanlegt eða eru þetta bara bóndabílar sem henta fínt í sveitina ?
Kv. Kalli
15.11.2008 at 15:32 #203209Sælir.
Nú er ég að spá í að fá mér 2006 árg af pajero sport.
Mig langar að spurja ykkur sem hafið átt eða keyrt svoleiðis hver ykkar skoðun er á þessum bílum.
T.d samanborið við venjulegan pajero.Þetta er bensín bíll , en eg hef ekki áhyggjur af eyðslunni þannig að það þarf svosem ekkert að vara mig við henni.
Eg er ekki að hugsa þennan bíl í neitt annað en familí bíl
Hver er t.d helsti munurinn á pajero sport og venjulegum pajero fyrir utan þetta augljósa ( útlit )
Áreiðanlegir ? Gott að sitja í og keyra, veghljóð og bara þetta helsta
Ástæðan fyrir kjánalegum spurningum eins og hvernig sé að keyra þetta er einföld…..
Þessi skipti þurfa að ganga nokkuð hratt fyrir sig ef þau eiga að verða , og ég er nýkominn úr aðgerð og get ekki prófað kaggann sjálfur.
Með von um góð svör.
Kv. Kalli
28.10.2008 at 23:41 #631876Nú spyr ég kannski eins og kjáni … en eru sjálfvirkar lokur á þessum bílum ?
Kv. Kalli
21.10.2008 at 23:55 #631502Eftir því sem ég hef lesið þá er allt í lagi að blanda dot3 dot4 og dot 5.1 saman , en ekki dot 5 við neitt af þessu.
Skilst að dot 5.1 sé " silicone based" en ekki hinir.
Kv. Kalli
21.10.2008 at 23:51 #631466Ég þekki einn sem var að lenda í svona , og ekkert fannst að í skoðun.
En svo kom í ljós að þetta var stýrisdempari sem var orðinn lélegur. Spurning hvort þú ert með svoleiðis
20.10.2008 at 00:24 #203087Sælt veri fólkið.
Mig langaði að forvitnast aðeins um þessi dekk sem sumardekk.Sæmilega hringlótt og áreiðanleg ?
Með fyrirfram þökk.
Karl H
14.10.2008 at 13:09 #631128bensín og olíþolnar slöngur.
Ættir að fá þær á nánast öllum verkstæðum.Kv. Karl H
Hér sérðu t.d einhverjar slöngur hjá Landvélum
http://www.landvelar.is/1_vorulisti/01_ … w01314.pdf
10.10.2008 at 02:10 #630894Hmm Já. Ég er einmitt að spá í svona dekkjum sem sumardekk undir 91 Patrol.
Vonandi minna veghljóð en í mödder
Gæti komið vel út á 13" Felgum.
10.10.2008 at 01:58 #630890Eh … var eiginlega full fljótur á mér að koma með þessa spurningu þar sem leitin skilaði helling …
10.10.2008 at 01:56 #203045Gæti einhver hér frætt mig um hvernig 38″ Parnelli Jones eru sem keyrsludekk ?
Drifgeta í snjó skiptir ekki öllu máli , en það væri svosem allt í lagi að láta þær uppl fljóta með ef menn vita
Kv. Kalli
08.10.2008 at 23:51 #630848Mig minnir að það sé ekki hægt.
Best að fara bara í "breyta" og skrifa – Selt – í staðin fyrir textann í auglysingunni
07.10.2008 at 22:22 #630762að enginn ætli að stinga uppá ballenseringu ?
Það borgar sig ekki alltaf að leita of langt yfir skammt.
Þó að hitt séu allt fínar uppástungur , þá mundi ég nú byrja á þessu.Kv. Kalli
07.10.2008 at 08:16 #630698Já ég hef heyrt að þessir bílar eyði frekar miklu.
Í sambandi við eyðsluna þá er lítið annað hægt að gera en að vera með kerti og þræði í lagi , loftsíu , skynjara og þessháttar.
En sparakstur er eitthvað sem þarf að sjálfsögðu að "læra" og hann skiptir mestu máli
Það er kúnst og er misjafnt á milli bíla.
Ég á t.d Octaviu Diesel og samkvæmt aksturstölvu þá kemur best út að taka hana helst aldrei úr 6. gír.
Merkilega mikið tog þar á ferð og maður er ekki að pína hana í brekkum þó maður taki ekki úr 6.
-
AuthorReplies