FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Hörður Guðjónsson

Jón Hörður Guðjónsson

Profile picture of Jón Hörður Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 3 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 360 total)
← 1 … 8 9 10 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 08.06.2006 at 23:47 #554182
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Það er hægt, þú verður samt að taka töluvert af bremsudælunum. Það er lýsing á þessu á:
    .
    http://www.coloradok5.com/d60calipergrind.shtml





    18.05.2006 at 23:41 #552796
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég veit ekki hve mikið það kostar í gegnum Shopusa (sé yfirleitt um mínar tollskýrslur sjálfur).
    .
    En yfirleitt hefur það komið hagkvæmast út fyrir mig að flytja inn mitt dót sjálfur (er nánast hættur að versla hér heima). Það borgar sig samt yfirleitt ekki að fá þetta sent sem hraðsendingu. En þetta er alltaf reikningsdæmi, í örfáum tilfellum borgar sig að versla hér heima.





    18.05.2006 at 10:10 #552790
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Yfirleitt lang hagkvæmast að kaupa þetta hjá http://www.summitracing.com





    12.05.2006 at 09:01 #552162
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Innspíting er mjög skemmtileg en góður blandari getur líka staðið fyrir sínu. Það er bæði hægt að notast við orginal GM innspítingar og ýmsar aftermarket innspítingar.
    .
    Ég var með Edelbrock 750 Quatrajet tor á 350 sbc á Blazer K5 og var mjög ánægður með hann. Nú er hægt að fá tora sem eru sérstaklega hannaðir með tilliti til off road keyrslu (með tilliti til hliðarhalla ofl.).
    .
    Það er hægt að nota Nítró við hvað sem er. Þetta er bara spurning hverju menn eru að leita eftir. Ég sé ekki tilgang með að hafa nítró kerfi í ferðabíl.
    .
    JHG





    12.05.2006 at 08:02 #552158
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    TH700R4 hefur auka gír og mjög lágan fyrsta sem gerir hana mjög skemmtilega. TH700 í orginal formi er of veik fyrir þennan bíl. Það er hægt að fá styrktar TH700 að utan sem eiga að þola hvað sem er. Þær kosta um $1500-$2000.
    .
    Ég myndi samt velja TH400 til að hafa þetta skothelt. Það þarf ansi mikið til að rústa TH400 skiptingu og ég það kæmi mér ekki á óvart að hún væri ekki veikbyggðari en góður trukkakassi.
    .
    JHG





    09.05.2006 at 15:32 #552148
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Þá myndi ég velja Small Block Chevy með góðum blöndung (nema bíllinn sé fyrir með innspítingu). Þú getur örugglega fengið þokkalegan mótor hér heima á 50-80 þús. en annars þá er hægt að fá nýjar vélar beint að utan:
    .
    http://store.summitracing.com/partdetai … toview=sku
    .
    Þessi vél ætti að vera mjög áreiðanleg, og er ódýr. Annars þá er hellingur af vélum á mismunandi verðum, ef þú flettir upp t.d. chevy crate engine í leitarvélina hjá http://www.summitracing.com þá færðu helling af áhugaverðum kostum.
    .
    Ef þú vilt innspítingu þá er hægt að fá 350 með innspítingu sem einfallt er að tengja (user needs only to supply 12V power and fuel) á innan við $5000
    .
    http://store.summitracing.com/partdetai … toview=sku
    .
    Það eru því margir möguleikar sem við chevy kallarnir höfum, bara spurning um hvað við viljum.
    .
    JHG





    09.05.2006 at 13:50 #552144
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Einfaldast er að halda sig við GM fjölskylduna. Ég myndi athuga með 6,5 Turbo Dísel grútarbrennara, eða 6,2 (og fá mér túrbínu síðar).
    .
    Ef þú vilt bensín þá er þetta bara spurning hvað þú treystir þér í flókin skipti og hvað þetta má kosta.
    .
    Auðveldast er að setja aðra small blokk niður, gætir líklegast fengið þokkalega 350 fyrir lítið. Þú getur einnig keypt nýja replacement blokk frá GM fyrir um 1200 USD.
    .
    Ef þú vilt innspítingu þá er einfaldast að nota TBI eða TPI. TBI er einföld og þægileg jeppainnspíting, TPI er þróaðri innspíting er einnig svolítið flóknari.
    .
    LT1 og LS1 eru skemmtilegar vélar með góðar innspítingar. Ég hef grun um að LS1 sé ekki eins skemmtileg í jeppa, án þess að ég hafi neitt fyrir mér í því. Þarna fer flækjustigið að aukast nokkuð.
    .
    Ef þú vilt mikið power þá kemur Big Block sterklega til greina. Getur t.d. fengið 454 HO sem skilar haug af hestum og torki á innan við $5000.
    .
    Síðan kemur big block með innspítingu til greina, þá verður þú að vera tilbúinn að eiga við þá flækju sem henni fylgir. Ef þú treystir þér til þess þá ertu í góðum málum.
    .
    Þér eru því allar leiðir færar, bara spurning um hvað þetta má kosta, hvað markmiðið er og hve hátt flækjustigið má vera.
    .
    JHG





    01.05.2006 at 22:55 #551632
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég er hjartanlega sammála því að skortur á braut afsakar ekki lögbrot. Hef oft heyrt þennan málflutning og aldrei skilið þau rök. Þó það væri komin fullkomin braut þá er ég viss um að hraðaakstur mun ekki hverfa. Að öllum líkindum mun skipulögðum (ólöglegum) götuspyrnum samt fækka.
    .
    Sem dæmi um það að þegar Kvartmíluklúbburinn byrjaði með föstudagsæfingar fyrir nokkrum árum þá snarminnkuðu svokallaðar Grandaspyrnur.
    .
    Ég vona að KK nái að gera þessi plön að veruleika, ekki bara til að draga úr ólöglegum kappastri, heldur líka til að fá meira líf í mótorsport hér á landi.
    .
    JHG





    01.05.2006 at 22:08 #551626
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Auðvitað er reynt að lágmarka tjón. Kvartmíluklúbburinn var samt með opið þrátt fyrir skemmdarverk.
    .
    Það var farið með jarðítu á hraunið fyrir nokkrum árum síðan. Ég man ekki hvort það var fyrir eða eftir þetta slys. Þessir kjánar sem lentu þarna í slysi spyrntu brautina í öfuga átt og eðlilega var ekkert öryggissvæði þeim megin. Það er regla að brautin er spyrnt í eina átt og farið til baka um sérstakan veg.
    .
    Nú orðið eru gerðar miklu harðari kröfur á KK vegna trygginga og öryggismála. Ég veit ekki hvort KK gæti orðið ábyrgir vegna slysa á brautinni sem hugsanlega yrðu ef hún væri opin án eftirlits, en ef fær lögfræðingur gæti náð fram skaðabótakröfu á klúbbinn þá efast ég um að klúbburinn réði við það.
    .
    KK fær stórann sinna rekstrartekna af félagsgjöldum, og þeir sem greiða félagsgjöldin er brot af þeim sem eru í þessum klúbb. Það á það sama við KK og F4x4 að opinberir styrkir eru ekki að þvælast fyrir klúbbnum. Það er því ekki mikið aflögu til að bæta fyrir skemmdarverk.
    .
    Það að félagsmenn í Kvartmíluklúbbnum séu tilbúnir að fórna föstudagskvöldum til að færa allavegana hluta af spyrnum á lokað svæði er mjög virðingarvert (ekki er þetta gert peningana vegna).
    .
    Ég vona því að sem flestir að styrki klúbbinn í þessu, hann hefur verið að gera góða hluti undanfarin ár og þarf á öllum stuðning að halda til að gera enn betur (eins og plön klúbbsins stefna að).
    .
    JHG
    félagi í bæði F4x4 og KK





    01.05.2006 at 19:02 #551620
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Það er ekki alveg sanngjarnt að gagnrýna KK fyrir að loka brautinni. Henni var lokað fyrir mörgum árum vegna ítrekaðra skemmdarverka. Á hverju vori hefur bæði verið mikið viðhald og hreinsun (sumir litu á þetta sem nýja Gufuneshauga). Það er ótrúlegt hvað menn leggja á sig, kapallinn fyrir tímatökubúnaðinn var grafinn upp og skorinn í sundur, skúrinn skotinn í tætlur, kveikt í bílhræji á brautinni ofl. ofl. Það spaugilegasta sem ég hef séð af drasli sem hent var við brautina var uppblásin dúkka til brúka í svefnherbergjum.
    .
    Lögreglan bað svo KK um að hafa brautina opna og KK varð við því (þrátt fyrir aukinn kostnað og vinnu klúbbsins vegna skemmda).
    .
    Síðan tóku einhverjir snillingar uppá því að spyrna brautina í öfuga átt að nóttu til og enduðu útí hrauni. Það var mesta mildi að það skildi ekki verða banaslys. Eftir það var lítið annað hægt en að hafa brautina lokaða, en opna hana reglulega og leyfa mönnum að keyra undir eftirliti.
    .
    JHG





    19.03.2006 at 18:06 #542220
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Það er ekki vitlaust að athuga hvort það sé nokkuð farin pera í bremsuljósi. Lenti í því með 7,3 í 2000 árgerð af F250 að peran í þriðja bremsuljósinu fór og þá startaði hann ekki. Þegar ég var búinn að skipta um hana þá var þetta í lagi.





    21.02.2006 at 15:50 #543822
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ef tryggingafélögin vilja ekki borga ásættanlegt fyrir bílinn þá er bara að krefjast þess að það sé gert við hann.
    .
    Ég lenti í sambærilegu með 20 ára Pontiac, þó hann væri ekki mikið skemmdur þá var markaðsverð á þeim tíma mjög lágt.
    .
    Ég var viðbúinn að mitt tryggingafélag myndi reyna eitthvað svo ég ræddi málið við lögfræðing sem unnið hafði hjá trygginafélagi. Hann sagði mér að þeir reyndu oft að láta menn fallast á að fá borgað út "markaðsverð" en gætu ekki staðið á því ef í hart færi. Þú getur krafist þess að það sé gert við þinn bíl.
    .
    Hef grun um að eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar verji okkur fyrir því.





    23.12.2005 at 14:19 #536776
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    TH350 skiptingarnar voru aðallega tengdar við NP203 og NP208. Ég veit ekki hvort einhverjar voru tengdar við NP205 (gætir þurft milliplötu). Ef NP208 passar þá passar líka NP241 sem er í raun endurbættur NP208.





    22.11.2005 at 20:47 #533416
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ef smurþrýstingur mælist niður í 0 þá er eitthvað að. Líklegast er það pungurinn eða mælirinn en ég myndi vilja vita hvað það er.
    .
    Ég var einu sinni í þessum sporum að smurþrýstingur mældist lágur á 350 chevy mótor. Hann fór samt ekki nálægt núllinu heitur í lausagangi og mældist hærri en hættulegt getur talist. Ég keypti mér mekkanískan mæli til að vita hvað væri að gerast.





    12.10.2005 at 23:01 #529186
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Skemmtilegasti kostur er TH700R4. Það er hinsvegar hætt við að hún lifi ekki góðu lífi fyrir aftan þessa rellu. Ef þú kaupir notaða þá er best að kaupa yngri en 1987 árgerð (var styrkt í kringum 87).
    Þú getur keypt peppaða TH700 skiptingu að utan á ca. 1500 dollar sem ætti að duga.
    Ef það er of mikill kostnaður þá eru það annaðhvort TH350 eða TH400. Svo er bara að nota stóran kæli og góðan mæli :)





    12.10.2005 at 15:47 #529156
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég stórefast um að V6 38" Pajero á orginal hlutföllum hafi eitthvað í 4 lítra Cherokee óbreyttan í ljósaspyrnu. Líklegast hefur ökumaður Cherokee-ins ekki verið að spyrna.

    Ég á m.a. Transam og það er ótrúlegt hve margir eru að spyrna við mann þó maður fari sjálfur ekki yfir 2000 snúninga. Eitt sinn benti kunningi minn mér á að Skoda Favorite var að spyrna við mig, en ég var að dóla af stað. Ef mönnum líður vel með það þá er það ágætt en það verða ótrúlega margar tröllasögur til svona.

    En 2,2 á að geta skilað þér ágætlega áfram með réttum hlutföllum.





    15.09.2005 at 07:58 #526844
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Það getur vel komið fyrir að annaðhvort mælirinn eða pungurinn klikki.

    Því myndi ég tengja mekkanískan olíuþrýsingsmæli í stað pungsins og athuga hvað gerist.

    Þá veistu allavegana hvort það sé mælirinn.





    10.09.2005 at 22:53 #526564
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ef skiptingin er með yfirgír þá myndi ég hugleiða 4.88.

    Ég er með 4.88 í Blazer K5 án yfirgírs og 38" dekkjum og hann er á óþarflega miklum snúning (um 2500) á 100 km. hraða.

    Yfirgírinn myndi lækka snúninginn niður í kringum 2000 sem er mjög gott.





    31.08.2005 at 21:05 #525994
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Líklegast væri þægilegast að setja chevy small block með annaðhvort TBI eða TPI innspítingu. TPI innspítingin er skemmtilegri en líklegast svolítið flóknari.

    Þessar vélar endast mjög vel og ef þær bila þá er ódýrt að fá varahluti í þær.

    Ég held að 6,2/6,5 dísel sé full þung í þennan bíl, en hún ætti að skila honum ágætlega áfram.

    Svo er náttúrulega gamla 3,8 lítra V6 vélin frá Buick. Hún endist vel og eyðir litlu.





    31.08.2005 at 21:00 #525992
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Það er nokkur einföldun að segja að það hafi verið full flókið fyrir kanan að reka álvélar.

    Vandamálið var frekar að það var ekki hægt að nota sama kælivökva á álvél og pottvél.

    Bandaríkin eru landfræðilega nokkuð stór og víða gekk erfiðlega að fá réttan kælivökva. Ef rangur vökvi var notaður þá fylltist vatnskassinn af útfellingum sem endaði með að það sauð á vélinni.

    Ekki löngu eftir að þessi vél kom fram þá hófst hestaflastríðið fyrir alvöru og það var miklu einfaldara og ódýrara að ná miklu afli útúr stærri vél.

    GM hafði nóg af vélum til að velja úr og þessi vél var ekki sú hagkvæmasta á þeim tíma.

    JHG





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 360 total)
← 1 … 8 9 10 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.