Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.01.2007 at 20:13 #573330
Skv. heimasíðu GM þá er Suburban ennþá í framleiðslu, hef ekki hugmynd um hina.
16.12.2006 at 22:16 #571738Eins og var bent á framar í þessum þræði þá voru einhverjir á http://www.live2cruize.com að stæra sig af utanvegaakstri á þessu svæði. Ég efast um að reyndir jeppamenn myndu fara að leika sér á þessu svæði, við eigum að vita betur.
.
En það getur verið erfitt fyrir klúbbinn að ná til þessara manna, oft eru þetta krakkar nýkomnir með prófið sem hlusta hvort sem er ekki á okkur. Við verðum samt að reyna…………
.
JHG
13.12.2006 at 23:59 #571302Hvort sérfræðingar á bakvið skrifborð í ráðuneytum ákveði að ákveðnir bílar falli í ákveðinn notkunarflokk breytir því ekki að þetta eru bara bílar. Þeir hafa sömu getu og aðrir bílar, og oft meiri (t.d. margir með öflugri bremsur). Framleiðandi þessara bíla reynir að selja þá hverjum sem vilja kaupa, og eins og þeir sem hafa séð auglýsingar í amerísku sjónvarpi þá eru þeir ekki sérstaklega markaðssettir sem atvinnubílar.
.
Hér á landi er hinsvegar mjög skekkt mynd. Það helgast meðal annars af kolvitlausum og ósanngjörnum reglum um vörugjald. Það er ekki glóra í því að bílar með stærra sprengirými þurfi að borga hærri prósentu. Er ekki nóg að þeir borgi hærri gjöld en sama hlutfall (eru oft dýrari í innkaupum). Mér finnst eðlilegast að allir bílar falli í sama vörugjaldsflokk, og ef ríkisvaldið vill lækka álögur á atvinnurekstur þá geri það það með skattkerfinu. Ég er allavegana ekki hrifinn af svona neyslustýringu.
.
Mér finnst stundum það viðhorf ríkja að það sé gott á þessa menn, þeir hafi grætt svo mikið á að kaupa bílana. Þeir keyptu þá af því að kolvitlausar reglur gerðu það hagkvæmara. Á svo að leiðrétta það með að koma með aðrar og vitlausari reglur. Af hverju ekki að gera kerfið sanngjarnt og hætta þessari neyslustýringu?
.
En eins skemmtileg umræða um opinber gjöld og reglurgerðir getur verið þá finnst mér það ekki vera aðalatriðið. Mér finnst öryggi á vegum skipta meiru en hve mikið þessi eða hinn borgaði í vörugjald.
.
Eins og margoft hefur verið bent á þá er líklegt að þessi breyting fjölga lestarstjórum og valda aukningu á framúrakstri. Því tel ég að þessi breyting skapi meiri hættu en það sem hún á að leysa.
.
Ég vildi því sjá alla umferð á sama hraða (hvort sem það er 70, 80 eða 90) og er nokk sama þó allir bílar væru takmarkaðir við 110 (þá hafa menn þó aðeins svigrúm til að komast framúr lestarstjórum).
.
JHG, sem á bara bíla með 45% vörugjaldi
13.12.2006 at 08:08 #571256risinn sagði:
.
"Ef að það á að virka að hafa tvo umferðar hraða út á GÓÐU þjóvegunum okkar þá er það mín skoðun að hring vegur 1 þyrfti að vera tvöfaldur alla leið. Því að annars verða enn fleiri slys vegna frammúr aksturs."
.
Ég held að þarna komir þú að miklu leiti að kjarna málsins. Ef þessir ,,stórhættulegu" vörubílar gætu verið á hægri akrein þá skapar það ekki þessa hættu af framúrakstri. Þá væri þetta ekki svo mikið mál.
.
Ég get alveg fallist á að það ætti að takmarka bíla, alla bíla, ég get ekki séð að nokkur hafi við það að gerast að komast í 200 eða 250 hér á landi. Menn yrðu þá að taka þennan búnað úr sambandi þegar þeir fara á erlendar hraðbrautir. En það verður að vera aðeins fyrir ofan hámarkshraða svo til að menn hafi möguleika á framúrakstri (t.d. 110-115).
.
En að ákveðnir bílar (hvort sem að það séu stórir vöruflutningabílar eða pallbílar) eiga að keyra hægar en aðrir þá eykst framúrakstur annarra bíla til muna, og meðan að stærsti hluti vegakerfisins er einfallt þá held ég að þetta auki hættu.
.
JHG
12.12.2006 at 23:48 #571234Hvað fjármálaráðuneytið ákveður að VÖRUGJALDIÐ eigið að vera hátt á ekki að vera grundvöllur fyrir ákvörðunum um hraða.
.
Fornbílar eru í 13% vörugjaldi. Eiga þeir þá líka að keyra hægar? Bílar með undir 2 lítra vél borga lægri vörugjöld en bílar með stærri vél. Mega þá ekki bílar sem borga 45% keyra hraðast? Sama koncept, þú færð það sem að þú borgar fyrir. Það hljóta allir að sjá að þetta gengur ekki upp!
.
Það er ekki hægt að bera þessa bíla saman við venjulega vörubíla. Flestir þessi bílar eru í svipuðum þyngdarflokk og algengir jeppar.
.
Þar sem að framúrakstur mun aukast við þetta þá vil ég meina að þetta minnki umferðaröryggi og er því á móti þessu!
.
JHG, sem á ekki pickup
12.12.2006 at 23:32 #571222Það er nefnilega stórhættulegt að lifa, maður gæti dáið!
12.12.2006 at 23:26 #571218Með sömu rökum mætti setja þessa hraðatakmarkara í alla bíla. Kannski er það góð hugmynd þó ég vildi þá sjá það miðast við aðeins hærri tölu en 90 (110 væri nær lagi, en það getur verið öryggisatriði uppá framúrakstur).
.
Sú löggjöf að þessir bílar megi aðeins keyra á 80 er ekki í neinu samræmi við þessa bíla.
.
Ég má keyra á 90 á mínum fornbíl sem er Blazer k5 á 38" með hásingar og blaðfjaðrir (og hann þolir það vel) en maður á nýjum óbreyttum Letta, Ford eða Mopar má ekki keyra á sama hraða þó aksturseiginleikar og bremsur séu miklu betri.
.
Þessir sömu bílar eru að keyra með almennri umferð í ameríku.
.
Það má vel vera að það sé vont að lenda í árekstri við þungan pickup, en það er jafn vont að lenda í árekstri við svipað þungan Patrol!
.
Ég held að þetta auki slysahættu. Umferð á vegum er oft í kringum 90-100 og það er öruggast ef öll umferð er á sama hraða. Hættan felst vanalega í framúrakstri (fyrir utan ofsaakstur en við erum ekki að fjalla um hann hér). Ef fólksbíll kemur að hóp jeppa (jeppar eru jú hjarðdýr og ferðast í hópum) og hópurinn er allur á 80, og ökumaður fólksbílsins vill vera á 90 þá verður hann að fara framúr. Þar skapast hætta. Ef allir væru á 90 þá kemur þetta ekki til.
.
En ætli þetta sé ekki bara fyrsta skrefið í að allir bílar verði takmarkaðir, eða GPS og GSM tengdir svo það sé hægt að senda okkur sektina í pósti ef við læðumst 6 km yfir hámarkshraða.
.
Stóri bróðir lætur ekki að sér hæða.
.
JHG
22.11.2006 at 23:13 #568902Ég reyni nú yfirleitt að hjálpa þessum greyjum. En mér finnst stundum að það sé gert ráð fyrir því að við hjálpum.
.
Eitt sinn er allt var ófært í bænum þá hafði fjölskyldumeðlimur samband og var í vanda. Ég dreif mig af stað og hafði ekki tíma til að hjálpa ókunnugum (fjöldskyldan fyrst, hinir seinna).
.
Það var litið á mig eins og ég væri að svíkja þá sem ég keyrði framhjá.
.
En spaugilegast fannst mér þegar ég stoppaði áður en í bratta brekku var komið til að setja í drifið. Bíll fyrir aftan mig flautaði og keyrði síðan framúr. Nokkru ofar þá festi viðkomandi sig og varð svolítið kindarlegur þegar ég stoppaði og bauð spottann
.
En hvað málefnið varðar þá trúi ég ekki að þetta séu þroskaðir jeppamenn. Líklegast hafa þetta verið guttar annað hvort á fyrsta jeppanum sínum eða það sem líklegra er, jeppanum hans pabba síns.
.
JHG
19.11.2006 at 19:43 #568300Það er örugglega kælir í vatnskassanum. Að setja aukakæli (og nota líka þann í vatnskassanum) er aukavörn. Flestar skiptingar sem fara gera það vegna hita. Með því að setja aukakæli og hafa mæli á skiptingunni þá ertu í nokkuð góðum málum.
.
Hvort þú þurfir kæli er erfitt að segja. Þú ættir allavegana að setja mæli á skiptinguna þá getur þú allavegana stoppað og sett í Park ef hún fer að hitna.
.
En ég setti bæði kæli og mæli og sá ekki eftir því.
.
JHG
19.11.2006 at 17:30 #568638Ég hef heyrt að nýrri spíssar séu viðkvæmir fyrir ísvara og á einni vél hafi þurft að skipta um alla spíssana vegna ísvara (og það var víst ekki ódýrt).
.
Ég myndi því ráðfæra mig við umboðið áður en ég setti eitthvað annað en díselolíu á nýrra dótið (allt annað með gömlu jálkana).
.
JHG
19.11.2006 at 17:25 #5682964L80 og TH400 er ekki sama skiptingin (þó 4L80 sé víst að nokkru byggði á þeirri gömlu). 4L80 er með yfirgír en TH400 er þriggja þrepa. 4L80 er rafstýrð en TH400 er oldschool.
.
Þar sem að þú ert á þetta nýlegum bíl þá kemur 4L80 sterklega til greina. Það er mögulegt að þú sért með 4L60e en ég myndi veðja á 4L80.
.
Langbest að skríða undir bíl og kíkja, þá veistu hvað þú ert með
.
JHG
19.11.2006 at 01:56 #568292Einfaldast er að sjá þetta á pönnunni. Skoðaðu linkinn hér fyrir neðan og berðu myndirnar saman við þinn bíl.
.
http://www.technicalvideos.com/identify … sion.phtml
.
JHG
17.11.2006 at 15:24 #568284Ég myndi notast Dana 60 að framan og GM 14 bolta fljótandi að aftan.
Hæstu hlutföll sem ég myndi nota er 4.88:1 en ef þú ert með yfirgírsskiptingu þá getur þú farið töluvert neðar.
Svo er spurning hvaða skipting er í bílnum.
Ef hún er þriggja þrepa þá er það örugglega TH400 sem er skotheld skipting.
Ef hún er fjögurra þrepa þá er þetta annað hvort 4L60/TH700R4 eða 4L80.
4L60 og TH700R4 eru ekki þær sterkustu en hægt að gera þær þrælsterkar (á sjálfur eina sem er gefin upp fyrir 600 hp og 600 lb.ft.).
4L80 er nánast TH400 með yfirgír svo hún ætti að standa fyrir sínu.
Sama hvaða skiptingu þú ert með, notaðu stærsta kæli sem þú finnur og hafðu mæli á henni.
JHG
21.08.2006 at 22:08 #558320Ég myndi leita af nýjum high tork startara á ebay. Mig minnir að þeir hefi verið á rúmlega $100 þegar ég skoðaði málið fyrir um ári síðan.
18.08.2006 at 22:30 #558086Ég hef bæði átt beinskiptan og sjálfskiptan jeppa. Hvortveggja hefur sína kosti og galla, en persónulega vel ég sjálfskipt.
.
En fyrir þá sem að velja sjálfskipt þá er mikilvægt að vera með stóran kæli og mæli á skiptinguna.
09.08.2006 at 21:12 #557578Af einhverjum ástæðum hvarf slóðin, en greinina er að finna hér:
.
http://www.cnn.com/2006/TECH/science/08 … index.html
09.08.2006 at 21:10 #198346Við erum alltaf að heyra af allskonar galdratólum og pillum sem minnka eyðslu um 25-30% og auka afl mikið. CNN og Popular Mechanics létu gera smá könnun fyrir sig:
.
http://http://www.cnn.com/2006/TECH/science/08/07/gas.saving.investigation/index.html
.
Einnig hafa opinberir aðilar skoðað ýmsan búnað án þess að nokkur hafi gert það sem hann átti að gera.
.
The U.S. Environmental Protection Agency did not test the same products that we did, but it has checked out more than 100 products that make similar gas-saving claims over the last 30 years and none has worked, according to EPA Administrator Stephen Johnson.
.
„It’s a scam,“ Johnson said.
.
Experts said the best way to squeeze more miles per gallon out of a vehicle is to ensure that tires are inflated properly. They said this simple step can save as much as 10 percent on fuel mileage.
14.06.2006 at 12:46 #554538Bremsudiskar eiga það til að verða skakkir. Áður en ég skipti um diska á mínum þá skalf hann í stýrinu þegar ég bremsaði. Ef ég gaf mér langan tíma til að bremsa (mjög létt ástig) þá fann ég ekkert fyrir þessu. Einnig fann ég lítið fyrir þessu ef ég snögghemlaði. Getur verið að það sé kominn tími til að skipta um diska?
11.06.2006 at 19:31 #554246Ég fór ekki á sýninguna en var að ræða við einn kunningja minn áðan sem ég hef hingað til haldið að hefði engan áhuga á jeppum. Hann sagði mér að það áhugaverðasta hefði verið bás 4×4 og Tomcat bílarnir. Hummerinn vakti sérstaka eftirtekt hjá honum (hafði meiri áhrif en ofursportarinn).
11.06.2006 at 19:27 #554382Persónulega finnst mér að jeppar eigi að vera með veltiboga eða veltibúr.
.
Það er á mörkunum að hús jeppa geti borið bílinn óbreyttan. Þegar fallhæð er orðin einhver þá (eins og t.d. ef keyrt er fram af hengju) er líklegt að flestir ef ekki allir jeppar leggist saman (ef hann er án veltibúrs eða boga).
.
Tveir kunningjar mínir væru ekki á lífi í dag ef Hiluxinn sem þeir voru á hefði ekki verið með búr.
.
Þetta er ekki aðeins okkar mál því að við erum yfirleitt ekki einir í bílnum, og svo mun ótímabært fráfall okkar líklegast hafa áhrif á miklu fleiri en okkur.
-
AuthorReplies